Morgunblaðið - 13.07.2009, Page 12

Morgunblaðið - 13.07.2009, Page 12
12 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2009 Elliðaár, örnefni og veiði ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 46 31 1 05 /0 9 • Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is Þriðjudaginn 14. júlí mun Ólafur E. Jóhannsson leiða fræðslugöngu Orkuveitunnar í Elliðaárdal, en Elliðaárnar sjálfar verða umfjöllunarefnið að þessu sinni. Fjallað verður um laxveiðar í Elliðaánum fyrr og nú og sagðar sögur sem tengjast laxveiðum í ánni. Þá verður sagt frá nokkrum helstu veiðistöðum í ánni, veiðiaðferðum og fleiru sem við kemur stangaveiði. Lagt verður af stað frá Minjasafni Orkuveitunnar í Elliðaárdal kl. 19:30. Hulu svipt af leyniverkefni Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is BANDARÍSKA leyniþjónustan (CIA) leyndi fyrir Bandaríkjaþingi upplýsingum um leyni- legt verkefni í hryðjuverkastríðinu, að því er dagblaðið New York Times hefur eftir Leon E. Panetta, núverandi yfirmanni CIA. Segir í blaðinu að ákvörðunin um að leyna verkefninu hafi verið tekin með blessun Dicks Cheney, fyrrverandi varaforseta Bandaríkj- anna í tíð George W. Bush forseta. Blaðið hefur þetta raunar ekki beint eftir um helgina var fullyrt í nýrri skýrslu að skrif- stofa hans hefði gegnt lykilhlutverki í að halda hlerunum sem fóru fram án heimildar leynd- um, fyrir öðrum en mönnum í innsta hring. Náði ekki til njósna heima fyrir Heimildarmenn New York Times segja leyniverkefnið hvorki hafa verið hluta af yfir- heyrslum CIA né falið í sér njósnir heima fyrir. Að öðru leyti er lítið vitað um það. Málið þykir fyrst og fremst áhugavert fyrir þá sök að það þykir varpa ljósi á þá leyndar- hyggju sem viðgekkst í hryðjuverkastríðinu. Panetta heldur heimildar- mönnum sem hafa upplýs- ingar um vitnisburð hans fyrir þingnefndum sem fara með leyniþjónustumál. Panetta fyrirskipaði að verkefninu skyldi hætt þeg- ar hann frétti af því í júní en það fór aldrei í fullan gang þótt því væri ýtt úr vör skömmu eftir hryðju- verkaárásirnar í september 2001. Cheney hefur ekki tjáð sig um málið en fyrr Dick Cheney Í HNOTSKURN »Panetta hafnaði á sínum tíma þeirrifullyrðingu Nancy Pelosi, forseta full- trúadeildar Bandaríkjaþings, að þingið hefði ekki haft neina vitneskju um vatns- pyntingar í hryðjuverkastríðinu. »Hann tók við af Michael Hayden semyfirmaður CIA í febrúar en var áður m.a. starfsmannastjóri í Hvíta húsinu á fyrra kjörtímabili Bills Clintons. SÚ SKOÐUN er orðin útbreidd að hersveitir Atlantshafsbandalagsins geti ekki borið sigurorð af talibönum í Afganistan þrátt fyrir eflda sókn gegn þeim að undanförnu. Þetta fullyrðir Athar Abbas, her- foringi í her Pakistans, en hann segir pakistönsku leyniþjónustuna eiga í viðræðum við Mullah Mohammed Omar, leiðtoga talibana í Afganistan, um leiðir til að binda enda á átökin. Segir hann jafnframt pakistönsk stjórnvöld vilja umbun frá Banda- ríkjastjórn fyrir milligöngu sína í málinu í formi tilslakana í deilu Pak- istana og Indverja í Kasmír-héraði sem ekki eru tilgreindar. Vísa ummælunum á bug Abbas lét ummælin falla í viðtali við CNN og voru talsmenn pakist- anskra stjórnvalda fljótir að vísa þeim á bug. Þá sagði Richard