Morgunblaðið - 13.07.2009, Síða 1

Morgunblaðið - 13.07.2009, Síða 1
M Á N U D A G U R 1 3. J Ú L Í 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 188. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «DAGLEGTLÍF ÞREFÖLD LUKKA Í GALLERÍI 21 «FÓLKIÐ Flugan félagslynda kom víða við FJÖLSKYLDURNAR á Skíðbakka og Miðhjáleigu í Land- eyjum létu búskap og annað sýsl lönd og leið í heila viku. Þær beisluðu og söðluðu hesta sína og hafa nú verið á þeysireið um sanda og fjöll í heila viku en ferðinni lýkur í dag. Þarna má sjá hópinn, 30 manns og 120 hesta, flengjast niður Lambahólana á Höfðabrekkuheiðinni. Yngstu reiðmennirnir eru frænk- urnar Oddný Lilja og Rakel Ösp, sex og sjö ára gamlar, sem eru alvanar hestakonur þrátt fyrir ungan aldur. Engum sög- um fer af rasssæri og harðsperrum ættmennanna! Á FÁKUM FRÁUM FERÐAST FJÖLSKYLDAN Morgunblaðið/Árni Sæberg Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is ÁÆTLAÐ hefur verið að ríkissjóður tapi árlega 200-250 milljónum króna af skatttekjum vegna þess að fólk dælir litaðri dísilolíu á fólksbíla, en olían er aðeins ætluð á vinnutæki. Í dag er aðgangur að litaðri olíu nánast óheftur. Olían er seld á fjöl- mörgum sjálfsafgreiðslustöðvum og getur fólk notað venjulega dælulykla til að kaupa hana. Embætti ríkisskattstjóra vill tak- marka aðgang að olíunni og hefur sent tillögur þar að lútandi til fjár- málaráðuneytisins, að sögn Jóhann- esar Jónssonar, deildarstjóra gjalda- deildar. Samkvæmt þeim verður óheimilt að afgreiða litaða olíu á sjálfsafgreiðslustöðvum nema greitt verði með sérstöku viðskiptakorti. Þeir einir geti haft slíkt kort undir höndum, sem hafi heimild til að nota olíuna. Ríkisskattstjóri kallaði eftir gögn- um frá olíufélögunum fyrir árið 2008. Það ár voru 7 milljón lítrar seldir á sjálfsafgreiðslustöðvum í u.þ.b. 97 þúsund afgreiðslum. Í 81% tilvika var dælt innan við 100 lítrum, sem er langtum minna en geymar vinnuvéla taka allajafna. Milljónasvindl með litaða olíu Ríkisskattstjóri vill takmarka aðgang almennings að olíunni  Vilja hefta aðgang | 14 ÚTLIT er fyrir mikinn og góðan heyfeng víðast hvar um landið. Hey- skapur hefur gengið vel enda tíð- arfar hagstætt. Þeir sem snemma gátu slegið tún sín hafa margir lokið fyrri slætti, eða fyrsta slætti eins og nú er farið að taka til orða því slá þarf þrisvar þar sem snemma er byrjað og vel sprettur. Þeir bændur sem beitt hafa tún eru skemmra á veg komnir. Tún hefur kalið á vissum svæðum á Norðausturlandi, einkum inn til sveita, til dæmis í Mývatnssveit og víðar í Suður-Þingeyjarsýslu. Lítil uppskera verður af túnum sumra bæja vegna þessa en bændur geta yfirleitt bjargað sér með því að leigja tún jarða þar sem ekki er bú- ið. „Ég veit ekki annað en að allt sé eins og best verður á kosið,“ segir Sveinn Sigurmundsson, fram- kvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands, þegar leitað er frétta af heyskap. Þá hefur kál og annað grænmeti sprottið vel í hitanum í sumar. Garð- yrkjubændur hafa þurft að vökva meira en vanalega. | 6 Búist við miklum heyfeng og góðum ÍBV og Keflavík skildu jöfn, 2:2, í úrvalsdeild karla í gærkvöld. Öll mörkin komu á fyrsta hálftímanum og rauða spjaldið fór á loft. Íþróttir Fjögur mörk og rautt spjald Glæsilegu Landsmóti Ungmenna- félags Íslands lauk á Akureyri í gær og heimamenn í ÍBA fögnuðu sigri í stigakeppni mótsins. Glæsilegu Lands- móti UMFÍ lokið Badmintonkonan Ragna Ingólfs- dóttir ætlar að koma enn sterkari til leiks eftir meiðsli og stefnir á Ól- ympíuleikana í London 2012. Ragna að komast á ferðina á ný

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.