Árdís - 01.01.1949, Blaðsíða 51

Árdís - 01.01.1949, Blaðsíða 51
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna 49 fluttu þau vestur um haf ásamt fjölskyldu sinni, eða þeim parti hennar sem ekki var farin á undan þeim, en það voru þau, Sigríður, Ari og Guðmundur. Aðkoma Rebekku og manns hennar í Nýja íslandi árið 1876 var ekki glæsileg. Engin húsakynni, engir vegir, enginn bústofn og ofaná alla þá erviðleika bættist veturinn 1877, með bóluveikina sem geysaði um þessa nýstofnuðu byggð íslend- inga og hertók svo að segja hvert einasta heimili í henni Það er undir þessum kringumstæðum og nálega óviðráðanlegu andstæðum að Rebekka fær eldskírn sína í Ameríku. Hún var eina konan í byggðinni sem var lærð ljósmóðir og hafði nokkra æfingu í hjúkrunarstörfum, hvorutveggja hafði hún lært hjá Þórði Tomsyni lækni á Akureyri, og því líklegust per- sóna til 'hjálpar í þessum raunalegu og erviðu kringumstæðum ný- lendu fólksins. Rebekka brást heldur hvorki vonum fólksins né heldur embættisköllun sinni og er til þess tekið enn í dag hve vel þessi íslenzka kona reyndist þá í baráttu nýlendu fólksins við örbygð, dauða og örvænting. Nótt og dag var hún á ferðinni á meðal þess í vegleysum, vondu veðri og vetrar hörkum, að hjúkra, hughreysta og að lækna, og þeir vóru víst ekki margir þá í þeirri ungu en ósjálfbjarga byggð sem ekki dáðu og þökkuðu hina skörulegu en þó yfirlætislausu og óeigingjörnu framkomu Rebekku. Árið 1881 fluttu þau Jón og Rebekka til Winnipeg, var Jón þá orðinn svo veikur að það varð að bera hann út í bátinn sem flutti þau til Winnipeg. Jón lést þar eftir tveggja vikna legu. I Winnipeg hélt Rebekka áfram ljósmóður og hjúkrunar störfum þar til að fæðingarstofnanir og spítalar tóku þau alment að sér. En þótt hin lærða lífstaða hennar gengi þannig smátt og smátt úr hendi henni og í hendur hins opinbera, þá lét hún ekki, hugfallast. Lífsskoðun hennar og lífs þróttur leyfði slíkt ekki, því athafna þrá hennar var mikil og sú lífsskoðun staðföst að það væri blátt áfram synd gagn- vart samfélagi því, sem maður væri félagi í og sínu eigin velsæmi að leggja árar í bát, var afar sterk hjá henni. Hún bjó sér heimili við Young Stræti í Winnipeg þar sem hún rak ofurlitla verzlun í mörg á, auk þess tók hún róttækan þátt í mál- um og athafnalífi íslendinga í borginni fram á svo að segja síðasta æfidag sinn, með einlægni, festu og rausn. Rebekka var fædd á Litluströnd við Mývatn, 8. febrúar 1830.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Árdís

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.