Morgunblaðið - 05.01.2009, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
YES MAN kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 7 ára
BOLT m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
FOUR CHRISTMASES kl. 8 LEYFÐ
PRIDE & GLORY kl. 10 B.i. 16 ára
YES MAN kl. 8 - 10:20 B.i. 7 ára
BOLT m/ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
SKOPPA OG SKRÝTLA Í BÍÓ m/ísl. tali kl. 4 - 6 (700 á báðar sýningar) LEYFÐ
THE DAY THE EARTH STOOD STILL kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
BOLT m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
THE SPIRIT kl. 8 - 10 B.i. 12 ára
YES MEN kl. 8 - 10 LEYFÐ
MADAGASCAR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
„..BESTA DISNEY-TEIKNIMYNDIN
Í ÁRARAÐIR“
L.I.B. – FRÉTTABLAÐIÐ
SÝND MEÐ Í
SLENSKU
OG ENSKU
TALI
RI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
- S.V., MBL
EKKERT GETUR
UNDIRBÚIÐ ÞIG FYRIR
SÝND Á SELFOSSI SÝND Í KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA ÍSLENSKT TAL SÝND Á SELFOSSISÝND Í KEFLAVÍK
Vel heppnað
kreppuskaup
KVIKMYND
Sjónvarpið
Áramótaskaupið 2008
bbbbn
Leikstjóri: Silja Hauksdóttir. Ritstjóri:
Sigurjón Kjartansson. Aðalleikarar: Bryn-
hildur Guðjónsdóttir, Guðjón Davíð Karls-
son, Halldóra Geirharðsdóttir, Ilmur Krist-
jánsdóttir, Jón Gnarr, Katla Margrét
Þorgeirsdóttir, Kjartan Guðjónsson, Þor-
steinn Bachmann. 55 mín. RUV 2008.
SATT best að segja hraus mér í aðra
röndina hugur við hinu árlega grín-
uppgjöri Sjónvarpsins, Áramóta-
skaupinu 2008. Árið sem var að líða
var nánast óslitin hrollvekja og
harmakvein gjaldþrota, banka-
hruna, uppsagna, upplýsingatregðu,
náttúruhamfara. Hvítflibbaglæpa-
menn leyndust undir fáguðu yf-
irborði „útrásarvíkinganna“, sem
fóru létt með að nota æðstu menn
landsins sem snattstráka. Hvað þá
aðra. Allir voru að tapa peningum,
hlutabréfum, fasteignum, jeppum,
ærunni.
Undir þessum ósköpum öllum sat
svo Sigurjón Kjartansson og hans
fólk, í því erfiða hlutverki að gera
grín að tragedíunni svo vér mættum
kveðja þetta hörmungarár smæl-
andi.
Margt hefur verið reynt í liðlega
fertugri sögu skaupsins; Sami mað-
urinn verið fenginn til að semja allt
efnið, lög og texta, það hafa verið
tekin fyrir ákveðin „concept“, en
smám saman hefur myndast hefð
fyrir því að árið er skoðað í spéspegli
og það tókst vel, á köflum mjög vel,
ekki síst þegar tekið er tillit til ár-
ferðisins hjá dvergþjóð, rambandi á
barmi allsherjargjaldþrots og tauga-
áfalls.
Það sem gerði skaupið frábrugðið,
fyrir utan hremmingarnar, var
breyting á leikaranotkun, Sigurjón
og Silja nýttu þrengri leikhóp en
venja hefur verið, sem þau gjör-
þekkja eftir langvarandi samvinnu
við gerð sjónvarpsþátta, og virkaði
eins og bensín á eld. Hver og einn
hafði í mörg horn að líta og það
hvarflar ekki að mér að kippa einum
út úr, skaupið var ekki síst sigur
leikheildarinnar.
