Morgunblaðið - 27.02.2009, Side 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009
Þetta helst ...
BRETARNIR Antonios Yerolemou og Pankos Katso-
uris hafa gengið úr stjórn Bakkavarar Group, en þar
hafa þeir setið frá því að Bakkavör keypti Katsouris
Fresh Foods árið 2001.
Í tilkynningu til Kauphallar OMX á Íslandi segir
að Yerolemou og Katsouris hætti af persónulegum
ástæðum, en afsagnir þeirra taka þegar gildi.
Frá kaupum Bakkavarar á Katsouris Fresh Foods
hafa þeir Yerolemou og Katsouris gegnt ýmsum
störfum fyrir samstæðuna, en Yerolemou var for-
stjóri Katsouris Fresh Foods til ársins 2002 og starf-
andi stjórnarformaður fyrirtækisins til ársins 2005.
Þeir hafa allt frá árinu 2001 verið í hópi stærstu hlut-
hafa Bakkavarar, en Yerolemou á nú 3,5% í félaginu
og Katsouris á 2,4%.
Talsmaður Bakkavarar í Bretlandi sagði þá Yero-
lemou og Katsouris hafa hætt að eigin frumkvæði og
hefði stjórn Bakkavarar samþykkt það. Í tilkynningu
þakkar Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður
Bakkavarar, félögunum góð störf fyrir félagið og ósk-
ar þeim og fjölskyldum þeirra velfarnaðar. bjarni@m-
bl.is
Breytingar í stjórn Bakkavarar
samtal sitt við Árna í kjölfar setn-
ingar neyðarlaganna á Íslandi þar
sem hann hafi spurt Árna hvort lögin
fælu í sér að sparifjáreigendum yrði
mismunað á grundvelli þjóðernis.
Árni hefði sagt svo vera og að hann
teldi það ekki brjóta í bága við samn-
inginn um Evrópska efnahagssvæðið
(EES). Í kjölfarið sagði Darling orð-
rétt að „þess vegna varð ég að grípa
inn í og tryggja innstæður þeirra
sem áttu peninga í útibúiLandsbank-
ans“.
Kaupþing og Davíð grunaðir
Davíð Oddsson, fyrrum seðla-
bankastjóri, sagði í viðtali við Kast-
ljós á þriðjudag að ekki væri útilokað
að bresk stjórnvöld hefðu beitt
hryðjuverkalögum gegn Landsbank-
anum og Íslendingum vegna
hræðslu þeirra við að peningar yrðu
fluttir úr útibúi Landsbankans í
Bretlandi, eins og þeir höfðu gert úr
dótturfélagi Kaupþings. Í máli Dav-
íðs kom fram að breska fjármálaeft-
irlitið hefði fyrst talið að 400 millj-
ónir punda hefðu verið færðar úr
dótturfélagi Kaupþings, síðan 800
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
BRESK stjórnvöld beittu hryðju-
verkalögum gegn Íslendingum
vegna samtals Árna Mathiesens, þá-
verandi fjármálaráðherra, við Alist-
air Darling, fjármálaráðherra Breta,
hinn 7. október. Þetta staðfesti Dar-
ling á þingnefndarfundi hinn 3. nóv-
ember síðastliðinn. Morgunblaðið
hefur útskrift af því sem fram fór á
fundinum undir höndum.
Michael Fallon, þingmaður breska
Íhaldsflokksins, spurði Darling á
fundinum hvað hefði valdið því að
hann hefði sagt við BBC Radio hinn
8. október: „Íslensk stjórnvöld,
hvort sem þið trúið því eða ekki,
sögðu mér í gær að þau ætluðu sér
ekki að virða skuldbindingar sínar
hér.“ Í svari Darling vísar hann í
milljónir og enn hærri fjárhæðir.
Davíð sagði ennfremur á viðskipta-
þingi fyrr í vetur að hann vissi hvað
hefði orðið til þess að Bretar beittu
hryðjuverkalögunum gegn Íslend-
ingum. Orð Davíðs ríma ekki við þær
ástæður sem Darling tiltekur fyrir
beitingu laganna.
