Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009 Mönnum hættir til að gleyma aðfæst orð bera minnsta ábyrgð.     Í umræðum umlög um Seðla- banka 2001 sagði Jóhanna Sigurð- ardóttir: „Þetta getur varla þýtt annað á mæltu máli en að ef bankastjórinn fer ekki í einu og öllu eftir því sem forsætisráðherra segir eigi hann á hættu að vera lát- inn fjúka. Eðlilegri stjórn- sýsluhættir væru að bankaráðið réði sjálft einn bankastjóra sem ábyrgð bæri gagnvart bankaráði, sem gæti þá látið hann fara ef hann væri ekki starfinu vaxinn, frekar en að hann sé háður duttlungum og geðþóttaákvörðunum ráðherra á hverjum tíma.“     Davíð Oddssonsendi Sverri Hermannssyni, þá bankastjóra Landsbankans, bréf 1996 þar sem bankinn lækkaði ekki vexti í samræmi við óskir rík- isstjórnarinnar: „Mér finnst þú fara offari. Ég gæti belgt mig út og sagt að þessir snillingar í Lands- bankanum hafi tapað 11 þúsund milljónum á síðustu árum og þyrftu því að vaxtapína landið. Þeir tækju ekki eftir því þegar strákur á þeirra snærum týndi fyrir þeim 900 milljónum!! – og viðskiptavinum væri vafningalaust sendur reikn- ingur. Þetta mun ég ekki segja, en ef þið lagið ekki þvæluna, sem þið gerðuð í síðasta vaxtaóðagoti, er það endanlegt dæmi þess að þið vit- ið ekki hvað þið eruð að gera og þá mun ég sjá til þess fyrr en nokkurn grunar að menn komi að bankanum sem viti hvað þeir eru að gera. Ég vil fá svar frá þér – annað en skæt- ing í fjölmiðlum – strax – því ég mun ekki sitja lengur kyrr.“ Davíð Oddsson Sjálfstæði bankastjóra Jóhanna Sigurðardóttir                      ! " #$    %&'  (  )                               *(!  + ,- .  & / 0    + -                         !! " " #$" $       12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (              ! " " #$" $   ' #       :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? $     $&   %$ $ &$    &$ &$ &$ &$ %$ %$ %$ %$                            *$BC                        !           *! $$ B *! ( )  *" ")"'    + <2 <! <2 <! <2 (* ! ", ! -". !/  8- D           <7    "#$       $  %        & '( <   )   ' *+    $        ,   - .#        ,$     /    /   0 1      01 " "22  ! " "3' ", ! Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR ÍSLAND tekur þátt í Heimssýningunni í Shanghai í Kína árið 2010. Þátttaka Íslands er samstarfsverkefni fyrirtækja og hins opinbera. Tekinn hefur verið á leigu 500 fermetra sýning- arskáli sem verður á svæði með hinum Norð- urlandaþjóðunum. Framkvæmdasýsla ríkisins fyrir hönd utanríkisráðuneytisins óskaði eftir hugmyndum um útfærslu á innanhússskipulagi og sýningu í skálanum með áherslu á sýning- arhlutann. Lögð var áhersla á að þeir sem legðu inn tillögur hefðu víðtæka reynslu af hönnun sýn- inga. Alls sendu nítján aðilar inn gögn til skoðunar. Þriggja manna valnefnd fór yfir öll innsend gögn og flokkaði þau í samræmi við þær áherslur sem settar voru fram í lýsingu. Niðurstaða valnefnd- arinnar var að sex tillögur skyldu teknar til nán- ari skoðunar hjá framkvæmdastjórninni. Aðilar sem stóðu að tillögunum sex voru: Árni Páll Jóhannsson, hönnuður tillögu ásamt hópi einstaklinga á ólíkum sviðum; Hrafnkell Birg- isson og Theresa Himmer; Kjartan P. Sigurðsson og Heng Shi; List og saga, Björn G. Björnsson ásamt samstarfsaðilum og ráðgjöfum; Plúsarki- tektar, SagaFilm og SagaEvents og loks TARK teiknistofan efh. og Bysted ehf. Framkvæmda- stjórn EXPO 2010 fundaði með valnefndinni, fékk útskýringar og fór nánar yfir tillögurnar sex. Að lokinni þeirri yfirferð var það niðurstaða framkvæmdastjórnarinnar að óska eftir frekari kynningu frá eftirtöldum tillöguhöfundum: Árna Páli Jóhannssyni, hönnuði tillögu, ásamt hópi ein- staklinga á ólíkum sviðum; List og sögu, Birni G. Björnssyni ásamt samstarfsaðilum og ráðgjöfum; Plúsarkitektum, SagaFilm og SagaEvents. sisi@mbl.is Þrjár tillögur komnar í lokaúrslit Ísland verður með 500 fermetra sýningarskála á Expo 2010 í Kína Í MORGUNBLAÐINU þann 7. febrúar sl. birtist grein undir yf- irskriftinni „Karpað um íbúðir í Kö- ben“ þar sem nokkrir af kaupendum íbúða í Kaupmannahöfn árið 2007 sögðu farir sínar ekki sléttar. Í ljósi fréttarinnar vilja forsvarsmenn Stórhúsa koma nokkrum stað- reyndum á framfæri: „Í kaupsamningum kaupenda og fylgiskjölum þeirra er skýrt tekið fram hverjir aðstandendur verkefn- isins eru og að sömu aðiliar taki þátt í söluferli hótelíbúðanna. Þetta hefur varla farið fram hjá nokkrum þeim sem kannaði sölugögnin. Öllu tali um ólögmæta gjaldtöku í söluferlisins er harðlega vísað á bug. Á skrifstofu aðstandanda verkefn- isins liggja fyrir drög að leigusamn- ingi við sterkan leigutaka. Þennan samning geta allir hlutaðeigandi að- ilar kynnt sér til hlítar, sé vilji fyrir hendi, og tekið í kjölfarið upplýsta afstöðu til þess hvort fjárfestingin komi til með að vera arðsöm. Kaupendur þeir, er tilgreindir voru í grein Morgunblaðsins, virðast hafa misskilið upplýsingar um sölu- ferlið og þinglýsingar í kjölfar þess. Þegar íbúðirnar verða afhentar í maí n.k. munu kaupendur geta þinglýst eignum sínum á sitt nafn. Skattalegt hagræði réð för þegar sumir kaupendur stofnuðu danskt einkahlutafélag, sem síðar verður skrásett sem eigandi íbúðarinnar. Margir fjárfestar og fasteigna- kaupendur hafa orðið illilega fyrir barðinu á veikingu krónunnar og bankahruninu í kjölfarið. Það er því engin tilviljun að framangreindir að- ilar hafa lagt á sig mikið erfiði til þess að losna undan þeim kaup- samningum sem þeir undirrituðu ár- ið 2007. Ljóst er að gengishrun krón- unnar þýðir að greiðsla útborgunar vegna þessara íbúða mun hækka umtalsvert í íslenskum krónum talið. Forsvarsmönnum Stórhúsa þykir miður hvernig gæfa okkar Íslend- inga hefur snúist undanfarin miss- eri, en munu að sjálfsögðu heiðra sinn hluta samkomulagsins... Samn- ingar skulu standa.“ Samningar um Stórhús standi Morgunblaðið/Steinþór

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.