Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009 Eftir Andra Karl andri@mbl.is ÞRÁTT fyrir hálfkláraða vinnuað- stöðu kynnti sérstakur saksóknari, Ólafur Þór Hauksson, embætti sitt í gærdag. Um leið var tekið í gagnið nýtt vefsvæði saksóknarans. Fram- undan er að rannsaka grun um refsi- verða háttsemi í aðdraganda, tengslum við og í kjölfar banka- hrunsins svonefnda. Þegar hafa bor- ist nokkrar ábendingar og gera má því skóna að þeim fjölgi mikið á næstu dögum og vikum. Ólafur kynnti einnig til leiks starfsmenn embættisins. Fjórir eru í fullu starfi og Sigurður Tómas Magnússon hæstaréttarlögmaður sinnir lögfræðilegum ráðgjafastörf- um í hlutastarfi. Aðrir starfsmenn eru Grímur Grímsson aðstoðaryf- irlögregluþjónn, Hólmsteinn Gauti Sigurðsson, lögfræðingur yfirstjórn- ar, og Sveinn Ingiberg Magnússon aðstoðaryfirlögregluþjónn. Með reynslu úr Baugsmálinu Sigurður Tómas og Sveinn Ingi- berg eru ekki alls ókunnugir stórum efnahagsmálum. Báðir tengjast þeir Baugsmálinu. Sveinn Ingiberg vann við rannsókn málsins og Sigurð Tómas þekkja flestir sem settan sak- sóknara í hluta málsins. Embættið hefur verið starfrækt í eina viku. Á þeim tíma hafa starfs- menn verið að átta sig á heild- armyndinni og sett sig í samband við sína samstarfsaðila. Í gærmorgun var m.a. langur fundur með rannsóknarnefnd Al- þingis. Þeirri nefnd var komið á fót til að rannsaka aðdraganda og orsak- ir falls íslensku bankanna 2008 og tengda atburði. Á næstu dögum verður svo fundað með Fjármálaeft- irlitinu. Ólafur gerir ráð fyrir að þar liggi lykilupplýsingar fyrir þá vinnu sem embættið er að ráðast í. Rannsóknar- og ákæruheimildir embættisins taka til efnahags-, auðg- unar- og skattabrota. Að sögn Ólafs á enn eftir að meta sérstaklega hvaða mál það eru sem tengjast bankahruninu, s.s. með tilliti til þess hvaða mál embættið rannsakar og hvaða mál falla undir önnur embætti. „En skattrannsóknarstjóri og Fjár- málaeftirlitið munu fyrst og fremst rannsaka þau mál sem snúa að þeirra sérsviði. Ef málin eru þannig vaxin að þau skuli sæta ákæru af hálfu ákæruvaldsins þá reikna ég með að þessar stofnanir vísi málum sínum til okkar. Ef þau tengjast bankahruninu,“ segir Ólafur. Fær upplýsingar víða að Hinn sérstaki saksóknari getur óskað eftir upplýsingum um stöðu mála sem eru til meðferðar hjá skattrannsóknarstjóra, Fjármálaeft- irlitinu, Samkeppniseftirlitinu og öðrum réttarvörslu- og eftirlitsstofn- unum. Með þessu móti er honum veittur kostur á að koma fyrr að málum og koma á framfæri afstöðu til þess hvort mál eigi að fara til opinberrar meðferðar. Starfsemin á fullt  Embætti sérstaks saksóknara hefur verið starfandi í viku  Uppljóstrarar sleppa við ákæru ef þeir uppfylla skilyrði NÝLUNDA í réttarkerfinu á Íslandi og á Norðurlöndunum öllum er ákvæði um uppljóstrara sem finna má í lögum um sérstakan saksóknara. Ríkissaksóknara er heimilt að ákveða, að uppfylltum skilyrðum og rök- studdri tillögu frá sérstaka saksóknaranum, að sá sem hefur frumkvæði að því að láta lögreglu eða saksóknara í té upplýsingar eða gögn, sæti ekki ákæru þótt upplýsingarnar eða gögnin leiði líkur að broti hans sjálfs. Skilyrðin eru þröng en m.a. verður að vera fyrirséð að sök þess sem gef- ur upplýsingar sé mun minni en sök þess eða þeirra sem upplýsingarnar beinast gegn. Einnig verður að teljast líklegt að gögnin eða upplýsing- arnar geti leitt til rannsóknar eða sönnunar á broti eða séu mikilvæg við- bót við fyrirliggjandi sönnunargögn. Heimild fyrir uppljóstrara Morgunblaðið/Golli Fimm manna herdeild Sigurður Tómas Magnússon, Hólmsteinn Gauti Sigurðsson, Ólafur Þór Hauksson, Sveinn Ingiberg Magnússon og Grímur Grímsson rannsaka grun um refsiverða háttsemi í tenglsum við bankahrunið. Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is Í LÖNGU viðtali, sem birtist í vef- útgáfu tímaritsins Condé Nast Port- folio, segist Dorrit Moussaieff for- setafrú lengi hafa varað við bankahruninu. „Maðurinn minn mun hata mig fyrir að segja þetta, en ég er 59 ára, og hef þrisvar sinnum upplifað stór- ar fjármálakreppur,“ hefur blaða- maðurinn Joshua Hammer eftir Dorrit en hann snæddi kvöldverð með forsetahjónunum á Bessastöð- um í desember þar sem boðið var upp á laxafrauð, lambakjöt og til- heyrandi veigar. ,,Ég hef tekið þátt í viðskiptum frá 14 ára aldri og ég veit hvenær eitt- hvað er of gott til að vera satt. Ég sá hversu hratt allir bankarnir stækk- uðu, hverjum þeir lánuðu fé og ég gerði mér grein fyrir þeirri miklu áhættu sem þeir tóku,“ heldur Dor- rit áfram í viðtalinu. Þegar Dorrit kveðst hafa varað við þessu í hvert skipti sem bankar voru opnaðir á undanförnum árum segir blaðamaðurinn að forsetinn hafi ekið sér í sætinu. „Já, en Dorrit, þú mátt ekki láta hafa þetta eftir þér.“ „Hver segir það?“ spyr hún. „Ég geri það. Það er alveg á hreinu.“ Blaðamaðurinn segir að tveimur dögum seinna hafi Dorrit hringt í hann og sagt að hann gæti notað allt það sem eiginmaður hennar hefði ekki viljað að haft væri eftir henni. Í viðtalinu er meðal annars haft eftir forseta Íslands að Íslendingar muni án efa upplifa erfiða tíma. „Þúsundir munu líklega missa heimili sitt,“ segir forsetinn. Þú getur ekki sagt þetta Þessu er Dorrit ósammála. „Fyr- irgefðu, elskan, en ég er ekki sam- mála þér. Það munu engir missa húsin sín. Hvernig er hægt að missa hús í landi þar sem húsin eru tvöfalt fleiri en manneskjurnar?“ „Dorrit, þú getur ekki sagt þetta,“ segir forsetinn. Í viðtalinu eru orða- skiptin rakin áfram. Mótmælunum á Austurvelli eru gerð skil í viðtalinu. Blaðamaðurinn hefur það eftir Dorrit að hana hafi langað mikið til þess að fara á vett- vang mótmælanna. „En maðurinn minn leyfir mér það ekki. Ég er eins og eiginkona araba.“ Deilu íslenskra og breskra yf- irvalda ber á góma. Blaðamaðurinn segir Dorrit fylgjast vel með málinu og að fyrir dyrum hafi staðið óform- legur fundur hennar og fulltrúa ís- lenskra yfirvalda í London um hvernig standa skuli gegn kröfum breskra yfirvalda um að Íslendingar beri ábyrgð á tapi breskra sparifjár- eigenda. Örnólfur Thorsson forsetaritari kveðst ekki þekkja til þessara funda. Dorrit og Ólafur Ragnar takast á um bankahrunið Orðaskiptin rakin í tímaritsviðtali Morgunblaðið/Eggert Forsetahjónin Dorrit kveðst hafa varað við efnahagshruninu. Í HNOTSKURN »Blaðamaður tímaritsinsCondé Nast Portfolio, Jos- hua Hammer, fjallar um heim- sókn sína til Bessastaða, upp- runa og feril forsetahjónanna, ástir þeirra og erjur. »Deila breskra og íslenskrayfirvalda er einnig reifuð auk þess sem fjallað er um efnahagsástandið á Íslandi og mótmælin vegna þess. VEGNA lækkunar á heimsmarkaðs- verði á dísilolíu síðustu daga hafa Bensínorkan, Skeljungur, Atlants- olía