Morgunblaðið - 13.07.2009, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2009
STÆRSTA BÍÓOPNUN Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2009
VINSÆLASTA GRÍNMYND
ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
53.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU!
MISSIÐ EKKI AF STÆRSTU
OG SKEMMTILEGUSTU
TEIKNIMYND ÁRSINS!
ATH: FYRSTA SÝNING ER KL. 13:30 Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
/ AKUREYRI
BRUNO kl. 8 - 10 14
THE HANGOVER kl. 8 12
TRANSFORMERS 2 kl. 10 10
/ KEFLAVÍK
BRUNO kl. 8 - 10 14
TRANSFORMERS 2 kl. 10 10
ÍSÖLD m. ísl. tali kl. 8 L
/ SELFOSSI
BRUNO kl. 8 - 10 - 11 14
TRANSFORMERS 2 kl. 8 10
„STÆRRI, FYNDNARI, FLOTTARI ...
EF ÞÚ FÍLAÐIR FYRSTU MYNDINA,
ÞÁ ÁTTU EFTIR AÐ DÝRKA ÞESSA!“
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
„KRAFTMIKIL ADRENALÍNSPRAUTA
FRÁ UPPHAFI TIL ENDA.”
„RÚSSÍBANAMYND SUMARSINS ...”
S.V.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI,
KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
ÞÆR fregnir berast nú frá kvik-
myndasmiðjunni Hollywood að til
standi að gera mynd í fullri lengd
byggða á sjónvarpsþáttunum um
Strandverði (Baywatch). Leik-
stjórinn Jeremy Garelick hefur
verið ráðinn til verksins en ekki
hefur verið staðfest hvort góð-
kunningjarnir Pamela Anderson,
Yasmine Bleeth og David Hassel-
hoff muni taka að sér hlutverk í
myndinni.
Strandverðir voru sýndir hér í
Sjónvarpinu um árabil og er
örugglega hægt að fullyrða að
sjaldan, ef nokkurn tímann, hafi
hlaupatúrar á ströndinni vakið
eins mikla athygli í sjónvarpi.
Hvort fólk mun flykkjast í bíó
til að sjá íturvaxna kroppa
skokka um í sandinum verður
bara að koma í ljós en ljóst er að
þetta er ekki í fyrsta sinn sem
reynt er að nýta vinsældir sjón-
varpsþátta í kvikmyndahúsum.
Nægir að nefna myndir á borð við
Sex and the City og The Simp-
sons: The Movie, efist einhver um
réttmæti þessarar staðhæfingar.
Hér skulu svo tekin nokkur
dæmi um sjónvarpsþætti sem
gaman væri að sjá á hvíta tjald-
inu, og eins tilteknir nokkrir
þættir sem sannarlega má vona
að engum detti nokkurn tímann í
hug að gera úr kvikmynd í fullri
lengd.
Strandverðir í bíó
Hvaða þætti væri gaman að sjá í formi kvikmynda?
Hvaða þættir mega alls ekki verða að kvikmyndum?
Góðkunningjar Derrick og Harry Klein á góðri stundu.
Flottir Carson og Karl yrðu eitthvert flottasta tvíeyki sjónvarpssögunnar. Strandverðir Rauðklæddu kropparnir eru á leið í kvikmyndahús.
Með gítarinn Hún Tyra Banks kann sannarlega að sitja fyrir.Trúðar Þeir Casper og Frank eru fyndnir.
1. Lost
Það er mjög langt síðan nokkur
hætti að botna í tímaflakkandi
söguþræði um strandaglópana í
Lost. Því er ólíklegt að margir
myndu flykkjast í kvikmyndahús til
að sjá framhald á endaleysunni.
Ekki nema myndin héti eitthvað á
borð við Lost Forever!
2. Guiding Light
Það er búið að klóna Revu og því
fátt sem á eftir að dekka á þeim
bænum. Hætt er við að fram-
haldmyndirnar yrðu líka einum of
margar. Ef Leiðarljós yrði hinsvegar
einhverntíman að kvikmynd væri
þó nauðsynlegt að skipta aðalleik-
urunum reglulega út gegnum alla
myndina. „Alan Spaulding er nú
leikinn af...“
3. Americas Next Top Model
Af sumum fær maður aldrei nóg.
Tyra Banks er ekki ein þeirra.
4. Popppunktur, Gettu betur...já og
bara allir spurningaþættir
Heppilegt sjónvarpsefni í 40
mínútur, en hæpið að nokkur myndi
nenna á mynd í fullri lengd byggða
á spurningaþáttum í sjónvarpi.
5. E.R. III
Kvikmynd um bráðamóttöku, þar
sem talað er um sleglatif í tvo tíma.
Áhorfendur yrðu veikir úr leið-
indum. Ekki einu sinni George Cloo-
ney myndi ná að gera það áhuga-
vert, eða hvað?
Þættir sem ættu aldrei að verða kvikmyndir
1. Derrick
Það er bæði synd og skömm að
enginn skuli hafa haft vit á því að
gera bíómynd í fullri lengd um þá
félaga Oberinspektor Stephan Der-
rick og Harry Klein áður en stórleik-
arinn Horst Tappert safnaðist til
feðra sinna í fyrra. Það er því orðið
of seint því enginn kemst með
tærnar þar sem Tappert hafði baug-
ana...nema þeir allra liðugustu.
Eftir standa þó minningarnar um
mögnuð föstudagskvöld í Sjónvarp-
inu.
2. Queer Eye for the Straight Guy
og Nýtt útlit
Þeir Karl Berndsen og Carson
Kressley yrðu magnað tvíeyki á
skjánum. Mynd sem allir myndu
vilja sjá, hvort sem þeir þori að við-
urkenna það eða ekki.
3. Nýjasta tækni og vísindi
Það eru margir sem sakna Sig-
urðar H. Richter af skjánum og
fregnum af tækninýjungum. Miðað
við vinsældir þátta á borð við C.S.I.
ætti þó að vera auðvelt að fylla
heila bíómynd af ævintýralegum
tækninýjungum af ýmsu tagi. Rich-
ter-skalinn væri tilvalið nafn á
myndina, sem myndi hrista duglega
upp í hverjum áhorfanda.
Það yrði svo algert skilyrði að hið
upprunalega stef þáttanna yrði
notað óbreytt.
4. Klovn
Þeir Frank og Casper hafa sama
aðdráttarafl og David Brent í The
Office, óbærilega fyndnir en ein-
staklega óþægilegir áhorfs.
Hinir bráðfyndnu Frank og Ca-
sper gætu auðveldlega haldið úti
heilli bíómynd með yfirmáta vand-
ræðalegum uppákomum.
5. Arrested Development
Þessir stórgóðu þættir urðu allt
of fáir, en hætt var framleiðslu í
miðri þriðju þáttaröð vegna áhorfs-
leysis í Bandaríkjunum. Reglulega
hafa borist fregnir af því að til
standi að gera bíómynd um Bluth
fjölskylduna hrikalegu en ekkert
fengist staðfest í þeim efnum enn,
því miður.
Sjónvarpsþættir sem gaman væri að sjá sem bíómyndir