Morgunblaðið - 13.07.2009, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.07.2009, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2009 Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Vinnu-málastofn-un og rík- isskattstjóri hafa fengið á þriðja hundrað ábend- inga um bótasvikara frá því byrjað var að taka á móti þeim í maí. Nú hefur verið settur aukinn kraftur í átakið til að ná til bóta- og skattsvik- ara. „Svik á atvinnuleys- isbótum og svört vinna verða ekki liðin,“ segir í auglýsingu þar sem almenningur er hvattur til að senda inn ábendingar. Atvinnuleysisbætur koma úr sameiginlegum sjóðum samfélagsins og er ætlað að hjálpa þeim, sem enga atvinnu hafa. Atvinnuleysisbótum er ekki ætlað að drýgja tekjur fólks, sem hefur önnur úrræði. Í landinu hefur ríkt óform- legur sáttmáli um skyldur rík- isins gagnvart borgurunum. Allir skulu eiga jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu, skólum og félagslegri þjónustu. Í þessum óformlega sáttmála er hins vegar ekkert um réttinn til að misnota kerfið. Um þessar mundir er hið íslenska velferðarþjóðfélag undir mikl- um þrýstingi og þarf krafta- verk eigi að halda uppi gæðum heilbrigðis- og mennta- kerfisins. Krafan um aðhald og nið- urskurð nær til allra stofnana samfélagsins. Fyrir ári þótti sjálfsagt að gera endalausar kröfur til sameiginlegra sjóða samfélagsins. Sú tíð er liðin. Það er sorglegt að við þessar að- stæður skuli fólk reyna að verða sér úti um bætur, sem það á ekki rétt á. Sá sem það gerir er að stela frá samfélaginu. Hvatning til að almennings um að segja til einstaklinga, sem kunni að fara á svig við lögin, getur orkað tvímælis. Í frétt í Morgunblaðinu á föstu- dag kemur fram í máli Bald- urs Aðalsteinssonar, verk- efnastjóra hjá Vinnumálastofnun, að ein- hverjar athugasemdir hafi borist um Stóra bróður. Ábendingar geta hins vegar verið ómissandi þáttur í að koma upp um misferli. Aðal- atriðið er að farið verði var- lega með ábendingarnar og vandlega athugað hvort ann- arlegar hvatir liggi að baki þeim. Einnig verður að gæta þess að herferð af þessu tagi verði ekki til að brennimerkja at- vinnulausa. Ekki má gleyma því að fjöldi fólks á atvinnu- leysisskrá nálgast annan tug þúsunda. Tilvera þessa fólks hefur verið sett á hvolf og það þarf á bótunum að halda á meðan það kemur undir sig fótunum á ný í samfélagi þar sem tækifærin hafa skroppið saman. Svik heyra til und- antekninga, en það verður að vera alveg skýrt að þau verða ekki liðin. Svik úr sameig- inlegum sjóðum eru óþolandi} Svik við samfélagið Átökin í Afgan-istan ætla að reynast Bretum þung í skauti. Á undanförnum tíu dögum hafa 15 breskir hermenn látið lífið í Afganistan og mann- fallið er komið upp í 184 her- menn. Það er meira mannfall en í Írak. Gordon Brown, forsætisráð- herra Bretlands, liggur undir miklu ámæli þessa dagana vegna þátttöku breska hersins í hernaðinum í Afganistan. Hann á erfitt með að sannfæra Breta um að hernaðurinn sé nauðsyn- legur. Vakti athygli að í gær lagði Barack Obama Banda- ríkjaforseti honum lið með því að hrósa Bretum fyrir framlag sitt og ítreka að baráttan við hryðjuverkasamtök og harð- línuhópa í Helmand í Afganist- an snerist um að koma í veg fyrir hryðjuverk annars staðar í heiminum, ekki síst á Bretlandi. Gagnrýnin á Brown felst hins vegar ekki síður í því að breski herinn sé ekki búinn til að tak- ast á við erfið verkefni á borð við þau, sem hann hefur haft með höndum í Írak og Afganist- an. Kröfurnar séu til herafla á borð við þann, sem Bretar ráku þegar þeir voru heimsveldi. Breskir hermenn hafi lélegan búnað og séu illa mannaðir. Oft verði þeir að hörfa vegna manneklu eftir að hafa sótt fram með tilheyrandi mannfórnum. Ef mannfallið í Afganistan heldur áfram er líklegt að þrýstingurinn á Brown muni enn aukast, en hann virðist ætla að halda fast í nauðsyn þess að gefa ekki eftir í Afgan- istan. Obama hefur lagt sérstaka áherslu á að