Morgunblaðið - 27.02.2009, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.02.2009, Blaðsíða 9
Fréttir 9 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009 Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is AUÐVITAÐ ríkir gríðarleg sorg á heimilinu, þetta er eins og maður hafi misst barnið sitt,“ segir Jón Benediktsson í Reykjanesbæ en lítill hundur í eigu fjölskyldu hans, tík af tegundinni Skegghundur (Bichon frise), drapst í vikunni af sárum sín- um eftir árás frá hundi af tegundinni Stóri Dani (Great-Dane). Sá sleit sig lausan frá fullorðnum fylgdarmanni sínum, en eftir árásina lét eigandi hundsins lóga honum. Mikill þyngdarmunur er á þessum tegundum, eða um 65 kíló á full- orðnum hundum, en ekki er algengt að árásir sem þessar eigi sér stað, samkvæmt upplýsingum blaðsins. Hafði stóri hundurinn átt nokkra eigendur á sinni ævi en vitað er um að minnsta kosti eitt tilvik er hann réðst á annan hund. Drógust eftir götunni Jón segist í samtali við Morg- unblaðið vonast til þess að frásögn af svona atviki verði öðrum víti til varn- aðar. Mikilvægt sé að halda vel utan um stóra hunda og passa að þeir gangi ekki lausir, upp á öryggi ann- arra hunda og vegfarenda að gera. „Við þökkum bara fyrir að við vor- um ekki farin að láta unga dóttur okkar labba úti með hundinn,“ segir Jón en tengdaafi hans, áttræður að aldri, var með litlu tíkina Öndvegis- Emmu á reglubundinni göngu í Reykjanesbæ þegar atvikið átti sér stað. Stóri hundurinn var í bandi hinum megin götunnar, ásamt öðr- um hundi, er hann hljóp af stað að litlu tíkinni. Fylgdarmaður stóra hundsins reyndi hvað hann gat að halda í hundinn, dróst á eftir honum yfir götuna þar til að taumurinn slitnaði í átökunum. „Hann réðst beint að Emmu, tók hana upp í kjaftinn og sleit hana lausa frá gamla manninum, sem féll við er hann reyndi að ríghalda í bandið og dróst aðeins eftir götunni, þar til að hann varð að sleppa. Hon- um tókst síðan að losa Emmu úr kjafti stóra hundsins sem glefsaði í höndina,“ segir Jón. Maður sem varð vitni að árásinni út um eldhúsgluggann sinn hljóp út og kom gamla manninum til hjálpar. Fóru þeir með Emmu á dýralækna- stofu og þaðan var ekið með tengda- afa Jóns til aðhlynningar á sjúkra- húsið. „Hann fékk vægt taugaáfall eftir þetta, var búinn að fara út með hundinn nánast daglega í meira en þrjú ár. Þetta er ekkert síður mikið áfall fyrir hann en okkur,“ segir Jón en fjölskyldan hafði átt Emmu í fjög- ur og hálft ár og alið undan henni og látið frá sér níu hvolpa. Emma var flutt stórslösuð á Dýra- setrið í Reykjanesbæ og þaðan á gjörgæsludeild dýraspítalans í Garðabæ. Hún var með brotin rif- bein, gat á lunga og þind, og eftir að- gerðir var hún farin að braggast þegar kom sýking í sárin. Jón og fjölskylda hans ákváðu því að láta svæfa hana svefninum langa. Má ekki endurtaka sig „Við höfum ekki rætt við eiganda stóra hundsins en vitum að hann er skiljanlega miður sín. Við eigum ekki í neinum illindum, þetta var bara stórt slys en við viljum reyna að koma í veg fyrir að svona geti end- urtekið sig. Það er mikið um stóra hunda hérna í bænum, ekki bara Stóra Dana, og stundum höfum við séð þá lausa, því miður,“ segir Jón. Stóri Dani sleit sig lausan og réðst á litla tík í Reykjanesbæ Öndvegis-Emma átti við ofurefli að etja Fjölskylduvinur Tíkin Öndvegis-Emma í makindum heima í stofu ásamt Jóni Benediktssyni, eiganda sínum, og Tómasi Loga, syni hans. Í HNOTSKURN »Stóri Dani er þjóð-arhundur Þýskalands, al- mennt lýst sem blíðum og ást- úðlegum hundi og ekki árásargjörnum nema í und- antekningartilfellum. Var um sig innan um ókunnuga og ár- vakur verndari síns svæðis og eigna eiganda síns. »Hundaeftirlitsmaður íReykjanesbæ, Stefán Ólafsson, segir fá dæmi þess að hundar hafi ráðist þar hvor á annan. Mikið sé um hunda í bænum en ekkert óvenjumikið um stóra hunda. ÁSTA Dóra Ingadóttir hundaþjálf- ari segir að því stærri sem hundarn- ir séu því meiri skaða geti þeir vald- ið ef þeir fara af stað og ráðast á aðra. Skapgerð hunda sé mismun- andi og erfitt að alhæfa um Stóra Dana út frá einu atviki. Mikilvægt sé að allir hundar fái góða tamningu og almennilegan aga strax eftir fæð- ingu. „Ef fólk ætlar að eiga stóra hunda verður það að hafa fullt vald á þeim. Það er mikið mál að eiga stóran hund. Hundurinn má ekki upplifa sig þannig að hann geti gert það sem honum dettur í hug. Ef þeir finna að þeir séu líkamlega sterkari en eig- endurnir þá missir fólk stjórnina á þeim,“ segir Ásta Dóra og brýnir fyrir öllum hundaeigendum að taka ábyrgð á sínum dýrum. Það sé t.d. ábyrgðarhluti að láta frá sér erfiðan hund og afhenda öðrum vandamálið. „Ef fólk fer ekki á námskeið og lærir að stjórna hundinum sínum þá á það frekar að fá sér gullfisk.“ Verða að fá tamningu Skegghundar, Bichon frise, eru sagðir glaðlynd- ir, fjörugir og blíðir og hafa notið aukinna vinsælda hér á landi, að því er segir á vef Hundarækt- arfélags Íslands. Þeir eru fransk- belgískir að uppruna og segir sag- an að sjómenn hafi komið með hann til Kanaríeyja á 14. öld. Þeir voru m.a. vinsælir meðal kóngafólks. Glaðlyndir og blíðir hundar Emma eignaðist níu hvolpa. Fallegar blússur verð 5900.- Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 frá: Mossberg, Remington, Marlin, CZ, Sako, Tikka, Weatherby og Fabarm. Verð frá:          Húsgagnahöllinni Bíldshöfða – sími 585 7239 Lindum Skógarlind 2 – sími 585 7260 Skeifan 11d 108 Reykjavík sími 517 6460 www.belladonna.is Ný sending af gallabuxum og svörtum buxum frá Stærðir 40-60 Eldir gerðir af buxum frá kr. 2.990 Kringlunni • Simi 568 1822 og Smáralind • sími 564 1822 www.polarnopyret.is 50% afsláttur af úlpum snjógöllum snjóbuxum og fleiri vetrarvörum Fermingarfötin komin í hús KRINGLUNNI Flott föt fyrir stráka og stelpur á frábæru verði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.