Morgunblaðið - 27.02.2009, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009
Einar Sigurðsson.
Ólafur Þ. Stephensen.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal.
Útlitsritstjóri:
Árni Jörgensen.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Þáttaskil urðuí sögu Ár-vakurs, út-
gáfufélags Morg-
unblaðsins, í
fyrradag er til-
kynnt var að Þórsmörk ehf.
hefði gert Íslandsbanka hf.
bezta tilboðið í félagið með yf-
irtöku skulda og nýju hlutafé.
Að Þórsmörk standa sjö öfl-
ugir fjárfestar, sem hafa kom-
ið við sögu á ýmsum sviðum ís-
lenzks viðskiptalífs.
Um leið liggur fyrir að frá
félaginu hverfa eigendur, sem
sumir hverjir hafa fylgt því frá
upphafi. Árvakur hefur gefið
út Morgunblaðið í níutíu ár af
95 ára sögu blaðsins.
Björgólfur Guðmundsson
var meirihlutaeigandi í Ár-
vakri síðustu árin í gegnum
nokkur félög í sinni eigu.
Björgólfur reyndist blaðinu
öflugur bakhjarl fram að því að
bankakerfið hrundi og setti at-
vinnurekstur í eigu hans í upp-
nám.
Aðrir eigendur í Árvakri
voru erfingjar tveggja af
stofnendum félagsins árið
1919, þeirra Hallgríms Bene-
diktssonar og Garðars Gísla-
sonar, og fjölskylda Valtýs
Stefánssonar, fyrrverandi rit-
stjóra blaðsins sem kom að
blaðinu 1924. Nú hverfa því frá
blaðinu fjölskyldur, sem tekið
hafa þátt í rekstrinum í hátt í
níutíu ár.
Starfsfólk Morgunblaðsins
stendur í mikilli þakkarskuld
við sína gömlu eigendur, sem
alla tíð hafa staðið
þétt við bakið á
því.
Nú munu koma
til sögu nýir eig-
endur. Það er tals-
vert fjölbreyttur hópur og
stefnt er að því að dreifa eign-
arhaldinu frekar, sem frá sjón-
armiði ritstjórnar blaðsins er
æskilegt.
Af yfirlýsingum Óskars
Magnússonar, sem fer fyrir
fjárfestahópnum, í fjölmiðlum
í gær má ætla að nýir fjár-
festar hyggist umgangast
blaðið með svipuðum hætti og
fyrri eigendur; forðast umbylt-
ingar í rekstrinum og virða
sjálfstæði ritstjórnar blaðsins.
Morgunblaðið hefur löngum
búið við þau forréttindi að vera
í eigu fólks, sem kann að eiga
dagblað og svo virðist sem það
verði áfram raunin.
Það hefur verið starfsfólki
Árvakurs hf. mikil hvatning að
þrátt fyrir erfiðleika í rekstri,
sem hrjá alla fjölmiðla á Ís-
landi nú um stundir, hafa öfl-
ugir fjárfestar haft mikinn
áhuga á því að tryggja áfram
rekstur félagsins og miðla
þess, Morgunblaðsins og
mbl.is. Verðmætin í Árvakri
hf. felast að hluta til í langri
sögu félagsins og þeim trú-
verðugleika og trausti, sem
miðlar félagsins hafa byggt
upp á löngum tíma. Mestu
verðmætin felast þó í hinum
öfluga hópi fólks, sem hjá fyr-
irtækinu starfar. Sá hópur sér
nú mörg sóknarfæri.
Starfsfólk Árvakurs
sér nú mörg
sóknarfæri}
Þáttaskil hjá Árvakri
Samstaða hefurtekist milli Al-
þýðusambands Ís-
lands og Samtaka
atvinnulífsins um
að setja kjaramál í
frost fram á sumar. Í liðinni
viku var ákvörðun um frestun
kjarasamninga tekin á for-
mannafundi ASÍ og sam-
komulagið við SA sem kynnt
var á miðvikudag er í fram-
haldi af því.
Alþýðusambandið á hrós
skilið fyrir að taka á málum
með þessum hætti. Skjólstæð-
ingar ASÍ munu nú þurfa að
axla ábyrgð á efnahags-
hamförum sem þeir bera ekki
ábyrgð á og þeir sem í raun
bera ábyrgðina hafa ekki
gengist við.
Þessi samstaða um frestun
mun koma sér vel fyrir að-
þrengd fyrirtæki í landinu, en
hún þjónar einnig hags-
munum launþega. Það er
þeirra hagur að halda at-
vinnustarfsemi gangandi í
landinu.
Það er ljóst að kaupmátt-
araukning undanfarinna ára
mun nú að ein-
hverju leyti ganga
til baka. Hins veg-
ar þarf að gæta
þess að skellurinn
verði ekki of harð-
ur. Fyrirtæki og stjórnvöld
geta þar bæði lagt hönd á
plóg og eiga að gera það. Fyr-
irtæki þurfa að spyrna gegn
verðhækkunum.
