Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is SAMKVÆMT drögum forsætis- nefndar að reglum um að þingmenn veiti upplýsingar um eignir sínar og fjárhagstengsl er gert ráð fyrir að þingmönnum verði í sjálfsvald sett hvort þeir veiti þessar upplýsingar en svo virðist sem meirihluti gæti verið fyrir því á Alþingi að þing- mönnum yrði gert skylt að veita þessar upplýsingar. Slíkt verður þó aðeins gert með lagasetningu. Drög forsætisnefndar byggjast á reglum danska þingsins og sam- kvæmt upplýsingum frá skrifstofu Alþingis er raunin sú að danskir þingmenn birta þessar upplýsingar þótt þeir séu ekki skyldugir til þess. Forsætisnefnd Alþingis sendi drögin til þingflokkanna vorið 2007 en heimtur voru það rýrar að ástæða þótti til að minna flokkana aftur á málið í haust. Samkvæmt upplýsing- um frá skrifstofu Alþingis er tölu- vert liðið síðan framsóknarmenn og vinstri grænir svöruðu og í gær barst síðan svar frá Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum. Að sögn Jóns Magnússonar, sem var formað- ur þingflokks Frjálslynda flokksins þar til í gær, hefur flokkurinn einnig sent sitt svar til forsætisnefndar. Vilja ljúka málinu Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins gerði aðeins smávægilegar athuga- semdir við tillögu forsætisnefndar og segir í sinni umsögn að eðlilegt sé að reglurnar séu valfrjálsar. Í um- ræðu um málið árið 2005 bentu sum- ir sjálfstæðismenn einnig á að það væri ekki síður mikilvægt að gera grein fyrir skuldastöðu en ekki er gert ráð fyrir slíku í þeim drögum sem nú liggja fyrir. Samkvæmt upplýsingum frá þing- flokkum Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins telja þingmenn þessara flokka að ástæða sé til að skuldbinda alþing- ismenn til að veita umræddar upp- lýsingar, ekki sé nægjanlegt að regl- urnar séu valkvæðar. Jón Magnússon sagði að hann hefði talið að þingmenn ættu að veita sem víðtækastar uppplýsingar en skoða þyrfti með hvaða hætti þær væru gerðar opinberar. Alþingi gæti t.d. leitað í smiðju breska þingsins en þar lægju slíkar upplýsingar hjá sér- stökum trúnaðarmönnum. Þannig væri gætt að því að menn kæmu ekki að málum sem varðaði þeirra hags- muni. Það bíður nú forsætisnefndar og þar með nýs forseta Alþingis að móta tillögu sem samstaða getur náðst um. Guðbjartur Hannesson, forseti Alþingis, sagði að reglurnar væru í vinnslu. „Þetta er klárlega mál sem við viljum ljúka,“ sagði hann. Meirihluti fyrir upplýsingaskyldu  Í drögum að reglum um upplýsingar um eignir og fjárhag þingmanna er upplýsingagjöf valkvæð  Þingflokkar Samfylkingar, Vinstri grænna og Framsóknarflokks vilja að upplýsingagjöf verði skylda Ein heild Með tillögu Faxaflóahafna um að efna til hugmyndasamkeppni fyrir hafnarsvæðið í heild sinni er opnað fyrir ýmsa nýja möguleika. Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is STJÓRN Faxaflóahafna ætlar að efna til hugmyndasamkeppni um heildarskipulag Gömlu hafnarinnar og Örfiriseyjar. Samkeppnin verður tvískipt, annars vegar ætluð arkitekt- um, skipulagsfræðingum og öðrum fagaðilum sem skila inn fullunnum teikningum ásamt hugmyndavinnu, og hins vegar er hún opin almenningi sem skilað getur sínum hugmyndum jafnt í texta- sem myndformi. Svæðið sem hugmyndasamkeppn- in tekur til nær frá Ingólfsgarði, þ.e. lóð Tónlistarhússins við Reykjavík- urhöfn og vestur í Örfirisey, norðan Kalkofnsvegar, Geirsgötu og Mýrar- götu. Deiliskipulag er til fyrir tæpan helming svæðisins, m.a. lóð Tónlist- ar- og ráðstefnuhússins og hinn svo- kallaða Mýrargötureit. Að sögn Júl- íusar Vífils Ingvarssonar, formanns stjórnar Faxaflóahafna og skipulags- ráðs Reykjavíkurborgar, koma ein- hverjar breytingar á deiliskipulagi hins vegar vel til greina. „Við viljum að þeir sem taka þátt í samkeppninni leyfi sér að koma með skemmtilegar hugmyndir sem hugsanlega nýtast í endurskoðun á þessu svæði ef af henni verður.“ Hluti af miðborginni Þær breytingar hafa orðið á höfn- inni á undanförnum áratugum að fiskverkun og útgerð hefur færst yfir í vestari hluta hafnarinnar en ferða- þjónusta og uppbygging tónlistar- og ráðstefnuhússins hefur verið í þeim eystri. Telur Júlíus Vífill að þessi þró- un haldi áfram. „Gamla höfnin er stór hluti af miðborg Reykjavíkur og við vonumst til þess að menn hafi í huga að samhæfa gömlu höfnina miðborg- inni.“ Þetta sé líka rétti tíminn fyrir hug- myndasamkeppni. Mikil pressa hafi verið frá byggingaraðilum undanfar- in ár vegna allrar deiliskipulagsvinnu en nú gefist tóm til að skoða hlutina af kostgæfni. Sá áhugi sem margir hafi sýnt því að fara í frekari landfyllingar út frá Örfirisey sé dæmi um slíkt. „Síðan viljum við líka leggja okkar af mörkum til að vinna á móti atvinnu- leysi hjá arkitektum.“ Gert er ráð fyrir að samkeppnin skili hugmynd- um inn í aðalskipulag sem kunni að kalla á frekari vinnu höfunda hug- myndanna. Skipuleggja til framtíðar Heildarskipulag unnið fyrir svæðið sem taki tillit til tengsla hafnar og miðborgar Morgunblaðið/ÞÖK Höfnin Byggingarverktakar hafa sýnt Reykjavíkurhöfn mikinn áhuga á undanförnum árum og m.a. verið með hugmyndir um landfyllingar. Í HNOTSKURN »Kostnaður vegna sam-keppninnar nemur 35-40 milljónum kr. og eru 12 millj- ónir ætlaðar í verðlaunafé. »Námsstefna með erlendumsérfræðingum um hafn- arskipulag verður haldin í Loftkasalanum 13. febrúar. »Nánari upplýsingar er aðfinna á faxafloahafnir.is/ is/hugmyndasamkeppni. »Niðurstöður eiga að liggjafyrir í september. „LÍFSHÆTTIR Íslendinga hafa trauðla breyst meira við aðra ein- staka viðburði en tilkomu hita- veitna og ótakmarkaðs og ódýrs heits rennandi vatns. Þá breyttist jafnframt aðstaða til almenns þrifnaðar verulega og segja má að með tilkomu hitaveitna hætti þrifn- aður, einkum persónuleg þrif en einnig þrif á heimilum, að vera lúx- us forréttindahópa yfir í að verða lífsgæði hins almenna borgara.“ Þannig segir meðal annars í samantekt skýrslu um heitt vatn og heilbrigði sem þær Hrefna Krist- mannsdóttir og Sigríður Halldórs- dóttir, prófessorar við Heilbrigð- isvísindastofnun Háskólans á Akureyri, unnu að beiðni Samorku. Skýrsluhöfundar komast meðal annars að þeirri niðurstöðu að upp- bygging hitaveitna á Íslandi á síð- ustu öld sé án efa sá atburður Ís- landssögunnar sem stuðlað hafi hvað mest að auknu heilbrigði og lífsgæðum þjóðarinnar. Fram kem- ur að árleg heildarlosun CO2 á Ís- landi sé um 