Morgunblaðið - 27.02.2009, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 27.02.2009, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009 Æfing Þegar slökkvibúnaðurinn í Örfirisey, þar sem olíuskipin leggja að, er prófaður er betra fyrir menn og málleysingja að verða ekki fyrir bununni. RAX Auður H Ingólfsdóttir | 26. febrúar Kynjaslagsíða í loftslagsumræðum? ... Nú veit ég af eigin reynslu að þó konur séu í minnihluta þeirra sem hafa komið að vinnu sem tengist loftslagsbreyt- ingum af mannavöldum og viðbrögðum við þeim, þá eru þær samt með í hópnum og virkir þátttakendur. Konur hafa tekið þátt í vís- indarannsóknum sem snúa að loftslags- breytingum, sem og samningaviðræðum á alþjóðavettvangi. Þær hafa líka margar verið öflugar sem aktivistar í frjálsum fé- lagasamtökum og áfram mætti telja. … Í þeim örfáu undantekningum sem konur tjáðu sig, var það oftast bara örstutt, eins og: „áhugavert“, eða „takk fyrir þessar upplýsingar“, en ekkert efnislegt. ... Hvað ætli valdi þessu? Meira: aingolfs.blog.is Flosi Kristjánsson | 26. febrúar 2009 Mamma þín gengur í Hagkaupsslopp! Upplestur úr bókhaldi að- skiljanlegra deilda stjórn- arráðsins hefur til þessa ekki talizt til skemmt- unar. … en við vitum kannski betur: Heilbrigð- isráð-herra taldi sig hafa fundið snöggan blett á forvera sínum og keppinaut um alþýðuhylli og birti þar af leiðandi upplýsingar sem hann taldi að gætu komið sér illa fyrir fyrrum heil- brigðisráðherra. Einhver hefur tekið sig til og flett áfram aftur í U í bókhaldinu og fundið þar tuttugu-og-níu milljóna króna snöggan blett á fyrrverandi utan- ríkisráðherra og lætur vaða. Meira: flosi.blog.is ÁGÆTI Ögmundur. Tillögur sem þér eru vel kunnar um breyt- ingar á rekstri St. Jósefsspítala tengjast umfangsmiklum skipu- lagsbreytingum í heilbrigðiskerf- inu sem nauðsynlegt er að ráðast í vegna kröfu um hagræðingu í rík- isrekstri. Hagræðingarkrafan á heilbrigð- iskerfið á þessu ári er alls 6.700 milljónir kr. Þar af stefndi forveri þinn að því að ná fram 1.300 millj- óna kr. sparnaði með skipulags- breytingum. Verði ekki gripið til þessara skipulagsbreytinga þarf að ná þessum 1.300 milljóna króna sparnaði á annan hátt, t.d. með: – skerðingu á þjónustu – hækkun þjónustugjalda – umtalsverðum uppsögnum Á liðnu ári var nefnd á vegum heilbrigðisráðherra er ég stýrði falið að skoða fjárhagslegan rekst- ur og faglega möguleika fjögurra heilbrigðisstofnana sem stundum eru kölluð „kragasjúkrahús“. Þetta eru heilbrigðisstofnanirnar á Akranesi, Suðurlandi, í Reykja- nesbæ og á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Skurðstofur Við þessa skoðun kom ýmislegt fram sem vakti athygli í nefndinni og fyrrverandi heilbrigðisráðherra var bent á í minnisblöðum sem þú hefur aðgang að. Meðal annars blasir sú staðreynd við að þegar höfuðborgar- og kragasvæðin eru skoðuð saman þá er til staðar um- talsverð umframafkastageta á sól- arhringsreknum skurðstofum. Ef tvær skurðstofur, auk að- stöðunnar á Landspítala, geta að mestu komið í stað fimm skurð- stofa (á Selfossi, í Keflavík og Hafnarfirði) hljóta menn að spyrja: Af hverju ætti að halda áfram að reka sólarhringsvaktir á skurðstofum þar sem lítið er að gera? Er verjandi að nýta tak- markaða fjármuni með þessum hætti? Guðjón Magnússon Stutt fyrirspurn til heilbrigðisráðherra Höfundur er læknir dr. med., pró- fessor við Háskólann í Reykjavík. Í KJÖLFAR efnahags- hrunsins hafa komið fram tillögur um að breyta stjórnskipan Íslands, jafnvel efna til sérstaks stjórnlagaþings sem fengi það verkefni að breyta stjórnarskránni eða semja nýja frá grunni. Að mínu mati hefur eftirfarandi at- riðum ekki verið gefinn nægilegur gaumur í þessu sambandi. Stjórnskipun þarf að standa af sér storminn Ein meginástæða þess að jafnan er flóknara að breyta stjórnskip- unarlögum en öðrum lögum er sú að stjórnskipunarlögum er ætlað að vera grundvallarlöggjöf sem stend- ur af sér tímabundnar pólitískar stefnubreytingar. Stjórnskip- unarlögin mynda þannig ákveðinn ramma utan um stjórnmálalífið sem þátttakendur í stjórnmálum, og raunar allir þjóðfélagsþegnar, þurfa að virða. Þetta hefur verið orðað svo að stjórnarskráin eigi að vera hafin yfir dægurþras stjórnmálanna. Tak- ist þetta getur stjórnarskrá verið mikilvægt framlag til réttarríkisins þar sem þjóðfélagsþegnarnir geta verið