Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 17
ÚR BÆJARLÍFINU MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009 Í vor munu fornleifarannsóknir hefjast í Höfnum en menningarráð Reykjanesbæjar ákvað fyrir skömmu að ganga til samninga við Bjarna F. Einarsson fornleifafræð- ing og forstöðumann Fornleifastof- unnar um uppgröft og úrvinnslu gagna. Landnámsskáli fannst við Kirkjuvogskirkju árið 2003 þegar unnið var að fornleifaskráningu í bæjarlandinu en þeirri skráningu er nú lokið. Þegar prufuholur voru gerðar kom í ljós að skálinn gæti ekki verið yngri en frá aldamót- unum 900 sem setur hann í flokk meðal elstu byggðarleifa á Íslandi.    Nokkrir menntaðir söngvarar í Reykjanesbæ og nágrannasveit- arfélögunum hafa sameinað krafta sína undir einn hatt. Orpheus heitir hópurinn og hyggjast þau í framtíð- inni m.a. flytja tónverk eftir tón- skáld af Suðurnesjum, auk þess sem þau taka að sér flutning í hin- um ýmsu athöfnum, hvert og eitt eða í stærri hópum.    „Sögustund suður með sjó“ er hins vegar heiti á tónleikaröð sem um- boðsmaður Íslands og íbúi í Reykjanesbæ, Einar Bárðarson, hyggst bjóða upp á með hækkandi sól. Þar munu koma fram þjóðþekkt sagnaskáld og söngvarar og flytja tónlist í einu af menningarhúsum bæjarins.    Í Gryfjunni í Duushúsum er Byggðasafn Reykjanesbæjar nú að undirbúa sýningu í samstarfi við Flug- og sögusetur Reykjaness um Völlinn – heim innan girðingar. 60 ár eru senn liðin frá því að Ísland gekk í Nató með tilheyrandi breyt- ingum á íslensku samfélagi, sér í lagi fyrir Suðurnesjamenn sem eignuðust nágranna innan girð- ingar. Undanfarna mánuði hefur ýmislegt í íslensku samfélagi kallast á við þennan 60 ára gamla atburð, einkum mótmæli við Alþingishúsið, notkun táragass og fleira sem snýr að samtakamætti almennings við að mótmæla gildum í samfélaginu. Munir og myndir eru að byrja að berast og búið er að safna töluverðu efni með viðtölum. Sýningin verður opnuð í mars og hönnuð af Birni G. Björnssyni sýningahönnuði.    Bóklestur hefur aukist í Reykja- nesbæ, en alkunna er að í efnahags- niðursveiflum eykst aðsókn að bókasöfnum þar sem finna má af- þreyingu af ódýrustu gerð. 16% aukning útlána varð hjá Bókasafni Reykjanesbæjar milli áranna 2007 og 2008. Þá fóru útlán í jan- úarmánuði síðastliðnum vel yfir 11 þúsund, en viðlíka tölur hafa ekki sést lengi, að sögn forstöðumanns. Um 300 manns nýta sér þjónustu safnsins á degi hverjum.    Nýting Virkjunar, miðstöðvar fólks sem leitar nýrra tækifæra í atvinnu eða námi, mætti hins vegar vera betri að sögn Páls Rúnars Páls- sonar starfsmanns, sem þó er glað- ur með að æ fleiri nýta sér þjón- ustuna á degi hverjum. Öll stoðþjónusta er komin í fastar skorður, svo sem sálgæsla og ráð- gjöf ýmiskonar, en námskeiðum og fyrirlestrum er skotið inn í dag- skrána eftir því sem efni eru til. Um 1.400 manns eru án atvinnu á Suðurnesjum og starfsfólk Vinnu- málastofnunar hefur aldrei lifað aðra eins tíma í starfinu. Þótt Virkj- un sé innan bæjarmarka Reykja- nesbæjar eru allir Suðurnesjabúar velkomnir þangað enda standa sveitarfélögin á Suðurnesjum að baki Virkjun, ásamt verkalýðsfélög- unum á svæðinu, Vinnumálastofnun og menntastofnunum. REYKJANESBÆR Svanhildur Eiríksdóttir fréttaritari Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Félagsstarf