Morgunblaðið - 27.02.2009, Síða 36

Morgunblaðið - 27.02.2009, Síða 36
36 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009 ✝ Margrét Guð-mundsdóttir fæddist 23. júní 1917. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Skóg- arbæ 18. febrúar síð- astliðinn. Hún var dóttir hjónanna Guð- mundar Guðmunds- sonar og Kristveigar Sigvaldadóttur. Systkini Margrétar voru Jóhannes, f. 30.9. 1904, d. 23.5. 1982, Kjartan Hólm, f. 19.10. 1906, d. 17.9. 1970, Hólmfríður, f. 18.8. 1909, d 17.2. 1995, og Sigvaldi, f. 9.10. 1910, d. 23.8. 1985. Margrét ólst upp í Miðfirði í V- Húnavatnssýslu með foreldrum sín- um, fyrst í Litlu-Tungu og síðan í Tjarnarkoti en þar missti hún föð- ur sinn 12 ára gömul. Hún fór ung til Reykjavíkur og vann þar fyrstu árin fyrir sér í vist. Síðan starfaði hún allmörg ár á barnaheimilum Sumargjafar, bæði Suðurborg og Grænuborg. Árið 1961 réð hún sig til Styrktarfélags van- gefinna sem matráðs- kona á Skálat- únsheimilið í Mosfellssveit. Þar starfaði hún til ársins 1971 er félagið opn- aði Hæfingarstöðina Bjarkarás í Reykjavík, þá tók hún að sér mötu- neyti staðarins og starfaði þar til ársins 1987 er hún lét af störfum vegna aldurs. Útför Margrétar fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Öllu er afmörkuð stund og sérhver hlutur undir himninum hefur sinn tíma. Að fæð- ast hefur sinn tíma og að deyja hefur sinn tíma, (Prédikarinn 3:1-2) Nú hefur Margrét, eða Magga eins og hún jafnan var kölluð, end- að sinn jarðneska tíma hér á jörð á 92. aldursári. Samleið okkar Möggu var löng og samstarfsárin okkar voru 26. Ég minnist þess enn hve hjartans þakklát ég var, er hún svaraði játandi beiðni minni að taka að sér matráðskonustarfið á Ská- latúnsheimilinu árið 1962. Ég hafði þá veitt heimilinu forstöðu í rúm 3 ár. Eftir ráðningu Möggu þurfti ég aldrei að hafa áhyggjur af mötu- neyti heimilisins. Við vorum K.F.U.K. félagskonur og ég er þess fullviss að enn eru margir sem minnast hennar frá því hún gegndi húsvarðarstarfi í gamla K.F.U.M. húsinu við Amtmannsstíg. Eftir 11 ára samstarf á Skálatúni hófst 18 ára samstarf á Hæfingarstöðinni Bjarkarási, er hún tók að sér mat- ráðskonustarfið þar, sem svo lauk er er hún stóð á sjötugu. Möggu var saknað en sannarlega átti Magga inni tíma til þess að njóta hvíldar eldri borgara. Óhætt er að fullyrða að sú alúð og trúmennska er Magga ætíð lagði í starf sitt var óviðjafn- anleg og hafði ótvíræð áhrif á þær mörgu ungu aðstoðarstúlkur er hún leiðbeindi og urðu vinir hennar þrátt fyrir aldursmun. Við Magga rifjuðum stundum upp ýmis atvik úr starfi hennar, m.a er hún bætti á sig auka mötu- neyti á Skálatúni fyrir hóp bygg- ingamanna vegna byggingafram- kvæmda á staðnum. Ekki minnist ég þess að hún kvartaði undan „of miklu álagi,“ eins og svo títt er í dag og ekki fór hún í verkfall. Hún gladdist og var ánægð er hún gat stutt heimilið og gat mettað marga með góðum mat. „Maturinn hennar Möggu er alltaf svo frábær, vegna þess að hún leggur sálina í mat- argerðina,“ er haft eftir einum neytanda. Ógleymanlegar eru ár- legar „grasaferðir“ okkar hvert sumar, en Magga aðhylltist mjög notkun íslenskra jurta, er hún vera bestu heilsubót. Magga var útivist- arkona og ferðaðist mikið um land- ið á yngri árum, oftast með Ferða- félaginu og hún