45% lægri en ef kynt væri með olíu. 160 sundlaugar í rekstri Sundlaugamenningin sem þróast hefur á Íslandi er einstök og hvergi í heiminum eru upphitaðar útisundlaugar jafnalgengar og óþekkt að almenningssundlaugar séu reknar við eins lágt útihitastig og hér er. Um 160 sundlaugar eru í rekstri á landi og langflestar hitaðar með jarðhita. Það er hér um bil ein sundlaug á 2000 íbúa. aij@mbl.is Þrif hættu að vera forréttindi Heita vatnið hafði mikil áhrif á lífshætti LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu leitaði að fíkniefnum í Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti í hádeg- inu í dag. Á undanförnum árum hefur lög- reglan nokkrum sinnum farið þess- ara erinda í skólann en niðurstaðan hefur ávallt verið sú sama. Þar hafa engin fíkniefni fundist. Fíkniefna- leitarhundur frá tollinum var not- aður við aðgerðina í dag. Engin fíkni- efni fundust VORIÐ 2005 varð mikil umræða um hvort alþingismenn ættu að veita upplýsingar um eignir sínar og hagsmunatengsl. Framsókn- armenn biðu ekki eftir reglunum, heldur birtu tilteknar upplýsingar um fjárhag þingmanna á vef sín- um. Síðan hafa nokkrir nýir þing- menn tekið sæti á þingi fyrir Fram- sóknarflokkinn en af einhverjum orsökum, að öllum líkindum at- hugunarleysi, vantar nú þessar upplýsingar um tvo þingmenn af sjö, þ.e. Eygló Harðardóttur og Höskuld Þ. Þórhallsson. Upplýsingar um formann Engar upplýsingar eru heldur um eignir og fjárhagsleg tengsl hins nýja formanns Framsóknarflokks- ins, Sigmundar Davíðs Gunnlaugs- sonar, enda er hann ekki þingmað- ur. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Sigmundur að hann myndi væntanlega birta sambæri- legar upplýsingar um fjármál sín fyrir næstu kosningar. Athygli hef- ur verið vakin á því í fjölmiðlum að sambýliskona Sigmundar, Anna Sigurlaug Pálsdóttir, greiddi ríf- lega 100 milljónir í fjármagns- tekjuskatt vegna gjaldaársins 2007. Sigmundur sagðist ekki hafa viljað blanda fjármálum sam- býliskonu sinnar inn í umræðu um sín fjármál. Þau Sigmundur og Anna Sigurlaug eru trúlofuð. Eftir að þingmenn Framsókn- arflokksins birtu upplýsingar um sín fjármál vorið 2005 fylgdu þing- menn Vinstri grænna fljótlega í kjölfarið og birtu sambærilegar upplýsingar um þingmenn VG á vef flokksins. Þurftu ekki reglur til að birta upplýsingarnar ÞÆR hugmyndir sem hafa verið uppi um að Mýrargatan verði sett í stokk kunna að víkja fyrir hug- mynd um jarðgöng. En Umhverf- is- og samgöngusvið Reykjavík- urborgar lætur nú kanna möguleikann á jarðgöngum á þessum slóðum og er verið að vinna að jarðfræðirannsóknum í því skyni. Hjá Faxaflóahöfnum telja menn jarðgöngin einkar fýsilegan kost þó ljóst megi teljast að ekki verði ráðist í jarðgangagerð á næst- unni. Segja þeir jarðgöngin tíma- laust verkefni. Þeim fylgi ekkert rask ofanjarðar og í ofanálag séu þau ódýrari kostur en stokkurinn. Stokkur hafi hins vegar veruleg áhrif á svæðið sem hann fari undir. Gerð stokksins verði enn fremur að vera lokið áður en frekari vinna fer fram á því svæði, þrátt fyrir að teljast ekki endilega brýn framkvæmd miðað við umferðarmagn í dag. Jarðgöng eða stokkur?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.