Hol- brooke, sérlegur sendiherra Banda- ríkjanna í málefnum Pakistans og Afganistans, að útilokað væri að efnt yrði til viðræðna við talibana fyrr en þeir létu af stuðningi við al-Qaeda. Mikil ólga er nú í Bretlandi í garð framlags Breta til aðgerða Atlants- hafsbandalagsins í Afganistan, þar sem þeir hafa nú misst fleiri her- menn en í Íraksstríðinu, eða alls 184 frá upphafi átaka haustið 2001. Myndir frá útförum breskra her- manna hafa verið áberandi á síðum bresku dagblaðanna síðustu daga og hefur nokkur umræða skapast í kringum þá yfirlýsingu Nick Clegg, leiðtoga Frjálslyndra demókrata, að breskum mannslífum sé kastað á glæ í Afganistan. Með því rauf Clegg samstöðu flokkanna í stuðningnum við átökin en hundruð uppreisnarmanna hafa verið felld í átökum síðustu vikur. Stríðsreksturinn á krossgötum? Sú skoðun nýtur vaxandi fylgis að ekki sé hægt að sigra talibana með hervaldi Reuters Átök Afganskur hermaður við öllu búinn í Wardak-héraði í Afganistan. ÞÆR höfðu ekki færst úr stað fallbyssurnar sem forðum gættu virkis þrælasalanna á Höfðaströnd í Gana þegar Bar- ack Obama Bandaríkjaforseti virti þær fyrir sér um helgina. Á sautjándu öld var virkið, Cape Coast Castle, miðstöð ein- hverrar umfangsmestu þrælasölu á vesturströnd Afríku. Fjöl- skylda forsetans var með honum í för og að sögn viðstaddra var það tilfinningaþrungin lífsreynsla fyrir eiginkonu hans, Michelle, að koma á slóðir forfeðra sinna sem forðum daga voru þaðan sendir í vinnuþrælkun á plantekrum suðurríkja Bandaríkjanna. Hliðið í kastalanum er nú nefnt hliðið sem enginn fær snúið til baka um og settu forsetahjónin, ásamt dætrum sínum, Söshu og Maliu, sig í spor þrælanna þegar þau gengu niður stigann sem lá niður í þrælageymslurnar. Þúsundum þræla var þar haldið við þröngan kost svo vikum skipti þar til þræla- skipin komu til að sækja farminn. Mikil eftirvænting var á meðal Ganabúa vegna heimsóknar forsetans og var hálfgerð þjóðhátíðarstemning á götum Accra í tilefni hennar. Gana er fyrsta Afríkuríkið sunnan Sa- hara sem Obama heimsækir sem forseti og er ástæðan fyrir valinu sú að hann vill senda þau skilaboð til annarra ríkja álf- unnar að lýðræðislegt stjórnarfar í landinu sé öðrum ríkjum til eftirbreytni. Forsetinn ítrekaði þessi skilaboð á þjóðþingi Gana um leið og hann gagnrýndi einræðistilburði í álfunni. Á slóðum þrælasala á Höfðaströnd Reuters BRESK stjórnvöld hafa hraðað af- greiðslu bóluefnis gegn svínaflensu og þegar lagt fram pantanir á 130 milljón skömmtum. Miða áætlanir við að annar hver Breti geti fengið bóluefni fyrir árs- lok og síðan fleiri ef þörf krefur á næsta ári, að því er fram kemur á vef breska dagblaðsins The Times. Íbúafjöldi Bretlands er nú ríflega 60 milljónir og er gengið út frá því að hver þegn þurfi tvo skammta. Von er á fyrstu skömmtunum gegn svínaflensu í september og verður búið svo um hnútana að hægt verði að afgreiða þá til dreifingar á innan við viku. Fimmtán Bretar hafa nú látist af völdum svínaflensu en í síðustu viku féll sá fyrsti frá sem ekki átti við önnur undirliggjandi heilsufars- vandamál að stríða. Birgja sig upp af bóluefni Ógn Notast við grímur í Taílandi. Bretar við öllu búnir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.