Morgunblaðið - 09.05.2009, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 09.05.2009, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2009 Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is LÆKKUN tekna trúfélaga af sókn- argjöldum kemur sér illa hjá skuld- ugum söfnuðum sem staðið hafa í framkvæmdum. Lítið er hægt að greiða niður. Víða er verið að reyna að spara og reikna má með draga þurfi saman seglin í safnaðarstarfi í sumum kirkjum landsins í haust. Kirkjubyggingarsjóður Reykja- víkurborgar úthlutaði Grafarvogs- kirkju 4 milljónum kr. vegna veru- lega erfiðrar skuldastöðu við árlega styrkjaúthlutun og Grensáskirkja fékk 3 milljónir af sömu ástæðum. Sjóðurinn hafði 26 milljónir til ráð- stöfunar í ár og veitti einnig styrki til viðgerða á kirkjum. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sátu hjá þegar úthlutun var staðfest í borgarráði, vegna styrkja til löngu lokinna verkefna. Fulltrúar Samfylkingarinnar töldu að leggja ætti höfuðáherslu á að styrkja atvinnuskapandi viðhalds- verkefni. Fulltrúar VG veltu því fyr- ir sér hvort ekki væri rétt að draga verulega úr framlögum til sjóðsins við núverandi aðstæður. Grafarvogssöfnuður skuldar um hálfan milljarð króna vegna bygg- ingar Grafarvogskirkju sem vígð var árið 2000. Bjarni Kr. Grímsson, for- maður sóknarnefndar, segir að lánin séu vísitölutryggð en þau séu öll í skilum. „Þetta er stór söfnuður með öflugt safnaðarstarf. Við höfum ekki miklar tekjur fyrir utan sókn- argjöldin til að standa undir afborg- unum og vöxtum. Við höfum fengið úr Kirkjubyggingarsjóði Reykjavík- urborgar og Jöfnunarsjóði kirkna, eins og aðrir söfnuðir,“ segir Bjarni. Passa að slökkva ljósin Við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2009 voru sóknargjöld skert um 2%, en þau hefðu átt samkvæmt fyrri viðmiðun að hækka í takt við verð- bólguna. Tekjur kirkna og trúfélaga lækka því á þessu ári. „Það er erfitt vegna þess að margir söfnuðir eru með hluta af sínum tekjum bundinn í afborgunum og vöxtum, fyrir utan launagreiðslur og annan rekstur. Ekki lækka afborganirnar og það er því lítið svigrúm til að draga úr kostnaði,“ segir Gísli Jónasson, pró- fastur í Reykjavíkurkjördæmi eystra. Gísli veit til þess að menn líta til smárra jafnt sem stórra kostn- aðarliða, til dæmis að gæta þess að ljósin séu slökkt og að kyndingin sé sem hagkvæmust. „En þetta endar með því að bitna eitthvað á starfinu, þótt það sé það sem við síst viljum, nú á þeim tímum sem þörfin er mik- il,“ segir Gísli. STANGVEIÐI Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Á ÁRSFUNDI Veiðimálastofnunar í gær spáði Guðni Guðbergsson fiski- fræðingur í spilin að vanda, varðandi laxveiðina í sumar. „Það eru ekki nein merki um ann- að en að veiðin verði áfram nærri meðaltali eða rúmlega það,“ sagði Guðni. Sveiflur hafi ætíð verið í veiði á laxi og fylgjast að nokkur góð ár og nokkur slæm. Í fyrrasumar var met- veiði og búast megi við því að veiðin úr náttúrulegum laxastofnum verði heldur minni í sumar en í fyrra. Flest veiðifélög hafa skilað veiði- tölum fyrir árið 2008 og er ljóst að um 81.500 laxar veiddust. 15.400 löx- um var sleppt aftur, sem er um 19% af heildarveiðinni en nálægt fjórð- ungi laxa úr náttúrulegum stofnum. Gríðarlegur vöxtur var í veiði úr hafbeitaránum. Þessar ár gáfu um 28.000 laxa, sem Guðni sagði meira en heildarveiðin lökustu árin hér áð- ur, eftir að farið var að halda utan um veiðitölur. Hafbeitarárnar gáfu um 35% af heildarveiðinni nú. Þrátt fyrir þessa miklu veiði í haf- beitaránum veiddust 53.200 laxar úr náttúrulegum stofnum, sem er met því besta veiðin til þessa úr ám með náttúrulega laxastofna var 1978 er 52.679 laxar veiddust. Um 9.000 laxar veiddust í net í fyrra; 4.500 í Þjórsá, 4.200 í Hvítá- Ölfusá og 340 í Hvítá í Borgarfirði. Áhyggjur af stórlaxi Guðni og Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiðimálastofnunar, lýstu yfir þungum áhyggjum af ástandi stórlaxastofnanna. „Hægt er að nota orðið hrun um hvernig fyrir þessu er komið,“ sagði Guðni. „Stórlaxi heldur áfram að hnigna.