Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009 RAX Mótmæli Hörður Torfason var í fylkingarbrjósti þeirra mótmælenda sem tóku sér stöðu við útganga Seðlabankans í gærmorgun. Ekki sást til Davíðs. JÓN Baldvin Hannibalsson hef- ur í nokkra áratugi sungið sama lagið, þótt tilbrigði mótist af að- stæðum hverju sinni. Stefið snýst um, að hann sé besti og framsýn- asti stjórnmálamaður landsins, aðrir séu verri og sjálfstæðismenn sýnu verstir. Þessi söngur birtist jafnt í sjón- varpi, útvarpi, dagblöðum og fyr- irlestrum. Hann var meira að segja fluttur á tröppum Ráð- herrabústaðarins við Tjarnargötu 25. október 2008, þegar Kolfinna, dóttir Jóns, gaf honum tækifæri til að birtast þar í keppni við mótmælastöðu á Austurvelli undir stjórn Harðar Torfasonar. Jón Baldvin Hannibalsson sagði skilið við beina stjórnmálaþátttöku árið 1998 en þá skip- aði Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hann sendiherra Íslands í Washington og síðar varð hann sendiherra Íslands í Helsinki fram undir lok nóvember 2005. Strax árið 2004 tóku að birtast viðtöl við Jón Baldvin, sem þóttu gefa til kynna, að hann ætl- aði að snúa sér aftur að stjórnmálastörfum úr sendiherrastólnum. Þá var það meðal höf- uðmála hans að afnema æviráðningu embættis- manna ríkisins, enda var hann að ljúka sínum embættismannsferli. Ögmundur Jónasson, for- maður BSRB, núverandi heilbrigðisráðherra, brást hart við þessu og minnti lesendur vefsíðu sinnar á, að snemma á 10. áratugnum hefðu sjúklingar talið sig nauðbeygða til að stofna varnarsamtök gegn aðför jafnaðarmannanna Jóns Baldvins og Sighvats Björgvinssonar að hag þeirra og hefðu þau hlotið nafnið Almanna- heill. Velferðarástinni væru greinilega takmörk sett. Síðan hefur Jón Baldvin oft gefið til kynna, að hann væri til þess búinn að bjóða sig fram til starfa á alþingi, en framboðið virðist til þessa meira en eftirspurnin. Síðast sagði hann af þegnlegu lítillæti á fundi Samfylkingarinnar á Akureyri 23. janúar 2009: „Ég hef mokað heilmikinn skít í íslenskri pólitík í að minnsta kosti sextán ár. Sá maður sem hefur löngun til þess að moka meiri skít hlýtur að vera eitthvað meira en skrýtinn. Hitt er annað mál að mér rennur blóðið til skyld- unnar. Þegnskyldan er þarna, og þegnskylda væri í því fólgin að moka þennan skít sem aðr- ir hafa komið okkur í.“ Hvað er það, sem knýr Jón Baldvin helst áfram í stjórnmálabaráttunni á líðandi stundu? Jú, að ýta Íslandi tafarlaust inn í Evrópusam- bandið og síðan enn og aftur rógurinn um Sjálfstæðisflokkinn. Samkvæmt grein hans í Morgunblaðinu 5. febrúar er höfuðsynd sjálfstæð- ismanna þessi: „Það ber ekki vott um mikla forystuhæfileika að geta ekki á 14 árum gert upp hug sinn til stærsta viðfangsefnis samtím- ans, sem er aðild Íslands að Evr- ópusambandinu.“ Þetta er frekjuleg afskiptasemi af innri málefnum Sjálfstæð- isflokksins. Jóni Baldvini hefur lík- lega aldrei dottið í hug að ganga í raðir sjálfstæðismanna og vinna Evrópuskoðun sinni fylgi. Strax eftir að Ísland var gengið í evrópska efnahags- svæðið (EES) 1. janúar 1994 tók Jón Baldvin að prédika aðild Íslands að Evrópusamband- inu, þvert á eigin boðskap, þegar EES- samningurinn var til meðferðar í alþingi. Umpólun Jóns Baldvins í Evrópumálunum á þessum tíma varð ekki til að auka vinsældir Al- þýðuflokksins í kosningum 1995, fylgið minnk- aði úr 15,5% 1991 í 11,4% 1995. Fylgi Alþýðu- flokksins var um 5%, þegar það var síðast mælt í skoðanakönnun, áður en flokkurinn stofnaði kosningabandalag undir merkjum Samfylkingarinnar árið 1999. Jón Baldvin réðst að forvera sínum á formannsstóli í Alþýðu- flokknum, Kjartani Jóhannssyni, fyrir að kunna ekki að fiska á atkvæðamiðum! 