Morgunblaðið - 27.02.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 27.02.2009, Blaðsíða 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009 ✝ Garðar Stein-dórsson fæddist í Reykjavík 19. nóv- ember 1938. Hann lést á heimili sínu 17. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jóna Guðrún Guð- mundsdóttir, f. á Dvergasteini í Álfta- firði 9. október 1912, d. 9. júní 1996 og Steindór Guðmunds- son, f. í Reykjavík 8. nóvember 1907, d. 13. des. 1996. Bróðir Garðars er Sverrir, f. 9. ágúst 1941. Garðar kvæntist 9. júní 1962 Jó- hönnu Guðrúnu Halldórsdóttur, f. 22. apríl 1940, dóttur Helgu Jó- hannesdóttur, f. í Hrísakoti á Vatnsnesi 17. janúar 1912, d. 16. október 1987, og Halldórs Gunnars Pálssonar, f. í Reykjavík 25. júní 1916, d. 12. júlí 1998. Börn Garðars og Jóhönnu Guðrúnar eru: 1) Krist- ín, f. 10. mars 1961, maki Björn Þórisson, f. 7. maí 1957. Sonur þeirra er Reynir Örn, f. 14. jan. úr 1960. Hóf störf hjá Olíufélaginu ESSO árið 1968 og starfaði þar til ársins 2000 er hann hætti störfum. Til Hafnarfjarðar fluttu þau hjón 1968 og bjuggu þar uns þau fluttu út á Álftanes vorið 2002. Fé- lagsstörf voru Garðari hugleikin og kom hann víða við í Hafn- arfirði. Var m.a. á árum áður í stjórn Rafveitunnar, formaður stjórnar Heilsugæslustöðvarinnar, formaður skólanefndar Iðnskól- ans, formaður Framsóknarfélags- ins og sat í bæjarstjórn sem vara- maður um tíma. Fríkirkjan í Hafnarfirði var honum mjög kær og starfaði hann í safnaðarstjórn frá 1984 fram undir árið 2000 og var um tíma varaformaður. Tón- list var í hávegum höfð hjá hon- um. Söng hann í Stúdentakórnum á meðan hann var og hét og Karlakórnum Þröstum í Hafn- arfirði um tíma, að ógleymdum ánægjustundum er hann tók upp gítarinn og spilaði og söng með fjölskyldu og vinum. Útivist var honum hugleikin. Laxveiði á sumrin og gengið til rjúpna á haustin. Útför Garðars fer fram frá Víði- staðakirkju í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin kl. 13. 1982, kvæntur Tönju Dögg Arnardóttur. Sonur Kristínar og Guðjóns Guðmunds- sonar er Ingvar Þór, f. 30. jan. 1979, í sam- búð með Ásdísi Petru Oddsdóttur, sonur þeirra er Andri Steinn, f. 29. jan. 2006. 2) Bryndís, f. 17. des. 1962, maki Gísli Vagn Jónsson, f. 23. maí 1959, börn þeirra eru Dagný Björk, f. 17. júlí 1985 og Arnar Freyr, f. 5. okt. 1990. 3) Áslaug, f. 19. ágúst 1970, maki Páll Hafnfjörð Hafsteinsson, f. 21. jan. 1969, synir þeirra eru Garðar Leo, f. 3. jan. 1993 og Halldór Gunnar, f. 12. júní 1994. Sonur Áslaugar og Björgvins Guðjónssonar er Vignir Freyr, f. 9. okt. 1988. Garðar stundaði hefðbundið barnaskólanám. Varð stúdent frá MR 1959 og lagði svo leið sína í viðskiptafræði við H.Í. Garðar var með eigin heildsölu á árunum upp Yndislegi pabbi minn. Það er erfitt að hugsa til þess að eiga aldrei eftir að sjá þig aftur. En þegar ég lít til baka er svo margs að minnast og margt að þakka. Efst í huga mínum er ferðin okkar til Barcelona í haust, afmælið þitt, ferðin okkar norður á Hvamms- tanga í janúar og þegar þú sast í heita pottinum með Bjössa fyrir að- eins 18 dögum síðan. Ekki má þó gleyma öllum útilegunum og ótelj- andi sumarbústaðaferðum með allri fjölskyldunni í gegnum tíðina. Það var oft glatt á hjalla, gítarinn alltaf með