Morgunblaðið - 13.07.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2009
Hringdu í 570 2400 og fáðu öryggi í áskrift
www.oryggi.is
Hafðu það gott með Heimaöryggi
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sigtrygg Sigryggsson
sisi@mbl.is
FÆRSLA hringvegarins myndi
stytta leiðina á milli Akraness og
Borgarness um rúma 7 kílómetra og
hringveginn um tæpan kílómetra.
Þessi athugun er tengd endur-
skoðun og mati Vegagerðarinnar á
framtíðarlegu hringvegar á milli
Hvalfjarganga og Borgarness m.a.
með tilliti til umferðaröryggis, um-
ferðarrýmdar, fjölda akreina og stað-
setningar og útfærslu vegamóta.
Vegagerðin telur ljóst að þörf sé á
miklum endurbótum á hringveginum
á þessum kafla, sem þykir óhentugur
og hættulegur. Núverandi lega er
m.a. fyrir botn Grunnafjarðar og yfir
Laxá í Leirársveit, sem margir telja
að geti skapað hættu á þessari fjöl-
förnu leið.
Hin nýja veglína er u.þ.b. 9 kíló-
metra löng og nær frá Akrafjallsvegi,
við jörðina Ós í suðri, yfir Grunna-
fjörð á nýju brúarstæði og norður að
hringveginum í nágrenni Fiskalækj-
ar í fyrrverandi Leirár- og Mela-
hreppi. Svæðið er dreifbýlt og land-
búnaður helsti atvinnuvegurinn.
300 metra löng brú
Hin nýja brú yrði yfir ósa Grunna-
fjarðar, um 300 metrar að lengd og
væntanlega með 5 stöplum.
Þegar kort og loftmyndir af svæð-
inu eru skoðuð virðist borðleggjandi
að brúa mynni Grunnafjarðar og
leggja veginn eins og Vegagerðin
hefur áhuga á. Við ósa fjarðarins er
þegar mikil þrenging frá náttúrunnar
hendi, þar sem Súlueyri og Hvítanes
ganga fram í fjörðinn.
En málið er ekki svona einfalt. Í
áliti Umhverfisstofnunar frá 2006
kemur m.a. fram að Grunnafjörður
sé friðland og eitt mikilvægasta vot-
lendissvæði Íslands, eitt af þremur
Ramsar-svæðum landsins. Hin eru
Mývatn-Laxá og Þjórsárver. Telur
stofnunin að með veglagningu yfir
ósa Grunnafjarðar væri svæðið skor-
ið í sundur með stórfelldri truflun
fyrir fuglalíf. Enn fremur yrðu vatns-
skipti trufluð með framkvæmdinni
með þeim afleiðingum að breyting
yrði á seltu og lífríki leirusvæðanna í
Grunnafirði. M.a. kom fram í álitinu
að Grunnafjörður væri einn af mik-
ilvægustu viðkomustöðum farfugla á
Íslandi, t.d. rauðbrystinga og mar-
gæsar. Þá væri arnarvarp á svæð-
unu.
Árið 2007 var aðalskipulag fyrir
svæðið staðfest af Þórunni Svein-
bjarnardóttur umhverfisráðherra. Sá
hluti skipulagsins sem sneri að veg-
lagningu yfir ósa Grunnafjarðar var
þó ekki staðfestur. Akvörðunina
byggði ráðherra m.a. á áliti Umhverf-
isstofnunar. Í kjölfar ákvörðunar um-
hverfisráðherra ákvað Vegagerðin að
afla frekari upplýsinga um möguleg
umhverfisáhrif veglagningar yfir
Grunnafjörð. Tilgangur þeirrar vinnu
var að leggja mat á helstu umhverfis-
áhrif af þessari veglagningu m.a. með
hliðsjón af áliti Umhverfisstofnunar.
Í greinargerðinni er svarað þeirri
spurningu hvort það geti verið ásætt-
anlegt m.t.t. umhverfisáhrifa að ráð-
ast í þessa vegagerð.
Til þess að geta svarað þeirri
spurningu hefur Vegagerðin meðal
annars látið vinna athuganir á leir-
um, fuglalífi og fornminjum, auk þess
að afla frekari upplýsinga um veð-
urfar og vatnafar á svæðinu.
