Morgunblaðið - 09.05.2009, Side 12

Morgunblaðið - 09.05.2009, Side 12
12 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2009 HANDVERKSBASAR verður hald- inn á morgun, sunnudag, frá kl. 13- 18 í föndurhúsi Dvalar- og hjúkr- unarheimilisins Áss í Hveragerði. Heimiliskonur eru búnar að mála, sauma út, hekla og prjóna. Herr- arnir í Ási hafa ekki látið sitt eftir liggja og úr þeirra smiðju koma bæði hillur og útskornir hestar og hestakerrur. Gestum er svo boðið að tylla sér og þiggja kaffisopa. Handverk í Ási FALLIÐ hefur verið frá samningi þrotabús BT verslana ehf. og Haga Invest ehf. um kaup Haga á versl- unum og viðskiptavild tölvuversl- ana BT. Ástæðan er athugasemdir Samkeppniseftirlitsins. Þrotabúið mun taka við eign- unum að nýju og auglýsa þær til sölu. Árdegi, móðurfélag BT, var úrskurðað gjaldþrota í nóvember en kaupsamningur Haga og þrota- bús BT verslana var gerður 20. nóv- ember. Verslanirnar verða áfram opnar samkvæmt samkomulagi við þrotabúið. Hætta við kaup á þrotabúi BT ÚTLIT er fyrir metþátttöku á Landssambandsfundi Soroptimista- sambands Íslands sem fram fer í dag en alls hafa 200 konur boðað komu sína. Markmið Soroptim- istasystra er að vinna að bættri stöðu kvenna. Í ár er fundurinn í umsjón Sor- optimistaklúbbs Reykjavíkur sem hefur af þessu tilefni ákveðið að veita 1.000 króna styrk fyrir hvern þátttakanda þingsins til Göngum saman hópsins. Það sama gera So- roptimistaklúbbur Hafnarfjarðar og Garðabæjar. Styrktarfélagið Göngum saman hefur það að markmiði að styrkja grunnrannsóknir á brjósta- krabbameini og úthlutar félagið styrkjum árlega. Vorganga hópsins verður á mæðradaginn, sunnudag- inn 10. maí, og verður lagt af stað frá Skautahöllinni kl. 11. Systur styðja Göngum saman TANNLÆKNAR munu í dag bjóða barnafjölskyldum sem búa við kröpp kjör upp á ókeypis tann- læknaþjónustu. Þetta er í þriðja sinn sem þjónustan er í boði en hún verður einnig í boði 23. maí. Þjón- ustan er fyrir börn og unglinga 18 ára og yngri og verður veitt milli kl. 10 og 13 húsi Tannlæknadeildar HÍ, Læknagarði. Tannlækningar BIRGITTA Jóns- dóttir hefur ver- ið kosin formað- ur þinghóps Borgarahreyf- ingarinnar. Jafn- framt hefur Þór Saari verið kos- inn varafor- maður þinghóps- ins og Margrét Tryggvadóttir ritari. Í tilkynningu segir að Birgitta hafi verið „starf- andi atvinnuleysingi áður en hún var kosin á þing“, en hún sé fjöl- listamaður og skáld. Birgitta formaður Birgitta Jónsdóttir RÁÐGJAFARSTOFA um fjármál heimilanna mun auka þjónustu sína til mikilla muna og verður starfsemin tvö- földuð að umfangi. Ný starfsstöð við Sóltún 26 í Reykja- vík verður opnuð undir lok næstu viku. Hún er sett á laggirnar til þriggja mánaða til reynslu. Þar verða 8-10 starfsmenn og mun fólk geta komið án þess að hafa pant- að tíma og fengið viðtal við ráðgjafa augliti til auglitis. Einnig verður starfsmönnum í höfuðstöðvunum fjölgað. Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Ástu R. Jóhann- esdóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, um að stór- efla Ráðgjafarstofuna. Ásta kynnti þessa breytingu á blaðamannafundi í gær ásamt Gylfa Magnússyni við- skiptaráðherra og Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra en ráðuneyti þeirra koma að málinu. Ásta Sigrún Helga- dóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu heimilanna, tók einnig þátt í fundinum. Ásta félagsmálaráðherra sagði þetta vera í fjórða sinn frá bankahruninu sem þjónusta Ráðgjafarstofunnar væri efld. Hún sagði að aðsóknin í ráðgjöf hefði þrefaldast frá því um mánaðamót mars og apríl sl. Á tímabili var útlit fyrir að bið eftir ráðgjöf myndi aukast verulega en nú hefur verið brugðist við því. Gert er ráð fyrir að með efl- ingu Ráðgjafarstofunnar verði hægt að vinna á fyrirliggj- andi biðlistum á um fjórum vikum. Elstu fyrirliggjandi umsóknir eru frá því í byrjun apríl. Ráðgjafarstofan hefur einnig sinnt ráðgjöf á lands- byggðinni. Margir koma að starfinu, þ.