og N1 ákveðið að lækka verð á henni um 5 krónur. Almennt verð á dísil er eftir breytingu 159,10 krónur lítrinn hjá Orkunni, 162,80 krónur hjá Skeljungi, 159,20 krónur hjá Atl- antsolíu og 162,8 krónur hjá N1. Að sögn Magnúsar Ásgeirssonar, innkaupastjóra N1, skýrist lækkun- in á heimsmarkaðsverði fyrst og fremst af minni eftirspurn í kjölfar efnahagslægðarinnar á heimsvísu. Einnig vinni það með neytendum að ekki hafi borið á vetrarhörkum í Bandaríkjunum. Spurður um breytingar á bensín- verði segir Magnús heimsmarkaðs- verð á bensíni hafa verið á leiðinni upp að undanförnu, hafi t.d. hækkað um meira en 40% frá áramótun, en styrking íslensku krónunnar síðustu daga hafi gert það að verkum að hækkunin á heimsmarkaðsverði hafi ekki skilað sér út í verðlagninguna hérlendis. Beðinn að spá um verðþróun næstu vikna segist Magn- ús eiga von á stöðugu verði. Lækkun rakin til minni eftirspurnar Verð á dísilolíu lækkar um 5 krónur hérlendis                                ! " #$ %%% &'  & EVRÓPUSAMTÖK smáfyrirtækja (ESBA) hvetja ríkisstjórnir Íslands og Bretlands til að íhuga með hvaða hætti ákvarðanir þeirra geti skaðað smáfyrirtæki. Þá eru að- gerðir Breta gagnvart Íslendingum harmaðar. Í tilkynningu samtak- anna segir að þær harkalegu að- gerðir sem bresk stjórnvöld gripu til gagnvart Íslandi þann 8. október sl. hafi skapað alvarleg vandamál. Harma fram- komu Breta VEGNA umfjöllunar um auglýs- ingu á stöðu bankastjóra Nýja Landsbankans sendi bankaráðið frá sér yfirlýsingu í gær þar sem kem- ur fram að ráðið muni auglýsa eftir nýjum bankastjóra eins fljótt og að- stæður leyfa og með hliðsjón af því hvenær efnahagsreikningur bank- ans liggur fyrir. Ásmundur Stef- ánsson var ráðinn tímabundið til að gegna stöðunni. Staðan aug- lýst fljótlega TENGLAR .............................................. www.serstakursaksoknari.is TÍMAMÓTAÁFANGI náðist í bar- áttu NASF, verndarsjóðs villtra laxastofna, á fundi hjá sjávarút- vegsnefnd rússnesku dúmunnar í Moskvu fyrir helgi. Þar féllust Norðmenn á tillögur formanns sam- takanna, Orra Vigfússonar, þess efnis að alþjóðaleikreglur í um- gengni við villta laxa eigi að ráða og hafa Norðmenn í kjölfarið boðið Rússum, Finnum og Svíum til við- ræðna í Osló 26. febrúar nk. um til- högun reglna. „Þetta er gríðarlega mikilvægt skref. Vonandi verður þetta upphaf- ið af endalokum netaveiða á laxi,“ segir Orri sem hefur á seinustu ár- um deilt hart á veiðireglur á villtum laxi í Noregi, sérstaklega í norður- héruðum nálægt landamærum Rússlands og Finnlands. Á fund- inum í Moskvu gerði Orri sjáv- arútvegsnefndinni grein fyrir möguleikum þeirra í stöðunni m.a. með friðunar- svæðum, banni við tilteknum veiðivélum, fjölda lagna og atriða er miða að eft- irliti og löggæslu. Orri hefur bent Rússum, Svíum og Finnum á að hlutfallsleg aukn- ing hafi orðið á laxveiðum Norð- manna á viðkvæmum svæðum. Þannig sé nú meiri en helmingur af heildarveiði í net í Noregi á strand- svæðum í Finnmörku og þar hafi fundist aukinn fjöldi ókynþroska laxa sem bendi til þess að laxinn sé upprunnin í Tanaánni í Finnlandi og stóru rússnesku ánum á Kola- skaganum. Orri segist gera sér vonir um að á næstu tveimur árum takist að uppræta algjörlega neta- veiðar á laxi. Tímamótaáfangi í baráttu NASF Orri Vigfússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.