Morgunblaðið - 13.01.2009, Page 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2009
Eftir Ágúst I. Jónsson
aij@mbl.is
SKIP Eskju hf. á Eskifirði, Aðal-
steinn Jónsson og Jón Kjartansson,
lönduðu bæði fullfermi af kolmunna
á Eskifirði um helgina. Aðalsteinn
var með 500 tonn af frystum kol-
munna og annað eins af kolmunna í
bræðslu. Jón Kjartansson var með
2.300 tonn í bræðslu. Aflinn fékkst
suður af Færeyjum.
Lundey og Vilhelm Þorsteinsson
eru einnig bæði byrjuð á kolmunna-
veiðum. Búast má við að fleiri skip
haldi á þessar veiðar fljótlega ef ekki
verður gefinn út loðnukvóti.
600 tonn af gulldeplu
Áhöfnin á Hugin VE var síðdegis í
gær komin með hátt í 600 tonn af
norrænni gulldeplu. Lengi hefur
verið vitað af tilvist þessa miðsjáv-
arfisks, sem finnst í nokkrum mæli á
stóru hafsvæði. Vandinn hefur verið
að finna rétt veiðarfæri en fiskurinn
er ekki nema um 5 cm að lengd.
Gylfi Viðar Guðmundsson, skip-
stjóri á Hugin, sagði að þokkalega
hefði gengið að veiða í dagsbirtu en
lítið þýddi að reyna í myrkri. Möskv-
arnir eru smáir og sagði Gylfi að þeir
væru að læra og sjálfsagt þyrfti að
þróa veiðarfærin enn betur. Hann
áætlaði að landa í bræðslu í Vest-
mannaeyjum í kvöld en skipið hefur
verið að veiðum í Grindavíkurdýpi og
fengið allt að 150 tonn á sólarhring.
Spennandi tilraun
Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri
hjá Hafrannsóknastofnun, sagði að
tilraunin sem þeir á Hugin væru að
gera væri virkilega spennandi.
Lengi hefði verið vitað um þennan
fisk og veiðar verið á tilraunastigi.
Veiðarfærið þyrfti að vera fínriðið og
nauðsynlegt að draga það hægt yfir.
Þessir miðsjávarfiskur væri yfir-
leitt þar sem dýpi væri mikið og
áætlaði Þorsteinn að einhverjir tugir
milljóna tonna gæti verið að finna frá
Íslandi suður til Nýfundnalands. Að-
spurður hvaða tegundir legðu sér
þennan fisk til munns sagði Þor-
steinn að karfi væri þar á meðal en
einnig fisktegundir sem sjómenn
kölluðu gjarnan svörtu djöflana, t.d.
kolbít og slóansgelgju.
Áhyggjur af smásíldinni
Farið verður um helgina í leiðang-
ur til að meta ástand síldarstofnsins.
Byrjað verður í Breiðafirði en síðan
haldið vestur og norður fyrir land.
Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri
nytjafiska hjá Hafrannsóknastofn-
un, sagði í gær að hlutfall sýktra
fiska hefði verið um 35% í síldarafl-
anum undanfarið. Hins vegar hefði
þetta hlutfall farið upp í um 70% þeg-
ar smásíld var stór hluti aflans eins
og úr Keflavík og í afla af svæði norð-
vestan við Vestmannaeyjar í haust.
„Við óttumst að smásíldin hafi far-
ið verst út úr þessu og m.a. af því er
verið að fara í þessa endurteknu
mælingu á stóru síldinni og smásíld-
inni,“ sagði Þorsteinn Sigurðsson.
Gengur vel
á kolmunna
og gulldeplu
Morgunblaðið/Sverrir
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFNUN Ís-
lands er nú búin að aldursgreina
vængi af 2.884 rjúpum sem veiddar
voru á liðnu hausti. Hlutfall unga í
hauststofni er að hækka. Vonir eru
bundnar við að það viti á gott og að
rjúpnastofninn verði blómlegur næstu
ár.
