Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 13
Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009 RES-orkuskólinn á Akureyri var í gær settur í annað sinn. Á komandi námsári munu yfir fjörutíu nem- endur frá fjórtán löndum stunda meistaranám í vistvænni orkunýt- ingu við skólann. Um er að ræða eins árs meistaranám í endurnýj- anlegum orkufræðum og vistvænni orkunýtingu í samstarfi við Há- skóla Íslands og Háskólann á Ak- ureyri. Nemendurnir koma flestir frá erlendum háskólum og hafa þar lagt stund á verkfræði eða raunvís- indi, margir á meistara- og dokt- orsstigi. Hátt í áttatíu kennarar koma að kennslu við RES á árinu frá innlendum og erlendum sam- starfsskólum og rannsóknastofn- unum. Fyrstu íslensku nemend- urnir hefja nú nám við skólann en auk þeirra hefja nú nám við RES í fyrsta sinn nemendur frá Mið- og Suður-Ameríku og Asíu. RES er einkarekin mennta- og vísindastofnun sem byggir á for- ustu Íslendinga á sviði orkumála. Auk meistaranámsins býður skól- inn upp á leiðtoganám og sum- arnámskeið með áherslu á end- urnýjanlega orkugjafa. Mikil ásókn nemenda alls staðar að úr heiminum í RES-orkuskóla á Akureyri Setning Össur Skarphéðinsson, og Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA. ÍRANSKA lögreglan lokaði á dögunum skrifstofu mann- réttindahóps sem Shirin Ebadi, heiðursdoktor við Há- skólann á Akureyri, leiðir. Utanríkisráðherra hefur sent utanríkisráðherra Írans bréf vegna máls hennar og af- henti Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, sendiherra Ís- lands í Ósló, það starfandi sendiherra Írans í Ósló á fundi sem haldinn var hinn 5. febrúar sl., ásamt bréfi Þorsteins Gunnarssonar rektors. Á fundinum mótmælti sendiherra Íslands aðgerðum íranskra stjórnvalda gagnvart dr. Ebadi og óskaði skýr- inga á lokun skrifstofu hennar, segir í tilkynningu. Jafn- framt voru írönsk stjórnvöld hvött til að heimila aftur opnun skrifstofu dr. Ebadi, virða mikilvægi starfa sem lúta að mannréttindum og gera allt í þeirra valdi til að tryggja öryggi dr. Ebadi. Sendiherra Íslands áréttaði mikilvægi þess að Íranar stæðu við alþjóðlega samninga um vernd mann- réttinda. Um öryggi dr. Ebadi sagði sendiherra Írans að hún væri örugg og hefði t.d. nýlega hitt þingmannanefnd frá Finnlandi. Íslensk stjórnvöld mótmæla aðgerðum gegn mannréttindafrömuðinum dr. Shirin Ebadi Shirin Ebadi JÓHANNA Sigurðardóttir for- sætisráðherra hefur sett á fót ráð- gjafarhóp til að vinna að tillögum um breytingar á stjórnarskránni. Björg Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti og forseti laga- deildar HÍ, mun leiða hópinn, sem undirbúa mun frumvarp til stjórn- skipunarlaga sem lagt verði fram á Alþingi á næstu vikum. Aðrir í hópnum eru Bryndís Hlöðvers- dóttir, forseti lagadeildar Háskól- ans á Bifröst, og Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda. Í erindisbréfi til ráðgjafarhóps- ins er vísað í stefnuyfirlýsingu rík- isstjórnarinnar og henni falið að gera tillögu um stjórnarskrár- ákvæði um auðlindir í þjóðareign, þjóðaratkvæðagreiðslur og aðferð við breytingar á stjórnarskrá með sérstakri þjóðaratkvæðagreiðslu auk annarra verkefna. Þá vinnur Þorkell Helgason stærðfræðingur að undirbúningi hugsanlegra breytinga á kosningalögum. Morgunblaðið/Frikki Vinna að tillögum að breyttri stjórnarskrá Á almennum félagsfundi Félags náms- og starfsráðgjafa (FNS) á fimmtudag sl. var samþykkt ályktun þar sem lýst er yfir áhyggjum af stöðu efnahags- og atvinnumála. „Félagsmenn FNS hafa að undanförnu fundið fyrir aukinni aðsókn í ráðgjöf. Náms- og starfsráðgjafar búa yfir sérþekkingu sem gerir þeim kleift að aðstoða ein- staklinga við að takast á við breytingar á starfshögum eða atvinnumissi. Þeir standa einnig vörð um velferð ungs fólks í skólum og undirbúa undir næstu skref í námi og starfi, t.d. með skipulegri náms- og starfs- fræðslu. Félagsmenn FNS beina því til stjórnvalda að gera allt sem þau geta til að tryggja góðan aðbúnað barna og ungmenna, að niðurskurður út- gjalda hjá ríki og sveitarfélögum bitni sem minnst á þeim og að