vissir um, og miðað ákvarðanir sínar við, að ákveðin grundvall- aratriði réttarkerfisins haldist óbreytt til langs tíma. Eigi stjórnskipunarlög að vera til þess fallin að sinna framangreindu hlutverki hlýtur almennt að teljast heppilegra að slík lög séu sett að vel ígrunduðu máli og í sem mestri sátt þeirra sem búa eiga við þau. Sú tor- tryggni og þau átök sem nú ein- kenna íslenska þjóðmálaumræðu eru því ekki heppilegur jarðvegur fyrir samningu stjórnarskrár. Vissu- lega má benda á ýmis dæmi um stjórnarskrár sem samdar hafa ver- ið við erfiðari að- stæður en uppi eru hér á landi. En séu breytingar á stjórn- arskránni ekki óhjá- kvæmilegar án taf- ar, svo sem í kjölfar nýfengins sjálf- stæðis, hlýtur alla jafna að vera betra að geyma slíka vinnu þar til hægist um í þjóðfélaginu. Að líkja eftir öðr- um ríkjum Ýmsar tilraunir hafa verið gerðar meðal lögfræðinga og stjórnspek- inga til þess að lýsa hinni bestu mögulegu stjórnskipan í eitt skipti fyrir öll. Allar slíkar æfingar eru dæmdar til þess að mistakast. Ástæða þess er sú að ólíkar stjórn- skipanir henta ólíkum þjóðfélögum. Það þarf því engum að koma á óvart að oft hefur illa farið þegar eitt ríki ákveður að líkja eftir stjórnskipan annars ríkis, sem ef til vill er mjög ólíkt menningarlega og land- fræðilega. Ég nefni þetta af því að ég hef stundum heyrt fullyrðingar eins og þær að Íslendingar ættu að byggja stjórnskipan sína upp eins og Bandaríkin eða einhver önnur til- tekin ríki. Auðvitað er hægt að læra af öðrum þjóðum en það er hættu- legt að álykta sem svo að það sem gagnist Bandaríkjunum vel hljóti líka að duga okkur. Menningarlegur og landfræðilegur munur ríkjanna er alltof mikill til þess að slíkt sé hægt, svo ekki sé talað um mun á fólksfjölda. Á þessu hafa ýmsar S- Ameríkuþjóðir brennt sig illa. Framkvæmdarvaldið eflist Við Íslendingar reisum stjórn- skipun okkar á svokallaðri þingræð- isreglu. Í henni felst fyrst og fremst að ríkisstjórn þarf að njóta stuðn- ings (a.m.k. vera varin vantrausti) meirihluta þingsins. Í umræðu um breytingar á stjórn- arskránni heyrist gjarnan að fram- kvæmdarvaldið á Íslandi hafi sölsað undir sig alltof mikil áhrif á kostnað löggjafarvaldsins. Þannig er t.d. réttilega bent á að nánast öll löggjöf sem samþykkt er á Alþingi í dag stafi frá ráðherrunum í formi stjórn- arfrumvarpa. Lausnina á þessu telja sumir þá að afnema þingræðið og kjósa framkvæmdarvaldið í sér- stökum kosningum. Það er hins veg- ar ekki séríslenskt fyrirbrigði að framkvæmdarvaldið taki ákveðið frumkvæði við reglusetningu. Fram- kvæmdarvaldinu er falið að fram- fylgja landslögum. Þar myndast því sérþekking á ólíkum sviðum rétt- arins. Tökum dæmi: Ímyndum okk- ur að ákvæði tollalaga séu gölluð og þeim þurfi að breyta. Hvorir ætli séu líklegri til þess að gera sér grein fyr- ir umræddum brotalömum og kunna við þeim ráð, starfsmenn tollsins og fjármálaráðuneytisins eða hinn al- menni þingmaður? Þetta, og reynd- ar ýmislegt annað, gerir það að verkum að alltaf eru ákveðnar líkur á því að handhafar framkvæmd- arvaldsins taki að sér og sé falið ákveðið frumkvæði (að minnsta kosti aðkoma) að lagasetningu. Umræður um of mikil völd hand- hafa framkvæmdarvalds takmarkast síður en svo við Ísland. Í Bretlandi er slík umræða mjög hávær þrátt fyrir að breska þingið sé mjög sterkt af sögulegum og stjórnskipulegum ástæðum. Sama má segja um Bandaríkin, þar sem framkvæmd- arvaldið er kosið sérstaklega og for- setinn situr ekki á þingi. Sem dæmi má nefna að Bruce Ackerman, pró- fessor við Yale-háskóla, telur að völd forsetans séu úr slíku hófi að réttast væri að Bandaríkjamenn afnæmu núverandi stjórnskipun og tækju upp þingræði! Ýmislegt er hægt að gera til þess að auka völd og áhrif þings á kostnað framkvæmdarvaldsins. Sú áhuga- verða hugmynd að afnema þingræði á Íslandi og kjósa framkvæmd- arvaldið sérstaklega er hins vegar engin töfralausn í því sambandi. Eftir Hafstein Þór Hauksson » Sú tortryggni og þau átök sem nú ein- kenna íslenska þjóð- málaumræðu eru því ekki heppilegur jarð- vegur fyrir samningu stjórnarskrár. Hafsteinn Þór Hauksson Höfundur er lögfræðingur og lauk ný- lega mag. jur.-gráðu í stjórnskip- unarkenningum og réttarheimspeki frá Oxford-háskóla. Vegna umræðna um breytingar á stjórnskipun Íslands BLOG.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.