í ferð, mikið sungið og við nutum þess öll að vera saman. Ekki síst barnabörnin þín sem ég veit að hefðu ekki getað hugsað sér betri afa. Þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa, skutla á milli staða, fara með þau í sund og hvaðeina sem þau báðu um. Litli langafastrákurinn þinn, sem þekkti þig því miður allt of stutt, talar um þegar þið voruð að gefa fuglunum og ekki skemmdi nú fyrir að vita af ópalinu sem þú áttir alltaf í vasanum. Þú varst alltaf hetja, og ekki síst í baráttu síðustu vikna. Þá töluðum við um margt og ég man að ég lofaði þér einu. Ég stend við það, ég passa mömmu. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni. Jónsson frá Gröf.) Minningin um besta pabba í heimi lifir áfram. Ég elska þig alltaf og sakna þín óendanlega. Þín Kristín. Þriðjudaginn 17. febrúar s.l. kvaddi pabbi minn þetta líf. Minn- ingarnar streyma fram í hugann og allt of langt mál væri að rekja það hér sem mér býr í brjósti. Ég kveð pabba minn með söknuði og sorg í hjarta. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Hvíldu í friði, elsku pabbi minn. Bryndís. Elsku hjartans pabbi minn! Mikið og margt hefur nú farið í gegnum hugann síðustu daga. Ég er í raun ekki almennilega búin að átta mig á alvarleika málsins og bíð eftir að hrökkva upp við að þú sért rétt ókominn heim. Lífið er ekki alltaf eins og við vilj- um hafa það, leikur við mann eina stundina og hrynur svo þá næstu. Hruntímabilið er alltaf erfitt, en ein- hvern veginn nær maður alltaf að koma standandi niður, hvað svo sem á dynur. Það hef ég svo sannarlega lært af þér, þú sem kvartaðir aldrei og tókst alltaf öllu þegjandi, hversu ósanngjarnt sem það var. Æðruleysi þitt síðustu mánuði var alveg ótrú- legt, þú greindist með krabbamein á lokastigi í lok október, en neitaðir að gefast upp og gafst okkur fjóra ynd- islega mánuði með þér til viðbótar. Þegar þú vissir í hvað stefndi þá voru aðaláhyggjur þínar þær að skilja mömmu eftir eina. Þú tókst af mér það loforð að halda þétt utan um mömmuna mína og það loforð mun ég halda til enda. Ekki er lagt meira á mann en maður getur borið, það er alveg á hreinu. Verkefni lífsins eru mörg og margvísleg. Þetta verkefni sem við fjölskyldan stöndum frammi fyrir núna er þó það allra erfiðasta sem ég hef nokkurn tíman þurft að horf- ast í augu við. Þú ert ávallt í huga mér, þú ert mér svo mikið og hefur alla tíð verið. Undanfarnar nætur hafa verið svefnlitlar og hafa þá rifjast upp all- ar skemmtilegu stundirnar sem við höfum átt saman. Veiðiferðir, sund- ferðir, bústaðaferðir, útlandaferðir og allt, allt hitt. Þessar stundir og allar minningarnar sem ég á geymi ég á góðum stað í hjarta mínu og rifja upp gleðina og góðmennskuna, sem þú varst þekktur fyrir, á erf- iðum stundum í mínu lífi. Þú ert sá sem ég hef ætíð litið upp til og ef ég gæti einungis tileinkað mér helminginn af góðmennsku þinni og greiðvikni þá yrði ég glöð. Þú ert sá allra besti í mínum huga og mundu alltaf að ég elska þig af öllu mínu hjarta. Ég bið góðan Guð um að geyma þig þar til við hittumst aftur. Þeir segja mig látinn, ég lifi samt og í ljósinu fæ ég að dafna. Því ljósi var úthlutað öllum jafnt og engum bar þar að hafna. Frá hjarta mínu berst falleg rós, því lífið ég þurfti að kveðja. Í