á m. Íbúðalána- sjóður, Reykjavíkurborg, Nýja Kaupþing, Íslandsbanki, Nýi Landsbankinn og Samband sparisjóða. Bankarnir munu leggja Ráðgjafarstofunni til húsnæði, tölvubúnað, húsögn og eins kemur starfsfólk frá bönkunum. Þá er og gert ráð fyrir að ráða starfsfólk af atvinnuleysisskrá. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra sagði þátt ráðu- neytisins vera vegna löggjafar um greiðsluaðlögun og væri í bígerð þjónustusamningur við Ráðgjafarstofuna. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra sagði að gert yrði átak til að kynna þau úrræði sem væru í boði. Hann sagði ríkisstjórnina hafa verið með aðgerðir í um 15 liðum til að taka á vanda skuldsettra heimila. Mikilvægt væri að fólk leitaði sér ráðgjafar. gudni@mbl.is Ráðgjöfin verður efld  Umfang Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna tvöfaldað  Ný starfsstöð opn- uð í næstu viku  Rafræn eyðublöð verða tekin upp  Unnið verður á biðlistum Í HNOTSKURN »Ráðgjafarstofa um fjármálheimilanna opnar nýja starfsstöð í Sóltúni 26 í Reykjavík í næstu viku og verða starfsmennirnir tvöfalt fleiri en áður. »Um leið verða rafræneyðublöð tekin í gagnið hjá Ráðgjafarstofunni og Íbúðalánasjóði. »Með þeim þarf fólk semleitar ráðgjafar aðeins að koma einu sinni á staðinn í stað tvisvar nú. FYRSTU gestirnir heimsóttu Vík- ingaheima í Reykjanesbæ í gær, eft- ir að dyr safnsins voru opnaðar í fyrsta skipti. Sumir gestirnir klæddu sig upp í tilefni dagsins. Bú- ist er við því að margir vilji skoða víkingaskipið Íslending um helgina og næstu vikur. Einnig sýningu sem byggð er á munum frá víkingasýn- ingu Smithsonian-stofnunarinnar í Bandaríkjunum. Á henni eru dýr- mætir forngripir sem fengnir eru að láni frá söfnum í nágrannalönd- unum. Á vegum Íslendings ehf. hefur verið unnið að byggingu húss fyrir Íslending og uppsetningu vík- ingasýningar í tvö ár. Það er loka- áfanginn í því að halda Íslendingi hér á landi og koma honum í var- anlegt naust, eftir siglinguna til Am- eríku í tilefni landafundaafmælisins árið 2000. Bygging hússins og uppsetning sýningarinnar kostar um 300 millj- ónir kr., að sögn Einars Bárð- arsonar verkefnisstjóra. Ríkissjóður greiðir alls um 100 milljónir kr., samkvæmt samningi sem mennta- málaráðherra gerði við aðstand- endur sýningarinnar fyrir fáeinum árum. „Sem betur fer var mest af þessu afstaðið þegar efnahags- þrengingarnar dundu yfir,“ segir Einar en getur þess að erfiðleik- arnir hafi hægt á lokafrágangi. Fyr- irhugað er að opna Víkingaheima formlega á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. helgi@mbl.is Klæddu sig upp fyrir Íslending Fræðsla Systkinin Eyþór Ingi og Ástrós fengu að fara um borð í Íslending. MÁLEFNAHÓPUR Vinstri grænna um efnahagsmál leggur til að vaxta- og verðbótaútreikningur vegna hús- næðislána verði leiðréttur og hann miðaður við þær að- stæður sem uppi voru fyrir efnahagshrunið. Málefnahópurinn leggur einnig til að lán í erlendri mynt