“ Sigurður sagði að fyrir síðasta veiðitímabil hefði Veiðimálastofnun farið þess á leit við Matvælastofnun, sem þá stýrði stjórnsýslu veiðimála, að stórlax yrði friðaður að því leyti að það mætti alls ekki drepa hann; veiða og sleppa væri hins vegar í lagi. „Matvælastofnun sá sér ekki fært að gera það með svo skömmum fyr- irvara og benti á það úrræði að fara með þetta í gegnum nýtingaráætlun veiðifélaganna. Okkur er að verða órótt á stofnuninni hvað þetta varðar og vonum að menn taki sig verulega á, svo að við horfum ekki upp á að þessi hluti íslenska laxastofnsins hverfi alveg,“ sagði Sigurður. Guðni Guðbergsson fiskifræðingur spáir að laxveiðin í sumar verði nærri meðallagi eða rúmlega það Ljósmynd/Gísli Harðarson Skyldi hann taka? Veiðimaður fylgist með silfurbjörtum laxi stökkva í Vatnsdalsá. Stórlax í vanda staddur ÞAU fylgdust áhugasöm með lestr- inum börnin á Barnaspítala Hrings- ins er Lovísa María Sigurgeirsdóttir las úr bók sinni Ég skal vera dugleg. Því þó að sá heimur sem Lovísa María lýsir þar sé e.t.v. um margt framandi þekkja þau vel hvernig er að dvelja á spítala. Í æsku var Lovísa María langdvölum á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri, fjarri fjöl- skyldu sinni í Hrísey. „Ég gleymdi þessu aldrei og þessi tími er ljóslifandi í minningunni,“ seg- ir Lovísa María. „Þegar ég var á spít- alanum máttu mamma og pabbi eig- inlega ekkert koma í heimsókn.“ Þessu sé vissulega öðruvísi farið í dag, en þó hljóti sjúkrahúsvist alltaf að reynast börnum erfið. Hugmyndina að bókinni segir Lovísa María hafa kviknað er fjöl- skyldan tók að sér að vera stuðnings- fjölskylda fjölfatlaðs drengs. „Þá fór ég að hugsa meira og meira um Tóta, lítinn dreng sem er söguhetja í bók- inni. Spítalinn var hans heimili því hann dvaldi á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri alla sína ævi.“ Tóti lést rúmlega fimm ára gamall. „Hann var svo yndislegt barn og fékk mig til að hugsa um hvað það er þroskandi að umgangast þessi börn og hvað þau eru miklar hetjur.“ Þetta er hennar fyrsta bók, en ekki endilega sú síðasta. „Ég hef haft mjög gaman af þessu og er með fullt af hugmyndum,“ segir Lovísa María. annaei@mbl.is „Er ljóslifandi í minningunni“ Sjúkrahúsvistin börnum oft erfið Morgunblaðið/Heiddi Góðir áheyrendur Lovísa María las fyrir börnin á Barnadeild Hringsins. FULLTRÚI VG í borgarráði, Þorleifur Gunnlaugsson, telur það brot á samþykktum um Kirkjubyggingasjóð Reykjavíkurborgar að veita styrki til annars en framkvæmda. Ekki hafi verið sýnt fram á að styrkir vegna erf- iðrar skuldastöðu séu vegna endurbóta og meiriháttar viðhalds kirkna. Katrín Fjeldsted, formaður stjórnar sjóðsins, segir þetta rangt og vitnar til sjöundu greinar samþykkta sjóðsins þar sem fram kemur að sóknir sem þegar hafa lokið byggingu kirkna geti fengið styrki úr sjóðnum ef tekjur þeirra hrökkva ekki fyrir greiðslu afborgana og vaxta. Katrín segir að stjórn sjóðsins verði að vinna eftir samþykktum hans. Þar sé ekki gert ráð fyrir að tekið sé tillit til atvinnuástandsins. Hins vegar séu flest verkefnin atvinnuskapandi, eins og til dæmis viðgerðir á Hallgrímskirkju, Laugar- neskirkju og Háteigskirkju. Kaup á kirkjuklukkum í Guðríðarkirkju í Grafarholti falli síst undir þetta en þar sé verið að ljúka kirkjubyggingu. Atvinnuskapandi viðgerðir Morgunblaðið/Ingó Grafarvogur Þótt Grafarvogskirkja hafi verið vígð fyrir níu árum er söfnuðurinn enn skuldugur. Bitnar á starfinu  Lækkun sóknargjalda kemur illa við skulduga söfnuði  Erfiðara er að standa í skilum og minnka þarf útgjöldin Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 Patti Húsgögn Mikið úrval af sófum og sófasettum - Verðið kemur á óvart

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.