Ármann Þorvaldsson, fyrrum for-
stjóri Kaupthing Singer & Friedlan-
der, neitaði því daginn eftir að
nokkrir óeðlilegir eignaflutningar
hefðu átt sér stað frá bankanum í að-
draganda bankahrunsins. Í yfirlýs-
ingu sagði hann að ástæðan fyrir
beitingu hryðjuverkalaganna kynni
að vera setning neyðarlaganna og yf-
irlýsingar íslenskra ráðamanna, þar
með talið Davíðs Oddssonar. Ár-
mann vitnaði þar sérstaklega í orð
Campbell-Savour lávarðs um að yf-
irlýsingar Davíðs hefðu mögulega
orsakað beitingu laganna. Þess má
geta að lávarðurinn er giftur ís-
lenskri konu og hefur lýst því yfir í
breska þinginu að hann hafi upplýs-
ingar um ástandið og þjóðfélagsum-
ræðuna hérlendis frá vinum og ætt-
ingjum á Íslandi.
Darling sagði samtal við Árna hafa
orsakað beitingu hryðjuverkalaga
Darling sagði á þingnefndarfundi 3. nóvember að eignir hefðu verið frystar vegna samtals við Árna
!""#
$
%
&
'(
)
*
+
'
'
),(
-
!"#$
%&'
( ! '(
)*%
* (
)
(
+
%
&-#
&
) (
( &&( &
),
('-
.%
/
( %*
* (
, &
(
% &
( #0
%#,
)
#1
&
0 !, *
2+,
)
( %
*3
% 4 ((%
! )
/) %)
%& %
%
& &
(
(&
' &( .
'
/
'
01
0
2'
1
0
33
4
0 %,)( (
5 ,$ (
!'
% *
&-
. (6789 *
/
%
) *
%
, &
/
/
+
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„ÞETTA símanúmer er lokað,“
voru skilaboðin sem Ragnhildur
Ágústsdóttir, fráfarandi forstjóri
Tals, fékk þegar hún reyndi að
hringja í lögmann sinn í fund-
arherbergi í höfuðstöðvum Tals í
gærmorgun.
Stuttu áður höfðu Jóhann Óli
Guðmundsson, sem á 49% hlut í
Tali ásamt Hermanni Jónassyni, og
Stefán Geir Þórisson lögmaður
birst í höfuðstöðvum Tals. Jóhann
Óli og Stefán Geir báðu síðan
Ragnhildi að koma til fundar við
sig. Á fundinum, þar sem Ragnhildi
var meinuð útganga um stund, var
henni tilkynnt að hún væri ekki
bær forstjóri og tilkynnt um upp-
sögn. Eftir fundinn var Ragnhildi
vísað úr húsi. Númerið var svo
opnað seinna um daginn, en ekki er
vitað um ástæðu lokunarinnar.
„Ég er að skoða mína rétt-
arstöðu með mínum lögfræðingi og
mun að sjálfsögðu leita réttar míns
ef á mér hefur verið brotið,“ segir
Ragnhildur.
Hinn 30. desember var Her-
manni Jónassyni vikið af stjórn-
arfundi í Tali, sem var haldinn í
höfuðstöðvum Teymis, þegar stjórn
Tals ákvað að segja upp samningi
við hann í kjölfar þess að hann,
fyrir hönd Tals, gerði reikisamning
við Símann. Sú ákvörðun var tekin
af tveimur stjórnarmönnum, en
þrjá stjórnarmenn þarf til að binda
félagið.
