Morgunblaðið - 05.01.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.01.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009 Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is EKKI er enn vitað nákvæmlega hvernig drengurinn, sem handtekinn var í Fellahverfinu á föstudagskvöld fyrir að bera á sér hlaðna skamm- byssu, komst yfir vopnið. Vitað er að byssan var í eigu föður drengsins og hann hafði fyrir henni tilskilin leyfi þrátt fyrir að ólöglegt sé að flytja slík vopn til landsins. „Það er hægt að fá undanþágur frá banninu og fá leyfi fyrir skot- vopnum sem þessu. Eigandi byss- unnar hefur leyfi fyrir henni,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfir- maður rannsóknardeildar lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu. Drengurinn tók byssuna án vitundar föðurins. Eftirmál óljós Ekki hefur fengist upplýst hvers vegna maðurinn, sem er fyrrverandi lögreglumaður, hefur leyfi fyrir byssunni eða hvenær það var gefið út. Málið er enn í rannsókn. Skýrslu- tökur í málinu miða að því að upplýsa hvernig drengurinn, sem er 16 ára gamall, komst yfir vopnið. Sú stað- reynd getur haft áhrif á hver eftir- málin verða. „Það er verið að rannsaka málið og það á eftir að skoða allar hliðar þess. Ef það kemur í ljós að geymslu vopnsins hefur verið ábótavant eða farið hefur verið í bága við reglur verður að skoða hvaða viðurlög liggja við því – hvort sem það er sekt eða mögulega svipting leyfis.“ Hvar var byssan geymd?  Byssan í eigu föður drengsins sem hafði fyrir henni tilskilin leyfi  Ekki enn vitað hvort vopnið var geymt með þeim hætti sem reglur kveða á um Í HNOTSKURN »Ólöglegt er að flytjaskammbyssur til landsins en hægt er að fá undanþágu frá banninu. Eigandi byss- unnar hafði fyrir henni leyfi. »Eigi menn fleiri en tvöskotvopn ber þeim að geyma þau í læstum skáp fjarri skotfærum. EINAR K. Guðfinnsson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, telur að krónan styrkist hratt á næstunni og skuldastaða sjávar- útvegsfyrirtækja lagist þar með. „Ég tel ekki þjóna miklum til- gangi að vera að álykta mikið um skuldir sjávarútvegsins, eða ann- arra fyrirtækja, út frá því gengi sem nú er. Skuldastaðan er þó al- varleg, ég geri ekki lítið úr því. Það bendir allt til þess að krónan styrk- ist mikið á næstu mánuðum. Fyrir því eru augljósar ástæður. Það hef- ur verið jákvæður vöruskiptajöfn- uður síðustu mánuði. Það hefur verið mikið innstreymi af útflutn- ingstekjum og það hefur gert meira en að vega upp kostnað af innflutn- ingi. Þess vegna tel ég að krónan styrkist, og skuldastaðan þar með batna,“ segir Einar. Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu skulda sjáv- arútvegsfyrirtæki í landinu 25-30 milljarða króna miðað við núver- andi gengi, vegna afleiðu- og gjald- miðlaskiptasamninga sem fyr- irtækin gerðu við gömlu bankanna. Stærstur hluti þessara samninga var við gamla Landsbankann en virði samninga sem tilheyra honum er um 18 milljarðar. Sjávarútvegs- fyrirtæki hafa átt í viðræðum við Landsbankann um hvernig sé mögulegt að gera upp samningana. Þau vilja að samningarnir séu gerð- ir upp á gengi sem er lægra en nú er. Gengisvísitalan er nú um 215. Einari finnst koma til álita að gera samningana miðað við lægri geng- isvísitölu en nú er. „Við þessar aðstæður sem nú eru uppi er gengið mjög afbrigðilegt og í raun ekki til neitt raunverulegt markaðsverð á krónunni sem hægt er að styðjast við til uppgjörs við þessar aðstæður.