Morgunblaðið - 13.07.2009, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 13.07.2009, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2009 ÞETTA ERU FORFEÐUR ÞÍNIR HHHH “Stærri, fyndnari, flottari ... Ef þú fílaðir fyrstu myndina, þá áttu eftir að dýrka þessa!” T.V. - Kvikmyndir.is Frá leikstjóranum Michael Bay kemur ein flottasta HASARMYND SUMARSINS 750 kr. almennt 600 kr. börn MISSIÐ EKKI AF STÆRSTU OG SKEMMTILEGUSTU TEIKNIMYND ÁRSINS! „Á ÉG AÐ GÆTA SYSTUR MINNAR“ FRÁ LEIKSTJÓRA „THE NOTEBOOK“ Áhrifarík og átakanleg mynd sem skilur engan eftir ósnortinn. abigai l bresl in cameron diaz HHH „þessi fallega og átakanlega kvikmynd hlýjar manni bæði um hjartaræturnar og rífur í þær” - Ó. Þ. I., Kvikmyndir.com Byggð á metsölubók Jodi Picault sem farið hefur sigurför um heiminn MISSIÐ EKKI AF STÆRSTU OG SKEMMTILEGUSTU TEIKNIMYND ÁRSINS! HHH „Þessi spræka og fjölskylduvæna bandaríska teikni- mynd er sú þriðja í röðinni og sú besta þeirra“ - Ó.H.T. , Rás 2 „Þetta er góð skemmtun með góð skilaboð og hentar ungum sem öldnum” - Ó.H. T., Rás 2 HHH „Ísöld 3 er kjörin fjölskyldumynd sem á örugglega eftir að njóta vinsælda hjá flestum aldursflokkum” - S.V., MBL MISSIÐ EKKI AF STÆRSTU OG SKEMMTILEGUSTU TEIKNIMYND ÁRSINS! 750 kr. almennt 600 kr. börn Ó.H.T., Rás 2 -M.M.J., kvikmyndir.com -T.V., - kvikmyndir.is - S.V., MBL -bara lúxus Sími 553 2075 Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt í Smárabíó SÝND Í SMÁRABÍÓ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓSÝND Í HÁSKÓLABÍÓ OG BORGARBÍÓ Sýnd kl. 8 og 10Sýnd kl. 4 Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3:30 - 5:45 LEYFÐ Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:15 Sýnd með íslensku tali kl. 4 og 6 Sýnd í 3D með ísl tali kl. 4 Sýnd kl. 7 og 10 The Hurt Locker kl. 8 - 10:45 B.i.16 ára Ice Age 3 (enskt tal/ísl.texti) kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:10 LEYFÐ The Hurt Locker kl. 8 - 10:45 Lúxus Transformers kl. 5 - 8 - 11 B.i.10 ára Ice Age 3 3D (enskt tal án texta) kl. 8 - 10:10 LEYFÐ Transformers kl. 5 Lúxus Ísöld 3 3D (ísl. tal) kl. 3:30 - 5:45 LEYFÐ Gullbrá og birnirnir 3 kl. 3:30 LEYFÐ Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is „VIÐ byrjum þáttinn á fréttaskýr- ingu um Icesave-málið í heild sinni og útskýrum þetta mál frá a til ö,“ segir Sölvi Tryggvason, annar um- sjónarmanna Málefnisins, umræðu- þáttar sem sýndur verður á Skjá einum í kvöld og verður alfarið helg- aður Icesave-málinu mikla. Þorbjörn Þórðarson, blaðamaður á Morgunblaðinu, er hinn umsjón- armaður þáttarins sem unninn er í samstarfi við Moggann. Tilgangurinn er að skýra þetta mikla hitamál út frá öllum hliðum. Leitað verður svara við ýmsum spurningum sem brenna á vörum þjóðarinnar; Hvað er Icesave og hver var tilgangurinn með Icesave- reikningunum? Hvaða áhrif hefur Icesave-samningurinn á gengi ís- lensku krónunnar næstu 7 árin, á þjónustu ríkisins við skattgreið- endur og á lánshæfismat íslenska ríkisins og íslenskra fyrirtækja næstu 7 árin? Hver er helsti ávinn- ingur og helsta áhættan af Icesave- samningnum og er raunhæft að end- ursemja? Davíð Oddsson meðal gesta „Í kjölfar fréttaskýringarinnar verður þetta hefðbundinn umræðu- þáttur með gestum í sjónvarpssal þar sem fjallað verður um málið frá öllum hliðum.“ Davíð Oddsson verður gestur þáttarins en auk þess segir Sölvi að verið sé að vinna í því að fá formenn allra stjórnmálaflokkanna í sjón- varpssal líka. „Ég er þó ekki viss um að þau Steingrímur og Jóhanna komist að þessu sinni,“ segir Sölvi. Einungis er um þennan eina þátt að ræða, en Sölvi segir þó mögulegt að þeir verði fleiri í kjölfarið ef „okk- ur finnst einhverjir þurfa að svara fyrir sig sem ekki koma í sjón- varpsal til okkar í kvöld.“ Þátturinn hefst á Skjá einum í kvöld klukkan 19.30. Hann verður klukkustund að lengd en Sölvi segir þá félaga þó hafa möguleikann á því að lengja hann í annan endann verði umræðurnar þeim mun áhugaverð- ari. Stjórnendur Þorbjörn og Sölvi ætla að fjalla um Icesave-málið. Icesave-málið á mannamáli  Umræðuþátturinn Málefnið á Skjá einum í kvöld „ÞETTA var gjörsamlega frábært og ég er svo hamingjusamur,“ sagði Stefán Magnússon, hæstráð- andi á þungarokkshátíðinni Eistnaflugi, eða sjálftitlaður yfir- pungur, í samtali við Morgun- blaðið í gær. Stefán skorti ekki jákvæðu lýs- ingarorðin til að tjá ánægju sína með hátíðina í ár, sem var sú fimmta í röðinni. „Það var uppselt í fyrsta skipti hjá okkur og þetta hefði ekki get- að gengið betur miðað við ástand sumra hátíðargesta,“ segir Stefán og viðurkennir að talsvert hafi verið um ölvun á svæðinu. „Það er auðvitað alltaf einn og einn fáviti inni á milli þegar svona margir koma saman en við hátíð- arhaldarar erum á því að hátíðin hafi gengið alveg glimrandi vel í það heila. Lögreglan sagðist vera sammála okkur í því og þess vegna er ég glaður.“ Fjöldi hljómsveita kom fram á hátíðinni, meðal annarra hin goð- sagnarkennda Ham. „Þeir voru æðislegir!“ sagði hinn hamingjusami Stefán. „Mínus var líka frábær, það er svo langt síðan ég sá þá spila síð- ast. Svo var Mammút líka æði.“ Hressir Staðahaldarar voru ánægðir með hegðun flestra hátíðargesta. Mínus Þeir Bjarni og Krummi léku fyrir hátíðargesti. Flösuþeytar Menn og konur sveifluðu síðu hári fram og til baka í takt við tónlistina. „Gjörsamlega frábært“  Þungarokkshátíðin Eistnaflug fór fram í blíðskapar- veðri á Neskaupstað um helgina  Flestir höguðu sér vel Ljósmynd/GLT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.