Morgunblaðið - 05.01.2009, Page 44
MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 5. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SKOÐANIR»
Staksteinar: Árekstur siðmenninga?
Forystugreinar: Umræðuhættir á
netinu
Pistill: Efasemdir Veveks og lýðræðið
Ljósvaki: Hlátur og grátur …
Húðun í stað brota og bramls
Ósýnilegu bókahillurnar
Blóm vikunnar: Um áramót
FASTEIGNIR »
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Heitast 7°C | Kaldast 0°C
Hæg vestlæg átt, en
snýst í norðan 3-8 með
éljum fyrir norðan.
Slydda og rigning
vestan til síðdegis. »10
Í yfirliti yfir bestu
myndasögur liðins
árs fær Good bye
eftir Yoshihiro Tats-
umi framúrskarandi
dóma. »38
MYNDASÖGUR»
Tilfinninga-
leg örbirgð
FÓLK»
Flögrað milli litríkra ný-
ársskemmtana. »36
„Fullmótaður og
stílhreinn.“ Nýjasta
plata Jóhanns Jó-
hannssonar, Ford-
lândia, fær frábæra
dóma. »37
TÓNLIST»
Eitt af okkar
allra bestu
FÓLK»
Íslendingar, Frakkar –
og aðrir skúrkar. »40
TÓNLIST»
Hefur mikla trú á söng-
lögunum. »34
Menning
VEÐUR»
1. Heitir 100 þúsund nýjum störfum
2. Hellisheiði lokuð vegna slysa …
3. Farþegar þurfa ekki að óttast
4. B-lið Svía fór illa með Ísland
Borgarleikhúsinu
Vestrið eina
Sirkusgestir skemmtu sér vel
Morgunblaðið/Eggert
Sirkus Húsfyllir var á sýningum Stórasta sirkuss Íslands í Hafnarfjarðarleikhúsinu um helgina. Enda lofuðu gest-
ir frammistöðu sirkushópsins, sem er skipaður Íslendingum og tveimur Áströlum. „Þetta var mjög flott. Það var
mikið lagt í sýninguna og hún kom verulega á óvart,“ sagði einn sirkusgestur og bætti við að krakkarnir í salnum
hefðu skemmt sér sérstaklega vel, undir alls kyns fimleikum, sprelli og trúðleik. | 40
MOSAIC Fash-
ions, sem er í nær
helmingseigu
Baugs og Kaup-
þing á um 20% í,
er að hefja við-
ræður við lánar-
drottna sína til að
tryggja framtíð
fyrirtækisins, að
því er sagði í
breska dagblaðinu The Sunday Tim-
es í gær. Þar kom og fram að viðræð-
urnar væru í framhaldi af láns-
fjárkreppunni. Útgáfu fréttarinnar
má lesa á vefsíðu blaðsins.
Gunnar Sigurðsson, forstjóri
Baugs, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi að Kaupþing
væri langstærsti lánardrottinn
Mosaic Fashions. „Við höfum verið í
stöðugum viðræðum við Kaupþing í
framhaldi af bankahruninu á Ís-
landi,“ sagði Gunnar. Hann sagði að
unnið hefði verið að langtíma-
fjármögnun Mosaic en menn hefðu
viljað sjá hvernig jólaverslunin yrði
áður en lengra yrði haldið í þeim við-
ræðum. Sem kunnugt er var jóla-
verslun í Bretlandi með dauflegra
móti, en Gunnar sagði að flest vöru-
merki Mosaic hefðu komið nokkuð
vel út. Hann sagði að lausafjárstaða
Mosaic væri í lagi.
Gunnar sagði ýmislegt rangt sem
fullyrt væri í frétt The Sunday Tim-
es. T.d. væri ekki rétt að sumir birgj-
ar krefðust staðgreiðslu fyrir vörur
til Mosaic og eins væri það rangt að
félagið hefði ekki greitt af lánum sín-
um hjá Kaupþingi eftir fall bankans.