1983, ár- ið áður en Jón Baldvin varð formaður, fékk Al- þýðuflokkurinn 11,7% atkvæða en 11,4% í síð- ustu kosningum Jóns Baldvins sem formanns. Eitt af höfuðmálum Jóns Baldvins sem for- manns Alþýðuflokksins var að sameina vinstri- menn í einum flokki. Að því vann hann á þann veg, að Jóhanna Sigurðardóttir klauf Alþýðu- flokkinn fyrir þingkosningar 1995 og stofnaði Þjóðvaka. Síðan 1995 hefur enginn flokkur gert aðild Íslands að Evrópusambandinu að kosninga- máli. Ætlar Samfylkingin að gera það í vor? Er það skynsamlegasta svar Íslendinga við þvingunum frá Brussel vegna Icesave- reikninganna? Undir forystu utanríkisráðherra Samfylkingarinnar hefur verið lögð höf- uðáhersla á að styggja ekki Evrópusambandið með lögfræðilegum ágreiningi eftir bankahrun- ið. Skyldi flokkurinn telja það spilla fyrir að- ild? Jón Baldvin Hannibalsson hefur ekki neina málefnastöðu til að ráðast að Sjálfstæð- isflokknum vegna Evrópustefnu flokksins. Tónn hans er falskur, þegar hann lýsir aðild að Evrópusambandinu sem helsta bjargráði ís- lensku þjóðarinnar um þessar mundir. Honum finnst sem sé mestu skipta á þessum örlaga- tímum að semja um Icesave að kröfu sam- bandsins, grafa undan íslenskum landbúnaði og afsala þjóðinni rétti til yfirráða á auðlindum sjávar og líklega orkulindum, ef marka má ný- legar yfirlýsingar frá Brussel um, að orkunýt- ing skuli verða sameiginlegt ESB-verkefni. Jón Baldvin kennir Sjálfstæðisflokknum um það, sem hann kallar „skuldafangelsi“ þjóð- arinnar eftir bankahrunið, um leið og hann segir forystu um samningana um evrópska efnahagssvæðið hafa verið hjá honum, sjálfum Jóni Baldvini, en ekki sjálfstæðismönnum. Ingimundur Friðriksson, fráfarandi seðla- bankastjóri, birti hinn 6. febrúar erindi um að- draganda bankahrunsins í október 2008. Þar er meðal annars að finna þessa greiningu: „Augljóst er að bankarnir voru orðnir of stórir miðað við stærð íslenska þjóðarbúsins. Þeir nýttu sér laga- og regluumhverfi, gott lánshæfismat og einstaklega hagfelld skilyrði á alþjóðlegum mörkuðum til mjög hraðs vaxtar. Hin evrópska umgjörð gerði þetta kleift Eftir á að hyggja hefði öruggasta leiðin til þess að koma í veg fyrir hrun bankanna e.t.v. verið sú að setja í upphafi þrengri skorður við starfsemi þeirra en fjármálafyrirtækja í öðrum löndum Evrópska efnahagssvæðisins, þ.e. þeir fengju ekki að njóta þeirra réttinda sem EES- samningurinn fól m.a. í sér fyrir fjármálafyr- irtæki. Þar með hefði Ísland ekki orðið full- gildur þátttakandi í innri markaði Evrópusam- bandsins. Ég læt öðrum eftir að svara hvort stjórnmálalegur stuðningur hefði verið við hamlandi reglur á bankana á sínum tíma. Hins vegar blasir við að bankarnir nýttu kjör- aðstæður til þess að vaxa hraða en langtíma- forsendur reyndust til eins og mál skipuðust.