Meginniðurstaðan er sú að brú
breyti sjávarföllum óverulega og að
nýr hringvegur um Grunnafjörð sé
raunhæfur kostur. Vegagerðin
hyggst hanna brú yfir Grunnafjörð á
þann hátt að full vatnsskipti (sjáv-
arföll) náist, eins og er í dag. Þannig
verði tryggt að áhrifi vegarins á
fuglalíf, smádýralíf og fiskistofna
(lax) verði óveruleg. Vegalagning-
unni verði háttað þannig að sem
minnst truflun verði á lífríkinu á
framkvæmdatímanum.
Vilja brúa Grunnafjörð
og stytta hringveginn
Grunnafjörður friðland og talinn eitt mikilvægasta votlendissvæði landsins
Morgunblaðið/Sverrir
Hvalfjarðargöngin Þegar bílstjórar á norðurleið koma upp úr göngunum beygja þeir flestir til hægri og fara aust-
ur fyrir Akrafjall. Verði hringvegurinn færður yfir Grunnafjörð munu bílstjórarnir flestir beygja til vinstri.
Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri
á Akranesi, er mikill áhuga-
maður um að hringvegurinn
verði lagður yfir Grunnafjörð,
enda flutti hann þrjú mál
þessu tengd þegar hann sat á
Alþingi.
„Þetta er einhver hagkvæm-
asta vegagerð á landinu,“ segir
Gísli. Hún þýði mikla styttingu
vegarins milli Akraness og
Borgarness og að auki verði
öryggi miklu meira á nýjum
vegi en núverandi hringvegi.
Gísli segir að mikið samstarf
sé milli Akraness og byggðanna
í Borgafirði og því muni vega-
bæturnar hafa mikla þýðingu.
Gísli telur að þessir byggða-
kjarnar muni taka upp enn nán-
ara samstarf í framtíðinni og
ekki sé útilokað að komi til
sameiningar sveitarfélaga. Loks
muni hringvegurinn færast nær
Akranesi sem bjóði upp á mikla
möguleika fyrir bæinn.
Einhver hagkvæmasta vegagerð á landinu
TVEIR menn voru teknir fyrir ölv-
unarakstur á milli klukkan níu og
hálfellefu í gærmorgun í umdæmi
lögreglunnar á Selfossi. Þar að
auki voru þrír teknir fyrir ölvunar-
akstur í fyrrinótt. Allir voru sviptir
ökuréttindum til bráðabirgða.
Lögreglan bendir á að betra sé
að nýta daginn til að jafna sig held-
ur en að leggja of snemma af stað.
Það getur reynst dýrkeypt. Tölu-
verður erill var hjá lögreglu víða
um land um helgina.
Lögðu af stað
of snemma eftir
næturdrykkju
STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjár-
málaráðherra hefur talað oftast og
lengst á yfirstandandi sumarþingi
og stefnir hraðbyri að ræðukóng-
stitlinum. Hann hefur mikið forskot
á næsta mann og má líkja yfirburð-
um hans við stöðu FH í fótbolt-
anum.
Steingrímur hefur komið 203
sinnum í ræðustól Alþingis og talað
samtals í 557 mínútur í ræðum og
athugasemdum. Næstur kemur
Birkir Jón Jónsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, sem hefur
komið 123 sinnum í ræðustólinn og
talað í 420 mínútur. Í þriðja sæti er
Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, sem hefur talað
152 sinnum í 407 mínútur samtals.
Steingrímur er á kunnuglegum
slóðum. Hann hefur fjórum sinnum
orðið ræðukóngur Alþingis á þess-
ari öld . sisi@mbl.is
Steingrímur hefur
talað oftast og mestVegagerðin hefur haft til skoð-
unar að færa hringveginn vestur
fyrir Akrafjall, fram hjá Akranesi,
yfir Grunnafjörð og í gegnum
Melasveit í Borgarnes.
FYRIR mistök
við frágang á að-
sendri grein í
Morgunblaðinu
síðastliðinn laug-
ardag birtist
mynd af Kára
Páli Óskarssyni
með grein Sig-
þórs Sigurðs-
sonar. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Röng mynd birtist
með aðsendri grein
Sigþór Sigurðsson