Morgunblaðið - 05.01.2009, Side 17

Morgunblaðið - 05.01.2009, Side 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009 Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is TUGÞÚSUNDIR ísraelskra her- manna nutu aðstoðar skriðdreka er þeir börðust við Hamas-liða á Gaza- svæðinu á sunnudag. Ísraelski her- inn umkringdi Gaza-borg snemma í gærmorgun og skipti strandsvæðinu í tvennt til að koma í veg fyrir að Ha- mas-samtökin og önnur herská sam- tök gætu eflt lið sín. Árásin er stærsta hernaðaraðgerð Ísraela frá Líbanonsstríðinu árið 2006. Tala látinna Palestínumanna er komin yfir 500 frá því að árásir Ísr- aela hófust og þar af hafa 87 börn lát- ist. Á þriðja þúsund hafa særst. Staðsetning ísraelsku hersveit- anna hafa að sögn lækna á svæðinu komið í veg fyrir afhendingu hjálp- argagna á sjúkrahús Gaza-svæðisins. Palestínski heilbrigðisráðherrann, Fathi Abumoghli, sagði í gær að ísra- elski herinn hamlaði ferðum sjúkra- bíla og því létu margir lífið áður en þeir kæmust í hendur lækna. Búist er við að tala látinna fari ört hækk- andi Mikið álag á sjúkrahúsum „Hingað hefur verið stöðugur straumur á hverjum degi en síðasta sólarhringinn hefur fjöldinn þrefald- ast,“ hefur CNN eftir norska lækn- inum Erik Fosse, sem starfar á helsta sjúkrahúsi Gaza-svæðisins. Fosse sagði að um 30% þeirra sem komið væri með á sjúkrahúsið væru börn, látin eða særð. „Við gerum að- gerðir á göngunum, sjúklingarnir liggja alls staðar og fólk deyr áður en það hlýtur meðferð,“ sagði Fosse. Landherinn réðist til atlögu á Gaza-svæðinu síðla laugardags og eru árásirnar á landi annar hluti áætlunar Ísraela sem legið hafði í loftinu eftir linnulausar loftárásir lið- innar viku. Áætlunin miðar að því að stöðva eldflaugaskot Hamas- samtakanna á Ísrael. „Ég get horfst í augu við ykkur öll í dag er ég segi að stjórnvöld gerðu allt sem í þeirra valdi stóð áður en ákvörðun var tekin um að halda að- gerðunum áfram. Aðgerðirnar reyndust nauðsynlegar,“ sagði for- sætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, í fyrstu opinberu yfirlýsingu sinni vegna hernaðaraðgerða Ísraela. Árásir Ísraela hafa verið gagn- rýndar af mörgum leiðtogum heims og er krafan um gagnkvæmt vopna- hlé sterk. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur ekki getað komið sér saman um yfirlýsingu sem hvetur til vopnahlés. Tillaga um slíka yfirlýs- ingu frá Líbýu, sem á sæti í ráðinu, þótti of hlutdræg þar sem ekki var minnst á eldflaugaárásir Hamas. Fulltrúar Bandaríkjanna í örygg- isráðinu sögðu að vopnahlé á þessu stigi yrði aðeins til að færa stöðu mála á Gaza-svæðinu aftur í sama farveg og fyrir innrás Ísraela. Fawzi Barhum, talsmaður Hamas- samtakanna, sagði viðbrögð örygg- isráðsins vera farsa og að örygg- isráðinu væri stýrt af bandarískum yfirvöldum. Varaforseti Bandaríkjanna, Dick Cheney, varði landhernað Ísraela um helgina og í viðtali við CBS- sjónvarpsstöðina sagði hann að loft- árásir einar dygðu ekki til að eyða eldflaugaskotpöllum Palest- ínumanna. Mótmæli úr báðum áttum Mótmælafundir vegna árása Ísr- aela voru haldnir í mörgum borgum heims. Þúsundir komu m.a. saman