Morgunblaðið - 27.02.2009, Side 17
Fréttir 17ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
SAMNINGAMENN stríðandi fylkinga Palestínumanna
hófu í gær viðræður í Kaíró til að reyna að leysa lang-
vinnar deilur þeirra og greiða fyrir myndun þjóðstjórnar.
Breska dagblaðið The Times hefur birt grein eftir fjór-
tán fyrrverandi utanríkisráðherra og friðarsamninga-
menn þar sem þeir hvetja ráðamenn í Bandaríkjunum,
Evrópusambandinu og Ísrael til að falla frá þeirri stefnu
að einangra íslömsku samtökin Hamas.
Greinarhöfundarnir segja að tilraunirnar til að kné-
setja samtökin hafi mistekist og ljóst sé að friðarumleit-
anir geti ekki borið árangur nema stefnunni verði breytt
og viðræður verði hafnar við Hamas. „Það að fá Hamas í
friðarferlið jafngildir ekki því að fyrirgefa hryðjuverk
eða árásir á óbreytta borgara,“ segja greinarhöfundarn-
ir, þeirra á meðal Paddy Ashdown, fyrrverandi friðarer-
indreki Sameinuðu þjóðanna í Bosníu, og Michael Anc-
ram, en hann tók þátt í friðarviðræðum við Írska
lýðveldisherinn (IRA) fyrir hönd bresku stjórnarinnar
sem ráðherra málefna Norður-Írlands.
Vongóðir um árangur
Stjórnvöld í Ísrael og á Vesturlöndum líta á Hamas
sem hryðjuverkasamtök og hafa hafnað viðræðum við
þau frá því að þau sigruðu í þingkosningum í janúar 2006.
Hamas og Fatah hafa lengi eldað grátt silfur saman en
deilur þeirra náðu hámarki í júní 2007 þegar íslömsku
samtökin náðu Gaza á sitt vald eftir mannskæð átök.
Fylkingarnar hófu viðræður í Kaíró í gær fyrir milli-
göngu Omars Suleimans, yfirmanns egypsku leyniþjón-
ustunnar. „Við eigum einskis annars úrkosti en láta þetta
heppnast og það verður ekki erfitt,“ sagði Suleiman.
Fulltrúar fylkinganna sögðust vera vongóðir um að við-
ræðurnar bæru árangur. „Andrúmsloftið er jákvætt og
lofar góðu,“ sagði einn fulltrúa Hamas, Ezzat Resheq.
Leiðtogi Fatah á palestínska þinginu, Azzam al-Ahmad,
sagði að báðar fylkingarnar hefðu sýnt „raunverulegan
vilja“ til að leysa deilurnar.
Rætt verði við Hamas
Fyrrverandi friðarerindrekar hvetja Ísraela og Vesturlönd til að falla frá þeirri
stefnu að einangra Hamas-samtökin Hamas og Fatah hefja viðræður í Kaíró
Í HNOTSKURN
» Áður en viðræður palest-ínsku fylkinganna hófust
samþykkti Fatah að sleppa 80
föngum úr röðum Hamas-
manna á Vesturbakkanum.
Hamas sleppti einnig hópi
fanga úr röðum Fatah-manna
á Gaza-svæðinu.
» Samtökin lofuðu að sleppaöllum föngunum í áföng-
um. Fulltrúar Hamas og Fatah
samþykktu að stöðva orða-
stríð samtakanna í fjölmiðl-
unum til að greiða fyrir því að
viðræðurnar bæru árangur.
KÍNVERSKIR rakarar höfðu í nógu að snúast í
gær en þá var annar dagur annars tunglmán-
aðar samkvæmt kínversku tímatali. Í Kína er því
nefnilega haldið fram að það boði gæfu að láta
klippa hárið á þessum degi og myndast því lang-
ar raðir fyrir utan rakarastofur landsins. Þessi
kínverski drengur ætti að verða lánsamur í
framtíðinni því hann fékk sína klippingu úti á
götu í Hefei-borg í gær. jmv@mbl.is
Gæfan tryggð með klippingu
Reuters
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BARACK Obama, forseti Bandaríkj-
anna, kynnti í gær fyrsta fjárlaga-
frumvarp sitt og er þar gert ráð fyrir
því að fjárlagahallinn í ár nemi 1.750
milljörðum dollara og verði meiri en
nokkru sinni fyrr frá síðari heims-
styrjöldinni í hlutfalli við landsfram-
leiðslu. Gert er ráð fyrir því að fjár-
lagahallinn minnki síðan í 1.171
milljarð dollara á fjárhagsárinu 2010
sem hefst 1. október.
Í frumvarpinu kemur fram að gert
er ráð fyrir því að fjárlagahallinn í ár
verði um 12,3% af landsframleiðsl-
unni og 8% á næsta ári. Obama hefur
lofað að minnka hallann um helming
áður en kjörtímabili hans lýkur.
Repúblikanar og nokkrir fjár-
málasérfræðingar segja að þetta
markmið sé ekki mjög metnaðarfullt
í ljósi þess að í fjárlagafrumvarpinu
sé gert ráð fyrir miklum útgjöldum
til að örva efnahaginn og bjarga
bönkum, útgjöldum sem ólíklegt sé
að þurfi að endurtaka á næstu árum.
