Morgunblaðið - 05.01.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÁSTA Kristín Pálmadóttir lagði leið sína í
Byko 30. desember til að kaupa málningu.
Hún fékk tvær fötur og hilluverðið var
3.490 kr. Þegar á kassa kom segist Ásta
hafa verið rukkuð um næstum tvöfalt
verð en hún fékk því framgengt að hillu-
verðið yrði látið standa.
Ásta áttaði sig tveimur klukkustundum
síðar á því að hún þyrfti á meiri málningu
að halda. Hún fór aftur í Byko og þá
hafði hilluverðinu verið breytt til sam-
ræmis við kassaverðið. Ásta segist ekki
hafa sætt sig við þennan mikla mun og
farið út málningarlaus. 1. janúar skoðaði
hún verðið á vefsíðu Byko og þá var sama
málning á rúmar 7 þúsund krónur. Síðan
lagði Ásta leið sína á útsölu í Byko 3. jan-
úar og keypti málningarfötuna á 30% af-
slætti. Þá kostaði málningin 3.990 krónur
en miðað við það var upprunalega verðið
5.700 krónur.
Viðskiptavinir Byko hafa því getað
keypt málningu fyrir fimm mismunandi
upphæðir þessa fáu daga.
Málningar-
fata: 5 verð
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
TRYGGVI Axelsson, forstjóri Neytenda-
stofu, segir ábendingum um verðhækkanir í
aðdraganda útsölu heldur hafa fjölgað.
Ástæðan geti verið að verslunareigendur
séu gjarnari á að breyta verðmerkingum eða
að neytendur séu duglegri að láta vita. „Það
tínast inn til okkar ábendingar um að verð
sé hækkað fyrir útsölu og svo fært niður í
upprunalega verðið á útsölu,“ segir Tryggvi
og bætir við að í sumum tilvikum séu verð-
merkingar límdar yfir eldri merkingar og
því einfalt að sjá hvert verðið var. „Lögin
eru skýr og það má ekki auglýsa útsölu
nema að um raunverulega lækkun sé að
ræða.“
Bannað að blekkja
Tryggvi segir ólöglegt að hagræða verði
þannig að afslátturinn líti út fyrir að vera
meiri en hann er og bendir á að Neyt-
endastofa geti beitt sektum gagnvart fyr-
irtækjum sem verða uppvís að því að
blekkja neytendur vísvitandi. „Það skiptir
miklu máli að neytendur séu vel á verði,“
segir Tryggvi og bætir við að allar ábend-
ingar séu vel þegnar. Þá sé hægt að koma
gögnum til Neytendastofu sem geti auðveld-
að að sanna umrætt athæfi.
Verð hækkað og lækkað
Útsöluvaran í sumum tilfellum á upprunalegu
verði Varðar við lög að blekkja neytendur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hvað kostar? Misdýrt getur verið að mála.
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir ut-
anríkisráðherra fordæmir innrás
Ísraelshers á Gazaströndina og
segir skelfilegt að svo mikils afls-
munar sé neytt gagnvart saklausu
fólki sem hvergi kemst í burtu og
hefur ekki aðgang að nauðþurft-
um.
„Báðir aðilar hafa gerst brotleg-
ir við alþjóðleg mannúðarlög og
beint vopnum sínum að almennum
borgurum,“ segir hún og vísar til
eldflauga sem Hamas beinir að
borgaralegum skotmörkum í Ísr-
ael.
Ójafn leikur
„En það er ólíku saman að jafna
hvort við erum að tala um heima-
tilbúnar eldflaugar eða her sem er
einhver sá tæknivæddasti sem um
getur. Ísraelar neyta aflsmunar og
að auki er Gaza hernumið land
sem Ísraelar hafa skyldum að
gegna gagnvart. Þar hafa þeir
brugðist,“ segir Ingibjörg og bend-
ir á að Palestínumenn séu innilok-
aðir á svæðinu. „Þó að þeir vildu
flýja geta þeir það ekki. Þetta er
sú mynd sem við verðum að hafa í
huga og við hljótum þ.a.l. að gera
ríkari kröfur til Ísraelsstjórnar.“
Skömmu áður en Ingibjörg sendi
frá sér tilkynningu um fordæm-
ingu á árásinni sagði Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, varafor-
maður Sjálfstæðisflokks, í viðtali í
hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að
ekki væri unnt að fordæma árásir
Ísraelsmanna að svo stöddu. Ríkis-
stjórnin hefði ekki rætt málið.