“ magnush@mbl.is Skuldir minnka Segir markaðsvirði krónunnar vanta Morgunblaðið/Árni Sæberg Á sjó Skuldir sjávarútvegsfyr- irtækja munu minnka. FRÉTTASKÝRING Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is KOMUGJALD á sjúkrahús er nú al- mennt 1.400 kr. hærra en almennt komugjald á slysadeild eða bráða- móttöku. Það er vegna þess að það fyrrnefnda innifelur alla þjónustu. Þeir sem leita þjónustu slysadeildar eða bráðamóttöku þurfa auk komu- gjaldsins að greiða sérstaklega fyrir ýmsar rannsóknir, t.d. röntgen- myndir, að sögn Hönnu Katrínar Friðriksson, aðstoðarmanns heil- brigðisráðherra. Hún sagði að markmiðið með komugjaldi á sjúkrahús hefði verið að jafna þann mun sem var á milli þeirra sem komu á slysa- eða bráðadeild, án þess að leggjast inn, og þeirra sem lagðir voru inn. Þeir fyrrnefndu greiddu komugjald og rannsóknir en hinir ekkert. Komugjald vegna innlagnar á sjúkrahús, þó ekki á fæðingardeild, tók gildi um áramótin. Það er al- mennt 6.000 kr. en helmingi lægra fyrir elli- og örorkulífeyrisþega. Börn yngri en 18 ára og börn með umönnunarkort geiða ekkert. Rætt um svipað gjald Þegar rætt var um upptöku komugjaldsins á Alþingi kom fram að með því væri verið að auka sam- ræmi í gjaldtöku. Af umræðunni mátti ráða að komugjaldið á spítala yrði svipað og komugjald á bráða- móttöku. Raunin varð sú að komu- gjald á spítala er nú almennt 6.000 kr. en 4.600 kr. almennt á slysadeild eða bráðamóttöku. Í umsögn meirihluta heilbrigðis- nefndar um komugjaldið segir að markmiðið með því sé m.a. „að auka samræmi í gjaldtöku í heilbrigðis- kerfinu, en þegar er innheimt gjald vegna komu eða innritunar á m.a. göngudeildir, dagdeildir, rannsókn- ardeildir og bráðamóttökur sjúkra- húsa.“ Einnig að með breytingunni sé komið á „samræmi í gjaldtöku af innlögn annars vegar og þjónustu á göngu- eða bráðadeildum án inn- lagnar hins vegar.“ Þá telji nefndin rökrétt „að meira jafnræði sé á milli gjalda hvort sem einstaklingur er lagður inn eða nýtir sér göngudeild- ir eða bráðadeildir sjúkrahúsa.“ Ásta Möller, formaður heilbrigð- isnefndar, sagði að upphæð komu- gjaldsins hefði ekki verið nefnd beinlínis í heilbrigðisnefnd né held- ur hefði upphæð þess borist frá heil- brigðisráðuneytinu. Í umræðum hefði hins vegar verið gengið út frá því að grunngjaldið yrði svipað og þegar farið væri á bráðamóttöku. „Mér fannst við frekar ganga út frá því að þetta væri svipuð upphæð og inn á slysadeildina,“ sagði Ásta. Hún benti á að ofan á komugjald á slysadeild gætu bæst við ýmis önnur gjöld. Álfheiður Ingadóttir, alþingis- maður og fulltrúi í heilbrigðisnefnd, sagði að tveir fulltrúar heilbrigðis- ráðuneytis auk fulltrúa Landspítala hefðu verið meðal þeirra sem komu á fund nefndarinnar. Eins og rakið er í umsögn minni hluta heilbrigð- isnefndar, þeirra Álfheiðar, Þuríðar Backman og Eyglóar Harðardóttur, mun meðal annars hafa komið fram á fundinum að nýtt innlagnargjald myndi „líklegast verða að svipaðri fjárhæð og komugjöld sem nú eru innheimt á slysa- og bráðadeildum, eða um 4.000 kr.