Morgunblaðið - 28.02.2009, Page 29

Morgunblaðið - 28.02.2009, Page 29
29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2009 Uppgjöf hjá Þrótturum? Nei, það var enginn uppgjafarbragur á blakliði Þróttar á miðvikudagskvöld þegar það vann góðan sigur á Stjörnunni í Ásgarði. Ómar Bjarni Benedikt Gunnarsson | 27. 2. Þetta er ótrúlegt Alveg finnst mér það með ólíkindum að Samfylkingin skuli stækka svona. Í fyrsta lagi var hún í rík- isstjórn síðustu tvö árin á meðan ekkert var gert til að sporna við því sem lá í loftinu, en fólk virðist hafa fyrirgefið henni það að fullu. Í öðru lagi þá er þessi ríkisstjórn á villi- götum hvað varðar það að slá skjaldborg um heimilin og fyrirtækin. Nú verður gaman að sjá stóra efnahagspakkann sem beið eftir því að Davíð yrði rekinn. En ég get ekki séð hvernig stjórn- arskrárbreytingar og kosningalagabreyt- ingar hjálpa heimilunum í landinu núna. Í þriðja lagi þá hefur Samfylking ekkert fram að færa nema andstöðu gegn Sjálf- stæðisflokki og ESB-aðild. Ætli það sé ekki andstaðan við Sjálfstæðisflokk sem færir henni þetta fylgi. Einnig skil ég engan veginn þá fag- mennskustefnu ríkisstjórnarinnar að reka Davíð af því hann var pólitíkus til þess að ráða fagmann í staðinn, og á sama tíma að ráða Svavar Gestsson, fyrrverandi for- mann Alþýðuflokksins, til að stjórna Ice- save-samninganefndinni. … Meira: bbg.blog.is Björn Bjarnason | 27. febrúar 2009 Föstudagur 27.2. ’09 Í Fréttablaðinu er efst við hlið leiðarans eins- konar húskarlahorn, þar sem blaðamenn geta skrifað eins og þeir telja, að sé þóknanlegt Baugs- mönnum, eigendum blaðsins. Á þessum stað taka húskarlarnir einnig upp hansk- ann hver fyrir annan. Þetta gerist í dag, þegar bergsteinn@frettabladid.is tekur upp hanskann fyrir Sigurjón M. Egilsson, starfsmann á hjáleigu Baugs, en að Sig- urjóni M. var vikið hér á síðunni í gær vegna rangfærslna hans um efnahags- brotadeild. … Í húskarlahorninu hafa þeir fram undir bankahrunið frekar kvartað undan því, að efnahagsbrotadeildin sé að leggja of hart að sér og gagnrýnt aukafjárveitingar til rannsókna og sak- sóknar vegna Baugsmálsins. Meira: bjorn.blog.is Stefán Friðrik Stefánsson | 27. febrúar Norski bankastjórinn geymdur á hótelherbergi Mér finnst frekar fyndið að lesa frásögnina af því að íslenska vinstristjórnin hafi geymt Norðmanninn Svein Harald Øygard á hótelherbergi í Reykjavík alla vikuna. Gisti hann þar og borðaði í boði þjóðarinnar, spyr ég bara? Nú fer maður að skilja af hverju lá svona mikið á að koma frumvarpinu um Seðlabankann í gegnum þingið í vikubyrjun. Þar átti sann- færing og samviska þingmanns að víkja fyrir ráðherraræðinu í Stjórnarráðinu. Meira: stebbifr.blog.is ÁGÆTI Guðjón Magnússon. Þakka rammagrein þína í Morg- unblaðinu í gær. Þú spyrð mig tveggja spurninga um rekstur skurðstofa. Svörin eru einföld: Það er ekki verjandi að reka skurð- stofur með sólarhringsvöktum, þar sem ekkert er að gera, eins og þú kýst að orða það. Í því getur falist sama sóun á fé og að fá verktaka til að vinna fyrir ráðuneyti og opinberar undirstofn- anir það sem ráðuneytin og stofn- anirnar geta og eiga að gera sjálf- ar. nefnir um samlegðaráhrif vegna skipulagsbreytinga í heilbrigð- isþjónustu á landinu öllu sýnist mér forsendur víða skorta í út- reikningunum, eins og varað er við óbeint í nýlegum ábendingum Rík- isendurskoðunar. Þar er hins veg- ar ekki við starfsmenn heilbrigð- isráðuneytisins að sakast. Það er hins vegar full ástæða til að taka mark á ábendingum Ríkisend- urskoðunar, enda verður það gert. Þú nefnir skipuagsbreytingu á landinu í heild og svo suðvest- urhorni landsins sérstaklega. Markvisst er unnið að samhæfingu á starfsemi sjúkrahúsanna á suð- vesturhorninu, og er þetta gert með hagkvæma nýtingu skurð- stofa að leiðarljósi. Munurinn á vinnulaginu nú og því sem áður var er að nú reynt er að taka tillit til sjónarmiða nærumhverfis viðkom- andi stofnana með því að bein- tengja ákvarðanaferlið almanna- samtökum. Varðandi þær upphæðir sem þú Ögmundur Jónasson Stutt svar til prófessors Höfundur er heilbrigðisráðherra. Í Fréttaaukanum 15. febrúar var fjallað um það hvort leyfa ætti staðgöngumæðr- un á Íslandi. Þrír við- mælendur komu fram sem allir lýstu á einn eða annan hátt vel- þóknun sinni á hug- myndinni. Andmælendur voru engir. Að vísu benti Ástríður Stef- ánsdóttir, læknir og siðfræðingur, á ýmis vandkvæði sem upp gætu komið, sbr. þegar konan vill halda barninu eftir fæðingu, ef eitthvað reynist „að“ barninu eða ef tilvon- andi foreldrar sjá sig um hönd. Þessi yfirþyrmandi siðferðilegu vandamál voru ekki rædd nánar. Í upphafi viðtalsins sagði Áslaug að ef fullkomin sátt væri um málið og konan sem gengi með barnið væri á engan hátt kúguð „þá sé kannski í fljótu bragði ekki hægt að sjá neitt at- hugavert við þetta, það gagnist öllum.