„Þetta er jafnt og þétt á leiðinni
upp,“ sagði Ólafur Karl Nielsen, fugla-
fræðingur hjá Náttúrufræðistofnun.
Hann sagði uppsveiflur rjúpnastofns-
ins einkennast af því að þá drægi úr
afföllum sem væru sértæk fyrir unga.
Rjúpan var friðuð árin 2003 og 2004 og
þá lækkaði dánartala rjúpna á öllum
aldri sem skýrt var sem áhrif skot-
veiðanna. Á þessum tíma dró hins veg-
an á 10. áratug síðustu aldar að það
dró úr umframafföllum ungfugla.
Ólafur sagði að svo virtist sem að-
dragandi náttúrulegrar uppsveiflu
væri hafinn. Talningar á liðnu voru og
skoðun á hvernig afföll hafa breyst
gáfu vonir þar um. „Rjúpan hefur svo
iðulega komið okkur á óvart að það er
varasamt að fullyrða nokkuð,“ sagði
Ólafur.
Í frétt frá Náttúrufræðistofnun
segir að hlutfall ungfugla fyrir sam-
anlagt sýnið sé 76%. Ungahlutfallið er
lægst á Austurlandi, Suðvesturlandi
og Vesturlandi (72-74%) en hæst á
Norðausturlandi, Vestfjörðum og
Suðurlandi (77-79%).
gudni@mbl.is
ar ekki úr hinu sértæka dánarhlutfalli
unga sem verið hefur hátt undanfarin
ár. Í fyrra gerðist það í fyrsta sinn síð-
Ungahlutfall gefur von um uppsveiflu
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
TÁKNRÆN mótmæli gegn hern-
aði Ísraela á Gaza-ströndinni fóru
fram við hús stjórnarráðsins í
gærmorgun. Rauðum lit var slett á
húsið og stríðshörmungar settar á
svið. Mótmælin voru friðsamleg að
öðru leyti og var tilefnið að for-
dæma blóðbað Ísraelsstjórnar á
Gaza og krefjast þess að ríkis-
stjórn Íslands slíti stjórnmálasam-
bandi við Ísrael þegar í stað.
Samkvæmt upplýsingum frá for-
sætisráðuneytinu var líklega um
að ræða vatnsþynntan matarlit eða
mikið útþynnta málningu, sem
slett var á húsið. Það var þrifið í
gær og náðist liturinn af með að-
stoð hreinsiefna. Ekki var því um
skemmdir á eignum að ræða. Hús
utanríkisráðuneytisins við Rauðar-
árstíg hlaut svipaða útreið fyrir
helgi. Þann vökva var hins vegar
hægt að spúla af húsinu með vatni
einu saman. Aftur var mótmælt við
utanríkisráðuneytið í gær, að sögn
Urðar Gunnarsdóttur upplýsinga-
fulltrúa.
Málin rædd í bróðerni
Um fimmtán manns mættu
þangað um fjögurleytið, mótmæltu
fyrir utan en gengu svo inn og
báðu um áheyrn ráðherra. Slegið
var á fundi með mótmælendum,
ráðuneytisstjóra, sviðsstjóra al-
þjóðasviðs og upplýsingafulltrúa.
Segir Urður að málin hafi verið
rædd í mesta bróðerni og fulltrúar
ráðuneytisins farið yfir aðgerðir,
yfirlýsingar og afstöðu Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur til ástandsins
á Gaza. Miklu uppbyggilegra hafi
verið að eiga samræður um málið
en að mótmælendur skvetti lit á
útidyrnar. Nokkrir gestanna voru
grímuklæddir, en ekki allir. Þetta
eru lítið eitt fleiri mótmælendur en
fyrir helgi. Þá voru þeir tólf sam-
kvæmt talningu Urðar.