Á miðvikudaginn gerði Teymi,
sem á 51% hlut í Tali, sátt við
Samkeppniseftirlitið um skipun
nýrrar stjórnar. „Við vorum að
vonast til þess að sú sátt gæti
skapað frið um Tal,“ segir Dóra Sif
Tynes, lögmaður Teymis. Að-
spurður hvort Ragnhildi hafi verið
meinuð útganga af fundinum segir
Stefán Geir Þórisson: „Ég meinaði
henni ekki útgöngu, hún sat þarna
bara og ræddi við okkur.“
Jóhann Óli neitar því að hafa
meinað Ragnhildi útgöngu eða að
hafa hlutast til um tímabundna lok-
un númers hennar. „Við sögðum
henni bara að lesa þetta [uppsagn-
arbréf og úrskurð fjármálaráðu-
neytisins um að skráning Tals hefði
verið röng hjá fyrirtækjaskrá] og
láta ekki svona. Þessi fundur fór í
alla staði mjög skikkanlega fram,“
segir Jóhann Óli. „Kjarni málsins
hér eru lögbrot Teymis og menn
mega ekki gleyma því,“ segir hann.
Síma lokað og vísað á dyr
Morgunblaðið/Heiddi
Hart deilt Dramatíkin í kringum fjarskiptafyrirtækið Tal heldur áfram.
Ragnhildi Ágústs-
dóttur vikið úr
starfi forstjóra
ROYAL Bank of Scotland ætlar að
draga úr fjárhagslegum stuðningi
við Williamsliðið í Formúlu 1-
kappakstrinum. Hingað til hefur
styrkurinn numið 12 milljónum
punda á ári. Samkvæmt frétt í Fin-
ancial Times rennur samningurinn
út í lok árs 2010. Þá lýkur áralangri
samvinnu RBS og Williams.
Í fréttinni kemur fram að Royal
Bank of Scotland fylgi í kjölfar ann-
arra fyrirtækja sem geta ekki
styrkt kappakstursliðið áfram. Eru
Lenovo, Baugur og Petrobras
nefnd í því samhengi.
RBS tapaði 24,1 milljarði punda á
síðasta ári sem jafngildir um 3.860
milljörðum íslenskra króna. Er það
stærsta tap í breskri viðskiptasögu.
Hamleys hafði styrkt Williams-
liðið frá árinu 2004. Glitnir veitti
Baugi bakábyrgð fyrir styrk til liðs-
ins. bjorgvin@mbl.is
REUTERS
Sigursælir Jón Ásgeir Jóhannesson
var í stuðningsliði Williams.
Hrun bitnar
á Formúlu 1
(&A%
(&A
(&A&
'BA
*,C%,/
)
E *A
(&A$#
(&A(=
● Seðlabanki Íslands frestaði í gær
birtingu hagtalna um erlendar skuldir
Íslendinga, greiðslujöfnuð þjóð-
arinnar og erlenda stöðu þjóðarbúsins
fram á mánudag, 3. mars. Upphaflega
stóð til að birta tölurnar í gær.
Samkvæmt upplýsingum úr Seðla-
bankanum er ástæða frestunarinnar
sú að ekki tókst að afla allra nauðsyn-
legra gagna til að ljúka vinnu við gerð
þeirra. Nýju hagtölurnar munu sýna
stöðuna í lok árs 2008. Í lok sept-
ember var heildarskuldastaða þjóð-
arinnar tæplega 11.500 milljarðar
króna. Þar af skulduðu bankar og aðrar
innlánsstofnanir um 9.700 millj-
arða.
Birtingu á hagtölum
frestað fram á mánudag
Vesturröst | Laugaveg 178 | S: 551 6770 | www.vesturrost.is
TILBOÐ
Remington 700 SPS með 3-9x50 Bushnell sjónauka, leupold stálfestingum
og Harris tvífótur. Til í cal 243, 270 win, 300 win, 7mm rem mag.
Verð kr. 139.900.-
● Í dag mun Ragn-
ar H. Hall, lögmað-
ur og aðstoð-
armaður í
greiðslustöðvun
Baugs, funda með
fulltrúum innlendra
kröfuhafa Baugs
og kynna fyrirætl-
anir félagsins. Óör-
uggar veðkröfur ís-
lenskra lánveitenda á Baug Group
nema 51 milljarði íslenskra króna.
Fyrir liggur að félagið mun óska eftir
áframhaldandi greiðslustöðvun en því
hafði áður verið veitt greiðslustöðvun til
4. mars næstkomandi.
thorbjorn@mbl.is
Baugur óskar eftir
greiðslustöðvun áfram
Gunnar Sigurðsson