Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 23
Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009 ✝ Elín Björg Þor-steinsdóttir fædd- ist í Hrísey þann 16. febrúar 1910. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, þann 31. janúar síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Mar- inó Jörundsson, út- gerðar- og fiskimats- maður í Hrísey, f. 1873, d. 1933 og k.h. Steinunn Kristjana Guðmundsdóttir hús- freyja, f. 1872, d. 1936. Elín Björg var einkabarn þeirra, en einnig ólst upp hjá þeim hjónum, frá 10 ára aldri, Stefanía Lilja Valdemars- dóttir, f. 1899, d. 1988 og árið 1930 tóku þau í fóstur bróðurson Stein- unnar, Einar Valmundsson, f. 1928 sem ólst upp hjá þeim og síðar Elínu Björgu og eiginmanni hennar til full- orðinsára. Elín Björg giftist þann 13. maí 1937 Filippusi Þorvaldssyni úti- bússtjóra, f. 1907 á Völlum í Svarf- aðardal, d. 1954 í Hrísey. Foreldrar hans voru Þorvaldur Jónsson, tré- 1951, gift Sigurði Eiríkssyni, f. 1948. Þeirra börn: a) Nína Hrönn, f. 1974, gift Lúðvík Arnarsyni, f. 1974. Þau eiga Anton Loga, f. 2003 og Bjarneyju Eddu, f. 2005. b) Auð- ur Lára, f. 1984 c) Sigurður Birkir, f. 1989. Elín Björg gekk í barna- og ungl- ingaskóla í Hrísey. Eftir vígslu Hríseyjarkirkju 1928 tók hún við organista- og kórstjórastarfi við kirkjuna, þá aðeins 18 ára og sinnti því á meðan hún bjó í eynni. Vegna starfa þeirra hjóna var heimili þeirra ávallt mjög gestkvæmt og veitt þar af mikilli rausn. Árið 1956, tveimur árum eftir lát eiginmanns síns, flutti hún með dætur sínar til Akureyrar og vann eitt ár á Sauma- stofunni Heklu. Haustið 1957 gerð- ist hún ráðskona við mötuneyti Menntaskólans á Akureyri og sinnti því starfi í 21 ár uns hún lét af störf- um vegna aldurs. Fram yfir nírætt bjó hún enn ein í sinni íbúð þar til hún fékk væga heilablæðingu í nóv. 2003. Eftir að hafa búið í tvö ár hjá dóttur sinni á Akureyri bjó hún á Dvalarheimilinu í Skjaldarvík og síðan á Hlíð á Akureyri þar sem hún naut frábærrar umönnunar til hinstu stundar. Útför Elínar Bjargar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag kl. 10:30. Minningarathöfn verður í Hríseyj- arkirkju kl. 14 og jarðsett í Hríseyj- arkirkjugarði. smiður í Hrísey, f. 1876, d. 1941 og k.h. Kristín Einarsdóttir frá Geithellum í Álfta- firði. f. 1880, d. 1968. Dætur þeirra eru: 1) Auður, f. 1940, gift Ingólfi B. Her- mannssyni, f. 1940. Þeirra börn: a) Elín Björg, f. 1963, gift Gunnari Berg Gunn- arssyni, f. 1961, þau eiga Ingólf Berg, f. 1991 og Katrínu Björgu, f. 1994. b) Hermann Örn, f. 1966, kvæntur Hildi Blöndal Sveinsdóttur, f. 1969, þau eiga Goða Blöndal, f. 1997 og Thor Blöndal, f. 2001. 2) Steinunn Kristín, f. 1943, gift Jacques LeBre- ton, f. 1942. Þeirra börn: a) Solveig, f. 1970, gift Ludovic Leleu, f. 1972. Þau eiga Emmu, f. 2004 og Franco- is, f. 2006. b) Jean-Marc, f. 1973, kvæntur Nadiu Beaufils, f. 1976, þau eiga Clément, f. 2005. c) Jean- Yves, f. 1977. d) Eline, f. 1983, sam- býlismaður hennar er Christoff Andermann. 3) Margrét Þóra, f. Elskuleg tengdamóðir mín er látin, 99 ára að aldri. Ella eins og hún var alltaf kölluð var fædd og uppalin í Hrísey. Hún lærði ung að spila á píanó og orgel og varð organisti og kórstjóri í Hríseyjarkirkju aðeins 18 ára gömul. Árið 1937 giftist hún æskuvini sínum, Filippusi Þorvaldssyni úr Hrísey. Fil- ippus lést snögglega árið 1954 og árið 1956 flutti Ella til Akureyrar, þar voru meiri möguleikar á að geta séð sér og dætrunum farborða og komið þeim til mennta. Árið 1957 gerðist hún mat- ráðskona við mötuneyti Menntaskól- ans á Akureyri og sinnti því starfi í 21 ár. Ég kynntist Ellu árið 1962 þegar við Auður fórum að vera saman. Það má kannski segja að okkar fyrstu kynni hafi verið dálítið stirð, kannski hefur henni ekki