Morgunblaðið - 27.02.2009, Page 1
F Ö S T U D A G U R 2 7. F E B R Ú A R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
56. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
ÍSLENSKU AUGLÝSINGAVERÐLAUNIN
TVEIR MÆTA MEÐ 10
TILNEFNINGAR
FÖRÐUNIN Í SUMAR
Kinnarnar eiga að
vera ferskjubleikar
RÍKISSTJÓRNARFLOKKARNIR
fengju samtals 37 alþingismenn ef nið-
urstöður alþingiskosninga yrðu í sam-
ræmi við niðurstöðu nýrrar skoðanakönn-
unar sem Capacent Gallup gerði fyrir
Morgunblaðið.
Samfylkingin mælist nú með 31,1%
fylgi og fengi 21 þingmann. Flokkurinn
hefur bætt við sig nær tíu prósentustig-
um frá könnun í byrjun ársins.
Sjálfstæðisflokkur mælist nú með
26,2% fylgi og fengi 17 þingmenn. VG
mælist með 24,6% og fengi 16 þingmenn.
Framsóknarflokkur mælist með 12,8%
og fengi 8 þingmenn. | 8
Ríkisstjórnin fengi meirihluta á þingi
Samfylking vex
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
UPPLÝSINGAR frá fjórum
stærstu bílafjármögnunarfyrir-
tækjunum benda til að um 25 þús-
und lán hafi verið fryst eða þeim
skuldbreytt en alls eru ríflega 70
þúsund ökutæki skráð í eigu bíla-
fjármögnunarfyrirtækja samkvæmt
tölum frá Umferðarstofu.
Heildarupphæð lánanna fæst
ekki gefin upp en þó má áætla að
miðað við meðallán upp á rúmar
tvær milljónir króna séu um 150
milljarðar útistandandi í bílalánum.
Langflest eru þau lán tekin í er-
lendri mynt. Erlendu bílalánin eru í
mörgum tilvikum komin upp fyrir
verðmæti bílanna eftir gengisfall ís-
lensku krónunnar á síðustu mánuð-
um.
Mánaðarlegar afborganir þeirra
sem ekki hafa látið frysta eða skuld-
breyta bílalánum sínum hafa í
mörgum tilvikum tvöfaldast og vel
það á aðeins tæpum tveimur árum.
Með frystingu á afborgunum af
lánunum eða skuldbreytingum hef-
ur lengst í þeim um nokkra mánuði.
Mismunandi úrræði hafa verið í boði
hjá bílafjármögnunarfyrirtækjun-
um og ekki þau sömu hjá þeim öll-
um.
Samkvæmt upplýsingum frá þeim
hafa nokkur hundruð bíla verið tek-
in til baka með vörslusviptingu.
Fyrirtækin segja að engir samn-
ingar séu gerðir við einstakar bíla-
sölur, heldur hafi allir bílasalar
heimild til að selja þá.
Þrálátum orðrómi um að samið
hafi verið við ákveðna aðila er vísað
á bug.
25 þúsund hafa | 15
150 milljarðar í bílalán
70 þúsund lán útistandandi hjá fjórum
stærstu fjármögnunarfyrirtækjunum
ÞAÐ er engu líkara en þessi skemmtilega mynd af umhverfi Tjarnarinnar
sé samsett en svo er þó ekki. Hún er að hálfu það, sem speglaðist í bak-
sýnisspegli bifreiðar. Maðurinn virðist vera að fylgjast með fuglunum í
vetrarblíðunni og víst er hægt að dást að fimlegum vængjatökum þeirra.
Í sátt og samlyndi við Tjörnina
Morgunblaðið/Kristinn
KJÖRNUM aðalfulltrúum í borg-
arstjórn hefur farið fækkandi á
kjörtímabilinu og þeim gæti enn
fækkað. Tveir borgarfulltrúar hafa
tilkynnt þátttöku í prófkjörum
vegna alþingiskosninganna og
vangaveltur eru um þátttöku þriðja
borgarfulltrúans.
Nú þegar sitja fimm varamenn í
borgarstjórn fyrir aðalfulltrúa, sem
ýmist hafa beðist lausnar eða eru í
leyfi. 15 fulltrúar sitja í borg-
arstjórn Reykjavíkur. »14
Mikil fækkun aðalfulltrúa í
borgarstjórn Reykjavíkur
HRYÐJU-
VERKALÖGUM
var beitt gegn Ís-
lendingum vegna
samtals Árna
Mathiesen, þá-
verandi fjár-
málaráðherra,
við fjár-
málaráðherra
Breta, Alistair Darling, hinn 7.
október síðastliðinn.
Þetta staðfesti breski fjár-
málaráðherrann á fundi fasta-
nefndar breska þingsins um fjármál
hinn 3. nóvember síðastliðinn.
Morgunblaðið hefur undir höndum
útskrift af því sem fram fór á fund-
inum. »16
Hryðjuverkalög vegna sam-
tals Árna við Darling
STÖNDUG hagkerfi munu fara
fram á ystu nöf erfiðrar skulda-
stöðu og önnur eins staða hefur
ekki blasað við heiminum í hundrað
ár. Þetta segir Kenneth S. Rogoff,
prófessor í hagfræði við Harvard-
háskóla. Hann spáir mikilli vaxta-
hækkun víða um heim á næstunni.
Hagkerfin muni hins vegar ná
sér á strik nú eins og ætíð. »11
Hagkerfi á ystu nöf
Auglýsendur eru öruggir
um athygli einmitt í
Morgunblaðinu og mbl.is
78%
þjóðarinnar les
Morgunblaðið
og/eða mbl.is
daglega*
*annan hvorn miðilinn eða báða, skv.
fjölmiðlakönnun Capacent Gallup á
tímabilinu nóv.‘08 til jan.’09, allir
landsmenn 12 til 80 ára
Í sviðsljósinu! - Chiro heilsurúm
Faxafeni 5, Reykjavik
Opi› virka daga frá kl . 10-18 Laugardaga frá kl . 11-16
Nú á 30% afslætti
Dæmi: 160x200 cm
Verð áður kr. 240.900,-
Nú aðeins kr. 168.630,-