Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 28
28 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009 GRÚSKARAR á bókasafni í norður- ítölsku borginni Verónu, hafa fundið ævagamalt handrit, það elsta sem vit- að er um með leið- beiningum um það hvernig fara á að því að næla sér í þann sem maður er skotinn í. Handritið er kennslubók í því hvernig eigi að skrifa ástarljóð sem virka, og er talið vera frá því um 1250 og skrifað á latínu. Höfund- urin er Guido nokkur, og það vekur furðu að hann var prestur, en sem kunnugt er þurfa prestar kaþólsku kirkjunnar að virða skírlífisheit. Ráðin sem Guido gaf lesendum sín- um á miðöldum eru allt frá því hvern- ig senda eigi fyrsta ástarbréfið, til þess hvernig eigi að taka af skarið og tjá hug sinn allan. Regla númer eitt er að lofsama fegurð viðtakandans með hástemmdum lýsingum og best ef bréfritari getur borið sjálfan sig og elskuna sína saman við þekktar tur- tildúfur úr grísku goðafræðinni. Hann nefnir sérstaklega að það sé áhrifamikið ef bréfritari líkir sér og ástinni sinni við Helenu fögru sem varð ástfangin af prinsinum París. Þá þykir honum líka líklegt til árangurs að viðtakandinn fái kveðjur, „jafn- margar og fiskarnir í sjónum“. Skrifar til kvenna Guido ráðleggur bréfriturum að gera viðtakandanum strax ljóst að miklar tilfinningar séu í spilinu, svo stórar að erfitt geti verið að tjá þær. Þá sé heppilegt að segja: „Ég elska þig heitt, fæ ei með orðum lýst, jafn- vel þótt allir mínir kropps limir gætu talað“ eða „Fyrir ilminn af ást þinni mun ég klífa björg og synda höf“. Það sem fræðimönnum í Verónu þykir hvað merkilegast við handrit Guidos er það, að hann ávarpar konur ekkert síður en karla, þegar hann tal- ar um lesendur sína. „Þetta styrkir nýjar hugmyndir um að á miðöldum hafi konur verið bæði læsar og skrif- andi,“ sagði Francisco Stella prófess- or í miðaldabókmenntum í viðtali við ítalska blaðið La Repubblica. Fyrir ilm af ástinni Handrit frá miðöld- um breytir hug- myndum um konur Frá Verónu Á FYRSTU háskóla- tónleikum nýs árs í Norræna húsinu á morgun kl. 12.30, leika Sigurlaug Eðvalds- dóttir fiðluleikari, Helga Þórarinsdóttir víóluleikari, Bryndís Björgvinsdóttir sellóleikari og Valgerður Andrésdóttir píanóleikari, Píanókvartett nr. 2 í Es-dúr kv. 493 eftir W. A. Mozart. Hugmyndin að stofnun kvartettsins kviknaði í nóvember 2007 í Berlín og eru þetta fyrstu opinberu tónleikar þessa sam- starfs. Allar hafa konurnar þó verið viðloðandi ís- lenskt tónlistarlíf með margvíslegum hætti síðasta áratug og lengur, en strengjaleikararnir leika allir með Sinfóníuhljómsveitinni. Tónlist Nýr kvartett kveður sér hljóðs Kvartettinn Í TILEFNI sýningar á text- íllist í Gerðarsafni í Kópavogi býður Kópavogskirkja unn- endum sköpunar með skyttu og nál að skoða sýnishorn hökla Sigrúnar Jónsdóttur (1921-2001). Sigrún var frum- kvöðull í kirkjulist og batík hér á landi og lærði list sína í Sví- þjóð. Hún gerði á löngum og farsælum starfsferli á fimmta tug hökla fyrir kirkjur landsins og eru hátíðarhöklar Dómkirkjunnar, Skálholts- kirkju og Akureyrarkirkju meðal verka hennar. Sigrún hlaut meðal annars viðurkenningar fyrir verk sín í Svíþjóð, Mónakó, Danmörku og Ítalíu og sýndi á einkasýningum víða um heim. Hönnun Höklar Sigrúnar í Kópavogskirkju Einn af höklum Sigrúnar. KVIKMYNDASAFN Íslands sýnir í kvöld kl. 20 í Bæjarbíói í Hafnarfirði og á laugardag kl. 16, Konungskomur til Íslands 1907-1930. Konungskoman 1921 verður sýnd í endurgerð Eiðs Guðnasonar. Þá verður sýnd mynd frá 1921 eftir Pétur Brynjólfsson ljósmyndara. Frá konungskomunni 1926 koma myndir eftir Hallgrím Ein- arsson ljósmyndara á Ak- ureyri, sem ekki hafa verið sýndar fyrr, auk myndar Lofts Guðmundssonar frá því ári. Frá árinu 1926 verða sýndir hlutar mynda Hallgríms Einarssonar og Lofts Guðmundssonar en frá árinu 1930 verður sýnd frönsk kvikmynd. Kvikmyndir Kóngurinn kemur í heimsókn Kóngurinn kemur. Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is FJÖLDI viðburða verður á Vetr- arhátíð á föstudagskvöld og laugardag um næstu helgi, en þá er einnig Safna- nótt sem hefur notið mikilla vinsælda í menningarlífi borgarinnar. Á dagskrá eru á annað hundrað viðburða, víða um borgina. Grjótaþorpið, elsti hluti Reykjavíkur, verður þó fyrir miðju. Hanna Birna Kristjánsdóttir borg- arstjóri setur hátíðina í Fógetagarð- inum við Aðalstræti við upphaf Safn- anætur klukkan 19.00 á föstudag. Á því svæði byrjaði borgin að mótast og stefnt er að því að með aðstoð lýs- ingar, hljóða, kvikmynda og leiklistar þokist Grjótaþorp aftur til 19. aldar eina kvöldstund. Fólk birtist úr fortíð „Við hyggjumst lýsa upp garðana hérna og fá einskonar vonarljós inn í ástandið í samfélaginu,“ segir Sverrir Guðjónsson tónlistarmaður, sem býr í Grjótaþorpi og er í stjórn íbúasamtak- anna. Hann segir að fjöllistahópurinn Norðanbál komi þar að verki og að- stoði við að kveikja anda fortíðar. „Hér skýtur upp kollinum fólk úr for- tíð, í gömlum búningum. Gamli brunn- urinn, þar sem allar sögurnar spruttu fram og bárust um bæinn, er hér við Aðalstræti, og vatnsberinn mætir á staðinn. Vaktmaðurinn mætir líka með luktina sína. Fólk verður leitt inn í þorpið frá gamla kirkjugarðinum, sem er gegnt Herkastalnum. Síðan getur hver og einn rölt um og upplifað stemn- inguna.“ Sverrir segir að ekki sé ætlunin að vera með leiðsögn um Grjótaþorpið. Eftir að borgarstjóri hefur sett hátíð- ina ganga vaktmaðurinn og vatnsber- inn inn í þorpið. „Fólk getur fylgt þeim áleiðis en síðan dreifst um þorpið. Hér og þar verða uppákomur og hug- myndin er að það verði líf í húsunum; að fólk gangi inn í gamlan tíma en samt eru íbúar að fást við sitt enn í dag. Til dæmis tónlist. Í Grjótaþorp- inu búa margir listamenn og sumir munu til að mynda vera að æfa sig á hljóðfæri við opna glugga, þannig að tónarnir berast út í þorpið.“ Þegar Sverrir er spurður að því hvort þessi áhersla á fortíðina í hinum gamla kjarna borgarinnar sé ekki tímanna tákan, að verið sé að benda á raunveruleg gildi sem hafa verið til staðar, segir hann að svo sé. „Vissulega má segja að við séum að leita að rótum okkar,“ segir hann. Ýmsar sýningar Fyrirhugað er að varpa kvikmynd út um glugga á Vinaminni, aftan á hvítan vegg Morgunblaðshússins við Aðalstræti. „Þar birtist eldgos, þögul mynd um eldfjöll og sköpun lands, sem minnir okkur á fæðingu, nýtt upphaf, líkt og í lokakafla Völuspár,“ segir Sverrir. „Moggahöllin er eins- konar táknmynd fyrir risaeðluna sem tróð sér inn í þorpið. Þegar Mogga- höllin reis og til stóð að breyta mið- bænum í blokkahverfi stóð jafnvel til að leggja hraðbraut gegnum Grjóta- þorpið. Hér átti að rífa allt niður.“ Af því varð sem betur fer ekki, vegna andspyrnu fólksins. „Hér er mikið af skemmtilegum lista-, hönnunar- og handverksgall- eríum. Þar verða ýmsar sýningar sem tengjast hátíðinni og Grjóta- þorpinu. Af nógu verður að taka.