Það er erfitt að rökstyðja
það að kaup launþeganna
standi í stað, en framleiðslan
hækki umfram verðhækkanir
á aðföngum vegna falls krón-
unnar. Sömuleiðis verða
stjórnvöld á öllum stigum að
sýna sams konar aðhald í
gjaldtöku. Slíkar hækkanir
bitna tvöfalt á almenningi.
Fyrst er seilst beint í budd-
una og svo hækka öll verð-
tryggðu lánin vegna áhrifa
hækkana á vísitöluna.
Þjóðarsátt þýðir ekki að
þorri þjóðarinnar sé sáttur
við að vera sendur aftur á
steinöld á meðan aðrir eru
óbundnir og hegða sér eftir
því. Þjóðarsátt þýðir að eng-
inn er undanskilinn.
Geta stjórnvöld og
fyrirtæki hegðað sér
í sama anda?}
Í frosti fram á sumar
Ö
nnur prentun loksins komin í
verslanir. Fyrrverandi ráðherra
upplýsir leyndarmál í mest seldu
bók ársins.“ Svona hljóma aug-
lýsingar fyrir hver jól um hinar
sívinsælu ævisögur fyrrverandi stjórnmála-
manna. Þetta eru bækur sem renna út eins
og heitar lummur enda hefst markaðs-
setningin yfirleitt áratugum fyrr þegar höf-
undurinn neitar kankvís að upplýsa um mál í
viðtölum. „Nei, ég get ekkert sagt um þetta
mál…þetta mun allt koma í ljós“. Já. Þetta
kemur allt í ljós þegar hégómlegar sjálfs-
ævisögurnar renna úr prentvélunum.
Það var eitthvað öfugsnúið þegar Rík-
isútvarpið auglýsti sigri hrósandi að Davíð
Oddsson yrði í viðtali í Kastljósinu. Það er slæmt ef það
þykir afrek að fá embættismann úr Seðlabankanum í
sjónvarpið til að tala um efnahagsmál. Afrek þætti mér
frekar að fá embættismann úr Seðlabankanum til að
taka armbeygjur í sjónvarpinu. Viðtal við seðla-
bankastjóra ætti að vera sjálfsagt og eðlilegt. En það
var eins og Davíð þætti það hvorki sjálfsagt né eðlilegt.
Honum fannst spurningarnar ýmist rætnar eða
ósmekklegar og það hlyti að liggja eitthvað persónulegt
og óeðlilegt að baki því að spyrillinn drægi hann út sem
einn ábyrgðaraðila bankahrunsins. Þessa tortryggni má
Davíð hafa fyrir mér en annað þótti mér undarlegra.
Seðlabankastjórinn tjáði fólkinu í landinu að hann
vissi ýmislegt um einkahlutafélög sem tengdust hruni
bankanna og sitthvað um afhverju Bretar
beittu hryðjuverkalögum á Landsbankann
en ekki þótti honum við hæfi að gefa okkur
almenningi meira en vísbendingar um hvað
málið snerist. Þetta er eins og ef Haraldur
Briem sóttvarnalæknir myndi segja í viðtali í
Kastljósinu að banvænn smitsjúkdómur
bærist nú manna á milli en hann vildi ekki
greina meira frá málinu. „Nei. Við skulum
bíða eftir því að rannsóknarnefndin skili
sinni niðurstöðu,“ myndi Haraldur hvæsa
beint framan í gapandi sjónvarpsáhorfendur.
Þætti okkur það eðlilegt?
Það má vel vera að það tíðkist í öllum
löndum að stjórnmálamenn gefi út ævisögur
með spennandi leyndarmálum úr stjórn-
málatíð sinni. Mér finnst það samt vera eins og vottun á
eigin siðleysi. Davíð Oddsson vill ekki segja okkur frá
leynilegum einkahlutafélögunum eða ástæðum hryðju-
verkalaganna.
Hvernig munum við þá fá þessar upplýsingar? Í stíl-
færðu smásagnasafni eða einföldum endurminningum
þar sem hinn orðheppni og snjalli fyrrverandi ráðherra
Davíð Oddsson fer á kostum sem aldrei fyrr. Hann þarf
jú að lifa á einhverju ef eftirlaunin verða skert. Þetta
yrði að lágmarki þriggja binda verk. Eða eins og segja
mun í tilkynningu: „Hispurslaus frásögn um ástæður
bankahrunsins. Fyrrverandi seðlabankastjóri leysir frá
skjóðunni. Tryggið ykkur eintak.“
bergur.ebbi.benediktsson@gmail.com
Bergur Ebbi
Pistill
Nokkrir góðir dagar í Bankanum
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
S
amfélag loftslagsvísinda-
manna er enn í áfalli eftir
að gervihnötturinn Orbit-
ing Carbon Observatory
hrapaði til jarðar, um
stundarfjórðungi eftir að hafa verið
skotið á loft frá Kaliforníu á aðfara-
nótt þriðjudags.
