Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009 KVIKMYNDIN The Curious Case of Benjamin Button skaust beint upp í efsta sæti Bíólistans eftir sýn- ingar helgarinnar. Rúmlega 2.900 bíógestir sóttu myndina sem þýðir að tekjur af henni eru þegar orðnar um 2.6 milljónir. Kvikmyndin hefur fengið ágætisdóma víðast hvar en auk Brads Pitt leika þær Cate Blanchett, Tilda Swinton og Julia Ormond í myndinni. Von er á að myndin muni hljóta verðlaun á Ósk- arsverðlaunahátíðinni sem fram fer síðar í þessum mánuði og þá sér- staklega fyrir tæknibrellurnar sem eru framúrskarandi. Efsta mynd þarsíðustu helgar, hryllingsmyndin My Bloody Valentine 3D fellur niður um eitt sæti en myndin hefur nú skilað rúmum 9,4 milljónum í kass- ann. Grínmyndin Bride Wars með þeim Kate Hudson og Anne Hat- haway náði þriðja sætinu sína fyrstu sýningarhelgi en tæplega 2.500 Ís- lendingar sóttu myndina um helgina. Í fjórða sæti er að finna eina stærstu mynd ársins Slumdog Milli- onaire (Viltu vinna milljarð) sem hlaut sjö verðlaun á BAFTA- verðlaunahátíðinni sem fram fór á sunnudaginn. Tæplega 19 þúsund Íslendingar hafa nú sótt þessa mynd sem mun að öllum líkindum sópa að sér verðlaunum á Óskarnum en tekjur af myndinni hér á landi nema nú tæpum 16 milljónum króna. Þá var fjölskyldumyndin Hotel for Dogs einnig frumsýnd um helgina en eins og fram kom í Morg- unblaðinu í gær stóðu Bylgjan og Pedigree fyrir sérstakri hundasýn- ingu sem var á síðustu stundu slegin af af Heilbrigðiseftirliti Reykjavík- ur. Þrátt fyrir það sóttu um 1.700 tvífætlingar myndina. Tekjuhæstu kvikmyndir helgarinnar Ævintýrið um Benjamin Button á toppnum        .67 8++  &++                           !  " #   $ %  &' (   )  * # "+,#  -&   +    "           Tæknileg Myndin styðst við ótrúlega tölvutækni sem á sér engan líka. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „VIÐ syngjum með tveimur líf- færum, pungnum og hjartanu, hvort tveggja er mjög einlægt en þegar sungið er með pungnum er allt gefið í, aldrei bakkað og sénsinn tekinn á því að röddin muni bresta en það skiptir ekki máli því við erum að meina það,“ segir Halldór Gunnar Pálsson, stjórnandi karlakórsins Fjallabræðra, kíminn. Karlakórinn sem er kenndur við Flateyri, gaf Færeyingum lagið „Minni Fær- eyinga“ nýlega sem þakklætisvott fyrir alla aðstoð sem þeir hafa veitt Íslendingum. „Þegar það kom upp að Færeyingar ætluðu að lána Ís- lendingum peninga í kjölfar efna- hagshrunsins fórum við að ræða hvað þeir væru magnaðir; um leið og eitthvað gerðist á Íslandi þá kæmi alltaf litli bróðir okkar í suðri til hjálpar óumbeðinn. Einn frændi minn í kórnum sagði við mig að nú yrði ég að semja lag fyrir Fær- eyinga, það væri borgaraleg skylda okkar að þakka þessu fólki fyrir. Mörgum okkar frá Flateyri er minn- isstætt þegar þeir gáfu okkur leik- skóla eftir snjóflóðið, þeir gerðu það sama í Súðavík og Vestmanna- eyjum,“ segir Halldór og minnir á að Færeyingar séu aðeins um 50.000. „Eins og einn fallegur Færeyingur sagði við mig: „Íslendingar hafa aldrei verið frændur okkar, þeir hafa alltaf verið bræður okkar.““ Plata í vinnslu Kórinn skundaði svo á ræð- ismannsskrifstofu Færeyja á Íslandi síðasta miðvikudag og söng lagið fyrir ræðismanninn auk þess að af- henda honum platta með kveðju frá kórnum til færeysku þjóðarinnar. Svo skemmtilega vill til að daginn áður en Fjallabræður gáfu Fær- eyingum lagið var hringt í þá frá skipuleggjendum G-festivals í Fær- eyjum og þeim tilkynnt að þeir væru bókaðir á hátíðina í ár. Kórinn vinnur nú að sinni fyrstu plötu sem kemur út með vorinu. Fjallabræður Halldór Gunnar leiðir félaga sína áfram með gítar að vopni. Syngja með hjart- anu og pungnum www.myspace.com/fjallabraedur Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó 650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM HÖRKUSPENNANDI MYND ÚR SMIÐJU LUC BESSON 650k r. Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 551 9000 Bride Wars kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ Revolutionary Road kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára Underworld 3 kl. 10:30 B.i. 16 ára Seven pounds kl. 5:30 - 8 LEYFÐ Australia kl. 8 B.i. 12 ára Taken kl. 6 - 10:30 B.i. 16 ára SÝND Í SMÁRABÍÓI Frá leikstjóra The Hours og Billy Elliott SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI BRÁÐSKEMMTILEG MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI Þegar tvö brúðkaup lenda upp á sama daginn fara bestu vinkonur í stríð! Frábær gamanmynd! Hve langt myndir þú ganga til að varðveita leyndarmál? SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI AUKASÝNINGA R Á VINSÆLUSTU MYNDINNI FRÁ FRANSKR I HÁTÍÐ Refurinn og barnið m. ísl. texta Fyrsti kafli Underworld myndanna. Hrikalegri og flottari enn nokkru sinni fyrr! 550 kr. fyrir b örn 650 kr. fyrir f ullorðna SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI 650k r. Hrikalegri og flottari enn nokkru sinni fyrr! - E.E., DV 650k r. 650k r. 3 - S.V. Mbl. - K.H.G., DV 650k r. 650k r. The Reader kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.14 ára Valkyrie kl. 8 - 10:30 B.i.12 ára Vicky Cristina Barcelona kl. 5:50 - 10:10 LEYFÐ Refurinn og barnið ísl. texti kl. 6 LEYFÐ Revolutionary Road kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára Sólskinsdrengurinn kl. 5:30 LEYFÐ Bride Wars kl. 8 - 10 LEYFÐ Skógarstríð 2 kl. 6 550 kr. f. börn, 650 kr. f. fullorðna LEYFÐ Underworld 3 kl. 10:10 B.i.16 ára Villtu vinna milljarð kl. 8 B.i.12 ára Sólskinsdrengurinn kl. 6 LEYFÐ Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú - S.V., MBL - DÓRI DNA, DV

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.