verði færð yfir í íslenskar krónur. Íbúðalánin verði síðan færð niður sem nemur verðbólgunni sem leiddi af fjárstreymi bankanna inn á fasteignamarkaðinn þannig að höfuðstóll þeirra verði í ekki í neinum tilfellum hærri en sem nemur tiltekinni hámarksprósentu af fasteigna- mati. Ámundi Loftsson, einn talsmanna málefnahópsins, sagði á blaðamannafundi í gær að góður andi ríkti um til- lögurnar innan flokksins. Skýrsla um þær hefur verið send formanni og varaformanni, að sögn Ámunda. „Til- lögurnar voru unnar í samvinnu við forystuna og ég met andrúmsloftið í kringum það sem við höfum verið að gera gott.“ Það er mat talsmanna málefnahópsins að umræðan um aðgerðir til bjargar heimilunum hafi verið of einsleit. „Þau viðbrögð viðskiptaráðherra að slá hverja tillöguna af annarri út af borðinu eru einnig undarleg. Fólki er hins vegar boðin greiðsluaðlögun sem gengur út á að það sé eins og fangar á reynslulausn í fimm ár og síðan verða skuldir mögulega felldar niður. Það hefur ekki verið rætt um hvað greiðsluaðlögun kostar í mannafla og eftirliti. Mér sýnist þessi stefna gjörsamlega óframkvæmanleg.“ Málefnahópurinn ákvað að kynna tillögur sínar opin- berlega til þess að almenningur geti kynnt sér þær. ingibjorg@mbl.is Málefnahópur VG vill lækka höfuðstól lána Morgunblaðið/Heiðar Eins og fangar Ámundi Loftsson segir stefnuna vegna greiðsluaðlögunar gjörsamlega óframkvæmanlega. KRAFTVÉLAR og Microsoft Ís- landi eru fyrirtæki ársins 2009 í könnun VR, það fyrra í hópi stærri fyrirtækja en það síðara í hópi minni fyrirtækja. Fram kemur í til- kynningu að Íslandspóstur og Atl- antsolía hafi bætt sig mest á milli ára og séu hástökkvarar ársins 2009. Kraftvélar ehf. eru sigurvegarar í hópi stærri fyrirtækja með 4,519 í einkunn af 5 mögulegum. Á síðasta ári var fyrirtækið í fjórða sæti með 4,377 í einkunn. Microsoft Íslandi er sigurvegari í hópi minni fyrirtækja með 4,87 í einkunn samanborið við 4,723 í fyrra en þá var fyrirtækið í 6. sæti „Þátttaka í könnun VR á fyr- irtæki ársins hefur aldrei verið meiri en í ár, ríflega tuttugu þús- und starfsmenn fyrirtækja á al- mennum vinnumarkaði fengu senda spurningalista og svöruðu tæplega tólf þúsund þeirra eða 54% samanborið við 42% á síðasta ári. Könnunin er gerð í samstarfi við SFR stéttarfélag, sem velur stofnun ársins, og er stærsta vinnumark- aðskönnun á Íslandi,“ segir í til- kynningu. Könnunin var gerð mið- að við stöðuna um áramót og í janúar síðastliðnum. Valin fyrir- tæki ársins BLAÐAAUGLÝSING Sjálfstæðis- flokksins í Norðvesturkjördæmi, sem sýndi mynd af Steingrími J. Sigfússyni, for- manni Vinstri hreyfingarinnar – græns fram- boðs (VG), brýt- ur í bága við siðareglur Sam- bands íslenskra auglýsingastofa (SÍA), samkvæmt niðurstöðu siða- nefndar SÍA. VG kærði aug- lýsinguna til siðanefndar 21. apríl sl. Í kærunni kemur fram að Sjálf- stæðisflokkurinn í Norðvestur- kjördæmi hafi birt blaðaauglýsingu með mynd af Steingrími í fjölmörg- um svæðismiðlum kjördæmisins án leyfis VG. Það sé brot á 8. grein siðareglna SÍA. „8. gr. siðareglna SÍA er hugsuð til að vernda einkalíf fólks og persónu þess fyrir óheim- illi notkun í hefðbundnum auglýs- ingum, ekki verja ráðamenn þjóð- arinnar fyrir gagnrýni,“ segir í greinargerð Agnars Tr. Lemacks, framkvæmdastjóra auglýsingastof- unnar Jónsson & Lemacks, sem vann auglýsinguna. Myndbirting brot á reglum Steingrímur J. Sigfússon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.