Fjárlagaskrifstofa Bandaríkja-
þings spáði því nýlega að hægt yrði
að minnka fjárlagahallann um helm-
ing ekki síðar en 2013 með því einu
að minnka útgjöldin vegna hernaðar-
ins í Írak og framlengja ekki skatta-
lækkanir sem eiga að falla úr gildi ár-
ið 2011, eins og Obama hefur lofað.
„Það er auðvelt að minnka fjár-
lagahallann um helming eftir að hafa
fjórfaldað hann,“ sagði Brian Riedl,
fjárlagasérfræðingur við bandarísku
hugveituna Heritage Foundation.
Spáir 1,2% samdrætti
Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð
fyrir því að landsframleiðslan minnki
um 1,2% í ár og aukist um 3,2% á
næsta ári. Spáð er 4% hagvexti árið
2011 og 4,6% árið 2012.
Þetta eru bjartsýnni spár en í ný-
legri skýrslu fjárlagaskrifstofu
þingsins þar sem spáð var 2,2% sam-
drætti í ár og 1,5% hagvexti á næsta
ári.
Mesti halli frá seinni
heimsstyrjöldinni
Reuters
Mínus Obama og Timothy Geithner
fjármálaráðherra ræða fjárlögin.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, nýtur enn mikilla vinsælda í
landinu mánuði eftir að hann tók við embættinu. Nýleg könnun bendir
til þess að um 63% landsmanna styðji Obama.
Ath: Tölurnar byggjast á þriggja daga símakönnun
sem náði til 1.600 Bandaríkjamanna
Skekkjumörkin eru ±3 prósentustig
Heimild: Gallup
Ljósmynd: Reuters / Kevin Lamarque
FYLGI BARACKS OBAMA
MIÐAÐ VIÐ FORVERANA
Fylgi Obama og forvera hans eftir
mánuð í forsetaembættinu.
Dem.
Ánægð
Óánægð
Rep.
Meðaltal
R. Nixon
til
G.W. Bush
J. Carter
R. Nixon
G. Bush B. Clinton G.W. Bush
Obama
R. Reagan
GALLUP-KÖNNUN
Hlutfall þeirra sem eru ánægð eða óánægð
með störf Baracks Obama í
forsetaembættinu.
ÓánægðÁnægð
80
70
60
50
40
30
20
10
0
25 30 1 5 10 15 20 23
JAN. FEB.
68
12
24
19
66
25
6366
21
59
Eftir einn mánuð
Haag. AFP. |
Stríðsglæpadóm-
stóll Sameinuðu
þjóðanna í Haag
sýknaði í gær
Milan Milut-
inovic, fyrrver-
andi forseta
Serbíu, af ákæru
um stríðsglæpi
og glæpi gegn
mannkyninu í
Kósóvó á árunum 1998-99. Dómstóll-
inn fann hins vegar fimm aðra fyrr-
verandi embættismenn Serba seka
um stríðsglæpi og dæmdi þá í 15 til
22 ára fangelsi.
Milutinovic var forseti Serbíu frá
desember 1997 til desember 2002 og
var þá einn af helstu samstarfs-
mönnum Slobodans Milosevics, fyrr-
verandi forseta Júgóslavíu, sem lést
í Haag árið 2006 meðan á rétt-
arhöldum yfir honum stóð. Dóm-
stóllinn komst að þeirri niðurstöðu
að Milutinovic hefði ekki stjórnað
her Júgóslavíu. Meðal þeirra sem
voru sakfelldir eru Nikola Sainovic,
fyrrverandi aðstoðarforsæt-
isráðherra og yfirmaður hers Júgó-
slavíu, og Dragoljub Ojdanic, fyrrv.
varnarmálaráðherra Júgóslavíu.
Þetta eru fyrstu dómarnir, sem
dómstóllinn kveður upp í málum
sem tengjast hernaði Serba í Kó-
sóvó. Allir sakborningarnir neituðu
sök.
Sýkn af
ákæru um
stríðsglæpi
Milan Milutinovic
Fimm aðrir Serbar
dæmdir í fangelsi
TÆPLEGA fimmtugri konu frá
Gana, sem hefur verið búsett í 20 ár
á Ítalíu, hafa verið dæmdar skaða-
bætur sem nema sex mánaða laun-
um eftir að ítalskur atvinnuveitandi
hennar rak hana. Ástæður brott-
vikningarinnar voru þær að konan
þótti syngja of hátt í vinnunni og
ónáða þar með samstarfsmenn sína.
„Þetta er fáránlegt, ekki síst með
tilliti til þess að konan vann við að
hamra stál. En það þýðir að enginn
hefur getað heyrt í henni í metra
fjarlægð,“ sagði talsmaður verka-
lýðsfélags stáliðnaðarmanna á Norð-
ur-Ítalíu, sem vann skaðabótamálið
gegn atvinnurekandanum.
Hamraði
stál og söng