Mosaic Fashions á m.a. Karen
Millen, Oasis og Principles. Að sögn
The Sunday Times er óttast að lendi
Mosaic í erfiðleikum muni það koma
niður á Debenhams og House of
Fraser en þessi fyrirtæki eru víða í
samstarfi í stórum vöruhúsum. | 2
Mosaic ræð-
ir við lán-
ardrottna
Framtíð fyrirtæk-
isins sögð í húfi
Gunnar Sigurðsson
Eftir Sigrúnu Ásmundar
sia@mbl.is
„ÉG VAR að koma úr þessum líka frábæra útreiðatúr
og var einmitt að velta því fyrir mér hvað þetta yrði
skemmtilegur vetur,“ segir Ester Pálmadóttir. Hún
varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu sl. laugardag að
hestur hennar fældist við flugeld og rauk undan henni.
„Við vorum bara að slaka á á leiðinni heim og þá
heyrðist þessi rosalegi hvellur,“ lýsir Ester. „Hestinum
brá svo ofboðslega að hann þeyttist út í hraun en ég
varð eftir á reiðveginum. Ég hafði mestar áhyggjur af
honum, af því að hann fór út í hraunið,“ segir Ester.
Hesturinn slapp þó sem betur fer. Heimfús kom hest-
urinn sér í hús en enn lá Ester á reiðveginum. „Þá
kom bara þarna maður á hvítum hesti,“ segir hún
sposk. Sá hringdi á sjúkrabíl og í ljós kom að Ester
var brotin á upphandlegg auk þess sem hún var marin.
„Ég varaði mig bara ekki á þessu, þetta er reiðhest-
ur sem ég hef notað í mörg ár,“ segir Ester, en hún
hefur verið í hestamennsku í ein 35 ár. Hún hefur yf-
irleitt ekki byrjað að ríða út fyrr en eftir þrettándann,
þegar hestarnir hafa jafnað sig eftir að hafa verið
teknir á hús. Hún segist hafa lært af þessari reynslu
og muni ekki ríða út á þessum tíma í framtíðinni. „Ég
slapp vel, þetta hefði getað farið verr,“ segir hún og
bætir við að gjarnan mættu skotglaðir taka tillit til
hestamanna.
Maður kom á hvítum hesti
Ráð Ester ráðleggur hestamönnum
að hugsa sig tvisvar um áður en þeir
ríða út á þessum árstíma.
Skoðanir
fólksins
’… fékk íslenska ríkið afdrátt-arlausa heimild til þess að styðjaþétt við bakið á þeim sem vilja og getahöfðað mál gegn breskum stjórnvöld-um vegna þeirra forkastanlegu aðgerða
sem þeir gripu til gegn Íslendingum og
íslenskum hagsmunum. » 22
SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON OG
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
’Í mínum huga er engin spurning aðum skipulagða blekkingu er aðræða sem stunduð hefur verið á Íslandií mörg ár – með afleiðingum sem við
þurfum ekki að fara út í nánar. » 24
JÓHANNES VALDEMARSSON
’Ef gert er ráð fyrir að innfluttarvörur séu um 40% af neyslu og að innlendur kostnaður standi aðöðru leyti í stað, þá ætti 70% hækkun á vörunum að valda um 28% verð-
bólgu. » 24
ÞORSTEINN HELGI
’Öryggisnetið sem standa áttitraustan vörð um hagsmuni ís-lensku þjóðarinnar svaf illilega á verð-inum, gatslitið og viljalaust. » 24
ÞORVALDUR JÓHANNSSON
’Almenningur er fullur vantrúar áað þetta sé raunverulega að gerasten það er að síast inn hjá okkur. Al-menningur er einnig ráðþrota. Valdhaf-ar vilja ekki gefa okkur kost á að nota
eina löglega vopnið okkar, kosninga-
réttinn. Þrátt fyrir margbreytileg og sí-
endurtekin mótmælahöld erum við
sniðgengin. » 25
GUNNAR SKÚLI ÁRMANNSSON
’Þrátt fyrir tímabundna erfiðleika erÍsland ríkt land með þróað velferð-arkerfi þar sem starfar margt velmenntað og hæft fólk sem hefur allaburði til að bregðast við með réttum
hætti. » 25
ÞORBJÖRN GUÐMUNDSSON