Morgunblaðið - 27.02.2009, Page 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009
TÍU gefa kost á sér í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Norðaust-
urkjördæmi. Prófkjörið verður
haldið laugardaginn 14. mars nk.
Frambjóðendur eru eftirtaldir:
Anna Guðný Guðmundsdóttir,
verkefnisstjóri, Akureyri, Arnbjörg
Sveinsdóttir, alþingismaður, Seyð-
isfirði, Björn Ingimarsson, sveit-
arstjóri, Langanesbyggð, Gunnar
Hnefill Örlygsson, nemi, Laugum í
Reykjadal, Jens Garðar Helgason,
framkvæmdastjóri, Eskifirði, Krist-
ín Linda Jónsdóttir, bóndi og rit-
stjóri, Þingeyjarsveit, Kristján Þór
Júlíusson, alþingismaður, Ak-
ureyri, Sigurlaug Hanna Leifs-
dóttir, búfræðingur og húsmóðir,
Eyjafjarðarsveit, Soffía Lár-
usdóttir, framkvæmdastjóri og bæj-
arfulltrúi, Egilsstöðum, Tryggvi
Þór Herbertsson, prófessor,
Reykjavík.
Tíu gefa kost á sér
í NA-kjördæmi
FARMANNA- og fiskimanna-
samband Íslands lýsir þungum
áhyggjum af þeim niðurskurði sem
Landhelgisgæsla Íslands má þola.
„Það ætti að vera stjórnvöldum á
hverjum tíma kappsmál að Land-
helgisgæslunni sé tryggt það fjár-
magn sem hún þarf til að sinna
hlutverki sínu til leitar og björg-
unar. Óþarft ætti að vera að minna
á að margir eiga líf sitt því að
þakka að þyrla gat heimt þá úr
bráðum lífsháska.“
Óttast niðurskurð
ELLEFU gefa kost á sér í prófkjör
sjálfstæðismanna í Suðvest-
urkjördæmi vegna alþingiskosning-
anna í vor. Kjörnefnd hefur heimild
til að bæta við frambjóðendum.
Prófkjörið fer fram 14. mars.
Frambjóðendur eru: Ármann Kr.
Ólafsson alþingismaður, Bjarni
Benediktsson alþingismaður, Bryn-
dís Haraldsdóttir viðskiptafræð-
ingur, Haukur Þór Hauksson við-
skiptafræðingur, Jón Gunnarsson
alþingismaður, Jón Rúnar Hall-
dórsson framkvæmdastjóri, Óli
Björn Kárason blaðamaður, Ragn-
heiður Ríkharðsdóttir alþing-
ismaður, Snorri Magnússon form.
Landssambands lögreglumanna,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
alþingismaður og Þorsteinn Hall-
dórsson fv. framkvæmdastjóri.
Ellefu gefa kost á
sér í SV-kjördæmi
FUFAN, Félag ungra framsókn-
armanna á Akureyri og nágrenni,
lýsir yfir fullum stuðningi við frest-
un á afgreiðslu seðlabankafrum-
varpsins vegna skýrslu ESB. Bent
er á að Höskuldur hafi marglýst því
yfir að hann vilji breytingar á
stjórn Seðlabankans en þær verði
að skila tilskildum árangri.
Styðja Höskuld
STUTT
SÓFAVEISLA
20% 50%
AFSLÁTTURAF ÖLL
UM SÓFUM
B í l d s h ö f ð a 2 0 • R e y k j a v í k • s í m i 5 8 5 7 2 0 0
DAGAR EFTIR2
ÁSTRÁÐUR Haraldsson var í gær
kosinn formaður landskjörstjórnar
í stað Gísla Baldurs Garðarssonar.
Bryndís Hlöðversdóttir er varafor-
maður. Alþingi kaus í vikunni
Hrafnhildi Stefánsdóttur í lands-
kjörstjórn í stað Gísla Baldurs, en
hún hafði verið varamaður hans um
árabil. Þá var nýr varamaður,
Gunnar Sturluson, kosinn í stað
Hrafnhildar. Nýr varamaður í
landskjörstjórn er Sigurjón Unnar
Sveinsson, sem kemur í stað Ey-
steins Eyjólfssonar.
Eftir þessar breytingar eiga því
eftirtaldir sæti í landskjörstjórn:
Aðalmenn: Ástráður Haraldsson,
Bryndís Hlöðversdóttir, Hervör
Þorvaldsdóttir, Hrafnhildur Stef-
ánsdóttir og Þórður Bogason.Vara-
menn: Sólveig Guðmundsdóttir, El-
ín Blöndal, Ólafur Helgi Kjartans-
son, Gunnar Sturluson og Sigurjón
Unnar Sveinsson.
Ástráður formaður
EFTIRFARANDI athugasemd
barst í gær frá Fjármálaeftirlitinu:
Leiðarahöfundur Morgunblaðsins
fjallar í gær, hinn 25. febrúar, um að
einkahlutafélög hafi fengið sérstaka
þjónustu í bankakerfinu þar sem
gengið hafi verið á svig við reglur og
að rannsóknir á málum þeirra hafi
verið settar til hliðar.
Fjármálaeftirlitið vill af þessu tilefni
vekja athygli á eftirfarandi: Í kjölfar
hruns bankanna voru endurskoð-
endateymi ráðin af skilanefndunum,
fyrir tilmæli Fjármálaeftirlitsins, til
að rannsaka ákveðna þætti í starf-
semi bankanna í aðdraganda banka-
hrunsins. Meðal þess sem þau rann-
sökuðu voru skilmálabreytingar
lánasamninga, breytingar á trygg-
ingum og veðum vegna lána og með-
ferð afleiðusamninga. Þá má einnig
nefna að viðskipti ákveðinna aðila
voru skoðuð sérstaklega og eru
mörg atriði enn til skoðunar.
