Morgunblaðið - 28.02.2009, Page 46
46 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2009
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
HLJÓMSVEITIN Hjálmar átti árin
2005 og 2006 með húð og hári og var
gríðarlega vinsæl, lék fyrir fullu húsi
þar sem pönkrottur og hnakkar
sameinuðust um dásemdir reggísins.
Sveitin var geysiþétt og var sem
meðlimir væru í fjarskynj-
unarsambandi uppi á sviði. Það er
því víst að margir fagna því að nú
hillir undir nýja plötu, fjórðu hljóð-
versskífuna. Áður hafa komið út
Hljóðlega af stað (2004), Hjálmar
(2005) og Ferðasót (2007).
Bragi yrkir
Sveitin er nú í óðaönn að taka upp
og kláraði á dögunum lag eftir Bob
Marley sem hefur verið íslenskað
sem „Heyrist hverjum“ og er fáan-
legt á tonlist.is. Textinn er eftir
Braga Valdimar Skúlason en þetta
er í fyrsta skipti sem hann sveiflar
sér í reggítakti segir Guðmundur
Kristinn Jónsson, einnig þekktur
sem Kiddi Hjálmur.
„Siggi og Steini hafa venjulega
séð um þann þátt,“ segir hann.
„Annars verða þetta mest frum-
samin lög en einhver tökulög líka,
eins og áður.“
Sátt og samlyndi
Kiddi rifjar upp hvernig ferill
Hjálma hagaði sér í byrjun, en lengi
vel voru þeir nokkurs konar neð-
anjarðarsveit.
„Það var lítill en harðsnúinn hóp-
ur sem mætti á alla tónleika. En
platan okkar fyrsta seldist lítið
fyrsta hálfa árið. Svo fór allt í gang
og sveitin varð fljótlega að almenn-
ingseigu. Mér fannst alltaf merki-
legt hversu breiður hópurinn var
sem flykktist að hljómsveitinni. Ég
man t.d. vel eftir því þegar fjöl-
skyldufaðir einn kom til mín og lýsti
því að það væri sátt um Hjálma á
heimilinu. Þegar Hjálmalag kom í
útvarpið var ekkert vesen og það
þurfti ekkert að skipta.“
Kemur þegar hún kemur
Ekki er búið að negla niður út-
gáfudag á plötuna, né útgefanda.
„Hún kemur út þegar hún er
tilbúin,“ segir hann og brosir. „En
hún kemur þó ábyggilega út á þessu
ári.“
Ásamt Kidda skipa Hjálma þeir
Sigurður Guðmundsson, Helgi Svav-
ar Helgason, Valdimar Kolbeinsson,
Davíð Þór Jónsson og Þorsteinn
Einarsson.
Hjálmar sigla á ný
Reggísveitin ástsæla Hjálmar tekur upp fjórðu plötu sína í Hljóðrita
Bragi Valdimar Skúlason úr Baggalúti semur nokkra kjarnyrta texta
Morgunblaðið/RAX
ÞRÁTT fyrir að Hr. Örlygur hafi
nú tilkynnt á heimasíðu sinni að
Iceland Airwaves fari fram í októ-
ber á þessu ári sá breski blaða-
maðurinn Ben H. Murray sig til-
neyddan til þess að senda
tilkynningu til fjölmiðla í fyrradag
þar sem hann efaðist um fjárhags-
lega getu fyrirtækisins til þess að
halda hátíðina. Ben hafði þá ekki
enn fengið greitt fyrir störf er
hann vann fyrir fyrirtækið vegna
London Airwaves í september. Í
sömu tilkynningu sagðist hann
vita af fleirum í London í svipaðri
stöðu.
Í gær sendi starfsfólk Hr. Ör-
lygs svo frá sér tilkynningu þar
sem fram kom að hátíðin í London
hefði gengið afburðavel en að end-
ar hefðu ekki náðst saman þar
sem styrktaraðilar hefðu hætt við
á síðustu stundu. Þar kom einnig
fram að reikningur blaðamannsins
hefði nú verið greiddur og ítrekað
að hátíðin væri ekki í neinni
hættu. Að lokum óskuðu starfs-
menn þess að fá frið fyrir slúðri til
að geta unnið að undirbúningi há-
tíðarinnar í ár.
Stafrænar bankafærslur til
Bretlands taka þrjá daga og gat
Ben því ekki staðfest færsluna.
biggi@mbl.is
Hr. Örlygur bregst
við gagnrýni
Morgunblaðið/Kristinn
Hr. Örlygur Undirbýr næstu hátíð.
Starfsmenn kvarta undan slúðri
Fólk
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
Á SAMA tíma og tónlistarmenn fagna því að
Reykjavík Loftbrú hafi staðið af sér bankahrunið
veldur nýtt fyrirkomulag verkefnisins þeim
auknum útgjöldum. Stærsta breytingin á fyr-
irkomulaginu er framlag Icelandair er veitir nú
listamönnunum gjafabréf í stað beinna flugmiða.
