Morgunblaðið - 05.01.2009, Blaðsíða 33
Velvakandi 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
VIÐ HÖFUM ÞEKKST Í
LANGAN TÍMA, GRETTIR
MJÖG
LANGAN
MANNSTU EFTIR GÖMLU,
GÓÐU DÖGUNUM?
ÉG KALLA
ÞÁ SAMT
ANNAÐ
MANNSTU EFTIR ÞVÍ ÞEGAR ÉG FESTI
RÓSAKÁLIÐ Í NEFINU Á MÉR?
ÞETTA VORU
GÖMLU, HEIMSKU
DAGARNIR
HÁÞRÓUÐ
SÁLFRÆÐI-
AÐSTOÐ
GEIMKÖNNUÐURINN,
SPIFF, HEFUR VERIÐ
HANDTEKINN AF
ÓGEÐSLEGUM
GEIMVERUM
HANN KEMST BRÁTT AÐ ÞVÍ AF
HVERJU HANN VAR HANDTEKINN
HONUM VERÐUR
FÓRNAÐ...
FYRIR GUÐ
SEM ÞÆR
KALLA
„STÆRÐ-
FRÆÐI“
KALVIN,
UPP Á TÖFLU
MEÐ ÞIG
HRÓLFUR, ÞEGAR MAÐUR ER
ORÐINN JAFN GAMALL OG
ÞÚ ÞÁ VERÐUR HÆTTULEGRA
AÐ KLIFRA UPP STIGA OG
ÞESS HÁTTAR...
SÉRSTAKLEGA ÞEGAR
STIGINN LIGGUR UPP
Í KASTALA ÓVINARINS
VILTU HÆTTA
AÐ RAULA STEFIÐ
ÚR „JAWS“?!?
LALLI, VIÐ BUÐUM SITTHORU
PARINU AÐ KOMA MEÐ OKKUR Á
NEIL YOUNG TÓNLEIKANA.
HVAÐ EIGUM VIÐ AÐ GERA?
EF VIÐ
VILJUM
EKKI VALDA
ÞEIM VON-
BRIGÐUM
ÞÁ...
ÞÁ
HVAÐ?
VERÐUM VIÐ AÐ
LEYFA ÞEIM AÐ FÁ
MIÐANA OG SLEPPA
TÓNLEIKUNUM SJÁLF
NEEEIII!
ÞAÐ ER EINA
LAUSNIN
ÉG HEF ENGAN
ÁHUGA Á VERÐLAUN-
UNUM SEM JAMESON
LOFAÐI
ÞAÐ SEM ÉG
SAGÐI Í SJÓN-
VARPINU VAR SATT...
ÉG ELSKA HANN!
Ó... MARY
JANE, ER ÞETTA
MAÐURINN ÞINN?
HÚN ER AÐ HORFA Á
MANNINN SEM HÚN SEGIST
ELSKA EN HEFUR EKKI
HUGMYND UM ÞAÐ
ÁVALLT er eitthvað um að vera við hafnarbakkann, þar sem þessi bátur
svífur í lofti sem fisléttur væri, líklega hefur hann þurft aðhlynningu á
landi og er nú á leið til síns heima á sjónum.
Morgunblaðið/RAX
Við Reykjavíkurhöfn
Þjóð í vanda stödd
ÞÓNOKKUÐ stór
hluti landsmanna ætl-
ast til þess af alþing-
ismönnum að þeir
hugsi fyrst og fremst
um land og lýð og
þjóðarhag, þegar þeir
sem kjósendur gefa
einhverjum frambjóð-
andanum atkvæði sitt
í kjörklefanum. En svo
eru aðrir sem krossa
við þann frambjóðand-
ann sem þeir telja að
muni hygla sér fyrir
greiðann. Það er versl-
að með atkvæðið, ann-
aðhvort í von um að komast í
náðina eða að viðhalda áður fengn-
um forréttindum í þjóðfélaginu.
Skiptir þá ekki máli þótt það sé á
kostnað samfélagsins.
Enn aðrir greiða sitt atkvæði af
gömlum vana og láta sig engu
varða þótt kynslóðaskipti hafi orðið
á listanum og hugmyndafræðin ým-
ist horfin eða gjörbreytt.