“ Flestir væru þó já- kvæðastir gagnvart tilfellum þar sem ekki kæmi greiðsla fyrir. Í þættinum var einnig talað við íslenska konu sem hafði gengið með barn fyrir systur sína sem ekki hafði getað átt barn sjálf. Ég tel grundvallaratriði í þessari um- ræðu að skilja skýrt á milli stað- göngumæðrunar þegar eingöngu er um velgjörð að ræða og hins vegar þegar greitt er fyrir barnið. Þórður Óskarsson, sérfræðingur í tæknifrjóvgun, vísaði til þess að það væri sorglegt þegar ung og að öðru leyti heilbrigð kona stæði frammi fyrir því að geta ekki átt barn. Það er fjarri mér að gera lítið úr vanlíðan fólks sem ekki getur átt börn. Samt getur leiðin til þess að uppfylla óskir þess að mínu viti ekki verið að „kaupa“ aðgang að líkama konu. Kaupmáli um staðgöngumæðrun er í raun verslun með líkama kvenna og ný- fædd börn og stríðir gegn þeirri mannhelgishugsjón sem liggur til grundvallar mannréttinda- sjónarmiðum vestræns samfélags. Þessa mannhelgishugsjón má rekja til þýska heimspekingsins Immanuels Kant og kveður hún á um að hver einstaklingur sé sið- ferðilega mikilvægur í sjálfu sér og hann megi ekki nota sem tæki að einhverju markmiði. Mikilvægt er að hafa í huga að engin leið er að aðskilja móðurlíf konu og með- göngu frá manneskjunni sjálfri. Meðganga hefur í öllum tilvikum mikil áhrif á líkama og sál móð- urinnar og afleiðingarnar eru aldr- ei fyrirsjáanlegar. Í versta falli geta þær valdið alvarlegu lík- amlegu og/eða tilfinningalegu tjóni, jafnvel dauða. Ekki má held- ur gleymast í þessari umræðu að í mörgum tilvikum er svokölluð staðgöngumóðir erfðafræðileg móðir barnsins. Eflaust finnast dæmi um konur í góðri félagslegri stöðu sem gang- ast inn á kaupsamning um stað- göngumæðrun. Hins vegar er staðreyndin sú að kaupendur eru oftar en ekki betur megandi vest- rænir borgarar sem kaupa aðgang að líkömum fátækra kvenna og þá gjarnan í öðrum og fátækari heimshlutum, enda er stað- göngumæðrun bönnuð víðast hvar í Evrópu. Í flestum tilvikum grípa konur til slíks kaupmála sem neyðarúrræðis til þess að sjá sér og/eða börnum sínum farborða án þess að gera sér grein fyrir þeim víðtæku afleiðingum sem stað- göngumæðrun getur valdið. Upp- hæðin sem þær fá í sinn hlut er oft smánarlega lág, en tilheyrandi miðlunarstofnanir maka gjarnan krókinn. Slíkt fyrirkomulag er e.t.v. ekki kallað kúgun á tungu- máli nýfrjálshyggjunnar, heldur eðlileg samningsgerð á markaðs- torgi frjálsrar verslunar. Í þessu sambandi ber þó að halda því til haga að annar aðilinn er iðulega í vonlausri samningsstöðu um kaup sín og kjör í lífinu og því til- neyddur til þess að semja af sér, jafnvel sína helgustu dóma. Ragnheiður Hrafn- kelsdóttir skrifar um það þegar konur taka að sér að ganga með börn gegn greiðslu » ...staðreyndin er sú að kaupendur eru oftar en ekki betur meg- andi vestrænir borgarar sem kaupa aðgang að líkömum fátækra kvenna og þá gjarnan í öðrum og fátækari heimshlutum... Ragnheiður Hrafnkelsdóttir Höfundur er kaupmaður og myndlistarmaður. Staðgöngumæðrun BLOG.IS Linda Lea Bogadóttir | 27. febrúar 2009 Þú ert svo mátuleg! … sagði lítill ljóshærður snáði nýverið við ungling- inn minn hana Heiðu … Strauk henni létt á kinn, horfði dreyminn á hárið og andvarpaði. Við mig sagði hann um leið og hann skreið í fangið: – Þú ert svo mjúk! Hvað er fallegra en orð fjögurra ára barns … for- dómalaus, hlý og beint frá hjartanu? Nokkrir nýir áhugaverðir englar hafa einmitt bæst í líf okkar nýverið. Það er svo ljúft þegar tvær sálir mæt- ast og renna saman í eina – hin hliðin á sjálfinu er fundin og spegilmyndin verður loksins heil og skýr á ný eftir langt en lær- dómsríkt hlé. Er nokkur ástæða til annars en að fylgja hjartanu af festu og því sem hugurinn segir? … Þar til allt í einu – og bara algjörlega óvart – virtist sem skilaboðaskjóðan hefði opnast og hafið útsendingu réttra tilfinn- inga og um leið ratað á rétta braut. … Sendi ykkur vinir – stórt faðmlag inn í helgina. Meira: lindalea.blog.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.