Morgunblaðið - 13.07.2009, Page 9

Morgunblaðið - 13.07.2009, Page 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2009 Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is REYNT verður að finna járnsmiðj- una í Glaumbæ þegar elsti skáli bæj- arins verður rannsakaður í sumar. Finnist smiðjan getur það rennt stoð- um undir þá kenningu safnstjórans að bærinn hafi tekið nafn sitt af gjall- anda frá járnvinnslunni en ekki glaum og gleði hjá fólkinu. Vísbendingar hafa fundist um að járn hafi verið unnið í Glaumbæ og smiðjur voru á bæjum í nágrenninu. Jarðvegurinn er rauðuríkur. Þá hefur fundist móaska, rauðleit aska sem sérfræðingar telja vísbendingar um járnvinnslu. Sigríður Sigurðardóttir, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga í Glaumbæ, telur að nafn bæjarins sé af þessu dregið. „Þetta gefur auga- leið, gjallandi hljómurinn frá smiðj- unni hefur kallað á nafnið,“ segir Sig- ríður Sigurðardóttir. Hvað er undir yfirborðinu? Vísindamenn frá Massachusetts- háskóla í Boston hafa unnið við forn- leifarannsóknir í Skagafirði frá 2001. Megintilgangur rannsóknanna er að þróa jarðsjártækni til að skoða forn- minjar í jörðu. Auðvelt er að sjá grjóthleðslur en nákvæmari tækni þarf til að greina torfhleðslur. Þeir hafa tekið fyrir Langholtið í vestanverðum Skagafirði. Þar háttar þannig til að allir bæirnir hafa verið fluttir upp á holtið á svipuðum tíma. Einn af stjórnendum rannsókn- arinnar, Douglas Bolender, segir að elstu bæjarstæðin séu vel varðveitt í jarðvegi og gott að aldursgreina minjarnar vegna greinilegra ösku- laga. Þá segir hann að aðstæður séu svipaðar á öllu svæðinu, ríkir og fá- tækir bændur hafi búið þarna og áhugavert sé að skoða hvenær sá munur hafi farið að koma fram. Bolender segir greinilegt að Stóra- Seyla þar sem stærsti hópurinn vinn- ur og Reynistaður séu elstu bæirnir. Þegar hefur komið í ljós að tveir skál- ar eru á gamla bæjarstæðinu á Seylu, líklega frá sama tíma. Þá hafa þeir „séð“ kirkjugarð og eru að athuga hvort annar eldri sé þar við hliðina. „Við teljum að bærinn á Seylu sé frá víkingaöld. Öskulagið frá 1104 liggur yfir rústunum og bærinn gæti verið frá landnámstímanum,“ segir Douglas Bolender. Hann bætir því við að mannvirkin hafi verið notuð áfram þótt bærinn hafi verið fluttur ofar á holtið. Þannig séu nýrri bygg- ingar ofan á skálanum að hluta, lík- lega fjárhús eða fjós. Í sumar er verið að leita að frjó- kornum í rústunum. Þau geta gefið vísbendingar um hvað ræktað hefur verið. Þá hefur Bolender mikinn áhuga á að finna gamla akra til að ganga enn frekar úr skugga um það. Fornbærinn opnaður Rannsóknir Bandaríkjamannanna hafa nýst Byggðasafni Skagfirðinga vel. Þannig fannst forn skáli í túninu neðan við miðaldabæinn í Glaumbæ. Hann var rannsakaður að hluta. Stefnt er að því að ljúka þeirri athug- un í sumar, sjá hvað skálinn hefur verið stór og nálægar byggingar. Sig- ríður Sigurðardóttir hefur sérstakan áhuga á smiðjunni, eins og fram er komið. „Okkur langar að bæta túninu við safnasvæðið,“ segir Sigríður. Áhugi er á því að byggja upp veggi skálans og smiðjunnar og sýna gestum Byggðasafnsins hvernig landnáms- skálinn var. Bæjarnafnið frá gjall- anda úr smiðjunni?  Safnstjórinn í Glaumbæ vonast til að finna járnsmiðju í elsta bænum og að hún skýri heiti bæjarins  Bandarískir vísinda- menn eru níunda sumarið við rannsóknir í Skagafirði Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Rannsóknir Vísindamenn draga jarðsjá eftir nákvæmum línum yfir landnámsskálanum á Stóru-Seylu á meðan aðrir grafa ofan af minni skálanum. Bærinn var fluttur upp á hæðina þar sem nú sést í gamlan súrheysturn. Lengi hafa allskonar getgátur verið um uppruna bæjarheitis Glaumbæjar og gestir byggðasafnsins spyrja oft um það og koma með eigin tilgátur. Menn hafa velt því fyrir sér hvort heitið sé dregið af hávaða (glamri), gleðskap (glaum og gleði), glymjanda í járnsmiðju eða klukknahljómi. Þórhallur Vilmundarson prófessor taldi að heitið gæti verið dregið af Gamla bæ en stafir fallið brott og víxlast. Sú kenning getur í sjálfu sér staðist því vitað er að bærinn var fluttur. Kenningin um að heitið sé fengið frá glymjanda í járnsmiðjunni heillar Sigríði Sigurðardóttur safnstjórna mest. Auðvelt er að ímynda sér glamr- ið í járninu enda vitað að lengi hefur verið smiðja í Glaumbæ og góðir járnsmiðir unnið þar járn, bæði úr mýrinni og innflutt. „Við þurfum bara að finna elstu smiðjuna til að vera viss,“ segir Sigríður. helgi@mbl.is Margar tilgátur uppi Skil Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn „Senda inn efni“ veljið „Senda inn minningargrein“ þar sem fram koma nánari leiðbeiningar. Skilafrestur Minningargrein sem á að birta á útfarardegi verður að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Birting getur dregist þó greinin berist innan skilafrests þar sem pláss er takmarkað. Sami skilafrestur er á greinum vegna útfarar í kyrr- þey. Allar greinar birtast jafnframt á vefnum www.mbl.is/minningar Lengd Hámark 3.000 slög. Engin lengdarmörk eru á greinum sem birtast á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, „Hinstu kveðju“, 5–15 línur. Formáli Nánustu aðstandendur skulu rita formála og senda inn, skv. leið- beiningum á mbl.is Undirskrift Minningargreinahöfundar noti skírnarnöfn sín undir greinunum. Minningargreinar og skil Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skoðið leiðbeiningar á mbl.is Stórhöfða 21 við Gullinbrú, sími 545 5500 www.flis.is Vegleg verðlaun fyrir sæti 1-3. Aukaverðlaun fyrir að vera næstur holu á öllum par 3 holunum. Keppnisgjald kr. 3.500. Upplýsingar í síma 482 3380. Skráning á golf.is – 18 holu punktakeppni – FLÍSABÚÐIN OPEN á Öndverðarnesvelli laugardaginn 18. júlí 2009 lím og fúguefni flísaskerar og flísasagir RUBI Dregið verður úr skorkortum (aðeins viðstaddra) að lokinni keppni. Fjöldi glæsilegra vinninga m.a. Tivoli Audio, glös frá EXÓ o.fl. Allt fyrir baðherbergið Allt fyrir baðherbergið Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 ÚTSALAN HAFIN opið virka daga 10-18 Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.