ATHUGASEMD
JÓHANN Haukur Hafstein lögmað-
ur undirbýr lögsókn gegn Glitni og
Kaupþingi vegna tapsins sem skjól-
stæðingar hans urðu fyrir við slit á
peningamarkaðssjóðum bankanna.
Við slit á innlendum sjóði Kaup-
þings töpuðu viðskiptavinir tæplega
15% af sparifé sínu en tæplega 21% í
Glitni sé miðað við stöðu Sjóðs 9 hinn
26. september. Jóhann segir gagna-
öflun enn í gangi.
Hann fór fyrir hópi 15 einstaklinga
og eins fyrirtækis í Héraðsdómi
Reykjavíkur á þriðjudag. Skýrslur
voru teknar af fyrrverandi forsvars-
mönnum peningamarkaðssjóða bank-
ans, Stefáni H. Stefánssyni og Sig-
urði Ó. Hákonarsyni, fyrir dómnum í
gær. Lögmaður þeirra skilaði grein-
argerð sinni til réttarins í gær.
Hópurinn stefnir Landsvaka og
Landsbankanum þar sem innlendi
peningamarkaðssjóðurinn þar var
skertur um þriðjung eftir fall bank-
ans. Málið er eitt nokkurra gegn
bankanum og eru skjólstæðingar Jó-
hanns um 30 sem töpuðu frá hálfri
milljón til nokkurra hundraða millj-
óna. gag@mbl.is
Glitni og
Kaupþingi
stefnt?
Töpuðu sparifé
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
SAMFYLKINGIN nýtur nú stuðn-
ings 31,1% kjósenda og mælist með
mest fylgi allra stjórnmálaflokka
samkvæmt nýrri skoðanakönnun
Capacent Gallup fyrir Morg-
unblaðið. Flokkurinn hefur bætt við
sig nærri tíu prósentustigum frá
könnun í janúar síðastliðnum þegar
fylgi flokksins mældist 21,7%. Það
samsvarar rúmlega 43% fylgisaukn-
ingu frá því í byrjun ársins.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
næststærstur stjórnmálaflokka og
er nú með 26,2% fylgi. Hann hefur
því styrkst lítillega í sessi frá síðustu
könnun. Vinstri hreyfingin – grænt
framboð (VG) fylgir á hæla Sjálf-
stæðisflokknum og mælist nú með
24,6% fylgi. VG hefur einnig lítillega
bætt við sig fylgi.
Fylgi við Framsóknarflokkinn
mældist nú vera 12,8%. Það hefur
dalað talsvert frá því í fyrstu fylgis-
könnun Capacent Gallup á þessu ári
en þá mældist flokkurinn með 15,2%
fylgi.
Frjálslyndi flokkurinn mælist nú
með 2,9% fylgi, Íslandshreyfingin
mælist með 1,6% fylgi og þeim sem
ætla að kjósa „annan flokk“ hefur
fækkað mjög og mældust aðeins
0,7% svarenda í þeim flokki.
Yrðu niðurstöður kosninga í sam-
ræmi við niðurstöður þessarar fylgi-
skönnunar yrði skipting alþing-
ismanna þannig að Samfylkingin
fengi 21 þingmann, Sjálfstæð-
isflokkur fengi 17 þingmenn, VG
fengi 16 þingmenn, Framsókn-
arflokkur 8 þingmenn og Frjálslyndi
flokkurinn fengi einn þingmann.
Aðrir stjórnmálaflokkar næðu ekki
manni inn á þing. Samkvæmt þess-
ari niðurstöðu myndi núverandi rík-
isstjórn njóta trausts þingmeirihluta
37 alþingismanna.
Fleiri konur en karlar styðja Sam-
fylkinguna en 35,7% kvenna kváðust
myndu kjósa flokkinn en 27,1%
karla. Hins vegar njóta bæði Sjálf-
stæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur fremur fylgis karla en
kvenna. Þannig ætluðu 28,8% karla
að kjósa Sjálfstæðisflokk en 23,2%
kvenna. Framsóknarflokk ætluðu
14,7% karla að styðja en 10,7%
kvenna. Ekki reyndist vera mark-
tækur munur á stuðningi við aðra
stjórnmálaflokka eftir kyni.
Niðurstöður könnunarinnar um
fylgi stjórnmálaflokkanna á lands-
vísu eru annars vegar fengnar úr
netkönnun og hins vegar úr síma-
könnun sem Capacent Gallup gerði
dagana 16.-24. febrúar.
Úrtakið í netkönnuninni var til-
viljunarúrtak úr Viðhorfahópi Capa-
cent Gallup. Úrtakið í símakönn-
uninni var tilviljunarúrtak úr
þjóðskrá. Úrtakið var alls 2.161
manns 18 ára og eldri. Svarhlutfallið
var 63,2%.
Samfylkingin hefur
sópað að sér fylgi
!
"#
"
#
$#
$
#
%& % % ' ( ) *+, -
./
0 1 /231
4
4
) )
4/
56 3
7
3 3
4/
56 3
7
, 3
3 5/3
7
), 5/3
7
), 33
7
3 3
7
7
8
9 :
9$-:
9$:
;
;<
$;<
;
;
$;=
9:
9$:
9$<:
;-
;
$;!
;
;
;
9:
./
0 1 /231
Ríkisstjórnarflokkarnir fengju 37 þingmenn samkvæmt
nýrri könnun Stuðningur við Framsókn hefur minnkað