sorg og í gleði ég senda mun ljós, sem ykkur er ætlað að gleðja. (Höf. ók.) Þín minnsta pabbastelpa – Áslaug. Nú er tengdafaðir minn fallinn frá. Ég kynntist honum fyrir rúmum 30 árum þegar ég fór að venja kom- ur mínar á Álfaskeiðið. Við urðum fljótt ágætis mátar, það var gott að leita ráða hjá honum og ekki stóð á hjálp ef eftir henni væri leitað. Það var eiginlega ekki til nei í hans orða- forða. Þegar hugsað er til baka eru sum- ar minningar sterkari en aðrar. Margar ferðir í sumarbústaði bæði sumar og vetur. Þar var gítarinn og söngurinn í aðalhlutverki, Barce- lona-ferðin síðastliðið haust í tilefni af 70 ára afmæli Garðars með allri fjölskyldunni og afmælisveislan hans. Einnig þegar við fórum í heita pottinn fyrir rúmum 2 vikum. Þegar Ingvar Þór, eldri strákurinn okkar og jafnframt fyrsta barnabarn Garð- ars fæddist fór Garðar að fara með hann í sund um leið og hann stóð í fæturna. Svo þegar barnabörnin urðu fleiri, fjölgaði bara í sundhópn- um, þannig var Garðar. En að lokum þurfti hann að gefast upp fyrir sjúk- dómi sem á hann herjaði. Ég vil þakka þér fyrir samfylgd- ina. Ekkert líf án dauða, enginn dauði án lífs. Þinn, Björn. Garðar tengdafaðir minn lést þann 17. febrúar s.l. eftir þungbær veikindi. Hann lét engan bilbug á sér finna og mætti örlögum sínum ásamt Hönnu tengdamóður minni af festu en um leið æðruleysi. Andleg- ur styrkur Garðars var ótrúlegur og kenndi mér margt. Árið 1982 kynntist ég Garðari eða skömmu eftir að ég varð bálskotinn í Bryndísi dóttir hans. Allar götur síðan reyndist hann mér vel. Þegar kom að fyrstu íbúðarkaupum okkar Bryndísar var hann betri en enginn. Hann ráðlagði okkur unga fólkinu af kostgæfni, hvatti okkur áfram og benti á góðar leiðir til þess að kljúfa dæmið. Garðar var afar bóngóður maður. Hann var ætíð fyrstur á svæðið ef þurfti að mála og taka til hendinni. Iðjusemi var honum í blóð borin og allt til síðasta dags varð hann að hafa eitthvað fyrir stafni. Hann var traustur og samviskusam- ur maður. Þegar við Bryndís fluttum til Danmerkur með börnin okkar til þess að leggja stund á nám var Garðar umboðsmaður okkar hér á Íslandi og sá um öll okkar mál. Eng- an betri hefðum við getað fengið til þess og verður sú hjálp sem hann veitti okkur aldrei fullþökkuð. Mikill gleðigjafi var Garðar, spilaði á gítar, var söngmaður góður og hrókur alls fagnaðar á góðri stund. Gamlárs- kvöld og þrettándinn í Háahvammi voru fastir punktar í tilverunni þar sem fjölskyldan kom saman. Nóg var af flugeldum og stutt í strákinn í húsbóndanum. Mátti vart á milli sjá hver hafði meira gaman af flugeld- unum, afinn eða afabörnin. Ekki má heldur gleyma fjöl- skylduferðunum í Essóbústaðina á Laugarvatni. Garðar var einn af frumkvöðlunum sem komu að upp- byggingu þeirra í Mýrarskógum. Þar undi hann sér vel og fór þangað reglulega. Ekki skemmdi fyrir ef eitthvert afabarnanna var með í för. Ég get ekki minnst Garðars án þess að nefna veiðina. Hann hafði yndi af því að veiða og var allt að því fáránlega fiskinn. Allmörg ár voru farnar fjölskylduferðir á silunga- svæðið í Vatnsdalsánni. Það var að frumkvæði hans að þessar veiðiferð- ir hófust. Þar naut hann sín og var hrókur alls fagnaðar. Garðar gekk í frímúrarastúkuna Hamar árið 1972. Hann taldi það