kveða niður upp- reisnina í Helmand, en það er ekki hlaupið að því fyrir ut- anaðkomandi ríki að hafa áhrif á gang mála í Afganistan. Það þekkja Bretar frá 19. öldinni. Rússar hrökkluðust þaðan nið- urlægðir. Mörg mistök hafa verið gerð í stríðinu gegn hryðjuverkum. Innrásin í Afganistan naut hins vegar víðtæks stuðnings og engin eftirsjá að ógnarstjórn Talibana. Hernámi ríkis fylgja hins vegar skuldbindingar og ábyrgð gagnvart borgurum þess. Erfitt er að verja það að hverfa á braut og skilja eftir verra ástand en var fyrir. Á hinn bóginn er hættan á að sog- ast ofan í kviksyndi sem erf- iðara og erfiðara verður að komast upp úr. Hernámi ríkis fylgja ábyrgð og skyldur}Erfiðleikar í Afganistan E ignarhald á fjölmiðlum verður aldrei yfir gagnrýni hafið. Hvers vegna vilja menn eiga fjölmiðla? Það er ekki eins og sá rekstur mali gull – alltént ekki í seinni tíð. Við lifum á tímum tortryggni og fyrir vikið má búast við að allt sem fram kem- ur í fjölmiðlum verði skoðað með hliðsjón af eigendum þeirra. Á fimmtán árum sem blaðamaður og rit- stjórnarfulltrúi á Morgunblaðinu hef ég aldrei fundið fyrir nærveru eigenda þessa blaðs. Hvorki beint né óbeint. Hef ég þó komið að umfjöllun um flesta málaflokka. Ég þekki engin dæmi þess að fyrri eigendur blaðsins hafi ekki virt sjálfstæði ritstjórnarinnar og frægt var þegar þeir voru á öndverðum meiði við blaðið sjálft í fjölmiðlafrumvarpsmálinu. Enda þótt lítil reynsla sé komin á nýju eigendurna hef ég enga ástæðu til að ætla að þeir muni ganga fram með öðrum hætti. Ljóst er að bréf núverandi útgefanda blaðsins hafa vakið mikla athygli úti í samfélaginu og við starfsmennirnir bíðum með sömu eftirvæntingu eftir þeim bréfum og aðrir. Kallað hefur verið eftir opnara samfélagi. Er þetta ekki partur af því? Ástæðan fyrir því að ég vek máls á þessu er sú að á liðnum vikum hafa skrif mín um sjávarútvegsmál vakið talsverð viðbrögð hjá lesendum blaðsins, einkum greina- flokkur sem við Skapti Hallgrímsson blaðamaður og Ragnar Axelsson ljósmyndari unnum í lok maí. Tilgang- urinn með honum var að draga fram afstöðu útgerðarmanna til fyrirhugaðrar fyrning- arleiðar stjórnvalda og nýrrar löggjafar um frjálsar strandveiðar. Eðlilegasti hlutur í heimi á fréttamiðli í stóru hagsmunamáli. Fljótt kom á daginn að hjörtu útgerð- armanna slógu í takt enda kemur fyrning aflaheimilda sér illa fyrir þá. Við fundum eng- an útgerðarmann sem er fylgjandi fyrningu. Sé hann til vil ég endilega ná af honum tali. Í kjölfarið var viðbragða sjávarútvegs- ráðherra leitað við gagnrýni útgerðarmanna en hann kaus að svara henni ekki efnislega. Viðbrögðin við greinaflokki þessum voru fyrirsjáanleg. Þeir sem eru fyrningarleiðinni andvígir voru ánægðir en þeir sem styðja hana höfðu skrifin á hornum sér. Jafnvel var fullyrt að greinaflokkurinn hefði verið skrif- aður í þeim tilgangi einum að þóknast eigendum Morg- unblaðsins, sem sumir hverjir eru umsvifamiklir í út- gerð. Þingmaður Samfylkingarinnar steig brúnaþungur í ræðustól á Alþingi og hótaði að hætta að lesa Morg- unblaðið. Ekki gat hann þó bent á neina faglega hnökra á umfjölluninni. Kannski hafa eigendur fjölmiðils einhvern tíma andað niður í hálsmálið á honum? Sjálfur hef ég engin tengsl við útgerðina, nema hvað amma mín heitin vann um skeið í fiski. Ritstjóri Morg- unblaðsins hefur heldur aldrei spurt um afstöðu mína til stjórnunar fiskveiða, hvað þá eigendurnir, enda koma skoðanir mínar umfjöllun af þessu tagi ekkert við. Orri Páll Ormarsson Pistill Andardráttur eigendanna Vilja hefta aðgang að lituðu dísilolíunni FRÉTTASKÝRING Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is Þ að er eftir miklu að slægj- ast fyrir bíleigendur ef þeir komast upp með svikin. Lítrinn af venju- legri dísilolíu kostar 178,20 krónur en lítrinn af litaðri olíu kostar 121 krónu. Mismunurinn er 57,20 krónur á lítrann. Ef bensín- geymir fólksbíls tekur 50 lítra kostar því 2.860 krónum