Morgunblaðið - 27.02.2009, Síða 39
Velvakandi 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ER EKKI MJÖG
HRIFINN AF SALATI...
OG ÞVÍ ER
ILLA VIÐ MIG
HÆTTU AÐ HENDA
Í MIG BRAUÐMOLUM
HEFUR ÞÚ
SKRIFAÐ MEÐ
PENNA?
ÉG HEF VERIÐ AÐ ÆFA
MIG Í HEILA VIKU... ÉG ER
ORÐINN MUN BETRI NÚNA...
EKKI HAFA ÁHYGGJUR ÞÓ ÞÚ
SKRIFIR EKKI MJÖG VEL TIL
AÐ BYRJA MEÐ... ÉG LENTI
SJÁLFUR Í VANDRÆÐUM...
Kæri Pennavinur,
hvernig hefur þú
það í dag?
MAMMA,
ÉG BJÓ
TIL GRÍMU
ERTU AÐ
FARA Á
GRÍMUBALL?
NEI, ÉG
ÆTLA AÐ
NOTA HANA Á
HVERJUM DEGI.
ÞÚ VEIST AÐ
HOBBES
LÆÐIST ALLTAF
AFTAN AÐ MÉR
NEI...
ÞAÐ SEM
ÞÉR DETTUR
EKKI Í
HUG
ÉG BJÓ
LÍKA TIL
GRÍMU HANDA
ÞÉR! FÓLK
NOTAR ÞÆR
Á INDLANDI
HANN GERIR ÞAÐ ALLTAF...
EN EF ÉG GENG MEÐ ÞESSA
GRÍMU ÞÁ VEIT HANN EKKI
HVERNIG ÉG SNÝ OG ÞAR AF
LEIÐANDI GETUR HANN EKKI
LÆÐST AFTAN AÐ MÉR!
GEISP
MENNIRNIR ERU SVO
METNAÐARLAUSIR Í DAG...
ÆTLI ÞAÐ SÉ OF SEINT AÐ HALDA
FYRIR ÞÁ GÓÐA HVATNINGARRÆÐU?
PRINSINN BAUÐ MÉR
ÚT AÐ BORÐA Í KVÖLD...
HVENÆR ÆTTI ÉG AÐ
SEGJA HONUM FRÁ
DVERGUNUM?
HVERNIG GETUR JÓNA
VERIÐ REIÐ ÚT Í MIG VEGNA
ÞESS AÐ ÉG SÁ HANA EKKI FÁ
PRJÓNAVERÐLAUNIN SÍN?
ÞAÐ ER HENNAR
VANDAMÁL!
REYNDAR ER HÚN
EINHLEYP OG BARNLAUS.
ÁHUGAMÁLIN HENNAR
SKIPTA HANA MJÖG
MIKLU MÁLI
AUK ÞESS Á HÚN
EKKI MARGA VINI...
ÉG GÆTI HAFA
VERIÐ SÚ EINA
SEM HÚN BAUÐ
ÚFF...
KANNSKI
VAR ÉG
TILLITSLAUS
ÞÉR TÓKST AÐ
SANNFÆRA
MIG...
HÖGGBYLGJURNAR
MÍNAR GERA HNEFANA
MÍNA AÐ SLEGGJUM!
ÞAÐ ER RÉTT.
ÞETTA VAR VERRA
EN ÉG BJÓST VIÐ
BYLGJURNAR RUGLUÐU
KÓNGULÓARSKYNIÐ
MITT...
...SEM SÁ TIL ÞESS
AÐ ÉG HITTI EKKI
JÆJA, HVAÐ SEGIR
ÞÚ UM ANNAN SKAMMT?
ÞÓ svo að rjúpan haldi sig aðallega til fjalla virðist hún kunna ágætlega við
sig í námunda við byggð. Rjúpan er um þessar mundir í vetrarbúningi, al-
hvít, og á því erfitt með að fela sig í snjólausu umhverfinu. Þessi rjúpna-
hópur virðist sallarólegur í námunda við þónokkra bílaumferð og manna-
ferðir í höfuðborginni.
Morgunblaðið/Arnór
Rjúpur í útjaðri borgarbyggðar
Vínsmökkun
SEM venjulegur vín-
áhugamaður til margra
ára hef ég hrifist af
snilld vínsmakkara
(dómara) sem hafa afl-
að sér mikillar reynslu
og sérmenntunar sem
til þarf í slíku fagi. Mik-
il breyting hefur orðið
á í vínbúðum ÁTVR
hér á landi til batnaðar,
þar sem sérmenntað
fólk, sem sótt hefur
námskeið erlendis,
veitir fólki ráðgjöf um
val á víni við sitt hæfi.
Eins hef ég lesið fag-
blöð um vínsmökkun og sérhæfi
þeirra sem um það sjá og fjalla. Sagt
er að iðnin gangi í ættir hjá sumum
fjölskyldum.
Nú bregður svo við að í Morg-
unblaðinu hinn 12. þ.m. birtist grein
sem heitir „Er glundur í glasinu?
Hvað er að marka sérfræðinga um
vín?“ Er skýrt frá því að vís-
indamaður í Kaliforníu, Robert
Hodgson að nafni, hafi kannað
frammistöðu vínsmakkara þar.