litist allt of vel á þennan horaða slána og hún vildi vita allt um ættir hans uppruna og fram- tíðarhorfur. Ég varð vandræðalegur og feiminn við þessa virðulegu konu, hafði mig lítið í frammi um tíma en auðvitað opnaði hún faðm sinn fyrir mér og við urðum miklir og góðir vin- ir. Ella var myndarleg kona, hávaxin og bein í baki. Það var alltaf virðuleiki yfir henni hvar sem hún fór; hæglát í fasi og mikil ró yfir henni. Jafnlyndari manneskju hef ég ekki kynnst, ég sá hana sjaldan skipta skapi og aldrei reiða; manni leið vel í návist hennar. Hún hafði gott skopskyn og sagði vel frá, sá oft skoplegar hliðar á mannlíf- inu og sjálfri sér í spaugilegum að- stæðum. Ella var skarpgreind, stál- minnug og hafsjór af fróðleik, hún talaði fallegt mál og ef hún sá einhver sjaldgæf orð vildi hún vita merkingu þeirra. Hún hafði yndi af lestri góðra bóka, las mikið meðan sjónin leyfði en síðar nýtti hún sér hljóðbækur. Hún hafði gaman af að ferðast og marga bíltúrana fórum við, langa og stutta, hér um sveitir. Ella náði góðu sambandi við barna- börnin og naut samvista við þau. Hún spjallaði mikið við þau um lífið og til- veruna og sagði þeim sögur frá fyrri árum, hvatti þau til náms og fylgdist alla tíð vel með þeim. Nína dóttir hennar er búsett í Frakklandi og þangað fór Ella nokkrum sinnum. Þegar hún hætti störfum dvaldist hún eitt ár hjá Nínu og leit til með barna- börnunum. Hún talaði við þau og söng á íslensku og enn kunna þau „Bí, bí og blaka“ og „Sofðu unga…“ eins og amma þeirra kenndi þeim 1978. En þar sem tungumálið setti skorður þá kom bara stórt faðmlag í staðinn enda þótti þeim afar vænt um ömmu á Ís- landi og hún saknaði þeirra mikið. Þá dvaldi hún oft í Reykjavík hjá Þóru og fjölskyldu en ánægðust var hún þegar allir komu saman og gerðu sér glaðan dag hjá henni. 87 ára gömul fór hún með okkur hjónum sína síðustu ferð til Frakklands. Þar var henni fagnað innilega af tengdafólki Nínu sem veitti henni heiðursskjal fyrir það sem hún var „hin göfuga ættmóðir úr norðr- inu“. Elsku Ella mín, nú skilja leiðir að sinni og söknuður okkar er mikill. Þú varst þungamiðjan í þinni stóru fjöl- skyldu. Ég vil þakka þér alla þá ást, umhyggju og vináttu sem þú sýndir mér og fjölskyldu minni öll þessi ár. Farðu í friði elsku vinkona, takk fyrir allt og allt. Ingólfur. Elsku amma, takk fyrir allt sem þú gafst okkur og allan þann tíma sem við fengum með þér, í æsku, á skólaárun- um og eftir að við komumst til vits og ára. Takk fyrir allan þinn kærleik og hlýju. Þú fylgdist alla tíð vel með okk- ur barnabörnunum og barst hag okk- ar fyrir brjósti. Þú fylgdist vel með þínu fólki hvar í heiminum sem það var og oft var landakortið dregið fram til að finna þá staði sem báru á góma í samtölum okkar, þar sem ættingjar dvöldu, eða fjallað var um í fréttum. Þú varst þungamiðjan í lífi okkar frá unga aldri. Við fengum að hafa þig lengi hjá okkur og finnst ómetanlegt að börnin okkar, þín langömmubörn, skyldu fá að kynnast þessari góðu konu sem þú varst. Í þinn viskubrunn og þinn faðm gátum við alltaf leitað. Þú varst fróðleiksfús og vel lesin, spil- aðir á píanó, kunnir ljóð og sálma og settir saman vísur ef sá gállinn var á þér. Þú sagðir reyndar alltaf að það gætu nú allir gert, því lítillát varstu og gerðir ekki mikið úr þínum hæfileik- um og afrekum í lífinu. Þú varst til staðar fyrir okkur systkinin og hugs- aðir svo vel um okkur. Öll menntaskólaárin okkar og í mörg ár þar á eftir hittist fjölskyldan í hádeginu hjá þér og iðulega var mikið spjallað. Þú eldaðir svo góðan mat. Stundum var gantast með að þú steiktir fisk handa okkur til jafns við 150 manns eins og þú gerðir í heima- vist menntaskólans, þar sem þú stýrð- ir eldhúsinu af röggsemi í tuttugu ár. Heimavistin var okkar ævintýraver- öld og