í Beirút, höfuðborg Líbanons og not- aði lögreglan háþrýstidælur og tára- gas til að beina hundruðum þeirra frá bandaríska sendiráðinu. Þá komu um 12.000 manns saman í París í gær og veifuðu ísraelska fán- anum og sungu hebreska sálma til stuðnings málstað Ísraela og var þar um að ræða regnhlífarsamtök franskra gyðinga. Samkoman var var haldin daginn eftir stór fjöldamót- mæli gegn Ísrael í París. Vopnahlé ekki í augsýn AP Múgur Fjöldamótmæli voru haldin víða um heim í gær þar sem áframhaldandi árásum Ísraela á Gaza var mótmælt og leiðtogar fjölmargra ríkja heims hafa hvatt Ísraela og Hamas-samtökin til að lýsa yfir vopnahléi á nýjan leik.  Ísraelar sendu landherinn inn á Gaza um helgina og hefur það vakið sterk viðbrögð þjóða heims  Forsætisráðherra Ísraels segir áframhaldandi aðgerðir nauðsynlegar til að vinna á Hamas Í HNOTSKURN »Ehud Olmert, forsætisráð-herra Ísraels, hefur, eftir samtöl við leiðtoga margra vestrænna ríkja, hafnað beiðn- um um að árásum verði hætt. »Árásir Ísraela á Gaza hafastaðið frá 27.desember síð- astliðnum og hafa yfir 500 manns látið lífið. »Loftárásir á Gaza erugerðar einu sinni á 20 mín- útna fresti að meðaltali og eru árásirnar fleiri að næturlagi. Evrópusambandið mun veita þrjár milljónir evra í neyðarhjálp á Gaza- svæðinu. Sendisveit frá ESB fór í gær til Mið-Austurlanda til að þrýsta á um vopnahlé milli Ísraela og Palestínumanna. Leiðin liggur til Egyptalands, Vesturbakkans og Ísraels. Í sendisveitinni er m.a. Javier Solana, utanríkismálastjóri ESB, auk utanríkisráðherra Frakk- lands og Svíþjóðar. Óeining leiðtoga aðildarlanda ESB þótti koma berlega í ljós í gær þar sem ekki kom frá þeim sameig- inleg yfirlýsing vegna árása Ísr- aela. Þessi óeining leiðtoga aðild- arríkjanna þykir rýra tækifæri Evrópusambandsins til að vera leiðandi nú þegar forsetaembætti Bandaríkjanna er máttlítið við lok valdatíma George W. Bush. Banda- rísk yfirvöld hafa varið rétt Ísraela til að verjast eldflaugaárásum Ha- mas og sagt samtökin ábyrg fyrir því að ráðist var inn á Gaza. Tékkar fara nú með embætti for- seta ESB og á laugardag sögðu tékknesk yfirvöld að með árásum vildu Ísraelar verjast. Á sunnudag sögðu þeir yfirlýsinguna misskiln- ing og að þeir deildu almennum vilja innan Evrópu um vopnahlé. Carl Bildt, utanríkisráðherra Sví- þjóðar, gagnrýndi Ísraela harka- lega í gær fyrir að hafa stigmagn- að ástandið á Gaza. Óeining leiðtoganna veikir stöðu ESB ÞESSI rússnesku karlmenni nutu þess að dýfa sér ofan í ísvök eftir að hafa slakað á í notalegu gufubaði. Karlarnir stunduðu böðin rétt utan við Péturs- borg í gær þar sem hitastigið mældist um 13 gráður undir frostmarki. Slík böð eru vinsæl víða á norðurhveli jarðar og standa Rússar þar nokkuð fram- arlega en böðin eru iðkuð til heilsubótar. Ísböð eru einnig mjög vinsæl í Finn- landi þar sem sérstök félög eru gjarnan stofnuð sem hafa eigin aðstöðu til slíkra baða. Vinsældir ísbaða hafa aukist til muna í Kína og þá sérstaklega í Songhua-ánni, þar sem um 200.000 manns dýfa sér í ískalda ána á ári hverju. jmv@mbl.is AP Ofan í ískalda vökina FULLYRÐINGUM um að ástin sé