Margt er enn á huldu um upp-
sprettur og örlög koldíoxíðs í loft-
hjúpnum og var hnettinum ætlað að
stoppa upp í ýmis göt núverandi
þekkingar á kolefnis-hringrásinni.
Þó magn kolefnis í andrúmslofti sé
mælt á hundruðum staða í heiminum
er mælinetið ekki nægilega þétt til
þess að hægt sé að greina í smáat-
riðum uppsprettu og upptökusvæði.
Hnötturinn hefði valdið byltingu með
því að fara yfir sérhvern heimshluta
á 16 daga fresti og mæla á þeirri leið
magn koldíoxíðs í lofti 8 milljón sinn-
um. Með slíkum mælingum væri
hægt að betrumbæta líkön sem notuð
eru til að spá fyrir um þróun loftslags
á næstu áratugum.
Sjálf mælingin hefði byggt á því að
greina samtímis þrjár innrauðar lit-
rófslínur í varmageislun jarðar.
Gleypa í sig ólíka hluta rófsins
Aðferðin byggist á því að sam-
eindir ólíkra lofttegunda gleypa ljós
á mismunandi bylgjulengdum
rafsegulrófsins. Litrófslínurnar þrjár
svara einmitt til gleypni koldíoxíðs og
súrefnis og með því að bera saman
ljósstyrkinn á þessum þremur
bylgjulengdum má meta styrk kol-
díoxíðs í lofti. Hinar þéttriðnu mæl-
ingar gervihnattarins hefðu dregið
úr óvissu um uppsöfnun kolefnis og
einnig veitt vísbendingar um mis-
mikla uppsöfnun koldíoxíðs í and-
rúmsloftinu á ólíkum landsvæðum.
Þannig hefði fengist skýrari mynd
um samspil lífheimsins við hringrás
kolefnis.
Á vefsíðu verkefnisins kemur fram
að aðeins 40 prósent kolefnisins sem
mannkynið hefur losað á tímabilinu
1751 til 2003 séu enn í andrúmsloft-
inu. Afgangurinn af kolefninu hafi að
því er næst verði komist verið bund-
inn í náttúrulegum ferlum í höfunum
og á landi. Líkur séu á að um helm-
ingur þessa magns hafi verið leystur
upp í heimshöfunum.
Afgangurinn hljóti því að hafa ver-
ið bundinn á landi, nákvæmlega
hvernig sé spurning sem enn sé
ósvarað. Hér sé á ferð lykilspurning,
enda geti breytingar á náttúrulegum
upptökuferlum haft veruleg áhrif á
uppsöfnun koldíoxíðs í framtíðinni,
ásamt því sem gleggri skilningur á
þeim myndi skýra hvers vegna aukn-
ing uppsöfnunarinnar er eins ójöfn
og raun ber vitni.
Kemur á slæmum tíma
Eins og Mark Henderson, vísinda-
ritstjóri breska dagblaðsins The
Times, bendir á kemur óhappið um
margt á slæmum tíma fyrir Banda-
rísku geimferðastofnunina (NASA).
Á tímum þegar enn sé óvíst hver
taki við af Michael D. Griffin sem
yfirmaður stofnunarinnar bætist nú
við að 30,5 milljarða króna loftslags-
verkefni hafi farið í vaskinn, á sama
tíma og Barack Obama forseti hafi
lagt áherslu á slíkar rannsóknir í ný-
legu 113 milljarða króna framlagi til
NASA, sem tengist áætlun hans um
viðreisn efnahagslífsins.
Hvað snertir framtíðarframlög til
slíkra rannsókna er tæknin umtals-
vert ódýrari en næsta kynslóð mæl-
ingarbúnaðar, að sögn Davids Crisp,
sérfræðings hjá NASA, sem segir
næsta skrefið munu byggjast á notk-
un leysitækni við mælingar á kol-
díoxíði í andrúmsloftinu úr geimnum.
Var ætlað að skilja
kolefnishringrásina
Hátækni Teikning listamanns af OCO-loftslagsgervihnettinum.
Flest bendir til að slysið hafi orsak-
ast þannig að hlífiskildir sem ætlað
er að vernda farm flaugarinnar fyr-
ir núningi við andrúmsloftið hafi
ekki losnað frá í tíma heldur hægt á
flauginni, með þeim afleiðingum að
hún náði ekki nauðsynlegri hæð.
Um var að ræða Taurus XL eld-
flaug sem var skotið frá Vanden-
berg herflugstöðinni í Kaliforníu,
en henni var ætlað að flytja hnött-
inn í alls 704 km hæð yfir jörðu.
Sérstakri rannsóknarnefnd verð-
ur falið að rannsaka tildrög slyssins
og mun niðurstaðan hafa áhrif á
það hvernig verkefninu verður
fram haldið. Enn fremur verður
beðið með að skjóta upp gervihnett-
inum GLORY með Taurus-flaug
þar til sérfræðingar NASA hafa
komist til botns í málinu.