“ Sé einhverri einni pólitískri stórákvörðun um að kenna, þegar litið er til bankahrunsins, er það aðildin að evrópska efnahagssvæðinu, sem Jón Baldvin Hannibalsson hefur talið stærstu rauðu rósina í hnappagati sínu. Það er mann- legt, að Jón Baldvin vilji skella pólitískri skuld vegna bankahrunsins og alls annars á aðra, en ekki stórmannlegt. Eftir Björn Bjarnason » Sé einhverri einni pólitískri stórákvörðun um að kenna, þegar litið er til bankahrunsins, er það aðildin að evrópska efna- hagssvæðinu, sem Jón Baldvin Hannibalsson hefur talið stærstu rauðu rósina í hnappagati sínu. Jón Baldvin, EES og bankahrunið Björn Bjarnason Höfundur er alþingismaður. BLOG.IS Gunnar Þórðarson | 9. febrúar 2009 Birtir yfir Bessastöðum Stórskemmtileg frásögn af viðtali Bessastaða- bóndans og spúsu hans við franskt glanstímarit birtist á visi.is í dag. Þar kemur fram að húsfreyjan á Bessastöðum var fyrir löngu búin að gera sér grein fyrir efna- hagsástandi þjóðarinnar. Sennilega meinti hún ekkert með að ,,Ísland væri stórasta land í heimi“. Hún hefur senni- lega ætlað að segja „skuldir Íslands eru stórastar í heimi.“... Meira: vinaminni.blog.is Ólafur Einarsson | 9. febrúar 2009 Hið lögbundna rán! Það er nú svo skrítið með þessa blessuðu lífeyr- issjóði að nú síðustu 20 - 30 árin hafa eignir mínar í þeim stöðugt minnkað. Nánast á hverju ári verður rýrnun í einhverjum þeirra sjóða sem standa eiga undir mínum út- gjöldum og lífi eftir að vinnudegi lýkur. ... Svo virðist á stundum sem þeir sem þar höndla með mína og þína peninga séu í stökustu vandræðum með að eyða þeim. Fjöldi utanlandsferða, dýrir bíla- leigubílar, dýr hótel, flottir veitingastaðir, dagpeningar ofl. ofl. allt á okkar kostnaði. Hér er enn og aftur um einhverskonar forræðishyggju að ræða sem vernda á fólkið fyrir sjálfu sér. Meira: olafur-62.blog.is Bjarni Harðarson | 8. febrúar 2009 Óborganlegur Matthildingur Það er í raun og veru ekki hægt að blogga um ann- að en Davíð núna. Hann sýnir enn og aftur að hann er óborganlegur Matthildingur en gleym- um ekki að þegar reynt er að breyta grafalvarlegu ástandi í gam- anþátt er stutt í sorgarleik. Það er vita- skuld hægt að vera sammála mörgu sem frændi minn segir í bréfinu til Jóhönnu en samt er svo merkilega tilgangslaust hjá honum að sitja. Meira: bjarnihardar.blog.is Haraldur Hansson | 9. febrúar 2009 ESB ... og hvað svo? Ef Diana Wallis vill í al- vöru taka tillit til sérhags- muna Íslendinga þá gerir hún það best með því að hætta að reyna að tæla okkur inn í Evrópuríkið. Hún var í viðtali við BBC í haust þar sem hún talaði um spillinguna á Evrópuþinginu sem „viðloðandi vanda- mál“ og boðaði bætur á árinu 2009. Hún ætti að sinna því frekar en koma hingað og misnota kreppuástandið til að koma íslensku ríkisvaldi til Brussel. Það er sorglegt hvernig einangr- unarsinnar – þessir sem vilja einangra Ís- land í Evrópusambandinu – hamra enda- laust á „krónan-er-dauð“ slagorðinu af því að það gengur í lýðinn. Bjóða upp á aðild sem „stefnu í peningamálum“ og benda á hana sem leið út úr kreppunni! En að út- skýra stjórnkerfi Evrópusambandsins er ekki líklegt til að afla trúboðinu fylgis, þó meiri þörf væri á þeim skýringum. Meira: maeglika.blog.is Eyþór Arnalds | 8. febrúar 2009 Hvað varð um ESB kröfuna? Um síðustu áramót (sem ekki voru fyrir löngu síðan) sagði for- maður Samfylking- arinnar að ríkisstjórn- arsamstarfinu væri „sjálfhætt ef samstarfs- flokkurinn samþykki ekki umsókn um ESB“. Nú er Samfylkingin aftur í rík- isstjórn með öðrum flokki. Gleymdist eitthvað að ræða þetta við VG, eða var þetta alltaf blekking? Meira: ea.blog.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.