Í marsmánuði leika hljómsveitirnar Sprengju-
höllin og Bloodgroup á tónleikahátíðinni South
by South West í Texas (SXSW) og stóla því á
styrkinn til þess að komast út. Nú er þó orðið
ljóst að báðar hljómsveitir þurfa að punga út um
150 þúsund krónum aukalega á sveit.
Ástæðan mun vera sú að því nær sem pantað
er fyrir brottför, því hærra verð þarf að greiða
fyrir flugmiðann. Gjafabréf Icelandair til Banda-
ríkjanna hljóðar upp á 46 þúsund krónur á mann
og verða styrkþegar að borga mismuninn úr eig-
in vasa.
„Loftbrúin er frábær hugmynd en maður hefði
óskað þess að aðstandendur hennar hefðu skoð-
að umsóknirnar betur áður en það var ákveðið
að gera þetta svona,“ segir Jón Trausti Sigurð-
arson umboðsmaður Sprengjuhallarinnar.
„Þessi gjafabréf koma sér vel fyrir þá sem vita
langt fram í tímann hvert ferðinni er heitið en
fyrir hina sem sækja um hátíðir á borð við SXSW
þar sem fyrirvarinn er aldrei mjög mikill, kemur
þetta ekki eins vel út. Kostnaðurinn eykst svona
um 30 þúsund krónur á hvern meðlim.“
Popparar kvarta undan endurnýjaðri Loftbrú
Morgunblaðið/Valdís Thor
Sprengjuhöllin Með fyrstu sveitum til að kynn-
ast nýju fyrirkomulagi Loftbrúar í raun.
Einhver gæti haldið að Morg-
unblaðið væri með Ásdísi Rán á
heilanum en svo er að sjálfsögðu
ekki. Ekki frekar en Morgunblaðið
er með Sigur Rós, Björk eða Eið
Smára á mænunni í ljósi allra
þeirra dálksentímetra sem þessir
„listamenn“ fá á síðum blaðsins. Ó
nei, Ásdís er einfaldlega ein af örfá-
um Íslendingum sem blása okkur
hinum anda í brjóst með óþrjótandi
bjartsýni, áræði og orku. Í gær var
sagt frá því að fyrirsætan og fram-
kvæmdastjórinn svitnaði á þrek-
stiganum innan um nokkrar af
stærstu leikarastjörnum heims sem
staddar eru í Búlgaríu við tökur.
Nú bætir hún um betur og birtir á
bloggsíðu sinni forsíðu búlgarska
brúðarblaðsins Bulka Magazine
sem hún að sjálfsögðu prýðir. Ásdís
Rán þarf hins vegar að vara sig á
því að vera ekki of fyrirferðarmikil
á síðum búlgarskra blaða því svo
gæti farið að hún endaði eins og
sumir á Fróni sem fara í sama við-
talið aftur og aftur með nokkurra
mánaða millibili.
Í búlgörsku brúð-
arblaði … nema hvað!
Botnlanginn svokallaði var veitt-
ur á dögunum þeim auglýsingum
sem þóttu lélegastar á síðasta ári.
Landsliðið, félag í eigu fag- og
áhugamanna um markaðsmál, veitti
verðlaunin og hlaut sjónvarps-
auglýsing Símans, þar sem maður er
étinn af ketti, fyrstu verðlaun.
Eitt er að gera vonda auglýsingu
og annað að gera auglýsingu þar
sem engin leið er að vita hvað verið
er að auglýsa. Í þessu tilviki virðist
Símanum hafa tekist hið ótrúlega og
sameinað þetta tvennt.
Strákar, ég held að ég
sé kominn með þetta!
KIDDI Hjálmur segir að vinnsluaðferðirnar við nýju plötuna séu nokkuð
frábrugðnar þeim sem tíðkuðust á fyrri plötum sveitarinnar.
„Við spiluðum þær mikið til beint inn enda sveitin þá í miklu spilerís-
formi. Núna langaði okkur meira að leika okkur og prófa hitt og þetta.
Prófa eitthvað nýtt. Þetta er því til muna meira stúdíódútl og við erum með
alls kyns græjur til þess arna, meðal annars erum við með fimm „tape-
delay“-tæki og alls kyns áhrifshljóð eru í gangi. Mottóið var dálítið að
„gera bara eitthvað“, a.m.k. að reyna að fara eitthvað áfram með þennan
reggíheim sem við höfum verið að vinna með.“
Hér hlýða þeim Hjálmaliðar andaktugir á eitt lagið í hljóðverinu.
Nýjar aðferðir
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Í TÍMA Á
MIÐASALA OPNAR Í LAUGARÁSBÍÓ KL. 13.00
Sími: 553 2075 - bara lúxus