Morgunblaðið/Júlíus
Slett á stjórnarráð en mál-
in rædd við Rauðarárstíg
RÍKISKAUP hafa auglýst útboð
fyrir hönd þeirra stofnana og rík-
isfyrirtækja, sem hyggjast kaupa
eða leigja bifreiðar á rekstr-
arleigukjörum árið 2009.
Gert er ráð fyrir að kaupa/
leigja um 100 bifreiðar og er þá
byggt á reynslu að bifreiða-
kaupum árin 2005 til 2007. Hins
vegar er ekki ljós endanlegur
fjöldi þeirra bifreiða sem verða
keyptar eða leigðar á grundvelli
útboðsins, þar sem samningar eru
gerðir um tiltekna bifreiðaflokka
í eitt ár, án þess að magntölur
séu þekktar.
Um er að ræða kaup/leigu á
bifreiðum af ýmsum stærðum og
gerðum í samræmi við lýsingar á
einstökum flokkum bifreiða. Bjóð-
endur eiga að bjóða fram bifreið-
ar sem samsvara hverjum flokki.
Tilboð í bifreiðarnar verða opn-
uð hjá Ríkiskaupum 27. febrúar
næstkomandi. sisi@mbl.is
Ríkið auglýsir
eftir 100 nýj-
um bílum
GESTAFJÖLDI
á McDonalds
stendur í stað
þrátt fyrir
kreppuna, að
sögn Magnúsar
Ögmundssonar,
framkvæmda-
stjóra fyrirtæk-
isins. „Það er
meira um að fólk kaupi einn eða tvo
ostborgara í stað heilla máltíða.
Þannig helst fjöldinn,“ segir Magn-
ús. Fréttavefurinn business.dk seg-
ir neytendur sneiða hjá dýrum veit-
ingastöðum og kaupa sér heldur
ostborgara hjá McDonalds. Bloom-
berg segir hagnað skyndibitarisans
hafa aukist um 11 prósent á þriðja
ársfjórðungi síðasta árs.
ingibjorg@mbl.is
Fleiri fá sér
ostborgara
LÖGREGLAN er að reyna að
ganga úr skugga um hvort Robert
Dariusz Sobiecki sé enn hér á landi.
Hæstiréttur dæmdi Robert 4. des-
ember til þriggja ára fangels-
isvistar fyrir að nauðga konu á sal-
erni Hótels Sögu. Átti hann að hefja
afplánun strax og hefur hans verið
leitað síðan.
Friðrik Smári Björgvinsson, yf-
irlögregluþjónn hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu, segir að
mannsins sé enn leitað hér á landi.
Allar vísbendingar hafi verið kann-
aðar, meðal annars ábendingar um
að hann hafi sést á ýmsum stöðum á
landinu. Þá segir hann einnig verið
að kanna hvort verið geti að Robert
hafi farið úr landi. Lögreglan tekur
við ábendingum í síma 444 1100.
Nauðgari er
enn ófundinn
ALLIR farþegar Icelandair til Bandaríkjanna, sem áttu pantað far í
gær, komust frá landinu. Engin vandræði komu upp við innritun far-
þega en í gær var einmitt fyrsti dagurinn sem ferðamönnum frá lönd-
um undanþegnum vegabréfsáritun til Bandaríkjanna er skylt að hafa
sótt um rafræna ferðaheimild (ESTA).
Allir farþegar þurfa á næstu mánuðum bæði að hafa gengið frá
ESTA-heimildinni auk þess að fylla út hið græna I94W-eyðublað í flug-
vélinni á leið til Bandaríkjanna. Með tíð og tíma leysir ESTA græna
blaðið af hólmi.
Ef ferðalangur gleymir að sækja um ESTA-heimild verður honum
ekki hleypt um borð í flugvél á leið til Bandaríkjanna. Þetta á þó ekki
við um fyrstu daga eða vikur hins nýja kerfis. Engu að síður er ferða-
mönnum ráðlagt að sækja um ESTA-heimildina sem fyrst. Í flestum
tilvikum berst svar við umsókninni innan tveggja mínútna.
Engir strandaglópar