Morgunblaðið - 09.05.2009, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 09.05.2009, Qupperneq 24
24 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2009 Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is F jallaverkefnið á hug minn allan þessa stundina,“ segir Rósa Björk Hall- dórsdóttir, fram- kvæmdastjóri Ríkis Vatnajökuls sem er ferðaþjónustu-, matvæla- og menningarklasi Suðaust- urlands. Hún vinnur ásamt samstarfs- fólki að þróun fjallaseturs og fjalla- og náttúruskóla. Þessar stofnanir verða liður í því að gera fjalllendi Suðaust- urlands að einu af þekktasta og eftir- sóknarverðasta fjallasvæði Norður- Evrópu. Einstök samstaða hefur náðst um Ríki Vatnajökuls sem auk ferðaþjón- ustuaðlia vinnur með matvælafram- leiðendum og margskonar menningar- starfsemi á svæðinu enda oft erfitt að skilgreina hvað er ferðaþjónusta. 76 fyrirtæki og stofnanir í Sveitarfélaginu Hornafirði eiga aðild að klasanum sem starfað hefur í tvö ár, þar á meðal öll helstu ferðaþjónustufyrirtækin. Rósa Björk vinnur að því að mark- aðssetja svæðið, aðstoða við vöruþróun og að verkefnum sem styrkja grunn- gerð samfélagsins. „Ferðaþjónustan er helsti vaxtarbroddurinn í atvinnulíf- inu og það eru bundnar miklar vonir við hana. Mörg afleidd störf fylgja ferðaþjónustunni og allt atvinnulífið gæti blómstrað,“ segir Rósa Björk. Sérstök áhersla er lögð á að stytta lág- annatíma í ferðaþjónustunni og lengja viðverutíma ferðafólks. Það er meðal annars gert með því að auka framboð afþreyingar, ekki síst utan hefðbund- ins háannatíma. Að sögn Rósu hefur aldrei verið meira að gera en í vetur. Þjóðgarðurinn lyftistöng Miklar vonir voru bundnar við að Vatnajökulsþjóðgarður myndi hafa að- dráttarafl, eftir að hann var stofnaður, enda er Vatnajökull stærsti jökull utan heimskautasvæða og þjóðgarðurinn sá stærsti í Evrópu. Þetta svæði er í for- grunni hjá fólkinu sem er að undirbúa fjallasetur og fjalla- og náttúruskóla, undir Vatnajökli. Verkefnið er þróað í samvinnu hags- munaaðila við menntastofnanir eins og Framhaldsskólann og Háskólasetrið á Höfn. Rósa segir að hugmyndin að setrinu hafi komið frá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum og þeir leiki lykilhlutverk við uppbyggingu náms- ins. Þá sé samvinna við eina fjallaleið- sögumanninn sem búsettur er á svæðinu, Einar Rúnar hjá Öræfaferð- um. Rósa vonast til að hægt verði að bjóða upp á nám í fjalla-, göngu- og jöklaleiðsögn á framhaldsskólastigi. Hún er svo bjartsýn að hún telur unnt að hefja námið á komandi hausti. Síðan verði hægt að byggja frekar ofan á það og bjóða alþjóðlegt nám á þessu sviði. Hún segir að farsælast sé að byrja á heimafólki. „Það er mikilvægt að virkja unga fólkið og benda því á at- vinnutækifæri á þessu sviði. Þetta verkefni snýr þannig ekki eingöngu að ferðaþjónustunni, þetta er al- mennt byggðamál,“ segir Rósa. Hún sér fyrir sér að byggðakjarni rísi í kringum slíka menntastofnun og það muni styrkja byggðarlagið í heild. Vannýttir möguleikar Nú þegar er ýmis fjalla- og jökla- ferðamennska stunduð út frá byggð- unum undir Vatnajökli. Unnið er að