“ Þá verður á efstu hæðum Gróf- arhúss, sem hýsir Borgarbókasafn, Borgarskjalasafn og Ljósmyndasafn Reykjavíkur, hægt að njóta útsýnis yfir upplýst Grjótaþorpið og skoða gamlar ljósmyndir og fróðleg rit sem því tengjast. Vonarljós inn í ástandið  Sjónum verður beint að Grjótaþorpinu á Vetrarhátíð um næstu helgi  Garðar verða lýstir upp, leikarar verða með og gestir upplifa liðna tíma Morgunblaðið/Einar Falur Í Grjótaþorpinu „Hér og þar verða uppákomur og hugmyndin er að það verði líf í húsunum; að fólk gangi inn í gamlan tíma,“ segir Sverrir. www.vetrarhatid.is PACIFICA-strengjakvartettinn fékk Grammy- verðlaunin við verðlaunaathöfn í fyrrakvöld, fyrir besta flutning kammertónlistar á plötu. Sig- urbjörn Bernharðsson fiðluleikari er einn fjór- menninganna í Pacifica, en verðlaunaplatan geymir strengjakvartetta nr. 1 og 5 eftir eitt mesta núlifandi tónskáld Bandaríkjamanna, Elliot Carter, sem fagnaði aldarafmæli fyrr í vetur. Á síðasta ári var Pacifica-kvartettinn útnefndur tónlistarhópur ársins 2009 af einu stærsta tónlist- artímariti Bandaríkjanna, Musical America, og fékk einnig boð um að taka við tónleikaröð hins heimsfræga Guarneri-kvartetts í Metropolitan- safninu í New York. Í viðtali við Morgunblaðið á aðfangadag jóla gerði Sigurbjörn ekki mikið úr afrekum sínum með Pacifica og sagði að fyrst og fremst snerist þetta um vinnuna og tónlistina, og heiðurinn breytti því ekki. Um Elliot Carter, sem hann sagði Bandaríkjamönnum það sem Halldór Laxness er okkur, sagði Sigurbjörn: „Við unnum mikið og ná- ið með honum og það verður það eftirminnilega frá árinu. Elliott Carter er ótrúlegur snillingur og gaman að vera í návígi við svo mikinn gáfumann. […] Hann er með svo tjáningarríkt andlit að þeg- ar við vorum að spila fyrir hann fengum við mjög sjónræna mynd af því sem hann var að hugsa um spilamennskuna hjá okkur. Því verður ekki hægt að gleyma.“ Sinfóníuhljómsveit Íslands og Rumon Gamba hljómsveitarstjóri voru einnig tilnefnd til Grammyverðlaunanna fyrir plötu með verkum franska tónskáldsins Vincents D’Indy, en fengu ekki verðlaunin. begga@mbl.is Pacifica fékk Grammy Pacifica Margverðlaunaður strengjakvartett. Sinfóníuhljómsveitin tilnefnd en fékk ekki verðlaunin Voces Thules bjóða upp á útgáfu- tónleika á Vetrarhátíð á föstu- dagskvöldið kemur. Tónleikarnir verða í Iðnó, hefjast klukkan ellefu um kvöldið og lýkur klukkan 12.32 eftir miðnættið. Sú tímasetning er engin tilviljun þar sem Voces Thu- les, ásamt Arngeiri Heiðari Hauks- syni, flytja tónlist af diskinum Sturlunga – Battle of Iceland – Sék eld of þér. Félagarnir í Voces Thules fundu forn lög sem þeir fella við draumkvæði úr Sturlungu, sem sagan segir að hafi verið kveðin fyrir fólk í svefni skömmu fyrir Örlygsstaðabardaga, sem var einmitt í ágúst árið 1232. „Nú vill svo sérkennilega til að við lendum í miðri samtíma- Sturlungu með þessa útgáfu okk- ar,“ segir Sverrir Guðjónsson, einn meðlima Voces Thules. Hljóðfæri í miðaldastíl voru smíðuð sérstaklega fyrir hópinn fyrir flutninginn, en unnið hefur verið að verkefninu frá árinu 2002. Voces Thules flytja draumakvæði Sturlungu Við jörðum þá með annarri, ef svo færi að við slægjumst í för með þeim.30 » Í DAG: Kl. 12.15 hádegistónleikar í Hafnarborg, Emil Friðfinnsson og Þórarinn Stefánsson. Verk eftir Leif Þórarinsson og fleiri. Kl. 20 í Langholtskirkju. Verk eftir Egil Ólafsson, Ríkarð Örn Pálsson og Gunnar Þórðarson í flutningi Jón Leifs Camerata og Diddúar. Á MORGUN: Kl. 20 í Hafnarborg. Stelkur flytur verk eftir Charles Ross og fleiri. FIMMTUDAG: Kl. 12.15 í Sölvhóli. Söngnemar Listaháskólans syngja. Kl. 20 í Háskólabíói. Sinfóníu- hljómsveit Íslands leikur m.a. Píanókonsert eftir Daníel Bjarnason. Einleikarar Einar Jó- hannesson og Víkingur Heiðar Ólafsson. FÖSTUDAG: Kl. 19.30 í Laugarborg, Emil og Þórarinn. Kl. 20 í Hafnarborg. Verk eftir Árna Egilsson. Myrkir músíkdagar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.