Morgunblaðið - 13.07.2009, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 194. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Rútur ferjaðar á milli
Tómar rútur eru ferjaðar milli
landshluta til að flytja farþega
skemmtiferðaskipanna í skoðunar-
ferðum frá höfnum landsins og leið-
sögumenn fara landshluta á milli til
að sinna þessum verkefnum. Sífellt
fleiri skemmtiferðaskip hafa viðdvöl
hér á landi. Í gær var mikill anna-
dagur hjá þeim sem skipuleggja
skoðunarferðir. Þrjú stór skip voru á
Akureyri og ferja þurfti tíu til tólf
rútur til Reykjavíkur til að taka við
farþegunum þar í dag. »4
Annir vegna strandveiða
Mikið annríki er hjá björgunar-
sveitum Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar vegna strandveiðanna. Út-
köllum hefur fjölgað stórlega frá því
þær hófust. Framkvæmdastjóri fé-
lagsins telur æskilegt að halda ör-
yggisnámskeið fyrir þá sem stunda
þessar veiðar. »6
Kal í túnum
á Norðausturlandi
Meira kal er í túnum á Norð-
austurlandi en verið hefur um árabil.
Verst er ástandið í Suður-Þingeyjar-
sýslu, einkum hátt yfir sjó í inn-
sveitum, eins og til dæmis í Mý-
vatnssveit og á hæstu bæjum í
Aðaldal. Bóndinn í Klambraseli telur
að 60% túnanna séu kalin. »6
Lituð olía ratar á fólksbíla
Áætlað hefur verið að ríkið tapi
árlega 200 til 250 milljón króna
skatttekjum vegna þess að fólk dæl-
ir litaðri dísilolíu á fólksbíla. Verið er
að undirbúa breytingar á afgreiðslu
litaðrar olíu. Verður þá aðgangur að
sjálfsafgreiðsludælum takmarkaður
við þá sem hafa heimild til að nota
olíuna. »14
SKOÐANIR»
Staksteinar: Bætur fyrir glæpi
samfélagsins
Forystugreinar: Svik við samfélagið
Erfiðleikar í Afganistan
Pistill: Andardráttur eigendanna
Ljósvakinn: Dægrin líða með
Shepard Smith
UMRÆÐAN»
Þjóðarhagur umfram allt annað
Skógrækt, landgræðsla og …
Frekja frjálshyggjunnar
Þjóðin ráði örlögum …
Heitast 15°C | Kaldast 7°C
Skýjað og dálítil súld
á austanverðu landinu
en annars skýjað með
köflum og stöku skúrir
SV-lands. »10
Sæbjörn Valdimars-
son fjallar um vasa-
klútamyndina Á ég
að gæta systur
minnar? sem nú er
sýnd í bíó. »28
KVIKMYND»
Afar
átakanleg
TÓNLIST»
Eistnaflug fór fram í
Neskaupstað. »27
Brátt verður gerð
kvikmynd um
Strandverðina. En
henta allir sjón-
varpsþættir hvíta
tjaldinu? »29
SJÓNVARP»
Alls ekki
í bíó!
BÆKUR»
Íslensk samtímamyndlist
á bók í Þýskalandi. »24
TÓNLIST»
Megas og Senuþjófarnir í
góða veðrinu. »28
Menning
VEÐUR»
1. Líkt og suðræn sólarströnd
2. Starfsmenn AGS mótmæltu
3. Stefnir í heitasta dag sumars
4. Eyjamenn fengu dýrmætt stig …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
STÚLKNAKÓRINN Graduale No-
bili vann til tvennra verðlauna á
kóramóti í Wales um helgina. Hóp-
urinn vakti
mikla eftirtekt
og var boðið að
syngja á mun
fleiri stöðum en
áætlað var, með-
al annars í mót-
töku fyrir
hæstráðendur
keppninnar.
