Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 0. F E B R Ú A R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 39. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er MENNING MAGNAÐ AÐ SJÁ METROPOLITAN BEINT ÍÞRÓTTIR FARIN AÐ ÞJÁLFA ARFTAKA SÍNA mbl.is95 ára DALAI Lama, andlegur og veraldlegur leiðtogi Tíb- eta, er væntanlegur í sína fyrstu heimsókn til Íslands dagana 1. til 3. júní næstkomandi. Dalai Lama, sem hlotið hefur friðarverðlaun Nóbels, mun halda fyr- irlestur í Laugardalshöll 2. júní um lífsgildi, viðhorf og leiðir til lífshamingju, ásamt því að svara fyr- irspurnum gesta. Félagið Dalai Lama á Íslandi stendur fyrir heim- sókninni og hefur annast undirbúning hennar und- anfarin ár. „Heimsóknin er alfarið á vegum nokkurra einstaklinga sem hafa áhuga á að fá Dalai Lama hing- að, “ segir Þórhalla Björnsdóttir, einn félagsmanna. Hún segir fyrri ríkisstjórn hafa vitað af heimsókninni og að ný stjórn verði látin vita. Leiðtogi Tíbeta hefur heimsótt fjölda landa undanfarna áratugi sem gestur trúfélaga, ríkisstjórna eða í boði einkaaðila, að því er segir í tilkynningu frá félaginu. ingibjorg@mbl.is Dalai Lama kemur til Íslands Reuters Leiðtogi Dalai Lama kemur til Íslands í júní í sumar. JÓHANNA Sigurðardóttir sat kankvís í stóli forsætisráðherra í þingsölum í gær þegar forveri hennar í embættinu, Geir H. Haarde, lagði leið sína í ræðustól sem þingmaður. Beindi Geir fyrirspurn til Jóhönnu um ráðningar í bankaráð. Miklar umræður urðu einnig á Alþingi um málefni Seðlabank- ans og hvort IMF hefði gert athugasemdir við frumvarp Jóhönnu. | 6 og 9 Hlutverkaskipti í þingsölum Morgunblaðið/Golli SAMKVÆMT heimildum Morgunblaðsins er búist við því að sjóðfélagar hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna muni taka á sig um tíu pró- senta lækkun. Sé miðað við lífeyrisþega sem hóf greiðslur í sjóðinn um 25 ára aldur, er með 200 þúsund krónur á mánuði að jafnaði fram að 67 ára aldri og kaupmáttaraukning tvö prósent á ári fram að lífeyristöku, má ætla að greiðslur til hans skerðist um tæplega nítján þúsund krón- ur á mánuði. Lífeyrisgreiðslur hans munu þannig lækka úr tæpum 189 þúsund krónum í um 170 þúsund krónur. Munar mjög um tíu prósent Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is LÍFEYRISRÉTTINDI munu skerðast um fimm til tíu prósent að jafnaði á þessu ári vegna banka- hrunsins í október, samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins. Mismunandi er eftir sjóðum hvort skerðing mun eiga sér stað. Lífeyrissjóður opin- berra starfsmanna og sjóðir sveitar- félaga munu til að mynda ekkert þurfa að skerða en flestir þeirra sjóða sem starfa á almennum vinnu- markaði munu þurfa að gera það. Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna funduðu með Jóhönnu Sigurðardótt- ur forsætisráðherra og öðrum ráð- herrum í Stjórnarráðinu klukkan hálfsex á sunnudag. Hafa áhyggjur af útgreiðslu Hrafn Magnússon, framkvæmda- stjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, segir þá ætlun stjórnvalda að opna fyrir viðbótarlífeyrissparnað fólks einnig hafa verið rædda á fundinum. „Við teljum að menn þurfi að stíga varlega til jarðar og vanda sig við þessa lagasmíð því það er betur heima setið en af stað farið ef skuld- arar verða í sömu sporum að ári og í ofanálag búnir að glata viðbótarlíf- eyrissparnaði sínum, sem er ekki að- fararhæfur í dag.