Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 26
26 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009 Sudoku Frumstig 2 1 8 7 4 8 3 6 6 4 7 3 5 8 1 2 7 3 4 5 4 1 2 5 4 6 2 7 1 8 5 3 6 7 8 4 3 1 2 7 8 9 8 2 3 7 8 3 1 4 3 8 2 5 7 9 1 9 1 5 2 4 8 7 2 5 3 6 7 5 3 4 4 3 5 9 2 3 5 4 8 5 9 1 3 4 2 1 5 8 3 3 4 6 2 6 8 4 9 3 1 7 5 4 7 1 6 8 5 3 9 2 9 5 3 1 7 2 6 8 4 5 1 7 9 2 8 4 6 3 8 4 6 3 1 7 2 5 9 3 9 2 5 6 4 7 1 8 1 2 9 8 3 6 5 4 7 6 3 4 7 5 9 8 2 1 7 8 5 2 4 1 9 3 6 8 9 7 4 5 2 6 1 3 4 2 6 3 1 8 9 7 5 5 3 1 9 6 7 2 4 8 3 8 9 5 4 6 1 2 7 6 4 2 8 7 1 3 5 9 7 1 5 2 3 9 8 6 4 2 6 3 7 8 5 4 9 1 1 5 4 6 9 3 7 8 2 9 7 8 1 2 4 5 3 6 8 6 4 9 7 1 5 2 3 1 3 9 8 2 5 4 7 6 2 7 5 3 4 6 1 9 8 4 2 3 5 6 9 7 8 1 7 5 6 1 8 4 2 3 9 9 1 8 7 3 2 6 4 5 3 4 1 6 9 7 8 5 2 6 9 2 4 5 8 3 1 7 5 8 7 2 1 3 9 6 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 10. febrúar, 41. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Reglur þínar eru dásam- legar, þess vegna heldur sál mín þær. Útskýring orðs þíns upplýsir, gjörir fá- vísa vitra. (Sl. 119, 129-130.) Víkverji stöðvar ekki tækni-framfarir, svo mikið er víst. Hann verður að láta þær yfir sig ganga eins og hverja aðra byltingu. En þó ekki alltaf. Myndbandaleigur eru margar búnar að koma sér upp nýju sjálfsafgreiðslukerfi þar sem þú pantar myndina á snertiskjá inni á leigunni sem sendir síðan upplýs- ingar á afgreiðslukassann. Flýtir þetta vissulega fyrir afgreiðslu en þar með er ekki allt fengið. Víkverji hefur nokkrum sinnum lagt leið sína í Vídeóhöllina í Lág- múla og prófað þessa nýjung. Á tækninni er einn stór galli. Ekki er með góðu móti hægt að sjá hvaða aldurstakmörk eru á viðkomandi mynd en fyrir samviskusamt og ábyrgðarfullt foreldri, líkt og Vík- verji er, skiptir máli að 13 ára ung- lingur taki ekki mynd á leigu sem bönnuð er innan 16 ára, svo dæmi sé tekið. Verra hefur verið að finna hið kæruleysislega viðmót sem starfs- fólk Vídeóhallarinnar hefur sýnt þegar þetta atriði hefur verið borið upp, líkt og það skipti engu máli hvort börn og óharðnaðir unglingar leigi bannaða mynd. Til hvers eru reglur ef þeim er ekki fylgt? Til við- bótar þessu hefur það gerst að Vík- verji hefur tekið á leigu mynd sem ekki var með íslenskum texta. Myndbandaleigur verða að hafa þessi mál á hreinu. x x x Víkverji brá sér í leikhús á dög-unum og sá gamanleikinn Fló á skinni í Borgarleikhúsinu. Eins og sönnum farsa sæmir vantaði ekki misskilninginn og fjörið með tilheyr- andi hrópum og hlátrasköllum. Einn er sá leikari sem algjörlega fer á kostum í sýningunni, þ.e. Guðjón Davíð Karlsson. Drengurinn er gamanleikari á heimsmælikvarða og hrein unun að fylgjast með honum. Hvernig hann fer að því að skipta um ham baksviðs á örfáum sek- úndum er Víkverja með öllu hulið. Fleiri leikara má nefna sem eiga eft- ir að láta að sér kveða, eins og Hall- grím Ólafsson, Jóhannes Hauk og Atla Þór Albertsson. Listamenn framtíðarinnar. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 reykjarsvæla, 4 þvingar, 7 sparsemi, 8 tígrisdýr, 9 alls ekki, 11 hófdýr, 13 drepa, 14 belti, 15 þægileg viðureignar, 17 stöð, 20 sarg, 22 djásn, 23 baktalar, 24 letur- tákns, 25 birgðir. Lóðrétt | 1 særa, 2 kyn- ið, 3 fædd, 4 hnífur, 5 hlíða, 6 ganga saman, 10 mannsnafn, 12 reið, 13 tjara, 15 rausar, 16 átak, 18 ýkjur, 19 búningur, 20 fjær, 21 leiði. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 skapheita, 8 nærri, 9 síðla, 10 set, 11 skapa, 13 aumur, 15 fress, 18 ástin, 21 kím, 22 ragna, 23 ósátt, 24 banamaður. Lóðrétt: 2 karta, 3 peisa, 4 efsta, 5 tíðum, 6 snös, 7 gaur, 12 pus, 14 uns, 15 fárs, 16 eigra, 17 skata, 18 ámóta, 19 tjáðu, 20 nota. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. Rc3 Rc6 4. d4 cxd4 5. Rxd4 a6 6. Be3 Dc7 7. Dd2 Rf6 8. f3 Bb4 9. a3 Be7 10. 0-0-0 0-0 11. g4 d6 12. h4 b5 13. h5 Rd7 14. g5 Rde5 15. Dg2 b4 16. axb4 Rxb4 17. f4 Rec6 18. g6 Bf6 19. Be2 h6 20. gxf7+ Hxf7 21. Bg4 Rxd4 22. Bxd4 e5 23. fxe5 Bg5+ 24. Kb1 dxe5 25. Bg1 Hf4 26. Bxc8 Hxc8 27. Be3 Da5 28. Dd2 Staðan kom upp á Meistaramóti Taflfélagsins Hellis sem stendur yfir þessa dagana í húsakynnum félagsins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Vigfús Óð- inn Vigfússon (2.027) hafði svart gegn Elsu Maríu Kristínardóttur (1.769). 28. … Hxe4! hvítur yrði mát eftir 29. Rxe4 Da2+ 30. Kc1 Da1#. 29. Bxg5 Hd4 30. Dg2 Hxc3! 31. Hxd4 Da2+ 32. Kc1 Da1+ 33. Kd2 Hxc2+ 34. Ke3 exd4+ 35. Ke4 Hxg2 36. Hxa1 Hxg5 og hvítur gafst upp. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Ótti við ofurmenni. Norður ♠42 ♥ÁD3 ♦KG94 ♣Á1093 Vestur Austur ♠107 ♠KG8653 ♥10942 ♥865 ♦D762 ♦Á5 ♣852 ♣K4 Suður ♠ÁD9 ♥KG7 ♦1083 ♣DG76 Suður spilar 3G. Norður vakti á tígli, austur kom inn á 1♠ og suður lokaði fyrir frekari um- ræðu með einbeittu stökki í 3G. Hvern- ig á að spila með ♠10 út? Líklega er best að svína strax í tígli, því eigi austur tíguldrottningu fást samt níu slagir með laufkóng réttum. Tvær svíningar eru betri en ein. En tígulsvíningin er ekki gallalaus. Snjall austurspilari væri vís með að drepa með ás frá ♦Á-D! Af ótta við slíka of- urvörn valdi sagnhafi aðra leið. Hann svínaði strax í laufi, fékk spaða um hæl og spilaði þá tígli á kónginn í von um ásinn í vestur. Ekki alvitlaust, en illa heppnað, svo ekki sé meira sagt. Þrír niður. Á góðum degi gæti sterkur spilari vissulega drepið á ♦Á frá ♦Á-D. En al- mennt borgar sig ekki að gera ráð fyrir ofurmannlegri vörn. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það getur tekið á að þurfa stöð- ugt að sýna einbeitni gagnvart öðrum. Vertu á varðbergi gagnvart þeim sem tala of mikið og jafnvel þeim sem gefa þér loforð. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þetta er hinn fullkomni dagur ef þú ákveður að líta hann þeim augum frá upphafi. Fyrsta skrefið er að skipu- leggja tímann betur og læra að segja nei. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú hefur gott auga fyrir smáat- riðum í dag. Reyndu að einbeita þér að því sem þú ert að gera hverju sinni. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Reyndu að komast að niðurstöðu sem allir geta sætt sig við. Njóttu stöðu þinnar sem er til eftirbreytni. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Valdabarátta við vini og vanda- menn gerir þér lífið leitt. Hafðu þetta hugfast þegar þú ráðstafar tíma þínum. En þú ert of almennilegur til að benda á það. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú býrð yfir orkunni og einbeit- ingunni til að vinna nákvæmnisverk í dag – og jafnvel til að leysa leiðinleg verk af hendi. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þér verður mikið úr verki í dag þrátt fyrir mótlæti. Samband við ein- hvern sem gæti orðið vinur endar hugs- anlega með skelfingu. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það er hætt við að þú lendir í deilum við einhvern innan fjölskyld- unnar í dag. En hverjum kemur það svo sem á óvart? (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú finnur fyrir togstreitu milli þeirrar skyldu sem starfið leggur þér á herðar og einkalífsins. Keyptu nyt- samlega hluti handa fjölskyldunni. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Lífið blasir við þér og þú ert með bros á vör. En farðu varlega, gættu vel að smáatriðunum, því ekki er allt gull sem glóir. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú ert kappsfullur með áhuga á mörgum sviðum og átt auðvelt með að laða fólk til samstarfs. Líttu á björtu hliðarnar og þá sérðu að margt er í góðu lagi. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það kallar á heilmikið skipulag þegar margt liggur fyrir bæði í starfi og utan þess. Tillögur þínar eru hagnýtar en að sama skapi metnaðarfullar að stærð og gerð. Stjörnuspá 10. febrúar 1943 Orlofslög voru samþykkt á Al- þingi. „Stórkostleg réttarbót handa verkalýðnum,“ sagði Alþýðublaðið. Lögin tryggðu einn frídag fyrir hvern unninn mánuð. Síðan hefur orlofstím- inn verið lengdur um helming. 10. febrúar 1944 Þrjár þýskar flugvélar vörp- uðu sprengjum að olíuskipinu El Grillo sem lá á Seyðisfirði og sökk það. Þetta var tíu þús- und tonna skip. Lengi hefur verið glímt við olíuleka úr flakinu. 10. febrúar 1962 Togarinn Elliði frá Siglufirði sökk undan Öndverðarnesi. Tuttugu og sex skipverjum var bjargað á síðustu stundu um borð í Júpíter en tveir fór- ust. 10. febrúar 1966 Byggingarnefnd Reykjavíkur samþykkti 85 ný götuheiti í Fossvogi (lönd), Breiðholts- hverfi (bakkar og stekkir) og Ártúnshöfðahverfi (höfðar). 10. febrúar 1966 Níunda sinfónía Beethovens var flutt í fyrsta sinn hér á landi. Sinfoníuhljómsveitin og Söngsveitin Fílharmonía fluttu verkið undir stjórn Ró- berts Abrahams Ottóssonar. Æfingar höfðu staðið í fjóra mánuði. „Tímamót í tónlist- arflutningi á Íslandi,“ sagði Morgunblaðið. „Mikill menn- ingarviðburður,“ sagði Al- þýðublaðið. 10. febrúar 1997 Flóðhæð í Reykjavík varð sú mesta sem mælst hefur, 5,09 metrar. Veður var stillt svo að ekki urðu skemmdir á mann- virkjum. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „ÉG HUGSA að afmælisdagurinn verði ósköp hefðbundinn, að ég stundi mína vinnu en verji svo kvöldinu með fjölskyldunni og mínum nánustu,“ segir Kristinn Valur Wiium húsasmíðameistari um fertugsafmælið í dag. „Það verður mat- arveisla í kvöld. Við ætlum að steikja nokkur lambalæri og svo verða góðar kökur í eftirrétt.“ Kristinn Wiium tekur undir að matseðillinn sé þjóðlegur, með þeim orðum að það sé í takt við stemninguna í þjóðfélaginu. Spurður hvort hann hygðist gera eitthvað meira til hátíðabrigða á næstunni sagðist Kristinn Wiium „vera svo ljónheppinn að hafa svo mikið að gera í vinnunni að það verði ekki meira gert í bili. Ég er svo heppinn að hafa nokkur verkefni og hef því nóg að gera“. Inntur eftir því hvað hann hafi gert á þrítugsafmælinu fyrir áratug segir hann að dagurinn þá hafi verið með líku sniði. Fjölskyldan hafi komið saman um kvöldið og gert sér glaðan dag yfir málsverði. Kristinn Wiium er giftur Ástu Kristnýju Árnadóttur hárgreiðslu- konu og eiga þau tvær dætur, Arnrúnu, 14 ára, og Brynju, sem er tveimur árum yngri. baldura@mbl.is Kristinn Valur Wiium fertugur í dag Ljónheppið afmælisbarn Nýirborgarar Reykjavík Ása Björg fæddist 2. desember kl. 7.43. Hún vó 3.610 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Harpa Ingólfs- dóttir og Ómar Bendtsen. Akranes Sveinn Jörundur fæddist 5. janúar kl. 14.11. Hann vó 3.750 g og var 54 cm langur. Foreldrar hans eru Sigurborg Ósk Haraldsdóttir og Björn Hákon Sveinsson. Akranes Anna Málfríður fæddist 6. júní kl. 4.37. Hún vó 3.485 g og var 51 cm löng. Foreldrar henn- ar eru Rúna Björk Gísla- dóttir og Gunnbjörn H. Arnljótsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.