kortlagningu vinsælla svæða. Rósa segir mikilvægt að skrá svæði með mismunandi möguleika til fjalla- mennsku og jöklaferða með tillit til þolmarka og möguleika til uppbygg- ingar á aðstöðu þar sem við á. Hún segir að enn séu fjölmargir vannýttir möguleikar á svæðinu. Fjalla- og náttúruskóli undir- búinn við rætur Vatnajökuls  Ferðaþjónusta, matvælavinnsla og menningarstarfsemi vinnur saman í Ríki Vatnajökuls  Markmiðið að gera Suðausturland að eftirsóknarverðu fjallasvæði  Ferðafólki hefur fjölgað í vetur Morgunblaðið/Golli Hæsti tindurinn Miklir möguleikar til göngu- og skíðaferða felast í fjalllendi Suðausturlands þar sem Vatnajökull er miðpunktur tilverunnar. Því fylgir sérstök tilfinning að ná marki eftir erfiða gönguför, það upplifir fólk sem gengur á hæsta tind landsins, Hvannadalshnjúk í Öræfajökli. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is STARFSMENN Háskólasetursins á Horna- firði leita leiða til að draga úr árekstrum milli náttúruverndar og nýtingar í Vatnajökuls- þjóðgarði þannig að unnt sé að vernda náttúr- una en leyfa sjálfbæra nýtingu þar sem hún er möguleg. Hugmyndin er að Vatnajökuls- þjóðgarður verði fyrirmynd að sjálfbærri ferðaþjónustu á Íslandi. Meginhlutverk Fræðaseturs Háskóla Ís- lands á Hornafirði er að stunda rannsóknir. Því er jafnframt ætlað að vinna námið með heima- mönnum og því tekur Háskólasetrið meðal annars þátt í þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu með ýmsum samtökum og einstökum fyrir- tækjum. Þorvarður Árnason, doktor í umhverfisfræði og forstöðumaður Háskólasetursins, segir að umfangsmestu rannsóknirnar tengist stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Starfsmenn þess eru ráðgjafar við gerð verndaráætlunar fyrir suð- ur- og vestursvæði þjóð- garðsins. „Verið er að leita leiða til að meta vernd- argildi mismunandi svæða þannig að unnt sé að vernda náttúruna en leyfa jafn- framt sjálfbæra nýtingu þar sem hún er möguleg,“ segir Þorvarður. Hann nefnir sjálfbæra sauðfjárrækt, veiðar og hóflega nýtingu í þágu ferðaþjónustu. Tvíþættur tilgangur Vatnajökulsþjóðgarður hefur þann tvíþætta tilgang að vernda náttúruna og efla byggðirnar í kring. Þorvarður segir að þetta geti stangast á. Áður en mat sé lagt á hagsmunina þurfi að kortleggja bæði verndar- og nýtingargildi ein- stakra svæða. Hann segir að íbúar í nágrenni þjóðgarðsins muni vinna að ýmsum verkefnum í þágu hans. Garðurinn hafi þannig bein áhrif á lífsafkomu þeirra íbúa sem næst honum búa. „Grunnhugsunin er sú að í stað þess að óbrúan- leg gjá sé á milli verndar og nýtingar séu hags- munir öflugs þjóðgarðs og blómlegrar byggðar tengdir saman,“ segir Þorvarður. Háskólasetrið sjálft er að hluta til dæmi um afleidda starfsemi þjóðgarðsins. Þar eru nú sex fastir starfsmenn, þar af þrír ferðamálafræð- ingar, og tíu framhaldsnemar tengjast verk- efnum setursins. Þarf að dreifast rétt Reiknað hefur verið með að þjóðgarðurinn laði að fleiri ferðamenn á næstu árum. Vatna- jökulsþjóðgarður er stærsti þjóðgarður í Evr- ópu og þar er mikil og sérstæð náttúrufegurð. Fjölgun ferðafólks mun efla byggð í