Morgunblaðið - 27.02.2009, Qupperneq 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009
ERFITT hefur verið fyrir skipin að
athafna sig á gulldepluslóð um 130
mílur suður af Vestmannaeyjum.
Skipin náðu hali síðdegis í fyrradag
og var algengt að þau fengju um
200 tonn. Skaplegt veður var í gær
en búist er við brælu með kvöldinu.
Guðmundur Huginn Guðmunds-
son, skipstjóri á Hugin, sagði að
erfitt væri að eiga við þetta en
sagðist vona að betra veður yrði í
dag. Hann ráðgerði að halda heim á
leið í kvöld en 10 tíma stím er til
Eyja. Í gær voru þeir Huginsmenn
komnir með 4-500 tonn frá mánu-
degi og sagðist Guðmundur giska á
að hin skipin sex á þessum slóðum
væru með svipaðan afla. Júpiter,
sem var á kolmunna, bættist í hóp-
inn í gærmorgun.
Guðmundur sagði slæmt að geta
ekki komist meira um vegna ótíðar
til að leita að gulldeplunni. Hann
sagðist sannfærður um að skipin
væru ekki að veiða á aðalmiðunum.
Hann sagðist hafa áhuga á að
kanna sunnar eða suðaustar, en
skip væru sjaldnast að veiðum á
þessum slóðum. Dýpið þarna er um
2000 metrar en gulldepluna veiða
skipin á um 200 föðmum. aij@mbl.is
Ótíð haml-
ar veiðum
á gulldeplu
JÓN Kjartansson SU 111 er vænt-
anlegur til Eskifjarðar á morgun
með fullfermi af kolmunna, um 2370
tonn. Aflinn fékkst í sex hölum á al-
þjóðlegu hafsvæði vestur af Írlandi.
Á heimasíðu skipsins kemur fram
að reiknimeistarar um borð hafi
fundið út að trollið hafi verið í sjó í
36 tíma.
Grétar Rögnvarsson, skipstjóri,
sagði í gær að hollensk skip og rúss-
nesk hefðu verið á þessum slóðum
og í fyrradag hefði norskt skip bæst
í hópinn. Grétar sagðist reikna með
að fleiri íslensk skip færu á kol-
munna á næstunni, t.d. Hákon, Að-
alsteinn Jónsson og Vilhelm Þor-
steinsson. Samkvæmt bráðabirgða-
tölum Fiskistofu hefur 1.300
tonnum af kolmunna verið landað
hér það sem af er ári. aij@mbl.is
Með fullfermi
af kolmunna
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
ERLEND bílalán eru í mörgum til-
vikum komin upp fyrir verðmæti
bílanna eftir gengisfall íslensku
krónunnar á síðustu mánuðum. Þús-
undir bíleigenda hafa nýtt sér mögu-
leika á að frysta afborganir af lán-
unum eða skuldbreyta þeim og létt
þannig á greiðslubyrði. Á móti hefur
lengst í lánunum um nokkra mánuði.
Samkvæmt tölum frá Umferð-
arstofu eru ríflega 70 þúsund öku-
tæki skráð í eigu bílafjármögn-
unarfyrirtækja. Upplýsingar frá
fjórum stærstu fyrirtækjunum
benda til að um 25 þúsund lán hafi
verið fryst eða þeim skuldbreytt.
Heildarupphæð lánanna fæst ekki
uppgefin en þó má áætla að miðað við
meðallán upp á rúmar tvær milljónir
króna séu um 150 milljarðar úti-
standandi í bílalánum. Langflest eru
þau lán tekin í erlendri mynt.
SP-Fjármögnun
Stærsti, einstaki lánveitandi á bíla-
lánum hefur verið SP-Fjármögnun,
með um 22 þúsund slíka lánasamn-
inga. Um átta þúsund bílalán voru
fryst tímabundið í 3-4 mánuði þegar
boðið var upp á þann möguleika í
upphafi. Að þeim tíma liðnum ákvað
fyrirtækið um síðustu mánaðamót að
bjóða upp á nýtt úrræði. Bílalánin
eru framlengd um átta mánuði og
miðað við greiðslu sem er 25% hærri
en fyrsta greiðsla af lánunum.
Fram hefur komið hjá SP-
Fjármögnun að „örfá hundruð“ bíla
voru tekin til baka með vörslusvipt-
ingu á síðasta ári. Haraldur Ólafsson,
markaðsstjóri SP-Fjármögnunar,
segir að í dag eigi fyrirtækið 20-30
bíla og reynt sé að selja þá gegnum
heimasíðuna. Allir bílasalar hafi
heimild til að selja bílana, engir
samningar hafi verið gerðir, en sam-
bönd skapast við nokkrar bílasölur
sem leitað er til að fyrra bragði.
Íslandsbanki Fjármögnun
Alls eru um 15 þúsund ein-
staklingar með bílalán hjá Íslands-
banka Fjármögnun, áður Glitni Fjár-
mögnun, dótturfélagi bankans.