átti fjölmennan hóp ferðavina. Saman fórum við ásamt góðum ferðahóp til Miðausturlanda árið 1966 og var það mikil ævin- týraferð. Síðustu tvö árin dvaldi Magga á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Heimsóknum mínum til hennar fjölgaði, enda búsett í nágrenninu. Magga mat umhyggju starfsfólks- ins mikið og var þakklát þeim öll- um. Mikil sjóndepra háði Möggu síðustu árin og fannst henni miður að geta ekki lesið og ekki hvað síst Biblíuna sína og Guðs orð. Magga var sanntrúuð kona sem kveið ekki dauðanum. Hún var fullviss um góða heimkomu. Blessuð sé minn- ing Margrétar. Innilegustu samúðarkveðjur til aðstandenda hennar og vina. Gréta Bachmann. Elsku Magga mín. Nú ert þú farin heim til Jesú sem þú elskaðir svo heitt og ég veit að það hafa verið fagnaðarfundir. Ég kynntist þér fyrir alvöru fyrir um 20 árum, þegar þú baðst mig að vera bænafélagi þinn og það vildi ég gjarnan enda vissi ég að þú varst mikil bænakona og trúarhetja. Þetta var mér sannarlega heiður. Á hverjum þriðjudagsmorgni, á með- an börnin mín voru í skóla, storm- aði ég til þín, fékk heitt kaffi og síð- an áttum við yndislega bænastund þar sem beðið var fyrir öllu á milli himins og jarðar. Við lofuðum Drottinn saman, grétum stundum saman eða hlógum innilega og sannarlega fengum við að sjá mörg bænasvör. Þú varst mín andlega móðir. Þú varst ákveðin kona og hafðir þínar meiningar og lést mig stundum heyra það ef þér fannst ég vera eitthvað að kólna í trúnni eða draga lappirnar. En umfram allt varstu kærleiksrík og uppörvandi og hvattir til dáða. Ég held að hvorug okkar hafi fundið fyrir aldursmun- inum okkar, 41. ári. Við vorum vin- konur og gátum opnað hjörtu okkar fyrir hvor annarri. Ég kom til þín daginn áður en þú fórst og ég fann að ég var að kveðja þig. Ég reyndi að tala við þig en þú varst í friðsælu móki, þú opnaðir augun annað slagið og horfðir á mig en ég held að þú hafir ekki þekkt mig. Ég kyssti þig og klappaði þér og sagði þér það sem var í hjarta mínu. Síð- an söng ég fyrir þig „Ó hið dýra Jesú blóð sem hvít- þvær mig sem snjó“ og þá gerðist nokkuð yndislegt. Þú lyftir höndum þínum til Guðs í lofgjörð. Ég söng nokkrum sinnum og alltaf lyftir þú höndum þínum til himins. Svona varst þú, Magga mín, Guðsbarn allt til enda. Ég kveð þig nú í bili og þú manst að ég var búin að segja við þig að það fyrsta sem ég myndi gera þegar ég fer til himna, væri að leita að þér. Þín vinkona Guðrún J. Tómasdóttir. Ekki er ég vanur að skrifa grein- ar og ekki er þetta minningargrein þótt hún birtist í þeim flokki, held- ur lítil hugleiðing og kveðja í bili til systur minnar í Kristi Jesú sem gerði svo mikið fyrir mig og vildi ég bara minnast hennar og gleðjast með henni þegar hún gengur þetta stutta skref frá þessum heimi til hinnar eilífu dýrðar sem hennar bíður ásamt hinum trúuðu. Aldrei gleymi ég þeim degi sem bróðir minn hálfdró mig á sam- komu til Njarðvíkur þar sem ein- hver sænskur prédikari var að pré- dika en það var eins og hvert orð sem hann sagði væri talað til mín og ég fylltist bæði ótta og iðrun en ég hafði oft áður farið á samkomur og vissi hvernig þær gengu fyrir sig. Ég var búinn að ákveða að fara ekki upp til fyrirbæna og láta sem minnst fyrir mér fara og settist á einn aftasta bekkinn þarna í kirkj- unni. Nema