við geymum einstakar minn- ingar þaðan. Skríðandi á lopasokkum í risastóru súpupottunum, hríðskjálf- andi með þér inni í frystiklefa eða sitj- andi í kjöltu þinni í litlu skrifstofunni þinni. Það var eitthvað öðruvísi, spennandi og framandi að eiga ömmu sem vann þarna og bjó. Þú áttir þína drauma. Þig langaði að ganga menntaveginn, verða hjúkrun- arkona og læra meira á hljóðfæri. Það vafðist þó ekki fyrir þér að spila á pí- anó og orgel frá unga aldri, við messur í Hrísey og undir söng fjölskyldunnar. En örlögin gripu í taumana, þú misstir foreldra þína með stuttu millibili að- eins rúmlega tvítug. Hjónaband þitt var farsælt og þú tengdist inn í góða fjölskyldu í næsta húsi. Aftur gripu ör- lögin í taumana. Afi féll frá langt um aldur fram og eftir stóðst þú, ekkja með þrjár dætur. Þú tókst á við þetta mikla áfall af æðruleysi, fluttir frá æskuslóðunum í Hrísey til Akureyrar til að búa þér og dætrum þínum nýja framtíð. Amma, við pössum píanóið þitt og sófasettið og fleiri fallega hluti sem prýddu yndislega heimilið þitt, kveikj- um á kertum við myndina af þér, þess- ari glæsilegu konu, og yljum okkur við hlýjar minningar. Hvíl í friði elsku amma, við biðjum að heilsa afa, þeim merka manni sem okkur hlotnaðist ekki að hitta en þú saknaðir alla tíð. Þú hefur kennt okkur svo margt og við reynum að miðla því áfram til okkar barna. Minning þín lifir. Elín, Hermann og fjölskyldur. Elín Björg Þorsteinsdóttir TILBOÐSDAGAR 30-50% afsláttur af völdum legsteinum á meðan birgðir endast MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík sími 587 1960 - www.mosaik.is Lokað Vegna jarðarfarar GEORGS JÓNSSONAR blikksmíðameistara er lokað hjá okkur í dag, þriðjudaginn 10. febrúar. Herrafataverslun Birgis. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts sambýlismanns míns, EGILS GUÐMUNDSSONAR frá Króki í Grafningi, til heimilis á Skúlagötu 40b. Svala Marelsdóttir. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar JENNÝJAR HARALDSDÓTTUR frá Seyðisfirði, Holtagerði 30, Kópavogi. Arndís B. Sigurgeirsdóttir, Bára K. Kristinsdóttir, Svandís Haraldsdóttir, Sigrún Haraldsdóttir, Ísleifur Guðleifsson, Pálína Haraldsdóttir, Árni Jón Sigurðsson. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför STEINDÓRU SIGURÐARDÓTTUR, Fagrahjalla 4, Vopnafirði. Steinunn Gunnarsdóttir, Helgi Jörgensson, Guðný Sveinsdóttir, Hjálmar Björgólfsson, Sigurður Sveinsson, Karin Bach, Steindór Sveinsson, Emma Tryggvadóttir, Ingólfur Sveinsson, Kristbjörg Hilmarsdóttir, Erla Sveinsdóttir, Gunnlaugur Einarsson, Sveinn Sveinsson, Rattana Chinnabut, Harpa Sveinsdóttir, Sigmundur K. Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður, faðir, afi og langafi, ELÍAS MAGNÚSSON bifreiðarstjóri, Stangarholti 2, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítala við Hringbraut fimmtudaginn 5. febrúar. Útför hans verður gerð frá Háteigskirkju fimmtu- daginn 12. febrúar kl. 13.00. Sigþóra Jónsdóttir, Guðný Elín Elíasdóttir, Elías Magnússon, Ragnheiður Jónsdóttir, Einar Þór Magnússon, Elín Haraldsdóttir og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengda- móður, ömmu, langömmu og langalangömmu, FRIÐDÓRU JÓHANNESDÓTTUR, áður til heimilis Brekkugötu 20, Hafnarfirði, sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 24. janúar. Okkar alúðarþakkir til starfsfólks fyrir einstaka umönnun hennar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ólöf Gunnarsdóttir, Eysteinn Guðlaugsson, Jóhanna Gunnarsdóttir, Reynir Benediktsson, Kristín Auður Gunnarsdóttir, Erlingur Kristinn Guðmundsson, Halldóra María Gunnarsdóttir, Einar Vídalín Guðnason, Halldór Grétar Gunnarsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.                         

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.