Lét hann hóp sérfræðinga
smakka blindandi og gaf þeim sama
vínið þrisvar. Virðist jafnvel að skap
manna hafi ráðið ríkjum um gæði,
sem bæði jukust og minnkuðu og var
vínið jafnvel verðlaunahæft eða
ómögulegt! Hodgson birti þessa
grein í Journal of Vine Economics.
Franskur vísindamaður, Gel Mo-
rot, lét 54 sérfræðinga um Bord-
eaux-hvítvín dæma um hvítvín sem
hann hafði litað rautt. Enginn áttaði
sig á blekkingunum og sumir hrós-
uðu sterkum skógarberjakeim. Með-
alvín í dýrum flöskum fær iðulega
háa einkunn.
Ég á bágt með að
trúa þessu, en ef satt
reynist veldur það mér
vonbrigðum. Gaman
væri að heyra álit vín-
þekkjara hér á landi,
sem eru þónokkrir
góðir, á slíkum vitn-
isburði.
Virðingarfyllst,
Svanur Jóhannsson.
Búsáhaldabyltingin
Á Austurvöll bar
fólkið búsáhöld
því byltingu skyldi
gera.
Það vildi ekki una við auðsins
völd
og auðmanna byrðar bera.
Fólkið söng og barði pönnu og
pott
og púaði á valdhafana.
Ráðherrar hræddir með
hæðniglott
héldu í stóla af vana.
Ömmur pottlokin bylmingsfast
slógu með sleif,
slagverkið það var magnað.
Já, þjóðin var mætt og allt að
endingu hreif.
Þá ákaflega var fagnað.
Með nýja stjórn skín sól á ey og
sund
og sællegar yngismeyjar.
Rétt eins og áður með ósk um
ástarfund
þær augum líta peyjar.
Benedikt Jóhannsson.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, kaffi
og dagblaðalestur kl. 9, vinnustofa kl. 9-
16.30, bingó kl. 13.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, opin
smíðastofa kl. 9-16.30, bingó kl. 13.30,
Bólstaðarhlíð 43 | Myndbandssýning
„Börn náttúrunnar“ kl. 13. Kertaskreyt-
ing, handavinna, kaffi/dagblöð. Hár-
greiðsla, böðun, fótaaðgerð.
Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl.
9.20, málm- og silfursmíði kl. 9.30, jóga
kl. 10.50 og félagsvist kl. 20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10,
leikfimi kl. 10.30, bingó kl. 13.30.
Félagsstarf eldri borgara Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 9.20, gler og leir kl. 10,
opnar vinnustofur í Jónshúsi kl. 10-12,
félagsvist FEBG kl. 13.30, bíó í kirkjunni
kl. 14, rúta frá Hleinum kl. 13 og frá
Garðabergi kl. 13.15.
Félagsstarf eldri borgara Mosfellsbæ
| Ganga frá Hlaðhömrum kl. 11.30.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
opnar kl. 9-16.30, bókband, prjóna-
bragakaffi kl. 10, stafaganga kl. 10.30,
umsj. Sigurður Guðmundsson, stafir á
staðnum, spilasalur opinn frá hádegi,
leikfimi kl. 13, í ÍR heimilinu. Kóræfing
fellur niður. Sími 575-7720.
Furugerði 1 félagsstarf | Aðalheiður og
Anna Sigga leiða söng kl. 14.15. Fram-
talsaðstoð 11. mars, frá Skattstjóranum í
Reykjavík. Skráning á skrifstofu.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Briddsaðstoð fyrir dömur kl. 13, kaffi.
Hraunbær 105 | Pétur Halldórsson
teiknari og myndlistarmaður verður með
námskeið í teikningu sem hefst 4. mars
kl. 13. Verð 4.000 kr. Skráning á skrif-
stofu eða í s. 411-2730. Teikniblokkir og
blýantar til sölu.
Hraunbær 105 | Baðþjónusta, handa-
vinna kl. 9, bókabíllinn kl. 14.45.
Hraunsel | Rabb kl. 9, leikfimi í Bjark-
arhúsi kl. 11.30, tréskurður Hjallabraut
og gamla Lækjarskóla kl. 13, brids og
boccia kl 13, biljard- og innipúttstofa kl.
9-16. Skrifstofan er opin kl. 10-12.
Hvassaleiti 56-58 | Lífsorkuleikfimi kl.
9 og 10, opin vinnustofa kl. 9-12, postu-
línsmálning. Námskeið í myndlist kl.
12.15, Birgir Þ., bíó kl. 13.30, kaffi sala í
hléi. Böðun fyrir hádegi, hársnyrting.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur kl. 10, leikfimi kl. 11, opið hús,
vist/brids/skrafl. Hárgreiðslust. s. 552-
2488 og fótaaðgerðast. s. 552-7522.
Norðurbrún 1 | Leikfimi kl. 9.45, mynd-
listarnámskeið og útskurður, Halldóri
leiðb. kl. 9-12, smíðaverkstæði opið, leik-
fimi með Janick kl. 13. Þjóðminjasafnið
heimsótt eftir hádegi, samstarf með
Margréti djákna Áskirkju.
Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9.15-
14.30, spænska kl. 9, sungið v/flygilinn
kl. 13.30, dansað í Aðalsal kl. 14.30-16.
Hárgreiðsla og fótaaðgerðir kl. 9-16.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, leir-
mótun kl. 9, handavinnustofa opin,
morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10.
Bingó kl. 13.30. Uppl í síma 411-9450.
Félagsstarfeldriborgara