Morgunblaðið - 05.01.2009, Síða 7

Morgunblaðið - 05.01.2009, Síða 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is FIMM eru í einangrun á Sjúkrahús- inu á Akureyri eftir að hafa verið greindir með nóróveiru. Slíkar veirur valda iðrasýkingu og smit berast hæglega manna á milli með saurmengun, hósta eða munnslími. „Einkennin eru yfirleitt slæmar magakveisur, uppköst, niðurgangur og stundum hiti. Hjá heilbrigðu fólki gengur sýkingin jafnan yfir á einum til tveimur dögum en hún leggst þyngra á fólk sem er veikt fyrir. Af þeim sökum er mikið lagt upp úr að einangra fólk, sem ber sýkinguna, inni á spítölunum svo það flytji ekki sýkinguna yfir á aðra,“ segir Har- aldur Briem sóttvarnalæknir. Algengar sýkingar Nóróveirur eru algeng orsök iðra- sýkinga í þjóðfélaginu. Á undanförn- um árum hafa nóróveirufaraldrar í vaxandi mæli sett mark sitt á starf- semi sjúkrahúsa og öldrunarstofn- ana. Heilu deildirnar geta lokast tímabundið meðan faraldur gengur yfir ef sjúklingar eða starfsmenn veikjast. Haraldur segir gripið til margvís- legra úrræða til að sporna við út- breiðslu sýkingarinnar. „Í venjuleg- um tilfellum er fólki gert að halda sig heima og vera ekki að umgangast aðra of mikið á meðan sýkingin gengur yfir. Einnig er lögð áhersla á að gæta vel að hreinlæti. Þetta getur verið erfiðara inni á sjúkrahúsum, enda eru það lokaðar einingar. Þar er þess þó gætt að þrífa alltaf vel þar sem einhver sýktur hefur verið.“ Þá getur einnig þurft að setja fólk í einangrun líkt og í fyrr- nefndu tilfelli á Akureyri. Afar mikilvægt þykir að þeir sem veikir eru heimsæki ekki ættingja eða vini á sjúkrahús eða öldrunarstofn- anir enda getur slíkt hæglega kom- ið af stað faraldri innan stofnunar- innar. Illskeytt en ekki banvæn Haraldur segir engin lyf eða bólu- efni vera til við veirunni skæðu. „Einkennin dvína fljótt hjá heil- brigðu fólki og það er jafnan fljótt að ná sér. En fólk með veikara ónæm- iskerfi; þeir sem eru veikir fyrir eða aldraðir, eru berskjaldaðri fyrir veir- unni og geta veikst illa.“ Skæð nóróveira gerir vart við sig á Norðurlandi Fimm í einangrun vegna iðrasýkingar Morgunblaðið/ÞÖK Veira Loka getur þurft deildum á sjúkrastofnunum vegna sýkingarhættu. Í HNOTSKURN »Nóróveirur eru algeng or-sök iðrasýkinga og til- fellum hefur farið fjölgandi síðustu ár. »Sóttvarnalækni barst ínóvember tilkynning um alvarlegan nóróveirufaraldur á sjúkrahúsi á Austurlandi. CINTAMANI harmar umfjöllun um framleiðslu fyrirtækisins í Morgun- blaðinu sl. laugardag og órök- studdar alhæfingar sem þar koma fram, að því er segir í yfirlýsingu frá fyrirtækinu. Í fréttinni sem vís- að er til gagnrýnir Hanna María Arnórsdóttir dýralæknir Cintam- ani fyrir að nota loðfeldi fram- leidda í Kína í útivistarfatnað. Skúli J. Björnsson, stjórnar- maður og einn eigenda, segir að í kjölfar þessarar fréttar hafi fyrir- tækinu borist haturspóstar frá fólki sem kalli starfsmennina öllum illum nöfnum. Honum finnst þessi gagnrýni mjög ómakleg. Cintam- ani hafi spurst fyrir um uppruna skinnanna og fengið staðfest að þau séu vottuð. „Það er okkur mikið hjartans mál að ekki sé verið að nýta skinn af dýrum sem fengin eru með þeim hroðalega hætti sem gefið er í skyn að við gerum,“ sagði Skúli. „Við höfum ítrekað sett það skilyrði að skinnin séu keypt af vönduðum og viðurkenndum framleiðanda. Við höfum fengið vottorð um að svo sé.“ Skúli benti á að helmingur af öllu leðri sem framleitt er í heim- inum komi frá Kína. Hann sagði að velflestir framleiðendur útivistar- fatnaðar noti skinn þaðan. „Hún virðist gefa sér að þessi skinn séu af dýrum sem illa hefur verið farið með,“ sagði Skúli. Margt að breytast í Kína „Þetta er árás á okkur sem erfitt er að bregðast við. Við höfum skír- teini frá Kína en það er blásið á þau. Hún segir að í Kína séu engin dýraverndarlög en þar eru samt starfandi mörg dýravernd- arsamtök og Kínverjum þykir ekki síður vænt um dýrin sín en okkur. Ég skil vel að fólk vilji að vel sé farið með dýr en það er út í hött að gefa sér að skinnin á okkar úlpum séu illa fengin eða eins og þarna er lýst.“ Skúli segir að þau hjá Cintamani fari reglulega til Kína. Þau heim- sæki verksmiðjurnar sem fram- leiða fyrir fyrirtækið og fylgist með því að þar sé farið eftir reglum. T.d. að þar starfi ekki fólk yngra en 18 ára og að allur aðbún- aður starfsfólks og framleiðsluferl- ar séu til fyrirmyndar. Finna megi að ýmsu í Kína en þar sé líka margt að breytast til hins betra. Það gerist ekki síst með auknum viðskiptum við alþjóðleg fyrirtæki sem geri kröfur um að alþjóðlegir staðlar og viðmið séu virt. gudni@mbl.is Loðdýr Marðarhundaskinn eru m.a. notuð í fataframleiðslu í Kína. Skinnin eru vottuð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.