Árroði - 01.01.1937, Blaðsíða 11

Árroði - 01.01.1937, Blaðsíða 11
L R R O Ð I 11 legri plágu skal hjartanlega biðja, — þvi að stundum er guð svo skapi farinn, að hon- um fiun8t þóknanlegt, að hegna hinum góðu samhliða þeim vondu i landinu. — Hafið því ráð endurlausnarans, minir elsk- anlegir, (Lúk. 18.): »Biðjið óaf- látanlega, og letjist ekki — því hvers vegna skyldi guð ekki frelsa sina útvöldu, þótt honum þóknaðist að láta hjálpina drag- ast? Sannlega segi ég yður: «Hann mun frelsa þá. — Vor bænastaður er heilagur staður! Þar er guðs musteri! Og hvar sem það er, þá er öll guðdóms- ins þrenning þar á tali við oas: öll óhreinindi drambseminnar, alt endemi sjálfsþóttans á þar í burtu að vera. Hvert andsvar fær nú þessi angraða mann- eskja upp á sina auðmjúku bæn. Það er ekki gott að taka brauð- 'ið barnanna og kasta því fyrir hundana. Hörð var þessi ræða: Og hversu máttl Drottinn þung- legar svara? En ekki féllst henni hugur við alt þetta, heldur s\ar- ar hún: »Satt er það, herra, en þó eta hundarnir mola þá, er detta af borðum drottna þeirra. — Þótt Abrahams munnur hefði hér verið kominn til að keppa við guð með bæninni um Só- dóma (Gen. 18.), þá hefði hann ekki kunnað betur að mæla. Hún þykkist ekki við þessi sannyrði; heldur því meir sem hún er óvirt, þess auðmjúkarí er hún að biðja. Hina hörð- UBtu freistingu gjörir hún að sæt- ustu huggun. — Fyrir þessari svo öflugu trú lét hinn almátt- ugi sigrast. Hans hjarta brast í honum, svo hann 'hlaut henni miskunnsamnr að reynast. — Brunnur mizkunnsemdanna varð að opnaBt í slíkri hræringu, svo að þaðan útfiaut einn lifandi náðarstraumur til að endurnæra þessarar kvinnu sorgbitið hjarta. — Svo að ætið verði sönnur á hans máli: »Hvern þann, sem til mín kemur, vil ég ekki frá mér reka« (Jóh. 6.). — Athuga nú kristinn maður nokkuð um þín efni hér út af: Munt þú i guðs augliti betur á þig kominn en einn hundur? — Þú ert skírður og inn tek- inn í guðs sáttmála. Hún ekki. Hún var heiðin. Þú átt kost á, að heyra eða lesa guðs orð dag- lega, þér til andlegrar upp- fræðslu og trúarstyrkingar. En hún heyrði aðeins sagt frá Jesú. — En hygg að, hvað endurlausnarinn segir: Drotn- ingin af Arabia mun upprisa á efsta degi, og dæma þessa kyn- slóð. Hún kom um langa vegu að hayra speki Salómons; og sjáið: Hér er meiri en Salómon

x

Árroði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árroði
https://timarit.is/publication/757

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.