Húsnæði Virkjunar, miðstöðvar fólks í atvinnuleit, býður upp á fjölbreytt félagsstarf eins og gestir í opnunarhófi fengu að reyna. Þegar Kristján Runólfssonheyrði að Steingrímur J. Sig- fússon yrði ráðherra kom honum í hug hringhenda: Lítt ég spjalla um þrjótinn þann, þó er snjall með rímur. Nokkra galla hefir hann, hetjan Skalla-Grímur. Og Hallmundur Kristinsson velt- ir fyrir sér hvers vegna Vinstri grænir séu á móti hvalveiðum: Glöggt má það sjá að Grænna tal glæðir fjölmarga erju. Víst er það ljótt að veiða hval. Ég veit bara ekki út af hverju! Ingólfur Ómar Ármannsson er ekki í kreppuþönkum er hann yrkir: Ástarfuni alla stund ákaft brann í taugum. Þegar á mig haukleg hrund hýrum mændi augum. Og hann bætir við hestavísu: Yfir grundir grjót og flá geyst fer reiðarljónið. Hrjóta gneistar hófum frá hart er þeyst um frónið. VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is Af hvölum og hestum Fallegur borðbúnaður fyrir matvæli er til þess gerður að auka matarlyst og fegra umhverfið í kringum okkur. Til eru ótal tegundir af fallegum matarílátum og eru leir- hlutir mjög vinsælir í þessum efnum. Leirhlutir eru þó ekki eingöngu framleiddir undir matvæli heldur einnig sem skrautmunir. Í sumum tilfellum getur verið erfitt að vita hvort leirhlutur sé skrautmunur eða hvort hann hafi verið framleiddur sem matarílát. Til eru dæmi um að fólk hafi veikst alvarlega við neyslu matvæla sem geymd voru í leirhlutum sem ekki voru framleiddir fyrir mat- væli. Þegar búsáhöld úr leir eru keypt/notuð skal athuga vel hvort þau séu ætluð sérstaklega fyrir matvæli. Leir- hlutir sem eru mjög litríkir geta gefið frá sér ýmsa þung- málma, eins og blý og kadmíum sem geta reynst hættu- leg við neyslu. Blý getur haft alvarleg áhrif á taugakerfi og valdið hættulegu blóðleysi hjá fullorðnum, einnig getur það skert vitsmunaþroska barna varanlega. Kadmíum safn- ast fyrir í líkamanum og veldur truflun á nýrnastarfsemi og beinskemmdum, það er einnig talið geta haft neikvæð áhrif á frjósemi. Óráðlegt er að geyma matvæli eða drykki í ílátum úr leir nema fullvíst sé að þau megi nota sem slík. Sér- staklega skal varast að nota leirhluti undir súr matvæli og súra drykki s.s. ávaxtagrauta, ávaxtasafa og vín. Þegar leirhlutir eru keyptir með matvæli í huga er ráðlagt að líta eftir merkingum á umbúðum vörunnar eða merkingu á vörunni sjálfri. Leirhlutir sem eru ætlaðir undir matvæli eiga að vera auðkenndir með einhverju af eftirfarandi:  Textanum „fyrir matvæli“  Glas- og gaffalmerki  Leiðbeiningum um rétta notkun  Vöruheiti sem gefur til kynna notkunarsvið, t.d. „kaffi- bolli“ eða „matardiskur“. Framleiðendur og dreifingaraðilar eiga að tryggja að leirhlutir séu framleiddir samkvæmt viðurkenndum framleiðsluháttum þannig að við eðlilega eða fyr- irsjáanlega notkun berist ekki úr þeim efni í svo miklum mæli að heilsu manna kunni að stafa hætta af, eða það valdi óviðunandi breytingum á efnasamsetningu mat- væla eða raski skynrænum eiginleikum þeirra. Örugg matvæli – allra hagur! Leirhlutir undir matvæli Morgunblaðið/G.Rúnar Litríkir Athuga þarf vel hvort leirmunir eru sér- staklega ætlaðir til að geyma matvæli. Sesselja María Sveinsdóttir, matvælafræðingur hjá Matvælastofnun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.