Morgunblaðið - 13.07.2009, Síða 2

Morgunblaðið - 13.07.2009, Síða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Tempur – 15 ár á Íslandi Frábær afmælistilboð í júlí Te m pu r 15 ár á Ísland i Te m pur 15 ár á Ísl an d i Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is EMBÆTTI landlæknis hefur pantað 300 þúsund skammta af bóluefni gegn svínaflensuveirunni H1N1. Framleiðslan er að hefjast á bóluefn- inu og er von á því á haustmánuðum. Skammtarnir eiga að duga til að bólusetja helming þjóðarinnar. Kostnaður hleypur á hundruðum milljóna. „Þegar bóluefnið kemur gerum við ráð fyrir að margir verði þegar búnir að fá flensuna. Við ætlum því að ein- beita okkur fyrst og fremst að áhættuhópum, eins og þeir verða skil- greindir þegar þetta kemur. Þetta verður þá fyrir þann helming þjóðarinnar sem við höfum bólu- efni. En svo höf- um við auðvitað inflúensulyf líka, eins og Tamiflu og Relenza,“ segir Haraldur Briem sóttvarnarlæknir. Bólusetja þarf tvisvar, þannig að 300 þúsund skammdar duga fyrir helm- ing þjóðarinnar. Breytist í venjulega flensu Verið er að endurskilgreina hverj- ir teljist vera í áhættuhópum. „Venjulega mælumst við til þess að allir sem eru komnir yfir sextugt nýti sér hina árstíðabundnu bólusetningu. Nú kann þetta að breytast. Það getur verið að við leggjum áherslu á að yngra fólkið láti bólusetja sig því það sýnir sig að þeir sem eru yfir sextugu virðast einhvern tímann á árum áður hafa komist í kynni við inflúensu sem líkist þessari. Þannig virðist eldra fólkið vera svolítið varið, eins og var t.d. í spænsku veikinni,“ segir Har- aldur. Reiknað er með að svínaflensan breytist í venjubundna inflúensu síð- ar meir, að sögn Haralds, og þá verði samið um kaup á bóluefninu á hverju ári þar eftir. Hálf þjóðin bólusett  Landlæknisembættið hefur pantað bóluefni gegn svínaflensuveirunni  Væntanlegt til landsins á haustmánuðum  Forgangshópar endurskilgreindir » Bóluefnið dugar fyrir um 150 þúsund manns » Efnið kostar nokkur hundruð milljónir króna » Fjórir hafa greinst með svínaflensu hér á landi » Búist við fleiri tilfellum þegar líður á sumarið Haraldur Briem TANKARNIR KOMNIR Á ÁFANGASTAÐ Morgunblaðið/Jón Sigurðsson leið inn fjörðinn. Verksmiðjan verður notuð við nýja loðnubræðslu HB Granda á Vopnafirði. gærkvöldi til Vopnafjarðar. Ferðin tók þrjá daga og var myndin tekin þegar skip og farmur voru á PRAMMI sem flytur tíu stóra mjöltanka fiski- mjölsverksmiðju HB Granda úr Örfirisey kom í „ÉG lít út eins og rassskelltur karfi af allri sólinni og ég er orðinn býsna þreyttur. Það verður gott að fara í langt og gott bað eftir slarkið,“ segir Jón Gunnar Benjamínsson sem kom til Reykjavíkur í gær úr frækilegri ferð um hálendið á fjórhjóli. Eitt af markmiðum ferðarinnar var að safna í sjóð til að bæta aðgang fatlaðra í Landmannalaugum og skoða aðgang fyrir fatlaða sem hingað til hafa ekki fjölmennt upp á hálendi. Lamaðir þeysa um allar koppagrundir Þess verður líklega ekki langt að bíða að lamaðir þeysi um allar koppagrundir því Jón Gunnar og Ingólfur Stefánsson, ferðafélagi og vinur hans hjá ferðaskrifstofunni Safaris, hyggjast skipuleggja ævintýraferðir fyrir fatlaða. Jón Gunnar segir að vissulega þurfi að gera nokkrar úrbætur á hálendinu. „Skálarnir eru gamlir og reistir á tímum þegar fólk í hjólastólum var ekki að þvælast þar um,“ segir hann og hlær. „Hins vegar eru það engar stórframkvæmdir, það væri kannski dagsverk fyrir tvo að laga skálann í Nýjadal.“ Hann segir ferðina hafa gengið vonum framar. Einu sinni hafi hann gert ferðafélögum sínum þann vinargreiða að festa sig í sandbleytu til að leyfa þeim að nota græjurnar og draga sig upp. Þá hafi taska með öllu hans hafurtaski gleymst í skálanum í Kistufelli „Það varð nú til gæfu því vélaverkstæðið Kistufell frétti af þessu og ákvað að gefa 100 þúsund krónur í söfnunina. Og á meðan ferðafélagi minn þvældist til baka til að endurheimta töskuna borðaði ég lummur hjá landverði.“ svanbjorg@mbl.is Ætlar að skipuleggja æv- intýraferðir fyrir lamaða Morgunblaðið/Golli Hálendisfarinn Jón Gunnar Benjamínsson (t.v.), sem er lamaður fyrir neðan mitti, nýkominn til Reykjavíkur.  Lætur ekki lömun stoppa sig  Fór um hálendið á fjórhjóli ANNIE Mist Þórisdóttir og Svein- björn Sveinbjörnsson voru í 2. og 14. sæti á heimsleikunum í CrossFit í Kaliforníu í gærkvöldi þegar sjö lot- um af átta var lokið. Alls hófu 75 karl- ar og 75 konur keppni á laugardaginn en aðeins 16 efstu í hvorum flokki fengu að halda áfram keppni í gær. Meðal þeirra keppnisþrauta sem þau hafa glímt við eru langhlaup, róður, beiting sleggju til að reka járnstöng niður í jörðina og sprettur upp bratta brekku með þunga sandpoka. Annie og Sveinbjörn eru fyrstu Ís- lendingarnir sem taka þátt í leikun- um en þeir voru nú haldnir í þriðja sinn. Þau unnu sér inn þátttökurétt þegar þau sigruðu á íslensku Cross- Fit-leikunum en bæði eiga þau að baki langan feril í íþróttum, t.a.m. á skíðum, í fimleikum, Tae Kwon Do, dansi, stangarstökki og Bootcamp. ylfa@mbl.is Hraust Annie Mist Þórisdóttir og Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Góður árangur á CrossFit-heimsleikum Komust í gegnum síuna TVEIMUR jeppum var ekið út af veginum í Mývatnsöræfum í gær- kvöldi. Tilkynnt var um bílveltu klukkan 17 og að tveir væru slasaðir í bílnum. Lögregla fór á staðinn ásamt sjúkrabílum frá Húsavík en í þann mund sem hún kom á vettvang var tilkynnt um aðra bílveltu 13 km austar. Þar var kona slösuð. Konan var flutt til Húsavíkur og reyndist lítið slösuð. Parið í fyrra slysinu var hins vegar meira slasað og var það flutt til Akureyrar. Slösuðust í bílveltum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.