“ Lífeyrissjóðirnir höfðu óskað eftir fundinum með nýju ríkisstjórninni til að ræða uppgjör á framvirkum gengissamningum sem þeir höfðu gert við föllnu bankana þrjá. Samtals var virði samninganna um 67 milljarðar króna þegar bank- arnir féllu en þá var gengisvísitalan 175. Hún er nú 193 og því ljóst að tap lífeyrissjóðanna myndi aukast tölu- vert ef gert yrði upp á því gengi. Hrafn segir að sjóðirnir vilji reyna að gera málið upp utan dómstóla. „Þessi mál eru nú í sérstakri skoðun í viðskipta- og fjármálaráðuneytinu. Það er ljóst að það eru margir í okk- ar röðum sem halda því fram að markaðsbrestur hafi átt sér stað og vilja því ekki gera upp þessa samn- inga. En við erum tilbúnir að gera það á genginu 175 til þess að forðast málaferli.“ Skerða lífeyri um allt að 10%  Fer eftir lífeyrissjóðum hvort nauð- synlegt verður að skerða greiðslur Í HNOTSKURN »Hrafn Magnússon og Arn-ar Sigurmundsson, for- svarsmenn Landssambands lífeyrissjóða, sátu fundinn ásamt framkvæmdastjórum þriggja stærstu lífeyrissjóða landsins. »Fyrir hönd ríkisins sátuforsætis-, viðskipta-, fjár- mála- og utanríkisráðherra fundinn auk ráðuneytisstjóra.  ELUANA Englaro, 38 ára kona sem hafði verið í dái í 17 ár, dó í gær þegar þing Ítalíu bjó sig undir að greiða atkvæði um neyðarlög til að hindra líkn- ardráp hennar. Silvio Berlusconi forsætisráð- herra kallaði þingið saman til að samþykkja lög sem kæmu í veg fyr- ir að læknar og fjölskylda kon- unnar gætu hjálpað henni að deyja. Mál hennar vakti mikla umræðu um líknardráp og Berlusconi var sak- aður um að notfæra sér það í póli- tískum tilgangi. Dó með umdeildri aðstoð lækna eftir sautján ár í dái Eluana Englaro  „VIÐ hyggj- umst lýsa upp garðana hérna og fá eins konar vonarljós inn í ástandið í sam- félaginu,“ segir Sverrir Guð- jónsson tónlist- armaður. Hann býr í Grjótaþorp- inu en sjónum verður beint að því á Vetrarhátíð sem hefst í Reykjavík á föstudagskvöldið og er jafnframt Safnanótt í ár. Með aðstoð lýsingar, hljóða, kvikmynda og leiklistar er ætlunin að þoka Grjótaþorpi aftur til 19. aldar eina kvöldstund. „Hér skýtur upp kollinum fólk úr fortíðinni, í gömlum búningum. Gamli brunnurinn, þar sem allar sögurnar spruttu fram og bárust um bæinn, er hér við Aðalstræti og vatnsberinn mætir á staðinn,“ segir Sverrir. Á dagskrá Vetrarhátíðar verður á annað hundrað viðburða, víðs vegar um borgina. »28 Inn í 19. öldina í Grjóta- þorpinu á Vetrarhátíð Sverrir Guðjónsson  Grindvíkingar stöðvuðu sig- urgöngu körfuknattleiksliðs KR í gær með 91:80-sigri í úrvalsdeild karla. KR hafði fyrir leikinn unnið fyrstu 16 leikina í Iceland Express- deildinni. Að auki hafði liðið unnið 8 leiki í báðum bikarkeppnum KKÍ. KR leikur til úrslita um Subway- bikar KKÍ um næstu helgi gegn Stjörnunni og í þeirri keppni hefur KR unnið 4 leiki en liðið sigraði í Powerade-bikarnum. »Íþróttir Grindavík stöðvaði KR ÞINGFLOKKAR Samfylkingar, Vinstri grænna og Framsóknar- flokksins telja að setja eigi reglur eða lög sem skuldbindi alþingismenn til að gefa upplýsingar um fjárhags- lega hagsmuni sína og önnur hags- munatengsl. Þar með er meirihluti Alþingis fylgjandi slíkum breyt- ingum. Þessi afstaða flokkanna kemur fram í umsögnum þeirra um drög að reglum um skráningu fyrrnefndra upplýsinga sem forsætisnefnd Al- þingis sendi flokkunum. Í drögum forsætisnefndar, sem byggjast að mestu á reglum sem gilda í danska þinginu, er gert ráð fyrir að alþingismönnum verði í sjálfsvald sett hvort þeir veita þess- ar upplýsingar. Þingflokkur sjálf- stæðismanna gerði fáar athuga- semdir og tók fram að alþingismenn gætu ráðið því sjálfir hvort þeir veittu upplýsingar um fjárhag sinn. Athugasemdir VG lutu m.a. að því að þingmönnum yrði skylt að geta um fasteignir, aðrar en heimili og landeignir. | 12 Vilja upplýsinga- skyldu á Alþingi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.