Árroði - 01.01.1937, Blaðsíða 23

Árroði - 01.01.1937, Blaðsíða 23
1 R R O Ð I 23 athafnir ásettar blessi. Enn í dag, sem alla stund, hann gefi, ég meður gleði, um síð ár gröfinni upp rísi. Upp til þín, ó, Jesús. langar mig. Ondin mín óskar að finna þig. Lifa i æru þar hjá þér — þeim dýrðarljóma, sjá og skoða sem hann er sælunnar blóma. íorn veröld finnst þá ei lengur, metorð, völd, makt, aurafengur, Sólaröld, sem þá inngengnr. Aldrei kom þar tímatal. Ljúfi Jesús, lausnari minn, leið mig inn þangað. :,: Langt finst mér, lifandi Guð veit það. Hvar ég er, í hverjum og einum stað, ■alt þangað til að ég finn minnjelskhugann góða; hlakkar til þess hugurinn hans dýrð að skoða. Mér ei kann margt nú til gleði Ijást. Við engan mann eg get hér bundið ást, utan þann, sem aldrei í raunum brást, — «r það Guðs mins sanni Son — :,:lyndið, yndið, yndið mitt er tign á hæðum, yndið, yndið, yndið mitt er tign á hæðum. :,: II. Lag: Ein kanversk kona Sál mína lystir að lifa með þér, Jesús. hjarta mitt þyrstir að hvílast hjá þér, Jesús. Geym þú mig, góður, gæzkuríkur JesÚB, minn bezti bróður, blómið himna, Jesús. Ilmandi gróður, eilíft ljósið, Jesús, þráttt þolinmóður við þinar skepnur, Jesús. Af hýrum hjartans grunni hrópa ég til þín, Jesús. Með minum munni mjúkt ég bið þig, JeBÚs: í dapri dauðans pínu dreyptu á mig, Jesús. Af undum þinum opna brjóstið, Jesús. Hygg þú að hörmum mínum, hjúkraðu mér, Jesús. Mig hríf frá heljar pínu í Himnaríkið, Jesús. Frið og fögnuð vísa fæ ég hjá þér, Jesús, er fæ þig fríðan prísa, |Frelsarinn góði, Jesús. Og þar^alla mína aftur lit ég, Jesús, er fyrir þér fáum skína fegri en sólin, Jesús. L

x

Árroði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árroði
https://timarit.is/publication/757

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.