Ingibjörg Sólrún segist telja að
þar hafi Þorgerður verið að vísa til
þess að ríkisstjórnin hafi sem slík
ekki tekið afstöðu til innrás-
arinnar. Ekki sé mikil hefð fyrir
því að það sé gert. halla@mbl.is
Morgunblaðið/Reuters
Fordæming Utanríkisráðherra seg-
ir báða aðila hafa gerst brotlega.
Fordæmir
árás á Gaza
JÓLALJÓSIN fegra umhverfið á fyrstu dögum
nýs árs. Þar fór ung konan um á reiðhjóli í gær í
þokunni. Hitinn var aðeins þrjár gráður á hádegi
í gær og lækkaði niður í eina þegar leið á daginn.
Skyggni nam aðeins þrjú hundruð metrum.
Þrátt fyrir að hann hafi hangið þurr má búast
við úrkomu í dag, bæði sunnan- og vestanlands.
Spurning hvort unga konan kýs þá þennan
heilsusamlega ferðamáta?
Margvísleg ljósin blika í Lækjargötunni
Morgunblaðið/Ómar
Hjólar um mannlaus gatnamótin í þokunni
MOSAIC Fashions er að hefja við-
ræður við lánardrottna til að
tryggja framtíð félagsins, að því er
fram kom í frétt The Sunday Times
í gær.
Gunnar Sigurðsson, forstjóri
Baugs, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að Kaupþing væri lang-
stærsti lánardrottinn félagsins og
hluthafi þar að auki. „Við höfum
verið í stöðugum viðræðum við
Kaupþing í framhaldi af banka-
hruninu á Íslandi,“ sagði Gunnar.
Unnið hafi verið að langtíma fjár-
mögnun félagsins en menn hafi vilj-
að sjá hvernig jólaverslunin yrði áð-
ur en lengra yrði haldið. Hún var
almennt erfið í Bretlandi en Gunnar
sagði að flest vörumerki Mosaic
hefðu komið nokkuð vel út eftir jólin
og að lausafjárstaða Mosaic væri í
lagi.
„Það verða klárlega viðræður og
við sjáum ekki annað en að félagið
haldi áfram uppbyggingu á sínum
vörumerkjum og haldi áfram rekstri
í öllum sínum búðum,“ sagði Gunn-
ar. Hann sagði netverslun hafa
gengið mjög vel og uppbyggingu
Karen Millen öra. Í fréttinni segir
að Mosaic greiði ekki vexti af skuld
sinni við Kaupþing, sem er áætluð
um 400 milljónir punda (um 70 millj-
arðar). Gunnar sagði þetta rangt,
félagið stæði í skilum við Kaupþing.
Steinar Þór Guðgeirsson, formað-
ur skilanefndar Kaupþings, kvaðst
ekki geta tjáð sig um viðskipti ein-
stakra viðskiptavina þegar hann var
spurður hvort það væri rétt hjá
breska blaðinu að Mosaic greiddi
ekki af lánum. Almennt talað sagði
hann að lánasamningar gamla
Kaupþings við fjölda fyrirtækja
væru enn virkir og það væri m.a.
hlutverk skilanefndarinnar að sjá
um að staðið væri við greiðslur og
afborganir af lánum. gudni@mbl.is
Mosaic í stöðugum viðræðum
við Kaupþing eftir bankahrun
Breska blaðið The Sunday Times segir Mosaic Fashions eiga í erfiðleikum
Í HNOTSKURN
»Mosaic Fashions er að nærhálfu í eigu Baugs og að
einum fimmta í eigu gamla
Kaupþings, samtals eiga þau
70%. Aðrir hluthafar eru
breskir.
»Félagið á m.a. Karen Mill-en, Oasis og Principles.
Það er víða í samvinnu við
Debenhams og House of
Fraser í stórum vöruhúsum.