kringum þjóðgarðinn ef vel tekst til. „Þetta hefur þegar haft jákvæð áhrif hér á Suðausturlandi. Fólk hefur verið bjartsýnt og djarfhuga, ráðist í ný- sköpun og uppbyggingu í ferðaþjónustu,“ segir Þorvarður. Háskólasetrið hefur komið að þró- un nokkurra slíkra verkefna, meðal annars fjallaferðamennsku og fuglaferðaþjónustu. „Að mínu mati er ekki nóg að fjölga ferða- mönnum, það þarf að hafa yfirsýn yfir það hvernig þeir dreifast um svæðið og tryggja að nóg sé til af vörum og þjónustu fyrir þá að kaupa. Það þarf til dæmis að hugsa til þess að of mikil fjölgun ferðafólks getur leitt til þess að íbúar grannbyggða fái leið á ferðaþjónustu,“ segir Þorvarður. Aldrei hafa verið gerðar rannsóknir á efna- hagslegum og samfélagslegum áhrifum stofn- unar þjóðgarðs hér á landi. Rannsóknir Há- skólasetursins eru liður í slíkri langtímavöktun. Háskólasetrið á Hornafirði er þátttakandi í rannsóknarverkefni sem verið er að undirbúa fyrir allan þjóðgarðinn og miðar að því að Vatnajökulsþjóðgarður verði fyr- irmynd í sjálfbærri ferðaþjónustu á Íslandi. „Það þarf að rannsaka þjóðgarðinn heildstætt. Við þurfum að rannsaka hvað einstök svæði þola mikla umferð, athuga áhrif þjóðgarðsins á rekstur fyrirtækja, hvetja til umhverfisvænnar nýsköpunar og kanna viðhorf ferðafólks,“ segir Þorvarður. Fyrirmynd að sjálfbærri ferðaþjónustu Þorvarður Árnason ÍTÖLSKUKUNNÁTTA og úti- vistaráhugi leiddi Rósu Björk Halldórsdóttur út í leiðsögustörf og loks í markaðssetningu á Suð- austurlandi. Rósa Björk er Reykvíkingur og rak snyrtistofu á höfuðborgar- svæðinu í átján ár. „Ég varð að hætta með stofuna vegna ofnæm- is. Fór þá í leiðsögunám vegna þess að ég vildi komast út undir bert loft. Ég hef alltaf verið úti- vistarmanneskja, stundað hesta- mennsku og göngur, siglingar og prófað ýmislegt,“ segir Rósa. Hún var við listnám á Ítalíu um tíma og lærði ítölsku. Það lá því beint við að hefja nýjan starfsferil með því að vera leiðsögumaður fyrir ítalska ferðamenn í fjallaferðum. „Ég hef alltaf haft áhuga á þessu svæði. Þetta er uppáhalds- staðurinn minn og ég vann að því að lengja viðdvöl hópanna minna hér. Ég var hvött til að sækja um þetta starf hjá Ríki Vatnajökuls og var ráðin,“ segir Rósa Björk. Hún tók til starfa haustið 2007 og flutti austur á Hornafjörð með hundana sína og hesta. Rósa hafði engin önnur tengsl við svæðið og viðurkennir að það hafi verið mikil ákvörðun að flytja á annað landsvæði, í burtu frá vin- um og fjölskyldu. „Ég hef alltaf viljað vera úti í náttúrunni og var til dæmis einn af frumbyggjunum á Vatnsenda við Elliðavatn, og hef aldrei verið hrædd við að prófa eitthvað nýtt. Svo létti það ákvörðun mína að dóttir mín var að flytja til Svíþjóðar með unn- usta sínum sem fór út í framhalds- nám. Ég sé ekki eftir þessu. Það eru alger forréttindi að fá að búa hér,“ segir Rósa Björk. Vildi komast út undir bert loft Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Góður félagsskapur Rósa Björk Halldórsdóttir ræktar Siberian Husky sleðahunda og er frumkvöðull að notkun hunda við gönguferðir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.