minna að fylla tank- inn. Og ef bíll eyðir 15 lítrum á hundr- aði og ekur 20 þúsund kílómetra á ári getur eigandann sparað sér hvorki meira né minna en 170 þúsund krónur á ári. Í undirbúningi er að takmarka að- gang að lituðu dísilolíunni, að sögn Jó- hannesar Jónssonar, deildarstjóri gjaldadeildar hjá embætti Ríkisskatt- stjóra. Embættið hefur rætt við fjár- málaráðuneytið og lagt til ákveðnar breytingar á lögunum. Þær eru fólgn- ar í því að ekki verði leyfilegt að af- greiða litaða olíu á sjálfsafgreiðslu- rstöðvum nema greitt verði með sérstöku viðskiptakorti, sem þeir einir geti haft undir höndum sem hafi heim- ild til þess að nota olíuna. Eru þessar tillögur til skoðunar hjá fjármálaráðu- neytinu. Í dag er aðgangur að lituðu olíunni nánast óheftur og fólk getur keypt hana með venjulegum dælulyklum sem olíufélögin selja. Almenna reglan er sú að óheimilt er að nota vélaolíu (lituðu olíuna) á öku- tæki. Frá þessari reglu eru und- antekningar. Þannig er heimilt að nota vélaolíu á stórvirk vinnutæki, svo sem gröfur, lyftara og dráttarvélar. Einnig ökutæki til sérstakra nota, svo sem steypubíla, körfubíla, mjólkurbíla, beltabifreiðar og námubíla. Þetta eru í mörgum tilvikum ökutæki sem brenna mikilli olíu, þótt þau aki ekki langar vegalengdir. Einnig má kaupa vélaolíu á bíla bjögunarsveitanna í landinu. Venjulegir vörubílar, t.d. þeir stóru bílar sem fólk er að mæta á þjóðveg- unum, hafa ekki heimild til að nota lit- aða olíu. Ökutæki, sem hafa heimild til að nota vélaolíu, eru auðkennd með sérstöku skráningarmerki sem er app- elsínugulur grunnur með svörtum stöfum. Ríkisskattstjóri kallaði eftir gögn- um frá olíufélögunum og kom þá margt athyglisvert í ljós, að sögn Jó- hannesar Jónssonar. Árið 2008 voru t.d. um 7 milljón lítrar seldir af litaðri olíu á sjálfsafgreiðslustöðvum í u.þ.b. 97 þúsund viðskiptum. Af þessum 97 þúsund viðskiptum voru 74% færslur þar sem dælt var innan við 80 lítrum í hvert skipti, í 81% tilvika var innan við 100 lítrum dælt og í 87% tilvika var dælt innan við 120 lítrum í hvert skipti. Á „heitustu“ sjálfsafgreiðslustöðinni voru 89% vipskiptanna 80 lítrar eða minna og í 96% tilvika innan við 120 lítrar. Þessi stöð og aðrar „heitar“ standa afskekkt, þar sem auðvelt er að dæla vélarolíu á bíla svo lítið beri á. Stórvirkar vinnuvélar taka margfalt það magn á tankana sem venjulegur fólksbíll tekur. Um þetta kerfi má segja það sama og um öll kerfi sem fundin eru upp. Þeir menn eru til sem reyna að svindla. Vegagerðin hefur það hlut- verk að fylgjast með hugsanlegri mis- notkun. Að jafnaði eru tekin sýni úr 100-200 bílum í mánuði hverjum. Þá er skyndikönnunum beitt með aðstoð lögreglunnar. Loks eru grunsamlegar sjálfsagreiðslustöðvar vaktaðar svo lít- ið ber á. Morgunblaðið/Ómar Freisting? Dælir þú lituðu olíunni á bílinn þinn þarftu að greiða rúmum 57 krónum minna fyrir lítrann en ef þú grípur dæluna með venjulegum dísil. Misnotkun á lituðu dísilolíunni er opinbert leyndarmál. Áætlað hef- ur verið að ríkið tapi árlega 200- 250 milljón króna skatttekjum vegna þess að fólk dælir litaðri olíu á fólksbíla. HÁAR sektir liggja við misnotkun á lituðu olíunni. Sektin fyrir venju- legan bíleiganda er 200 þúsund krónur sannist á hann misnotkun. Hlutfall mála sem enda með sektum er mjög hátt að sögn Jóhannesar Jónssonar, eða um 95%. Enda eru lögin mjög skýr að hans sögn, skráður eigandi ber ábyrgð á sekt- inni, óháð því hver ekur bílnum hverju sinni. Jóhannes segir að sektir fyrir brot í þessum málum séu háar mið- að við margt annað og því komi það á óvart hve margir bíleigendur virðist vera tilbúnir að taka áhætt- una. Reyndin hefur verið sú að það er hinn venjulegi fólksbílaeigandi sem langoftast hefur verið gripinn með litaða olíu á bílnum sínum. Fá dæmi eru um það að atvinnutæki, svo sem vörubílar, hafi verið gripin fyrir þessi brot. HÁAR SEKTIR ››

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.