aðeins stundargleði og dofni með árunum hefur verið gefið langt nef af vísindamönnum í New York. Með aðstoð heilaskanna fundu þeir út að fjöldi para sem hafði verið í sambandi í yfir 20 ár sýndu jafnmikil ástríðuviðbrögð og önnur pör sem höfðu nýstofnað til sam- bands og töldust því enn í ást- arbrímanum. „Niðurstöðurnar brjóta í bága við hefðbundin viðhorf til ástar- brímans, sem sýna að hann hverfi hratt á fyrstu tíu árunum, en við treystum niðurstöðunum,“ sagði Arthur Aron, sálfræðingur við Stony Brook-háskólann í New York. Um 10% af eldri pörunum sýndu sömu viðbrögð og ungu pör- in. jmv@mbl.is Ástin varir víst að eilífu DEILUR Rússa og Úkraínumanna um flutning og greiðslur fyrir jarðgas sem nú hafa staðið í nokkrar vikur eru farin að hafa áhrif á gasflutninga til Evrópu. Rússar hafa þegar stöðv- að gasflutninga til Úkraínu og saka Úkraínumenn um að stela gasi úr leiðslunum. Rúmenía, Ungverjaland, Pólland og Búlgaría hafa tilkynnt um minni þrýsting í gasleiðslum til land- anna. Nægar birgðir séu þó enn fyrir hendi. Í Rúmeníu hafa birgðir minnk- að um 30% en einnig hefur orðið vart við minnkandi gasflutninga til Tyrk- lands, Grikklands og Makedóníu. Gas nauðsynlegt til upphitunar Rússar sjá Úkraínu fyrir jarðgasi og sendir jafnframt 80% gasbirgða sinna til Evrópu um leiðslur sem liggja um Úkraínu. Mikið er í húfi að deilur landanna leysist þar sem fjórð- ungur alls jarðgass í Evrópu kemur frá Rússlandi og er gasið lífs- nauðsynlegt til upphitunar húsa að vetrarlagi. „Gasflutningar til Evrópu verða að vera áreiðanlegir og fyr- irsjáanlegir,“ sagði í tilkynningu frá forsetaskrifstofu ESB. Rússar fóru þess á leit við ESB í gær að það miðl- aði málum í deilunni en því hefur ver- ið hafnað. „Þar sem Naftogaz hleypir eftirlitsmönnum Gazprom ekki inn í gasstöðvar sínar sendum við fram- kvæmdastjórn ESB bréf þar sem far- ið var fram á eftirlit af þeirra hálfu,“ sagði talsmaður Gazprom. Úkraínska fyrirtækið hefur neitað ásökunum Rússa og jafnframt varað við því að Evrópubúar gætu staðið frammi fyrir gasskorti innan tveggja vikna náist ekki sátt í málinu. Rússar treysta ekki lengur á að flytja gas sitt um Úkraínu til Evrópu og leita annarra leiða. Þeir dæla nú gasi eftir öðrum leiðslum til að koma í veg fyrir að flutningar til Evrópu stöðvist. Ímynd Rússa sem ábyrgra orku- veitenda þykir í húfi þó að meiri skiln- ingur á stöðu þeirra þyki ríkja nú en þegar svipaðar deilur voru uppi fyrir þremur árum. jmv@mbl.is Deilt um gasið Evrópusambandið neitar að sinna eft- irliti í gasdeilu Rússlands og Úkraínu Reuters Núll Rússar hafa klippt á gasflæði til nágrannalandsins Úkraínu. Í ÞAÐ minnsta fjórir létust og tugir særðust eftir að röð öflugra jarð- skjálfta skók austurhluta Indónesíu um helgina. Stærsti skjálftinn mæld- ist 7,6 á Richterkvarða og varð norð- ur af borginni Manokwari í Vestur- Papúahéraði. Mikil skelfing greip um sig meðal íbúanna sem óttuðust flóðbylgjur en risavaxin flóðbylgja varð um 230.000 manns að bana fyr- ir fjórum árum á þessum slóðum. jmv@mbl.is Jarðskjálfti í Indónesíu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.