Morgunblaðið - 27.02.2009, Qupperneq 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009
Fyrirspurn Karls V. Matthías-sonar, þingmanns Samfylking-
arinnar, til Steingríms J. Sigfússon-
ar fjármálaráðherra á þingi í gær
hlýtur að vera með þeim ógáfulegri
og kalla menn þó ekki allt ömmu
sína á Alþingi í þeim efnum.
Karl sagði hóp útgerðarmannahafa keypt Morgunblaðið og
bætti við að þá
hlytu að „vakna
spurningar um
það hvort þetta
sé ekki til þess að
vekja upp enn
frekari hugsanir
um meiri og
meiri spillingu
þegar slíkur hóp-
ur manna sem ég
vil annars ekki
segja neitt ljótt
um eignast slíkan fjölmiðil og getur
haldið til streitu eða komið sínum
sjónarmiðum og viðhorfum fram
með þessum fjölmiðli án þess að
aðrir hafi aðgang að“.
Í fyrsta lagi eru ekki eintómir út-gerðarmenn í hópnum, sem hefur
keypt Árvakur, útgáfufélag Morg-
unblaðsins, þótt Karl gefi annað í
skyn. Þeir eru raunar í minnihluta.
Í öðru lagi kaupir enginn blað einsog Morgunblaðið til að koma sín-
um sjónarmiðum á framfæri. Rit-
stjórn blaðsins starfar sjálfstætt og
heldur fram skoðunum sem hún
mótar sjálf, ekki eigendur eða aðrir.
Í þriðja lagi er Morgunblaðið ekkiblað, sem meinar einum eða nein-
um aðgang til að koma skoðunum
sínum á framfæri. Það veit Karl V.
Matthíasson vel, sem birtir oft að-
sendar greinar í blaðinu.
Hvað er það hins vegar kallaðþegar stjórnarþingmaður hvet-
ur ráðherra í ríkisstjórn til að beita
sér gegn því að ákveðið fólk fái að
kaupa fjölmiðil, af því að það hefur
að hans mati vitlausar skoðanir?
Karl V. Matthías-
son
Karl og vitlausu skoðanirnar
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!! "!
"
#
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
"$
"$$
"$
"$
"
"
$"
"
"
"
"$
"$
"
*$BC
! " #$ & $ $ *!
$$B *!
%&
'!
!& !
( )(
<2
<! <2
<! <2
% '
!*
+ ,!-(.
CD8-E
B
!
%
' ! %
*
' ( " ) #$ * ! !
+
! % & ( " ! /
' ( "
( #$
* # % ' ,
# /0 !!(11 ( !!2 ( (!*
+
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
SKURÐDEILD Heilbrigðisstofnunarinnar í
Vestmannaeyjum verður lokuð í sex vikur í sumar,
í júní og tvær vikur af júlí, vegna niðurskurðar.
Þar af leiðandi verður engin starfsemi á fæðing-
ardeildinni á meðan, að sögn Gunnars K. Gunn-
arssonar, framkvæmdastjóra stofnunarinnar.
„Það segir sig sjálft að fæðingar flytjast til
Reykjavíkur á þessum tíma. Það eru alla jafna
ekki fæðingar þegar ekki er hægt að grípa inn í ef
þörf er á. Að sjálfsögðu er þetta bagalegt ef gera
þarf bráðakeisaraskurð. Það er mikið til vegna
fæðingarhjálpar sem við höfum reynt að vera með
vakt á skurðstofunni 24 tíma sjö daga vikunnar,“
segir Gunnar.
Ein sjúkraflugvél er í Vestmannaeyjum, að því
er Gunnar greinir frá. „Flugið tekur ekki nema 20
mínútur til Reykjavíkur og viðbragðstími þeirra
sem eru á vakt er alla jafna ekki nema 20 mínútur.
Vegalengdir eru ekki miklar hér. Við erum þess
vegna að tala um innan við klukkustund ef eitt-
hvað kemur upp á.“
Gunnar segir að ákveðið hafi verið að hafa lokað
í júní og framan af júlí þar sem búast megi við að
þá viðri vel til flugs. „Við veljum sumartímann því
að á sumrin er að öllu jöfnu flugfært til Vest-
mannaeyja, allavega oftar en á veturna.“
Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum er
gert að skera niður um 10 prósent, að sögn Gunn-
ars. „Lokunin í sumar er hluti af sparnaðinum.
Það er ýmislegt annað á döfinni sem ekki er hægt
að greina frá á þessari stundu. Það verða aðhalds-
aðgerðir á öllum sviðum, tilfærslur og eitt og ann-
að sem verið er að reyna en mest skammtíma-
lausnir.“
ingibjorg@mbl.is
Engar fæðingar í Eyjum í sumar
Skurðdeildin í Eyjum lokuð í sex vikur og þar af leiðandi fæðingardeildin líka