Morgunblaðið - 27.02.2009, Side 42
42 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009
Á sunnudaginn verður þess
minnst að 20 ár er liðin frá því að
bjórinn var leyfður á ný á Íslandi og
má þá búast við að margt verði um
að vera á öldurhúsum bæjarins. Á
meðal þeirra sem boða til fagnaðar
er hiphop-sveitin XXX Rottweiler
hundar með Erp Eyvindarson í
fylkingarbrjósti en ef marka má
boðskort sem sent hefur verið út
má velta því fyrir sér hvort teitin
sem haldin verður á Prikinu sé í
raun haldin til höfuðs bjórnum.
Boðað er nefnilega til heljarinnar
rommveislu þar sem heiðursgestur
verður enginn annar en Bjartmar
Guðlaugsson.
Bjartmar heiðurs-
gestur Priksins
Fólk
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA eru lokatónleikarnir, og þetta verður
alveg klikkað,“ segir Birgir Ísleifur Gunn-
arsson, meðlimur hljómsveitarinnar Stóns,
sem heldur tónleika á Nasa í kvöld. Eins og
nafnið bendir til sérhæfir sveitin sig í tónlist
Rolling Stones, og munu þeir félagar spila öll
bestu lög Micks Jaggers og félaga á tónleik-
unum í kvöld.
Í nýlegri rannsókn sem meðlimir Stóns
gerðu kom í ljós að Björn Stefánsson, Bjössi í
Mínus, sem er söngvari sveitarinnar, er ótrú-
lega líkur Jagger.
„Það hefur mikið verið talað um að Bjössi
nái Jagger vel, sé líkur honum í töktum og
hreyfingum. En svo voru strákarnir að skoða
einhverja eldgamla Stones-bók og fundu málin
hans Micks Jaggers frá því undir lok sjöunda
áratugarins. Og það kom í ljós að þau eru næst-
um því nákvæmlega þau sömu og hjá Bjössa, við
mældum hann nefnilega,“ segir Birgir. „Annars
er Bjössi frábær í þessu hlutverki, og það er
enginn hérna á Íslandi sem nær Jagger svona
vel.“
Fjöldi góðra gesta kemur fram á tónleikunum
í kvöld, meðal annars KK, Andrea Gylfadóttir,
Sigtryggur Baldursson, Daníel Ágúst, hljóm-
sveitin Logar, Jens Hansson og Krummi.
Húsið verður opnað kl. 22 í kvöld og er miða-
verð 1.800 kr. Miðasala fer fram á midi.is.
Bjössi í Mínus vaxinn eins og Mick Jagger
Jagger Höfuð: 58,
brjóstmál: 63,
mitti: 71, hæð: 1.78.
Ljósmynd/BIG
Bjössi Höfuð: 57,
brjóstmál: 64,
mitti: 70.5, hæð: 1.78.
Það er ekki margt sem gleður Ís-
lendinginn þessa dagana annað en
að daginn er farið að lengja. Já, og
Evróvisjón er á næsta leiti. Þó er
ein undantekning á því eins og lesa
má um á bloggsíðu Ásdísar Ránar
fyrirsætu og framkvæmdastjóra,
sem er samkvæmt bloggi sínu um-
kringd nokkrum af skærustu
stjörnum kvikmyndaheimsins, þeim
Colin Farrell, Ed Harris, Dolph
Lundgren og Jean-Claude Van
Damme, sem eru nú búsettir stein-
snar frá Ásdísi Rán meðan á kvik-
myndatökum stendur. „Ekki slæmt
að fara í gymmið með þessum gæj-
um,“ segir Ásdís Rán á blogginu.
Ásdís Rán í ræktinni
með Colin Farrell
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
ALLAR líkur eru á því að leikstjór-
arnir Gunnar Páll Ólafsson og Sam-
úel Bjarki Pétursson fari ekki heim
tómhentir í kvöld þegar Lúðurinn,
Íslensku auglýsingaverðlaunin,
verða afhent á glæsilegri hátíð á
Hótel Nordica. Þeir hlutu tíu tilnefn-
ingar í ár og gerðu m.a. fjórar af
þeim fimm auglýsingum sem til-
nefndar eru í flokknum „sjónvarps-
auglýsing ársins“. Þar á meðal eft-
irminnilegar auglýsingar fyrir
Símann og Vodafone, þar sem Gali-
leó er fyrir spænska rannsókn-
arréttinum, og Óttar Proppé og fé-
lagar sungu Skítt með kerfið! Einnig
fengu þeir þrjár tilnefningar af fimm
í flokknum „Almannaheillaauglýs-
ingar ársins“.