Af nógu var að taka hjá höfund-
unum á ári samfelldra mistaka og
áfalla í peningamálum og stjórnsýsl-
unni, það kom því ekki á óvart að
bankapeyjar og misvitrir ráðherrar,
jafnan nokkrum fetum á eftir at-
burðarásinni, fengju bróðurpartinn
af gríninu ásamt borgarstjóra-
sirkusnum. Það var komið víðar við,
æðibunukenndur „skemmriþáttur“,
fékk bráðfyndna yfirhalningu, sömu-
leiðis það óþolandi hvimleiða fyr-
irbrigði, Fréttir úr kauphöllinni, þar
sem fréttamenn hafa tíundað í lands-
lýð mannsmorðsleiðinlegar upplýs-
ingar um stöðuna á stýrivöxtum,
genginu, verðbréfum og öðru slíku.
Ófögnuðurinn fluttur með bros á
vör, á undan íþróttafréttum; Hér
dunaði dansinn trylltast í kringum
Mammon og áhorfandinn tregaði þá
gósentíma þegar hann vissi ekki bet-
ur en Dow Jones væri verðbréfa-
mangari, FUJI fjall í Japan og NAS-
DAQ selalátur á Grænlandi.
Þá voru tekin fyrir nútímalegri
efni úr heimi unglinganna en nokkru
sinni áður og var „facebook“-kaflinn
einn sá besti í öllu skaupinu, sömu-
leiðis teiknimyndaserían með „mið-
borgarstjóranum“, eða hvað hann
var nú aftur kallaður, maðurinn með
málningarpensilinn. Þess á milli
voru óvenju fáir hortittir sem
gleymdust jafnóðum í kærkomnu
rússíbanagríni, því besta í einhver
ár.
Skaupið endaði á flottum ABBA-
nótum, þar sem hersingin kyrjaði
m.a. hástöfum…“vínið á þrotum og
þynnkan tekur við …“
Vonandi verða timburmenn þjóð-
arskútunnar ögn léttbærari að ári
liðnu.
Sæbjörn Valdimarsson
Ritstjóri og leikstjóri „Sigurjón og Silja nýttu þrengri leikhóp en venja
hefur verið … Hver og einn hafði í mörg horn að líta og það hvarflar ekki
að mér að kippa einum út úr, skaupið var ekki síst sigur leikheildarinnar.“
1 Davíð Oddsson – ómissandi á öllum skúrkalistum,hvort sem hann á það skilið eður ei.
2 Stjórnendur bankanna gömlu – hvar eru þeir í dag? Á lúxussnekkju með kaldan í annarri
og styrjuhrogn í hinni?
3 Frakkar – fyrir að „hrifsa“ af okkur Ólympíugullið.
4 Egill Helgason – fyrir að vera svona leiðinlegur viðauðmenn sem hafa margoft sagst ætla að axla
ábyrgð.
5 Íslendingar – þ.e.a.s. í augum Hollendinga og Breta.
6 Rúv – fyrir að hætta með morgunleikfimina. Svona gera menn ekki!
7 Mótmælendur Íslands – skilja þeir ekki að góðir hlutir gerast hægt?
8 Valur Gunnarsson blaðamaður og Atli Bollason tón-listarmaður og gagnrýnandi – látið krúttin vera. Þau
eru minni máttar.
9 Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn – skilur ekki að hefðbund-in hagfræði gildir ekki á Íslandi.
10 Menningardeild Morgunblaðsins – fyrir að fíla ekkiMamma Mia! Hvað er ekki að fíla???
Skúrkar ársins
Bankamenn Sóla sig nú í fjarlægum löndum og kunna ekki að skammast sín.
Morgunblaðið/Kristinn
Dabbi kóngur Skúrkur ársins.
Mótmælendur Vondir við þá sem klúðruðu málunum.
Leikfimi Palli
Magg skilur
ekki mik-
ilvægi morg-
unleikfim-
innar.
Mamma Mia! Bannað að fíla hana ekki. Krútt Ekki dauð.Silfur Gullið hefði litið betur út.
6
7
810
3
1
2