hvað, það sest kona fyrir framan mig sem ég vissi hver var og ég hafði reyndar fundið að hefði verið að biðja fyrir mér stund- um, slíkur var máttur bæna henn- ar. Ég þekkti hana ekki mikið og fékk reyndar aldrei að kynnast henni eins mikið og ég hefði viljað en ég veit nóg til að vita hvað hún gerði fyrir mig og marga aðra og þessa þjóð á hnjánum með sínum bænum og kvaki til Pabba okkar, Skapara himins og jarðar. Það stendur skrifað þannig að bæn rétt- láts manns megnar mikið og er hún Magga ein af þessum Guðs hetjum sem ekki mikið fór fyrir en breyttu þjóðinni og leiddi blessun yfir hana. Nema þar sem ég sit þarna, aum- ur syndarinn, á einum aftasta bekknum fullur af hroka og drambi, ákveðinn í að fara ekki upp til fyr- irbæna þá leit hún aftur, þessi ynd- islega systir og sagði við mig Los- aðu þig nú við þetta drasl úr lífi þínu – og tók í hönd mína. Það var eins og Drottinn sjálfur hefði snert mig, slík var þessi snerting og ég bara byrjaði að gráta og fylltist iðr- un og fór upp og gaf Guði líf mitt. Þessu er ég bara að segja frá, því ég trúi ekki á tilviljanir. Hún var þarna í einni öftustu röð í kirkjunni, bara sett þar fyrir mig og það var bara fyrir snertingu hennar að ég, herra hroki, fór upp. Þannig vissi ég að Guð notaði þessa systur oft og ekki er ég að skrifa þessi orð til að kveðja hana heldur bara til að heiðra og þakka henni fyrir að hún sinnti sinni köll- un og útvalningu af trúmennsku og er nú kominn heim í þann faðm sem bíður þeirra sem trúa, því eins og stendur skrifað: Af náð eru þér hólpnir orðnir fyrir trú, það er ekki okkur að þakka, heldur Guðs gjöf. Ég segi þess vegna bless í bili, elskulega systir ,og takk fyrir mig. Það er nefnilega þannig að Drott- inn kemur ekki til að sækja kirkjur eða deildir heldur fólk sem trúði og hreina og lýtalausa brúði og veit ég að þín bíður krans á himnum, mín trúfasta systir. Bless í bili Haukur Haraldsson. Meira: mbl.is/minningar Margrét Guðmundsdóttir ✝ Torfi KristinnJónsson fæddist í Reykjavík 19.10. 1925. Hann lést á Víf- ilsstöðum 19.2. 2009. Foreldrar hans voru hjónin María Sólveig Majasdóttir, f. 1896, d. 1988 og Jón Helgason, f. 1890, d. 1959. Systk- ini Torfa eru Sólveig María, f. 1922, Helgi, f. 1923, d. 2002, Ingv- ar, f. 1927, Aldís, f. 1930, d. 1982, og Kristbjörg, f. 1932. Torfi kvæntist 3.7. 1954 Þórdísi Hansen, f. 1921. Synir þeirra eru: 1) Ólafur Árni, f. 1956, maki Helena Högnadóttir, f. 1959. Börn þeirra eru a) Högni, f. 1980, maki Inga Sig- rún Baldursdóttir, f. 1981, sonur þeirra er Pálmar Óli, f. 2007, b) Torfi Kristinn, f. 1982, c) Þórdís, f. 1987, og d) Patrekur Ísak, f. 1992. 2) Jón Marías, f. 1962, maki Viktoría Sig- bæði við sjómennsku og fiskverkun. Eftir að hann hætti sjómennsku starfaði hann sem verkstjóri við fiskvinnslu, fyrst hjá Jóni Gunn- arssyni og síðar hjá Aðalsteini Loftssyni. Árið 1971 hóf hann störf hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar sem verkstjóri í skipaafgreiðslu og starfaði við það alla tíð eftir það. Eftir að Bæjarútgerðin var lögð niður stofnaði hann, ásamt Ólafi syni sínum og fleirum, eigið fyr- irtæki, Skipa- og togaraafgreiðslu Hafnarfjarðar, sem síðar var svo selt til Eimskips. Hjá Eimskip í Hafnarfirði starfaði hann sem verkstjóri í skipaafgreiðslu þar til