fagleg náms- og starfsráðgjöf verði efld,“ segir í ályktun. Vilja að náms- og starfsráðgjöf verði efld ÁSTA Ragnheiður Jóhannesdóttir félags- og tryggingamálaráðherra heimsótti íbúðalánasjóð á föstudag sl. og ræddi við starfsfólk. Guð- mundur Bjarnason, framkvæmda- stjóri sjóðsins, kynnti ráðherra starfsemina og ræddi við hana um hlutverk sjóðsins og horfur í hús- næðismálum. Ásta Ragnheiður sagði það höfuðatriði að koma í veg fyrir gjaldþrot heimila með öllum ráðum og einnig að sjá til þess að fjölskyldur ættu alltaf tryggan samastað, jafnvel þó að til gjald- þrots kæmi, segir í tilkynningu. Heimsótti Íbúðalánasjóð Á vef Tryggingastofnunar er nú hægt að fá upplýsingar um suma málaflokka með táknmálsviðmóti. Stefnt er á að vefurinn standist 3. stigs aðgengisvottun hjá Sjá ehf. og er táknmálið liður í því. Til stendur líka að hafa valdar síður á auðlesnu formi. Sjá ehf. hefur í samvinnu við Öryrkjabandalagið skilgreint þær kröfur sem liggja að baki vott- uninni. Til hliðsjónar er hafður al- þjóðlegur staðall um vefaðgengi. Táknmál á vefnum STUTT Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is STEINGRÍMUR J. Sigfússon sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerir ráð fyrir að niðurstaða um hval- veiðar gæti legið fyrir í lok þessarar viku eða í síðasta lagi innan tveggja vikna. Steingrímur sagði við utan- dagskrárumræður á Alþingi í gær, að undir lok vikunnar ættu öll gögn að geta legið fyrir og þá yrði væntanlega lokið fundum með málsaðilum, s.s. hvalveiðimönnum og fulltrúum ferða- þjónustunnar. „Málið er þá tækt til afgreiðslu á grundvelli vandaðrar og ábyrgrar stjórnsýslu,“ sagði Stein- grímur. Umræðan fór fram að beiðni Jóns Gunnarssonar, Sjálfstæðisflokki, sem sagði ekki eftir neinu að bíða með að hefja hvalveiðar. Rakti hann aðdraganda málsins og vitnaði m.a. í ítarlegar skýrslur sem sýndu að það skaðaði ekki ímynd Íslands sem ferðamannalands þó hafnar yrðu hvalveiðar. Ekki yrði betur séð en að yfirgnæfandi meirihluti væri fyrir hvalveiðum á Alþingi en tafir á und- irbúningi veiða vegna boðaðrar end- urskoðunar núverandi sjávarútvegs- ráðherra á ákvörðun forvera hans, gætu haft alvarlegar afleiðingar. „Það sem er verið að gera hér, virðu- legi forseti, með ákvörðun sjávarút- vegsráðherra í þessu máli er að það er verið að setja þetta mál í herkví,“ sagði hann. Fjölmargir þingmenn tóku til máls og sóttu nokkrir þeirra fast að sjáv- arútvegsráðherra. Kristinn H. Gunn- arsson, Frjálslynda flokknum, sagði skýrar yfirlýsingar liggja fyrir af hálfu þingflokka og þingmanna um hvalveiðar og ljóst væri að ekki færri en 40 þingmenn úr öllum flokkum styddu veiðar. Sjávarútvegsráðherra væri að reyna að bregða fæti fyrir málið. Þórunn Sveinbjarnardóttir, Sam- fylkingu, sagði hins vegar að tilgang- ur Einars K. Guðfinnssonar með út- gáfu reglugerðarinnar um veiðar daginn fyrir stjórnarslit, hefði líklega verið sá einn að koma nýrri ríkis- stjórn í bobba. Einar K. Guðfinnsson sagði að forsendur varðandi veiðarn- ar hefðu legið fyrir í haust, m.a. hefði hindrun verið rutt úr vegi svo að nú yrði hægt að selja hvalafurðirnar. Siv Friðleifsdóttir, Framsóknar- flokki, sagði framsóknarmenn vilja sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda. „Það þýðir ekkert að líta á þetta mál af einhverri tilfinningasemi.“ Ákvörðunar að vænta innan tveggja vikna Morgunblaðið/Golli Hvalveiðar Steingrímur J. Sigfús- son segir ákvörðunar að vænta. IÐNÓ Miðvikudag 11. feb. kl. 20:30 Stjórnandi og höfundur tónlistar á þessum tónleikum er Nikolaj Bentzon, fyrrum píanóleikari og aðalstjórnandi Stórsveitar Danska Ríkisútvarpsins. Í tónlist sinni leitar Bentzon áhrifa í arabískri tón- list, en slíkt verður að teljast mjög óvenjulegt í jazztónlist. Jazz- og funktónlist blandast ýmsum arabískum straumum í einstakri efnis- skrá eins af fremstu tónlistarmönnum Dana. Nikolaj Bentzon og Stórsveit Reykjavíkur ARABÍSKUR JAZZ Aðgangur kr. 1.500 Námsmenn og eldri borgarar kr. 1.000 frá Danmörku Stórsveit Reykjavíkur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.