“ Í greinargerð með bandorminum þar sem kveðið var á um upptöku komugjalds kemur m.a. fram að komugjöld vegna innlagnar eru inn- heimt á sjúkrahúsum í Svíþjóð og Finnlandi og því sé síður en svo um einsdæmi að ræða á Norðurlöndun- um. Morgunblaðið/Júlíus Gjöld Greitt er komugjald hvort sem menn koma á slysadeild eða leggjast inn, ekkert komugjald er á fæðingardeild. Gjaldtaka samræmd með komugjaldi Nú greiða allir komugjald sem fá þjónustu á sjúkrahúsi »Almenntgreiða sjúkratryggð- ir nú 6.000 kr. komugjald þegar þeir leggjast inn á sjúkrahús. »Greiðaþarf al- mennt 4.600 kr. grunn- gjald fyrir komu á slysa- deild og fyrir ýmsar rann- sóknir og þjónustu ofan á það gjald. Hanna Katrín Friðriksson Álfheiður Ingadóttir Ásta Möller Í HNOTSKURN HÚSBÍLL af Volkswagen Transporter- gerð, sem lög- reglan leitaði að í gær, fannst síðdegis í gær í grennd við Þingvelli. Þegar lög- reglan lýsti eftir bílnum kom fram að óttast væri um eiganda bif- reiðarinnar en síðast var vitað um ferðir hans á nýársdag. Að sögn lögreglunnar amaði ekkert að manninum þegar hann fannst. Maður og bíll fundust Fundinn Lögreglan leitaði að þessum bíl. „ÞETTA leggst bara vel í mig og ég er bjartsýn,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir, utanrík- isráðherra, en hún fer í geisla- meðferð á Karól- ínska sjúkrahús- inu í Stokkhólmi í lok næstu viku. Um er að ræða lokahnykkinn á meðferð sem hófst í september þeg- ar Ingibjörg Sólrún var greind með heilaæxli og í Stokkhólmi eru til tæki sem ekki eru til hér á landi. „Þessi aðgerð tekur ekki nema einn dag. Eftir því sem mér er sagt tekst þetta í 85-90% tilvika og eft- irköstin eru lítil,“ segir Ingibjörg Sólrún og bætir við að henni hafi verið ljóst að hún gæti þurft að fara í þessa aðgerð og þetta komi því ekki á óvart. Hún áætlar að vera í 3-5 daga frá vinnu. halla@mbl.is Þetta leggst bara vel í mig Ingibjörg Sólrún Gísladóttir EKKERT nýtt hefur gerst í söl- unni á Kaupþingi í Lúxemborg. Að sögn Friðjóns Einarssonar, tals- manns Kaupþings þar ytra, mun ekkert gerast í sölu bankans fyrr en seinna í vikunni. „Það hefur ekkert gerst í málinu síðan fyrir jól og ég sé ekki fram á að neitt gerist fyrr en á næstu vikum. Þá ættu málin að taka að skýrast nokkuð.“ Viðræður um sölu bankans hafa lengi staðið við líbýskan fjárfest- ingabanka. Fullyrt hefur verið í fréttum að kaupverð bankans sé 1 evra en kaupendur þurfi að leggja 20 milljarða króna hlutafé inn í bankann. Viðskiptavinir bankans eru 23 þúsund og þeir eiga sam- tals um 800 milljónir evra hjá bankanum. Gangi kaupin eftir fá viðskiptavinir innstæður sínar greiddar út. haa@mbl.is Óbreytt staða hjá Kaupþingi í Lúxemborg HALLDÓR Ás- grímsson, fyrr- verandi forsætis- ráðherra og formaður Fram- sóknarflokksins, er laus úr önd- unarvél. Halldór dvelur á gjör- gæsludeild Land- spítala í Fossvogi vegna lungna- bólgu. Hann var tekinn úr önd- unarvélinni á laugardag. Halldór hefur dvalið á sjúkrahús- inu frá því fyrir jól og er líðan hans eftir atvikum, að sögn sérfræðings á gjörgæsludeildinni. Halldór úr öndunarvél Halldór Ásgrímsson STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.