hann lét af störfum vegna aldurs. Torfi var alla tíð mikill áhugamað- ur um íþróttir, og eftir að hann flutti til Hafnarfjarðar var hann ákafur Haukamaður og studdi syni sína með ráðum og dáð við þeirra iðkun, en þó sló KR hjartað alltaf sinn takt. Með eiginkonu sinni tók hann virkan þátt í starfi kaþólsku kirkjunnar í Hafnarfirði. Torfa verður sungin sálumessa í St. Jósefskirkju í Hafnarfirði í dag og hefst hún klukkan 13. urðardóttir, f. 1960. Börn þeirra eru a) Lísabet Ósk, f. 1981, maki Helgi Gunn- arsson, f. 1980, börn þeirra eru Viktoría, f. 2004 og Breki, f. 2005, b) Arnar Bjarki, f. 1990, unnusta Amber Haefele, f. 1990, c) Al- dís Anna, f. 1991, og d) Kristinn Þór, f. 1996. Torfi og Þórdís fluttu til Hafn- arfjarðar 1954. Þau bjuggu þar á nokkrum stöðum en frá 1962 bjuggu þau að Mosabarði 6. Torfi hóf ungur atvinnuþátttöku eins og títt var á þeim tíma, fyrst sem drengur við sendisveinastörf og síðan er kom fram á unglingsár við fiskvinnu og á stríðsárunum m.a. í bretavinnunni svokölluðu. Eftir það má segja að starfsferill hans hafi allur tengst sjávarútvegi, Torfi Kristinn Jónsson verk- stjóri, Mosabarði 6 í Hafnarfirði, er látinn, hann lést 19. febrúar sl. á Vífilsstöðum. Hann hafði legið þungt haldinn síðustu mánuðina. Við vorum 6 systkinin og var Torfi 3. í röðinni. Hin systkinin voru Sól- veig f. 1921, Helgi f. 1923, hann er látinn, Torfi sem nú er kvaddur f. 1925, ég, Ingvar f. 1927, Aldís f. 1930, hún er látin og Kristbjörg f. 1932. Við ólumst upp í Vesturbænum á kreppuárunum þegar atvinnuleysið og mikil fátækt var, þá voru öll hús kynnt með kolum. Faðir okkar var Jón Helgason, fæddur 1890 á Skeiðum í Árnessýslu, húsgagna- bólstrari, hann var listhneigður á margan hluti, lék á fiðlu í Hljóm- sveit Reykjavíkur, málaði myndir og margt fleira. Missti hann heils- una þegar við systkinin vorum ung og atvinnuleysið var mikið. Mamma okkar var María Sólveig Majasdóttir, fædd fyrir aldamót í Bolungarvík. Það voru erfiðir dag- ar með allan barnahópinn á þess- um árum, hún aflaði tekna við fisk- verkun og þvotta í heimahúsum, þurfti að fara langar vegalengdir, aka þvottinum á handvagni inn í þvottalaugar og heim aftur. Þessir tímar voru erfiðir tímar. Þegar tímar liðu og við stækk- uðum, fórum við að reyna að vinna fyrir okkur. Helgi og Torfi fóru að sendast í verslun, ég var svo ung- ur, en um 8 ára aldur komst ég á gott sveitaheimili, þar var nægur matur. Þegar Helgi og Torfi fóru svo að vinna, fór Helgi að starfa við járnsmíðar og Torfi vann á eyr- inni við Höfnina þar til herinn kom, þá var næg atvinna eftir það. Síðar fór Torfi á sjó og á síldveiðar, bæði fyrir Norðurlandi og eins hér fyrir sunnan. Hann var alltaf sterkur og harður af sér og lagði megnið af sínum tekjum til heimilisins til bjargar mömmu og okkur sem yngri vorum, við það breyttist lífið til batnaðar. Torfi fór ekki í fram- haldsnám eftir barnaskólann, þrátt fyrir það var hann ætíð verkstjóri yfir þeim verkum sem hann vann við. Torfi giftist góðri konu, Þórdísi Hansen, um 1954, bjuggu þau alla tíð í Hafnarfirði, lengst af í Mosa- barði 6. Nú er Torfi látinn og Dísa er mikið veik og óvissa með hennar lífdaga. Hún var mjög trúuð, iðkaði kaþólska trú sína af alúð með klaustursystrum í Hafnarfirði. Sorglegt er að vita til þess