Frægt var á sínum tíma, þegar
einn frambjóðandinn sem var svo
stálheppinn að geta treyst á slíka
kjósendur, sagði að þeir gætu boðið
fram heypoka. Hann myndi örugg-
lega ná kjöri. Já … Svo eru það
þeir sem ná kjöri og komast inn á
þing, þeir eru látnir heita því í upp-
hafi þingsetu sinnar að hlýða sam-
visku sinni fyrst og fremst. En þá
kemur mjög fljótlega í ljós að flest-
ir þeirra sem eru þangað komnir
með fulltingi tveggja síðarnefndu
fylkinganna, að þeir virðast enga
samvisku hafa. Það kemur í ljós að
þeir eru ekki ein-
staklingar, heldur
hjörð sem lætur reka
sig þangað sem hjarð-
sveininum þóknast. Og
ef einhver óhlýðnast,
þá er honum refsað
grimmilega. Já, verkin
tala. Þegar þessi þæga
hjörð hefur setið í
makindum um hríð í
þingsölum, þá dettur
þeim í hug að gera nú
eitthvað. En hvað skal
það vera? Skilyrð-
islaust eitthvað sem
ekki styggir foryst-
una.
Og þá er aðeins eitt
öruggt. Að ráðast á lítilmagnann!
Augljóst dæmi um þetta er þegar
nýkjörnum þingmönnum dettur nú
í hug að leiða hina fjölmörgu út úr
fjárhagsvandanum sem þeir hafa
verið leiddir í. Og töfralausnin er
að nota séreignarsparnaðinn (líf-
eyrisaukann) til að geta greitt af
íbúðalánunum. Hvað svo þegar
þessi sparnaður er uppurinn? Það
gerist fyrst hjá þeim sem helst
þurfa á þessum peningum að halda
þegar árin færast yfir. Þá eru þeir
illa settir og finna þá illa fyrir því
að hafa pissað í skóinn sinn. Hinir
sem hafa haft þingfararkaup finna
auðvitað ekki fyrir þessu, því þeir
eru gulltryggðir með eftirlauna-
ósómanum.
Sigurjón Antonsson,
rafmagnsiðnfræðingur.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Bólstaðarhlíð 43 | Leikfimi, bútasaum-
ur, handavinna, dagblöð, fótaaðgerð.
Dalbraut 18-20 | Leikfimi kl. 10 og
postulíns og myndlistanámskeið kl. 9-12
og 13-16.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
spilað kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl.
9.30, hádegisverður kl. 11.40 og kynning
kl. 14. Þar verður kynnt fyrirhuguð starf-
semi í Gjábakka til vors, FEBK kynnir
sína dagskrá og fleiri hópar. Hægt er að
koma fram óskum um nýjungar í starf-
inu. Allir eru hvattir til að kynna sér
hvaða möguleikar eru í boði.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Ganga
kl. 10, hádegisverður kl. 11.40 og handa-
vinna kl. 13. Á morgun 6. janúar kl. 14
verður kynning á vetrarstarfsemi.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Gönguhópur kl. 11, hádegismatur kl. 12,
bridsnámskeið fyrir byrjendur í dag og á
morgun kl. 13-16, kennari Guðmundur
Páll Arnarson, verð kr. 3000. Örfá pláss
laus, ekki er tekið við greiðslukortum.
Framhaldsnámskeið í næstu viku.
Félagsstarf Gerðubergs | Í dag er opið
frá kl. 9-16.30, leiðsögn í vinnustofum
fellur niður í dag, hefst á morgun, í gler-
skurði, umsjón Vigdís Hansen, sund og
leikfimiæfingar í Breiðholtslaug kl. 9.50.
Frá hádegi spilasalur opinn. Kóræfing
fellur niður. Heitt á könnunni allan dag-
inn, s. 575-7720.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl.
9-16 hjá Sigrúnu. Jóga kl. 9 og 10. Frjáls
spilamennska kl. 13.
Korpúlfar, Grafarvogi | Sundleikfimi
alla þriðju- og föstudaga í Grafarvogs-
sundlaug kl. 9.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu-
stund, spjall og léttar veitingar kl.10.30,
handverks- og bókastofa opin kl.11.30,
prjónaklúbbur kl.13, kaffiveitingar
kl.14.30, harmonikuhljómsveit Sigríðar
Norðkvist skemmtir kl.15.
Morgunblaðið/Ómar
Silfrastaðakirkja í Árbæjarsafni Upphaflega kirkja á Silfrastöðum í
Skagafirði, reist 1842, en flutt í Árbæjarsafn 1960-1961.