Stjórnandinn
Jón Stefánsson sagðist þó ekki
viss hvort verndari keppninnar,
Karl Bretaprins, yrði þar við-
staddur. »26
Graduale Nobili
á verðlaunapall
í Wales
Jón Stefánsson
FORNLEIFAFRÆÐINGAR munu í
sumar rannsaka elsta bæinn í
Glaumbæ í Skagafirði en hann er í
túninu neðan við byggðasafnið. Sig-
ríður Sigurðardóttir safnstjóri von-
ast til að finna þar elstu smiðjuna í
Glaumbæ enda telur hún að það
myndi renna stoðum undir kenn-
ingar hennar um bæjarheitið. »9
Leitað að smiðj-
unni í Glaumbæ
HEITASTI dagur sumarsins á höfuðborgarsvæð-
inu var í gær og eins og verða vill á slíkum blíð-
viðrisdögum flykktist fólk í sundlaugarnar og
Nauthólsvíkina. Þegar heitast var mældist hitinn
rúmar 22°C sem er nokkuð frá Reykjavíkurmet-
inu en 30. júlí í fyrra náði hitinn 25,7°C.
SÓL OG SUMARYLUR Í REYKJAVÍK
Morgunblaðið/Golli
Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur
svanbjorg@mbl.is
„ÞAÐ hefur nú sjaldan sést annað
eins af sætukoppum og núna,“ segir
Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og
berjaáhugamaður. „Auðvitað er
aldrei hægt að vera alveg viss; til eru
fræ sem aldrei verða blóm! En það
lítur vel út með berjasprettuna í ár.
Margir sætukoppar eru nú þegar
orðnir að eldrauðum berjum sem
vonandi ná þeim þroska að verða blá
og bústin.“
Gleði og gómsætar máltíðir
Sveinn Rúnar kveðst hafa heyrt
frá fólki víðsvegar af landinu og allir
séu sammála um að berjaspretta
verði með því mesta. „Ég var rétt í
þessu að koma úr lynginu á Lyng-
dalsheiðinni. Sætukopparnir eru
komnir skemur af stað þar heldur en
t.d. í Borgarfirðinum en hins vegar
var mikið af agnarsmáum grænjöxl-
um á krækiberjalynginu.“
Sveinn Rúnar segist eiga von á að
berin verði snemma á ferðinni í ár
líkt og í fyrra. „Þetta fer að verða
miðsumariðja að fara í berjamó og
ég á allt eins von á að geta brugðið
mér í berjamó í lok mánaðar allavega
til að handtína.“
Ekki er ólíklegt að kreppan ýti við
fólki og það sæki meira í berjamó.
„Ég hef nú alltaf verið að vonast til
að fólk nýtti betur þessar gjafir nátt-
úrunnar. Berin eru þvílík uppspretta
gleði og gómsætra máltíða. Í góðu
árferði er líka nóg af þeim og maður
þarf ekki að fara langt til að komast í
gott lyng. Hér í Reykjavík og allt um
kring eru gjöfulir berjamóar. Það er
nóg fyrir alla.“
Saftin vakti lukku í Palestínu
Sveinn Rúnar býst við að einhverj-
ir taki við sér og nýti berin til ný-
sköpunar. „Það er framleitt íslenskt
vín úr bláberjum sem kvað vera gott.
Annars stendur nú ljúffeng saftin
fyrir sínu. Ég færði einmitt vinum
mínum í Palestínu hnausþykka eð-
alsaft úr aðalbláberjum í síðustu ferð
minni þangað. Saftin gerði gríðar-
lega lukku,“ segir Sveinn Rúnar sem
segist einnig sem læknir mæla ein-
dregið með meinhollum berjunum.
Berjatínsla fer að
verða miðsumariðja
Allar líkur eru á
góðu og gjöfulu
berjasumri
Morgunblaðið/Steinunn
Berjaspretta Líkur eru á gjöfulu
berjasumri í ár líkt og í fyrra