að þau gátu ekki legið á sama sjúkra- húsi þegar mest lá við, en Torfi lá ýmist á Landakoti eða á Vífils- stöðum, en Dísa lá á Hrafnistu í Hafnarfirði, en er nú á Sólvangi í Hafnarfirði. Þetta var þeim báðum þungt að verða aðskilin, og illfyr- irgefanlegt að hjón sem búið hafa saman í meira en hálfa öld þurfi að skiljast að á svo erfiðum tímum. Torfi og Dísa áttu 2 syni, Ólaf Árna og Jón Marías, þeir eru báðir giftir góðum konum og eiga mynd- arleg börn. Eins og sagði fyrr var Torfi allsstaðar verkstjóri þar sem hann vann og endaði sitt ævistarf sem verkstjóri við Hafnarfjarðar- höfn. Við vottum ykkur öllum nánustu skyldmennum Torfa okkar dýpstu samúð á erfiðum tímamótum. Ingvar og Kristín. Góðvinur minn, Torfi Kristinn Jónsson, hefur lokið jarðvist eftir baráttu við illvígan sjúkdóm síð- ustu árin. Að baki liggur farsæll æviferill sómamanns, sem hlúði vel að þeim lífsgildum, sem eru hvað hollust og fegurst. Höfuðprýði Torfa voru heiðarleiki, hjálpfýsi, hreinlyndi, látleysi og nægjusemi, skyldurækni og trúmennska. Þegar ég kynntist fyrst þeim góðu og samhentu hjónum, Þórdísi og Torfa, höfðu Þórdís og María, eiginkona mín, áður tengst tryggð- ar- og vinnáttuböndum á vettvangi kaþólsku kirkjunnar. En til Hafn- arfjarðar fluttust þau hjónin árið 1954. Og þótt Torfi hafi ekki verið kaþólskrar trúar í bókstaflegum skilningi sótti hann reglulega sunnudagsmessur í St. Jósefskirkj- unni í Hafnarfirði með konu sinni og óskaði eftir, að hann yrði þar kvaddur með sálumessu. Trúin var Torfa aflgjafi og leiðarljós á lífs- leiðinni. Að hjálpa öðrum og láta sem mest gott af sér leiða var Torfa hjartans mál. Þannig var hann sannkölluð hjálparhella Kar- melnunnanna. Komst ein nunnan svo að orði um góðverk Torfa, að hann væri „kærleika klæddur“. Og ekki gleymast mörgu stundirnar, sem Torfi og hans góðu synir, Ólaf- ur og Jón, áttu eftir vinnudag við að fylla stóra gáma upp við Karm- elklaustrið með margvíslegum varningi, sem séra Frans van Hoof hafði safnað og sendi árum saman til fátækra fjölskyldna í Afríku. Þar var trúin svo sannarlega sýnd í verki. Lengst af starfaði Torfi sem verkstjóri við höfnina í Hafnarfirði á þeim tímum, þegar atvinnulífið við Norðurbakkann var með mikl- um blóma. Farsæld, festa og hljóð- látur agi fylgdi verkstjórn Torfa. Hann ávann sér traust og virðingu verkamanna og annarra, sem áttu við hann samskipti, enda tillitssemi og trúmennska ætíð í fyrirrúmi hjá honum. Torfi var einkar hógvær og dagfarsprúður, hafði trausta skap- höfn og heilbrigð lífsviðhorf. En kjölfestan í lífi Torfa var heimilið og í öndvegi umhyggjan fyrir velferð fjölskyldunar. Alltaf var mjög notalegt að njóta sam- vista með þeim Torfa og Þórdísi á þeirra hlýlega og fagra heimili á Mosabarði 6. Torfi var einkar við- ræðugóður, fylgdist vel með gangi mála, fróður um margt og gam- ansamur, jákvæður og réttsýnn. Geymum við María samverustund- irnar með þessum góðu og tryggu vinum í sjóði okkar ljúfustu end- urminninga og þökkum af alhug samfylgdarárin og allan þeirra hlý- hug. Megi birtan, sem fylgir minning- unni um Torfa, lýsa veg þeirra, sem mest hafa misst við fráfall hans. Blessun og vernd Guðs veri þeim styrkur allar stundir. Árni Gunnlaugsson. Torfi Kristinn Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.