Morgunblaðið - 13.01.2009, Side 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2009
Álfheimar 74
Sími: 414 4000
hreyfing@hreyfing.is
www.hreyfing.is
ÁNÆGJUÁBYRG
FYRIR FÓLK SEM KÝS HREYFINGU
Glæsilegir kaupaukar:
>> Boðsmiðar í Bláa Lónið
>> Blue Lagoon spa leirbað
>> Vörugjafir að verðmæti
allt að 25.900 kr.
>> Aðgangur að betri stofu
Bláa Lónsins
>> Fljótandi djúpslökun í
Blue Lagoon spa
>> Frímánuður í Hreyfingu
Kynntu þér nánar frábær tilboð
Hreyfingar og Blue Lagoon spa.
Allar upplýsingar á www.hreyfing.is
og í síma 414-4000.
Ánægjuábyrgð
Þú velur þér aðild og tryggir þér
lægsta verðið innan 30 daga.
Kynntu þér Ánægjuábyrgð
Hreyfingar hjá þjónustufulltrúum
okkar í síma 414 4000.
Þú hefur allt að græða.
Hringdu í síma 414 4000, sendu okkur tölvupóst á
hreyfing@hreyfing.is eða kíktu við hjá okkur í Glæsibæ.
TILBO 2009
Verð frá 4.100 kr. á mánuði
í áskrift og glæsilegir
kaupaukar að verðmæti
allt að 50.000 kr.
LÖGREGLAN hefur komið upp um
fanga á Litla-Hrauni, sem grunaðir
eru um aðild að smygli á fíkniefn-
um inn í fangelsið
Að sögn lögreglu var staðið
þannig að smyglinu að einhver kom
fíkniefnum fyrir utan á bifreið sem
á oft leið inn á svæðið. Fangarnir
gengu síðan að bifreiðinni og tóku
fíkniefnin.
Fangarnir voru grunaðir um
græsku og var einn þeirra staðinn
að verki þegar hann tók efni af bif-
reiðinni og stakk því inn á sig.
Smygluðu
efnum inn í
fangelsið
Morgunblaðið/Ómar
MICROSOFT á Íslandi hefur ákveð-
ið að halda ráðstefnu hér á landi 19.
og 20. janúar nk. þar sem farið verð-
ur yfir það helsta sem kom fram á
tveimur alþjóðlegum ráðstefnum
undir lok síðasta árs. Er Microsoft
með þessu að bregðast við minnk-
andi eftirspurn starfsmanna ís-
lenskra upplýsingatæknifyrirtækja í
hópferðir á ráðstefnur og námskeið á
vegum Microsoft erlendis.
Árið 2007 fóru um 350 manns á
helstu ráðstefnur Microsoft erlendis
en á síðasta ári fóru aðeins um 60
manns í svipaðar ferðir. Hér á landi
verða kynnt erindi og fluttir fyrir-
lestrar af ráðstefnunum TechEd í
Bandaríkjunum og Convergence í
Danmörku. Aðgangur verður ókeyp-
is en ráðstefnan er einkum ætluð
tæknimönnum, forriturum og
stjórnendum tölvudeilda. Segir Hall-
dór Jörgensson, framkvæmdastjóri
Microsoft á Íslandi, þetta vera fram-
lag fyrirtækisins til eflingar ís-
lenskrar upplýsingatækni.
Microsoft bregst við
hruni í hópferðum
Efni erlendra ráðstefna kynnt hérlendis
UNNUR Guð-
rún Óttarsdóttir
hefur varið dokt-
orsritgerð sína
„Art Therapy in
Education: for
Children with
Specific Learning
Difficulties who
have Experienced
Stress and/or Emotional Trauma“ við
Univestity of Hertfordshire í Eng-
landi. Leiðbeinendur voru dr. Mich-
ael Biggs, prófessor í listheimspeki
við University of Hertfordshire, dr.
Janek Dubowski, lektor í listmeðferð
við Roehamton University og Robin
Campbell prófessor emeritus í lestr-
ar- og skriftarkunnáttu.
Ritgerðin fjallar um listmeðferð í
skólum fyrir börn með námsörð-
ugleika vegna álags eða áfalla. Til
grundvallar ritgerðinni liggur rann-
sókn sem fór fram í íslenskum grunn-
skóla á börnum sem áttu við náms-
örðugleika að etja og höfðu verið
undir álagi og/eða orðið fyrir áföllum.
Unnur fæddist 1962 og er dóttir El-
ínar Birnu Daníelsdóttur hjúkr-
unarfræðings og Óttars Yngvasonar
hrl. Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Kópavogi 1982,
BEd-námi frá Kennaraháskóla Ís-
lands 1986 og meistaranámi í list-
meðferð frá Pratt Institute í New
York 1991. Sonur Unnar er Jón Karl
Sigurðsson stærðfræðingur. Unnur
hefur starfað við kennslu og list-
meðferð í skólum, ýmsum stofnunum
og á eigin listmeðferðarstofu.
Doktor í list-
meðferð
PAVOL Cekan
efnafræðingur
varði dokt-
orsritgerð sína
„Kirnisleif Ç: Tví-
virkur nemi til
rannsókna á
byggingu og
hreyfingu DNA
með EPR- og
flúrljómunarspektróskópíu“ frá raun-
vísindadeild Háskóla Íslands 9. jan-
úar síðastliðinn. Leiðbeinandi í verk-
efninu var dr. Snorri Þór Sigurðsson,
prófessor í efnafræði við HÍ.
Meginmarkmið verkefnisins var að
hanna nýjar aðferðir til rannsókna á
kjarnsýrum og beita þeim við rann-
sóknir á byggingu og hreyfingu ým-
issa kjarnsýrusameinda.
Í doktorsnefndinni sátu, auk leið-
beinanda, dr. Már Másson, prófessor
við lyfjafræðideild Háskóla Íslands,
og dr. Guðmundur G. Haraldsson,
prófessor við raunvísindadeild Há-
skóla Íslands.
Pavol Cekan fæddist í Tékkóslóv-
akíu 25. mars 1979. Hann lauk stúd-
entsprófi frá GJAR-menntaskólanum
í Presov í Slóvakíu árið 1997 og út-
skrifaðist með BSc-gráðu í efnafræði
frá Háskóla Íslands 2003. Báðir for-
eldrar Pavols eru Slóvakar. Fjöl-
skylda hans er búsett á Íslandi; móðir
hans og systir eru íslenskir ríkisborg-
arar.
Doktor í
efnafræði