„Við vinnum að útfærslum en ekki
í hugmyndavinnunni,“ segir Gunnar
en þeir félagar starfa fyrir SagaFilm
sem framleiðir auglýsingar fyrir
stofurnar. „Okkar starf er að reyna
að útfæra hugmyndirnar á sem
glæsilegastan hátt. Ég held að þetta
hafi ekki gerst áður, að sömu leik-
stjórarnir séu með svona margar til-
nefningar á einni hátíð. Maður trúir
þessu eiginlega ekki, því það var
margt mjög vel gert árið 2008.“
Gunnar viðurkennir að auglýs-
ingamarkaðurinn hafi séð bjartari
tíma, en leyfir sér þó ekki að sökkva
í svartsýni vegna ástandsins. Það er
í takt við kjörorð verðlaunanna í ár,
„Ekkert helvítis væl …“, sem sýnir
að auglýsingagerðarmenn ætla ekki
að láta núverandi efnahagsástand
sökkva sér niður í svaðið. „Á þessum
tíma í fyrra höfðum við eiginlega
minna að gera. Ég er enginn spá-
maður og veit ekkert hvað gerist.
Engin auglýsingastofa hefur lokað
ennþá, þrátt fyrir að flestar hafa
minnkað um sig. Þó svo að menn hafi
verið að skjóta dýrar auglýsingar á
síðasta ári eru þeir fljótir niður á
jörðina aftur. Menn sníða sér stakk
eftir vexti og gera þá bara góðar
auglýsingar fyrir minni pening. Það
eru komnar leiðir til þess að hafa
hluti góða, þó að þeir séu ódýrari.“
Unnið með Ballack í London
Þegar blaðamaður biður Gunnar
um að gera upp á milli verkefna og
velja hvað hafi verið eftirminnilegast
í fyrra, situr hann svolítið á svarinu,
og vill auðheyrilega ekki styggja
vinnuveitendur sína. Eftir smávegis
smurningu renna þó svörin út úr
honum. „Það var mjög eft-
irminnilegt þegar við skutum aug-
lýsingu fyrir Icelandair í byrjun síð-
asta árs. Þá fórum við til Prag þar
sem við notuðum um 200 manns. Svo
náðum við að fara aftur til Portúgal,
þegar við skutum Galileó-auglýs-
inguna. Svoleiðis er ekkert að fara
gerast á þessu ári. Þó er gott að
benda á að Icelandair auglýsingin
var skotin í Prag, vegna þess að það
var einfaldlega ódýrara að gera hana
þar en hérna,“ segir Gunnar.
Annað stórt verkefni þeirra í fyrra
var mánaðarlangt verkefni í Lond-
on, þar sem þeir félagar unnu m.a.
með þýska fótboltakappanum Mich-
ael Ballack fyrir Samsung-
auglýsingu sem fór á þýskan mark-
að. „Þar fengum við að kynnast því
hvernig er að vinna með umboðs-
mönnum fótboltamanna, sem ég fíla
ekki. Það kemur einhver vatns-
greiddur maður inn, á velpússuðum
lakkskóm og hótar því að stjarnan
verði farin eftir fjóra tíma, þó svo að
maður viti að það taki um átta tíma
að skjóta auglýsinguna. Síðan eru
stjörnurnar mestu gæðablóð.“
Auglýsingakóngar ársins
Auglýsingar leikstjóranna Gunnars Páls Ólafssonar og Samúels Bjarka Péturs-
sonar fá tíu tilnefningar til Íslensku auglýsingaverðlaunanna í ár.
Morgunblaðið/Heiddi
Góð uppskera Gunnar Páll Ólafsson segir hlutverk þeirra Samúels Bjarka
Pétursson að útfæra hugmyndir með glæsilegum hætti.
LEIKSTJÓRNARSAMSTARF
Gunnars og Samúels hófst með
gerð tónlistarmyndbanda í
kringum árið 2001. Þar á meðal
fyrir Land & Syni og framlag Ís-
lands til Eurovision, 2Tricky.
Það árið unnu þeir einnig sem
klipparar fyrir þáttinn Sönn ís-
lensk sakamál.
Þeir hófu störf hjá SagaFilm
árið 2004. Þeir hafa metnað til
að leikstýra sjónvarpsþáttum
eða jafnvel bíómynd í framtíð-
inni. Þær þreifingar eru þó stutt
á veg komnar.
Blómlegt samstarf
Tækjabúnaður Umfangið var talsvert í Víkurfjöru er Gunnar Páll og Samúel Bjarki unnu að auglýsingu fyrir ASÍ.
MIÐASALA ER HAFIN
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Í TÍMA Á
MIÐASALA OPNAR Í LAUGARÁSBÍÓ
KL. 15.00 FÖSTUDAG OG 13.00 LAUGARDAG
Sími: 553 2075 - bara lúxus