Nýverið var viðskiptavinum með
bílasamninga í erlendri mynt boðið
að breyta skilmálum samninganna
þannig að afborganir lækkuðu í átta
mánuði um 50%, miðað við fulla
greiðslu í janúar á þessu ári, og
samningurinn lengdist við það um
fjóra mánuði. Um fasta greiðslu er að
ræða í þessa átta mánuði. Sem dæmi
var afborgun upp á 100 þúsund krón-
ur á mánuði í janúar árið 2008 komin
í 175 þúsund krónur ári síðar. Lækk-
un á greiðslu um 50% í janúar sl. þýð-
ir að greiðsla næstu átta mánuði
verður 87.500 krónur. Að sögn Más
Mássonar, upplýsingafulltrúa Ís-
landsbanka, hafa hátt í 600 manns
nýtt þér þennan möguleika. Áður
höfðu um átta þúsund fryst bílalánin
tímabundið. Þeir sem breyta skil-
málum sinna samninga í fyrsta sinn
þurfa ekkert að greiða fyrir þá þjón-
ustu en kostnaðurinn er 2.900 krónur
fyrir þá sem fá breytingu í annað
sinn.
Aðeins er búið að taka til baka um
140 bíla af þeim 15 þúsund ein-
staklingum sem eru í viðskiptum við
Íslandsbanka, eða nærri 1%. Losar
bankinn sig við bílana gegnum bíla-
sölur um allt land, að sögn Más, t.d. á
Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og á
höfuðborgarsvæðinu.
Lýsing
Hjá Lýsingu eru bílalánin um 17
þúsund talsins. Þar af hafa ríflega
fjögur þúsund lántakendur nýtt sér
möguleika á að frysta afborganir
tímabundið. Ekki er lengur boðið
upp á algjöra frystingu, heldur er
hægt að inna af hendi 50% greiðslur í
þrjá mánuði. Að þeim tíma liðnum er
hægt að sækja um að greiða 75% af
upphæðinni í þrjá mánuði til við-
bótar. Nýlega var svo farið að bjóða
upp á frystingu greiðslna í sex mán-
uði fyrir atvinnulausa og þá sem eru í
miklum greiðsluerfiðleikum. Eru þá
aðeins greiddir vextir af lánunum en
þau framlengjast ekki.
Að sögn Halldórs Jörgenssonar,
framkvæmdastjóra Lýsingar, hafa
fáir bílar verið teknir í vörslusvipt-
ingu og allt gert til að forðast það.
Þeir bílar sem koma til baka fara í
sölu á vef Lýsingar og Halldór segir
öllum bílasölum heimilt að reyna að
selja þessi ökutæki. Engir samn-
ingar séu við einstakar bílasölur, eins
og þrálátur orðrómur sé um. Sá
kvittur eigi ekki við rök að styðjast.
„Allir geta selt fyrir okkur bíla.“
Avant
Hjá Avant fengust þær upplýs-
ingar að 12 þúsund bílalán væru úti-
standandi, þar af hefðu um fimm þús-
und lán verið fryst. Þeir skipta
tugum bílarnir sem hefur verið skilað
en nákvæmari tala fæst ekki. Bent er
á að sumir bílar sem fara í vörslu-
sviptingu séu leystir út á ný. Avant
selur þá bíla, sem skilað er, gegnum
almennar bílasölur og engir samn-
ingar hafa verið gerðir við einstaka
bílasala.
Avant hefur boðið upp á framleng-
ingu á frystingu afborgana. Magnús
Gunnarsson, framkvæmdastjóri Av-
ant, bendir á að þar sé fyrirtækið að
fara að tilmælum ríkisstjórnarinnar
um frystingu afborgana, við-
skiptavinum að kostnaðarlausu.
„Þetta gerum við með von um að rík-
isstjórnin vinni markvisst að því að
styrkja gengi krónunnar. Það hefur
vissulega styrkst nokkuð undanfarið
en betur má ef duga skal.“
Morgunblaðið/Ómar
25 þúsund hafa fryst
Fjögur stærstu bílafjármögnunarfyrirtækin eru með um 70 þúsund lán í umferð
Um 25 þúsund lán hafa verið fryst Lánin í mörgum tilvikum hærri en bílverðið
/
= /1/>/-
?
7 5 >,33
?
3
!"
?
7 5 >,33
?
3>/
3
!#$
!"
<
=$ <
/
$ 5/>/-
@?/ 73#
/,#5
Mánaðarlegar afborganir þeirra
sem ekki hafa látið frysta eða
skuldbreyta bílalánum sínum
hafa í mörgum tilvikum tvöfald-
ast og vel það á aðeins tæpum
tveimur árum. Með því að frysta
afborgun, og greiða aðeins vexti
og verðbætur, hafa þessar
greiðslur lækkað verulega, en
það er þó eingöngu tímabundin
ráðstöfun á meðan gengi krón-
unnar er veikt. Það hefur þó ver-
ið að styrkjast að undanförnu
og staða bílalánanna gæti því
batnað á næstu mánuðum.
Tvöföldun greiðslna
Fjölskyldur fá ...
Skráðu fjölskylduna á spron.is og þú gætir
tryggt henni endurgreiðslu þessa árs!
Nánari upplýsingar
Þjónustuver 550 1400 I spron.is
...endurgreiðslu!
A
R
G
U
S
/
0
9
-0
0
3
4
Skilvísir viðskiptavinir í Fjölskylduvild SPRON hafa nú
fengið endurgreiðslu vegna viðskipta ársins 2008.
Fjölskylduvild SPRON stuðlar að fjárhagslegum ávinningi
fjölskyldunnar og er án endurgjalds.