hafa verið mikið gæfuspor fyrir sig. Hann var iðinn og stundaði starfið samviskusam- lega og af kostgæfni. Honum þótti afar vænt um stúkuna sína og sást það best þegar hann og Hanna buðu öllum bræðrum og systrum sem voru í vorferð á Vatnsnesinu í heim- sókn til sín á Sólvelli, litla húsið á Hvammstanga sem þau festu kaup á fyrir allnokkrum árum. Þátttakend- ur í þessari ferð minnast heimsókn- arinnar með hlýhug enn þann dag í dag. Garðar sagði mér að þessi heimsókn hefði gefið sér mikið. Það var fyrir hans tilstuðlan sem ég gekk í sömu stúku. Hann var mín fyrirmynd og lærifaðir og fyrir það vil ég þakka. Garðar hefur nú lagt í það ferðalag sem bíður okkar allra. Ég bið þess að hinn hæsti vaki yfir honum á ferð sinni. Gísli Vagn Jónsson. Mig langar til að minnast tengda- föður míns og vinar sem lést hinn 17. febrúar síðastliðinn. Minningarnar eru margar. Veiðiferðirnar okkar voru ófáar norður í land. Okkar fyrsta veiðiferð var í Miðfjarðará sumarið 1992. Í 17 ár höfum við verið veiðifélagar og er því missir minn mikill. Í mörg ár fórum við tvisvar á sumri í Vatns- dalsána. Fyrri ferðin var ætíð farin í júní og fékk þá fjölskyldan að vera með. Seinni ferðin var svo farin í lok ágúst, þá fengum við vinirnir að njóta okkar. Tilhlökkunin var mikil hjá okkur báðum, pakkað var í bíl- inn og haldið af stað. Á leiðinni var mikið spjallað, þyngd og lengd fiska ákveðin og oft á tíðum var bilið á milli augna fisksins orðið að lág- marki 25 cm þegar lagt var fyrir framan veiðihúsið. Við þekktum ána orðið nokkuð vel og hvor annan. Þögnin okkar á milli sagði oft meira en mörg orð. Við gátum setið við ár- bakkann og notið samvista hvor við annan og náttúruna þó svo að þrjá- tíu ár hafi verið á milli okkar. Í veið- inni vorum við jafnaldrar. Ég reyndi hvað ég gat að læra af þér, það var erfitt þar sem þú varst svo fiskinn, en ég aftur á móti algjör fiskifæla. Auðvelt þótti þér að lesa veiðistað- ina, gast þér alltaf rétt til um hvar fisk væri að finna. Á haustin geng- um við saman á rjúpu og í nokkur skipti fórum við saman á gæs austur á Laugarvatn í Esso-bústaðina. Í einni gæsaferð mættum við í skurð- inn á tilsettum tíma, biðum graf- kyrrir eftir fuglahópnum, gríðarlega spenntir. Næsta sem við vissum var að við vöknuðum við að gæsirnar voru sestar á túnið allt í kringum okkur og var þá of seint að skjóta. Við fórum upp í bústað með skottið á milli lappanna skellihlæjandi. Að þessu hefur verið hlegið mikið síðan. Mikið höfum við ferðast saman, bæði innanlands og utan. Ófáar ferðirnar voru farnar til útlanda, Danmerkur, Rómar og nú síðast til Barcelona þar sem fjölskyldan sam- einaðist á sjötugsafmæli þínu. Minn- ingarnar þaðan eru mér ómetanleg- ar. Þegar við Áslaug byggðum á Álftanesinu þá varst þú mættur fyrstur allra. Hjálpaðir okkur allar helgar og öll kvöld. Reyndar neydd- ist ég til að kaupa handa þér örygg- ishjálm þar sem þú varst sírekandi höfuðið í allt sem á vegi þínum varð. Ég lít á það sem forréttindi að hafa kynnst Garðari og er stoltur af því að geta kallað hann vin minn. Þín verður sárt saknað – minn- ingin lifir. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez) Þinn tengdasonur og vinur Páll Hafsteinsson. Elsku afi minn. Ég veit hreinlega ekki hvernig ég á að lýsa því hvernig mér líður á þessari stundu. Ég sem alltaf hef eitthvað að segja er hrein- lega kjaftstopp. Ég get ekki ímynd- að mér lífið án þín og ég held að það eigi eftir að taka mig langan tíma að venjast því að geta ekki spjallað við þig eða heyrt þig hlæja. Ég er sorg- mædd, en á sama tíma glöð fyrir þína hönd, því núna eru þínar þraut- ir búnar og þú ert lagður af stað í nýtt og spennandi ferðalag. Ég er þakklát fyrir þau tæp 24 ár sem ég fékk að eyða með þér, þótt mér finnist árin alltof fá. Ég er þakklát fyrir allar þær góðu minn- ingar sem ég á og þær eru svo sann- arlega margar. Hve margar 7 ára stelpur fara til dæmis með pabba sínum, afa og langafa á pöbbarölt. Þessi minning er bara ein af mörg- um sem ég á frá þeim góða tíma sem við eyddum saman þegar þú heim- sóttir okkur í Danmörku. Ég held að fyrstu minningarnar sem ég á séu frá sundferðum sem við fórum ósjaldan í saman, ásamt góðum stundum í Háahvamminum og á Laugarvatni og eru þær ferðir í gegnum síðustu 24 árin ógleyman- legar. Ein af þeim minningum sem sitja þó hvað fastast er, að þú áttir alltaf ópal handa mér. Önnur sem ég á ekki eftir að gleyma svo lengi sem ég lifi, er þegar þú dansaðir við mig á systrakvöldinu fyrir ári. Að dansa við þig þá, eins hlýr og góður og þú varst, er mér meira virði en allt gull í heiminum. Ég gæti endalaust talið upp allar þær góðu minningar sem ég á um þig afi minn en ég myndi þurfa nokkrar bækur til þess ef ég ætti að gera það. Ég á eftir að muna hversu lífs- glaður þú varst, alveg fram á það síðasta. Þú varst alltaf hrókur alls fagnaðar og ávallt þar sem fjörið var og ef það var ekki til staðar þá breyttir þú því snarlega. Þú hafðir alltaf húmorinn í lagi, sama hvað á gekk og það er eitt af því sem gerði þig alveg einstakan. Alveg sama hversu illa þér leið, reyndirðu alltaf að vera glaður og kátur og gera allt sem þig langaði til. Það lýsir öðrum eiginleika þínum, sem ég á aldrei eftir að gleyma og það er hinn ótrú- legi innri styrkur sem þú bjóst yfir. Ég vona að ég geti öðlast jafn mikinn styrk í framtíðinni og þú bjóst yfir og ég mun alltaf taka mér lífsgleði þína til fyrirmyndar. Ég á aldrei eftir að gleyma hlýju stóru höndunum þínum og þeim hlýleika sem streymdi frá þér. Ég sit og græt yfir því að þurfa að skrifa þessi orð. Ég veit að þó þú sért farinn muntu ávallt lifa í hjarta mínu og ég veit að við hittumst aftur seinna. Hvenær sem það verður þá hlakka ég til að sjá þig aftur. Ég segi því bless á meðan, sé þig seinna og sofðu rótt, elsku afi minn. Þín afastelpa, Dagný Björk. Elsku Garðar afi. Ég var nú ekki gömul þegar ég kynntist þér fyrst, aðeins 16 ára unglingur. Ég man vel eftir því hve hlýlega þú tókst á móti mér þegar ég kynnti mig sem kærustu Reynis í innflutnings- og 40 ára brúðkaups- afmælisveislu ykkar hjóna. Síðan þá áttum við alveg einstakt samband sem einkenndist af hlýju og skiln- ingi. Ég fór fljótt að kalla þig afa, þar sem ég átti engan afa eftirlifandi og hefði ekki getað beðið um betri staðgengil en þig í afahlutverkið. Við gátum talað saman um hvað sem var og alltaf var hægt að leita ráða hjá þér. Margar minningar koma upp í huga mér þegar ég hugsa um allar Garðar Steindórsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.